Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
37
Sveinbjöm Beinteins
son - Minningarorð
í Eyrbyggja sögu er sagt frá
Birni Ketilssyni flatnefs, bróður
Auðar djúpúðgu, Helga bjólan, Þór-
unnar hyrnu og Jórunnar manvits-
brekku. Þeir sem þekkja sögurnar
vita að þessi systkinahópur er einn
sá glæstasti sem um getur við land-
nám íslands. Björn var kallaður
hinn austræni því hann „varð þess
viss, at þau (systkinin) höfðu annan
átrúnað, ok þótti honum þat lítil-
mannligt, er þau höfðu hafnat forn-
um sið, þeim er frændr þeira höfðu
haft“.
Nú er fallinn frá Sveinbjörn Bein-
teinsson sem líkt og nafni sinn í
Eyrbyggju var hin síðari ár kenndur
við hinn forna sið og nefndur alls-
heijargoði. Sveinbjörn var enda
hafsjór af fróðleik um sögurnar,
ættfræði, staðfræði, goðafræði og
skáldskap. En hann fór vel með
þann fróðleik, hiúði að honum með
sjálfum sér og miðlaði honum góð-
fúslega ef til hans var leitað.
Kynni mín af Sveinbirni voru
ekki löng en ég er glaður að ég
fékk að kynnast svo verðugum full-
trúa fornra gilda sem virðast vera
að glatast okkur íslendingum. Líkt
og flestir hafði ég tekið eftir þessum
sérkennilega manni í þjóðlífinu en
það var fyrst þegar ég kynnti mér
Bragfræði og háttatal það sem
hann gaf út árið 1953 að ég fór
að veita honum athygli. í þeirri
ágætu bók eru nefndir og skýrðir
450 bragarhættir og það eru allir
þeir hættir sem Sveinbjörn vissi til
að hafa verið ortir undir heilar rím-
ur. En Sveinbjörn gerði meira en
að tína til þessa hætti og nefna þá,
oft með nýjum nöfnum, því hann
gerði sér lítið fyrir og orti háttatal-
ið sjálfur. Við nánari kynni af Svein-
birni sannfærðist ég um að betri
hagyrðingur væri vandfundinn á
20. öld og jafnframt sé ég að sam-
an fór áhugi okkar og virðing fyrir
íslenskri sögu og menningu.
Sveinbjörn var einstakur maður
og ófeiminn við að vera öðruvísi en
samferðamenn sínir, enda þurfti
hann ekki að skammast sín eða
fyrirverða sig fyrir hvað hann var.
Hann var hreinn og beinn, vingjam-
legur, örlátur, hógvær, glaður og
reifur. Þótt hann hefði sínar skoð-
anir á hlutunum var það íjarri hon-
um að troða þeim upp á aðra eða
gera lítið úr hugmyndum annarra.
Hann var viss í sinni sök og hafði
í þeirri vissu öðlast þá ró og um-
burðarlyndi sem einkennir alla and-
ans menn.
Sveinbjörn stofnaði ásamt nokkr-
um öðrum Ásatrúarfélagið fyrir
rúmum tuttugu árum til að halda
á lofti menningararfi okkar. í hug-
um flestra er hann tengdur því fé-
lagi órjúfanlegum böndum og má
segja að það hafi verið gæfa þessa
félagsskapar að Sveinbjörn varð
persónugervingur hans. Dijúgur
hluti tíma hans fór í að sinna verk-
efnum í tengslum við félagið, því
til hans leituðu bæði innlendir og
erlendir menn í tugatali á hveiju
ári og alltaf var Sveinbjörn reiðubú-
inn að verða að liði ef hann mætti.
Undanfarin ár starfaði ég með
Sveinbirni í Ásatrúarfélaginu og ég
veit að þar verður merki hans hald-
ið á lofti og unnið áfram í hans
anda.
Sveinbjörn vildi hefja til vegs
fornan sið og forn menningarverð-
mæti því hann var viss um að þar
leyndist margur gimsteinninn sem
hveijum manni er hollt að kunna
skil á, hvort sem hann lifir og deyr
á tíundu öld, tuttugustu öld eða
þeirri þrítugustu.
Þótt ytri aðbúnaður manna
breytist í tímans rás, trúarhug-
myndir og heimsmynd, er margt
sem alltaf verður samt við sig, sum
verðmæti falla aldrei úr gildi. Svein-
björn helgaði líf sitt að miklu leyti
þessum verðmætum, hann safnaði
að sér fróðleik og visku, gaf meiri
gaum að andans mennt en verald-
legu vafstri og tókst það sem okkur
flestum reynist svo erfitt; að lifa
sáttur við sjálfan sig, guði og menn.
Eldur er bestur
með ýta sonum
og sólar sýn,
heilyndi sitt
ef maður hafa náir,
án við löst að lifa.
(Hávamál)
Reynir Harðarson.
Sveinbjöm Beinteinsson varð
bráðkvaddur á aðfangadag jóla
1993. Hann var áttunda og yngsta
barn hjónanna í Grafardal, Bein-
teins Einarssonar og Helgu Péturs-
dóttur Jónssonar stórbónda á Drag-
hálsi og konu hans, Halldóru Jóns-
dóttur. Þau vom af borgfirskum
bændaættum. Beinteinn var sonur
Einars Ólafssonar góðbónda í Litla-
Botni og seinni konu hans, Sigríðar
Helgadóttur frá Stóra-Botni.
Sá sem hér skrifar á góðar minn-
ingar um þetta sómafólk frá veru
sinni á heimili þeirra á Geitabergi,
en vorið 1929 fluttust þau frá Graf-
ardal að Geitabergi er þau höfðu
keypt þá góðu jörð. Þar bjuggu þau
í sjö ár, til 1936, að þau flytjast
að Draghálsi.
Beinteinn var orðlagður þrifnað-
ar- og reglubóndi, mikill fjármaður
og náttúruunnandi. Hann var
kvæðamaður góður og hagyrðing-
ur, þó að ekkert vildi hann láta
skrifa upp eftir sig. Ég heyrði hann
oft kasta fram vísu, sem varð til á
stundinni, af ýmsum tilefnum, ég
held hann hafi verið það sem nefnt
var talandi hagyrðingur. Mér þótti
Beinteinn skemmtilegur maður og
drengur góður í viðkynningu. Hann
var mjög gestrisinn og hafði gaman
af að fá fólk í heimsókn. Hann var
fróður, vel lesinn og greindur.
Helga var einnig greind kona, fróð
og minnug, hún var bráðmyndarleg
húsmóðir í öllum verkum og handa-
vinnukona listræn og fjölhæf.
Börn þeirra hjóna eru alkunn
fyrir ljóðakver sín og hagmælsku.
Það hefur þótt nokkuð sérstakt að
sex af átta systkinum skuli vera
búin að gefa út eigin ljóðabækur
hvert fyrir sig, sum fleiri en eina.
Sveinbjörn var sem kunnugt er
einn færasti bragsnillingur landsins
og gaf út hinar ýmsu bækur varð-
andi þá list, háttatöl og rímnagald-
ur. Ein bókin geymir 450 bragar-
hætti og yrkir hann við þá alla.
Margt fleira er til eftir Sveinbjörn
sem lengst mun halda minningu
hans til haga.
Sveinbjörn segir frá sjálfum sér
allvel í bók sem út kom 1992 fyrir
jólin. Þar kemur vel fram hve hann
var alltaf hógvær og laus við grobb
og mikilmennsku. Sveinbjörn var
sex til sjö ára þegar ég var á heim-
ili hans og hefi þekkt hann síðan.
Við höfðum um árabil allmikið sam-
an að sælda. Ég fékk úpprekstrar-
leyfi fyrir fé mitt á Draghálsi um
árabil. Því var oft mikið fjárrag og
smalamennskur. Ég keyrði fyrir
hann heyi af engjunum og margt
fleira. Hann var tíður gestur á Mið-
felli.
Sveinbjörn var einstaklega orð-
var maður, hann hugsaði aldrei illt
til nokkurs manns. Hann var stillt-
ur, orðfár og prúður, gat verið glað-
ur þegar svo bar undir. Skemmti
víða með því að kveða rímur og
fleira, oft eigin gamanvísur á þorra-
blótum og víðar. Hann var lands-
þekktur hagyrðingur, kvæðamaður
og frá 1972 sem allsheijargoði, sem
ég lít sem gáskafullan leik og
nokkra alvöru. Hann var mikill
unnandi sveitarinnar en enginn
bóndi, latur við skepnuhirðingu, en
allgóður sláttumaður með orfí og
hafði gaman af. Hann var gáfaður
listamaður, sem vildi frelsi á öllum
sviðum fyrir sig. Besta þökk fyrir
góð kynni.
Valgarður L. Jónsson.
Fleiri minningargrciimr um
Sveinbjörn Beinteinsson bíða
birtingar ogmunu birtast í blað-
inu næstu daga.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN STEINÞÓRSSON,
Grettisgötu 45,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 14. janúar kl.
13.30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minn-
ast hins látna er bent á Orgelsjóð Hallgrímskirkju.
Sesselja Jónsdóttir,
Grétar Jónsson
og aðrir aðstandendur.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
HJÖRTUR PJETURSSON
cand.oecon
löggiltur endurskoðandi,
Baugatanga 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
dag, 12. janúar, kl. 13.30.
Laura F. Claessen,
Soffía Kristín Hjartardóttir, Hörður Barðdal,
Hjörtur H.R. Hjartarson, Margrét K. Svafarsdóttir,
Halla Hjartardóttir, Kristinn Valtýsson,
Jean Eggert Hjartarson, Grfma Huld Blængsdóttir,
Laura Hjartardóttir, Walter Ragnar Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Minningarathöfn um ástkæra móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
ÓSK DAGÓBERTSDÓTTUR
frá Hellissandi,
fer fram frá Áskirkju á morgun, fimmtudaginn 13. janúar kl. 13.30.
Jarðsett verður frá Ingjaldshólskirkju laugardaginn 15. janúar kl.
14.00. Bílferð verður frá BSÍ kl. 8.00 sama dag.
Guðmundur Sigurðsson, Anna Þorleifsdóttir,
Lára D. Sigurðardóttir, Theódór Jónasson,
Sigurbjörg Sigurðardóttir, Haraldur Brynjólfsson,
Guðni Þ.T. Sigurðsson, Áslaug Úlfsdóttir,
Fanney Sigurðardóttir, Georg Elíasson,
Magnea G. Sigurðardóttir, Pétur Jóhannesson,
Sigrún Sigurðardóttir, Þorbergur Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSGERÐAR ÓLAFAR EYJÓLFSDÓTTUR (LÖLLU),
Suðurgötu 15-17,
Keflavík.
Þórarinn ívar Haraldsson,
Ingibjörg Elíasdóttir,
Guðrún Elíasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ólöf Magnúsdóttir,
Jóhann Pétursson,
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
er sýndu okkur samúð og hlýhug við
ándlát og útför sonar okkar, föður og
bróður,
FJALARS RICHARDSSONAR.
Guð blessi ykkur öli.
Stella Gfsladóttir, Richard Kristjánsson,
börn og systkini hins látna.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, afa og langafa,
GÍSLA JAKOBSSONAR
bakarameistara,
Skipasundi 24,
Reykjavík.
Ólöf S. Gísladóttir,
Gunnlaugur H. Gíslason,
Guðbjörg Gfsladóttir,
Þorsteinn Gíslason,
Gísli Gíslason,
Guðrún Gísladóttir,
Pétur Hjálmsson,
Halla Guðmundsdóttir,
Sigurður Sigurðsson,
Ásdís Jónsdóttir,
Hallbera Jóhannesdóttir,
Þorvarður Guðlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við þeim er
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR,
Svalbarða 11,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til heimahlynningar
Krabbameinsfélagsins.
Guð blessi ykkur öll.
Þorleifur Gunnarsson,
Lilja Sveinsdóttir, Haukur Jónsson,
Guðrún Sveinsdóttir, Þórarinn Kristinsson,
Anney Sveinsdóttir, Franz Arason,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför
VILHJÁLMS ARNAR LAURSEN,
bifvélavirkjameistara,
Álfheimum 28,
Amalía Jóna Jónsdóttir,
Bergþóra Vilhjálmsdóttir, Matthías Eydal,
Grétar Ö. Vilhjálmsson,
Guðrún Vilhjálmsdóttir,
Ósk H. Vilhjálmsdóttir, Valur Norðdahl,
Perla Vilhjálmsdóttir,
Ingibjörg Viggósdóttir, Jón Bergvinsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát ástkærrar eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóð-
ur, ömmu og langömmu,
MARÍU MAGNÚSDÓTTUR,
Austurgötu 22,
Keflavík.
Sigurður Sumarliðason,
Emil Sigurbjörnsson,
Magnus Sigurðsson,
Margrét Sigurðardóttir,
Halldóra Sigurðardóttir,
Sigmar Sigurðsson,
Emilfa Magnúsdóttir,
Bergur Vernharðsson,
Ástvaldur Valtýsson,
Edda Hjálmarsdóttir,
Dallas Blevins,
barnabörn og barnabarnabörn.