Morgunblaðið - 12.01.1994, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
47
VELVAKANDI
ÞAKKIR TIL
NESKIRKJU
Á AÐFANGADAG kl. 16 sóttum
við fjölskyldan jólastund barna-
fjölskyldunnar í Neskirkju, sem
var m.a. í umsjá sr. Franks M.
Halldórssonar. Höfum við oft
óskað þess að geta sótt kirkju á
aðfangadag fyrr en kl. 18. Áttum
við þarna indæla og góða stund,
þar sem börnin fylgdust með og
frásaga og sálmar tóku mið af
þeim. Fermingarbörn sýndu
helgileik um leið og jólaguðspjall-
ið var lesið. Við gátum því hafið
okkar hátíðahöld fyrr en ef við
hefðum mætt kl. 18. Slíkt er
afar hagstætt ef ung börn eru í
fjölskyldunni.
Vera má að einhveijum finnist
jólunum þjófstartað með þessu,
en jólin eru til okkar vegna en
ekki við vegna jólanna. Víða eru
helgistundir og samverur á
sjúkrahúsum og elliheimilum fyrr
um daginn. Gott að nú er börnun-
um einnig sinnt. Mættu fleiri
sóknarnefndir, prestar og starfs-
menn safnaðanna taka sér þessa
nýbreytni til fyrirmyndar um
næstu jól. Án efa mætti virkja
fleiri úr söfnuðunum svo prestur-
inn eða prestarnir þurfi ekki að
vera einir um að bæta þessu ofan
á annir jólanna.
• Ragnar Gunnarsson,
Kaplaskjólsvegi 91,
Reykjavík.
TIL KONUNNAR
SEM LENTIÍ
VANDRÆÐUM í
HAGKAUPUM
STARFSMAÐUR í Hagkaupum
hringdi til Velvakanda og vildi fá
aðstoð hans við að koma á fram-
færi þeim skilaboðum til konunn-
ar sem taldi sig hafa borgað með
5.000 króna seðli þegar hún
keypti þar sl. miðvikudag, að hún
hafði rétt fyrir sér. Nafn og síma-
númer hennar hefur því miður
glatast hjá starfsfólki Hagkaups
og því var gripið til þessa ráðs
við að koma þessum skilaboðum
áleiðis.
OFBELDIí
INDIANA JONES
MÓÐIR hringdi og vildi beina því
til þeirra sem sjá um þættina um
Indiana Jones að vara fólk við
þeim þáttum sem eru jafn troð-
fullir af ofbeldi og hryllingi og
þátturinn sem sýndur var sl. laug-
ardagskvöld.
Það er fyrir neðan allar hellur
að bjóða fólki upp á þetta vitandi
að ung börn bíða eftir þessum
þætti, þar sem flestir álíta að
þetta sé barna- og fjölskylduefni.
Það eru ekki allir foreldrar sem
fylgjast svo grannt með því hvað
leynist í þessum þáttum en gera
ráð fyrir að svona lagað sé ekki
borið á borð fyrir börn.
Móðirin sagði að bömin hennar
hefðu velt sér andvaka í rúminu
til kl. 3 um nóttina af hræðslu
eftir þáttinn.
Er virkilega enginn sem fylgist
með þessu? Þetta hefði líklega
verið bannað bömum innan sext-
án ára hefði þetta verið bíómynd!
TAPAÐ/FUNDIÐ
Húfa fannst
DÖKK loðhúfa fannst á bílastæði
fyrir utan Næfurás 10-14. Upp-
lýsingar í síma 671882.
Penni fannst
PELICAN-penni, sjálfblekungur
nr. 250, fannst í miðbænum að-
faranótt sl. sunnudags. Sakni ein-
hver slíks penna fær viðkomandi
pennann afhentan gegn greinar-
gróðri lýsingu. Upplýsingar gefur
í Sveinn í síma 660557.
Úr fannst
CASIO karlmannsúr fannst á
göngustíg sem tengir saman Arn-
arbakka og Lambastekk í Breið-
holti sl. föstudag. Eigandi má
hafa samband í síma 74255.
Finkur fyrir páfagauka
FINKUEIGANDA langar til að
skipta á páfagaukapari fyrir
finkupar. Upplýsingar gefur Ingi-
björg í síma 71237.
Hanskar töpuðust
SVARTIR leðurhanskar með
hvítu fóðri töpuðust í Bíóhöllinni
(Aladdín kl. 17) sl. sunnudag.
Finnandi vinsamlega hringi í síma
53978.
GÆLUDÝR
Kettir
ÞRJÁ ketti vantar gott heimili.
Upplýsingar í síma 811901.
Tík í óskilum
SMÁVAXIN tík, svört og brún
með hvíta bringu, fannst 2. jan-
úar sl. á Sogavegi. Hún er trúlega
nokkurra ára. Þeir sem telja sig
kannast við þessa tík eru vinsam-
lega beðnir að hafa samband við
Dýraspítalann í síma 674020.
Þakkir til
velunnara
Frá Sigfúsi B. Valdimarssyni:
Samhjdlp kvenna £
LEIKFIMI
Yort líf það er sigling á æðandi öldum
Á aldimmri nótt gegnum boða og sker.
En áfram þó leiðinni hiklaust vér höldum.
Vor hjartkæri Frelsari skipstjórinn er.
Þessar ljóðlínur koma mér í hug
er ég horfí til liðinna ára og sé hvem-
ig Drottinn hefir leitt og stjórnað
Salem Sjómannastarfinu. Frá upp-
hafi þess hefir það verið aðalmarkm-
ið þess að útbreiða Guðs orð á með-
al fólks, því „Helst mun það blessun
valda“. Það er í sannleika sagt björg-
unarstarf. Það er dásamlegt, og fyr-
ir það þökkum við GUði, hve mörgum
mannslífum hefur verið bjargað frá
skipbroti og allskonar háska, en það
er ekki síður nauðsynlegt að bjarga
fólki frá „andlegum dauða og eilífri
neyð“. Þegar maður frelsast fyrir
trúna á Jesúm Krist og hans heilaga
orð, þá eignast maður nýtt líf. Eg
heyri aldrei fjölmiðla minnast á það
hve margir bjargast þannig úr alls-
konar neyð og verða nýtir þjóðfélags-
þegnar. Orði Guðs hefir verið sáð
og jiað ber ávöxt. Jes 55:11.
Á síðasta ári voru gefnar 65 Bibl-
íur, 100 Ntm og 25 Passíusálmar
auk þess mikið af smærri Biblíuhlut-
um, snældum og blöðum og ritum,
sem vitna um Jesú og fagnaðarerindi
hans, að hann kom til að frelsa synd-
uga menn. Þetta náði til fólks af 40
þjóðernum, af því má sjá að það
berst víða, enda berast líka kveðjur
og þakkir víðsvegar að. Einnig voru
gefnir 200 jólapakkar til sjómanna
á hafi úti og auk þess 50 jólakveðj-
ur. Ég þakka öllum sem hafa stutt
starfið á einn eða annan hátt. Ég
get ekki annað en minnst á Hákarl-
inn, sem ein skipshöfn gaf okkur.
Það gerði um 8.000. Guð launi öllum
þessum vinum nær og fjær. Ríkið
hefir þó ekki látið af að taka virðis-
aukaskatt af gjöfum þeim sem vinir
erlendis hafa sent svo sem Biblíum
og öðru slíku. Farið var í um 800
heimsóknir um borð í skip og báta
þessara erinda. Yar þá líka oft greitt
fyrir með póst o.fl. Ég óska öllum
landsmönnum árs og friðar. Megi
almáttugur Guð gefa heilaga vakn-
ingu með þjóð vorri, svo þar verði
„Gróandi þjóðlíf með þverrandi tár,
sem þroskist á Guðríkis braut."
SIGFÚS B. VALDIMARSSON,
Pólgötu 6,
ísafirði.
Andstyggi-
leg
hrollvekja
Frá Ragnhildi Hjaltadóttur:
NÚ ER svo kornið að ég get ekki
orða bundist. Á laugardagskvöldið
8. janúar sl. settist ég með fjölskyldu
minni fyrir framan sjónvarpið í von
um svolitla skemmtun og ánægju.
Við horfðum á Ævintýri Indiana Jo-
nes sem við álitum saklausa skemmt-
un með ágætan „húmor“. Við vissum
sannarlega ekki að okkar biði hroll-
vekja með limlestum líkum, blóð-
flóði, andsetningu o.fl. hryllingi.
Það sem er mjög alvarlegt er það
að engin aðvörun fylgdi myndinni
og sýningin var á þeim tíma þegar
flest börn eru ennþá vakandi.
í umræðu um ofbeldi í sjónvarpi
hefur mér virst kom fram að íslenska
þjóðin hefur ekki smekk fyrir slíkt
hrottalegt ofbeldi sem borið hefur
verið á borð fyrir landsmenn.
Þess vegna beini ég orðum mínum
til þeirra einstaklinga sem bera
ábyrgð á efnisvali sjónvarpsins.
Hver einstaklingur er mikilvægur
og þið eruð í þeirri aðstöðu að hafa
áhrif á sálarlíf og líðan þjóðar ykk-
ar. Allt sem fyrir augu okkar ber
festist á myndbandi undirmeðvitund-
arinnar og hefur áhrif á okkur.
Hugið að börnunum, stuðlið ekki
að taugaveiklun, ótta og martröðum!
Aðgát skal höfð í nærveru sálar!
RAGNHILDUR HJALTADÓTTIR,
pósthólf 4060,
124 Reykjavík.
Nýtt leikfiminámskeið, fyrir konur sem gengist hafa undir
brjóstaaðgerð, hefst miðvikudaginn 12. janúar.
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 17.15,
á Hrafnistu i Hafnarfirði.
Æfingar fara fram ýmist í sundlaug eða íþróttasal.
Að loknum æfingum er hægt að fara í sund og nuddpott.
Enn geta nokkrar konur komist að.
V.
Nánari uppiýsingar í sírnurn 72875 og 657813
HWe make
the world's
best mattress
Við búum
til heimsins
bestu dýnur
Við búum til heimsins bestu dýnur er hið
viðurkennda vörumerki og auglýsingaslagorð
Serta verksmiðjanna í Ameríku.
Serta verksmiðjurnar eru þekktar
fyrir gæði og dýnumar sem við
kaupum frá þeim hafa gormakerfi
og fjaðrabindingu sem er svo einstök
og vönduð í framleiðslu að Serta er
tvímælalaust hreint úrvalsvara
eins og þeir auglýsa. Serta er t.d.
eina breiða rúmdýnan á markaðnum
sem er bundin í báðar áttir sem
þýðir að hjón sem sofa saman á
dýnunni verða lítið vör hvort við
annað þegar annar aðilinn byltir sér.
í Serta dýnunni sameinast
góður stuðningur við
líkamann og frábær þægindi.
Allar dýnumar em með þéttofnum
damask dúk og öll uppbygging
dýnunnar á að tryggja sem lengsta endingu.
Þegar þú ákveður að kaupa þér amerískt rúm skaltu
koma til okkar og prófa hvort þér líkar millistíf, hörð
eða mjúk dýna. Starfsfólk okkar er sérþjálfað til að
veita þér þær upplýsingar sem þú vilt vita um Serta
dýnuna og til að aðstoða þig við val á réttu dýnunni.
Við eigum Serta dýnumar alltaf til á lager í ýmsum
gerðum og stærðum og getum afgreitt samdægurs
og þeim fylgir allt að 20 ára ábyrgð.
HÚ8gagnahollin
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199