Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 39

Morgunblaðið - 12.01.1994, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994 39 VEISLUHÖLD Kokkarnir í Súkkat á Búðum Veislusfjóri var Davíð Þór Jónsson, guðfræðinemi, útvarpsmaður og skemmtikraftur og á myndinni eru einnig Stefán Snær hjá „Mættinum og dýrðinni" og Rakel hjá „Okkar sérsviði". Dúettinn Súkkat hefur vakið mikla athygli að undanförnu enda þykja þeir félagar frumlegir og bráðskemmtilegir. En þeim Haf- þóri Ólafssyni og Gunnari Erni Jónsyni er fleira til lista lagt en tónlist og textagerð því þeir þykja slyngir matargerðarmenn og starfa báðir sem kokkar á Hótel Búðum á Snæfellsnesi. Það var reyndar í eldhúsinu á Búðum sem þeir stigu sín fyrstu spor á listamannsbrautinni. Um áramótin stóðu þeir félagar í ströngu við eldhúsverkin því um 40 manna hópur dvaldi þá á Búðum í góðu yfirlæti yfir mat og drykk enda boðið upp á átta rétta máltíð bæði á gamlárskvöld og nýárskvöld. Að sögn kunnugra var þetta glaðvær hópur sem fagnaði nýju ári á hefðbundinn hátt, með blysför niður að strönd þar sem kveikt var í bálkesti og áramótalög sungin við raust. Með- fylgjandi myndir voru teknar í nýársfagnaðinum á Hótel Búðum. Kokkarnir og skemmtikraftarnir Haffi og Gunni í eldhúsinu á Hótel Búðum. Hallur Helgason, kvikmyndagerðarmaður í Hollywood, var meðal veislugesta og fyrir aftan hann má sjá Hrafnhildi og við borð- sendann leikkonurnar Ástu og Hörpu og svo Friðrik Erlings, rithöf- und. MorgunWaðið/Silli Pernir tvíburar voru á ballinu. F.v. Þórunn Torfadóttir, 3 ára, en tvíburasystir hennar, Eyrún, var ekki fáanleg til að vera með á myndinni. Þá koma tvíburarnir Bjarni Siguróli og Erna Jóna Jakobs- börn, 5 ára, Kristín og Svava Kristinsdætur, 5 ára, og Dagný og Dagmar Pálsdætur, 3 ára. HUSAVIK Fernir tví- burar á jólaballi Börnunuip á Húsavík finnst ómissandi að mæta á „barna- ballið" sem haldið er um hver jól þar í bæ, þrátt fyrir að margt annað sé í boði. Það er Kvenfélag Húsavíkur, sem verður 100 ára á næsta ári, sem hefur haldið barna- ball ár hvert síðan um aldamót. Leggja kvenfélagskonur mikið á sig fyrir þessa samkomu til að veita og skemmta börnunum. Að sögn Svölu Hermannsdóttur for- manns félagsins eru félagskonur ekki fjölmennar. „Þó fer þeim heldur fjölgandi nú síðustu árin,“ sagði hún í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins á ballinu 2. janúar sl. COSPER Á bakvið okkur? Ekkert. W SÍMI 651680

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.