Morgunblaðið - 12.01.1994, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
49
~!
/ Þettaer \
/ bein þýðing á N
ensku orðunum
„traííic jam“ og
það vita allir
\ hvað þau Á
\ þýða J
Jónas
r Einhver \
klípa sem maður
á erfitt með að
rata út úr, til
dæmis eins og
. ég er lentur J
V í núna y
stórt
og
mikið
Býr í Hollandi
DILJÁ
Ámunda-
dóttir, 14
ára, ís-
lensk
stelpa, hef-
ur búið í
Eindhoven
í Hollandi i
rúmt ár. í
jólafríinu
kom hún til
íslands og
féllst á að
koma í við-
tal og segja
okkur
hvernig
það er að
búaíHol-
landi.
HVAR ERU ÞAUOG
HVAÐ ERU ÞAU AÐ GERA?
1 í
*D C
‘o S m
wc
Helena
STE PA
Spádómur
fyrir árið
1994
V
ið fengum spákonu til að líta í spil og bolla og
segja okkur hvað næsta ár bæri í skauti sér
fyrir unglinga. Hér á eftir koma þau atriði sem
komu hvað skýrast fram.
| ér leiðist Eindhoven vegna þess að þar er ekki
eins mikið félagslíf og hér. Krakkar þar byrja
að fara á diskótek þegar þau eru 15 ára, fram
að þeim tíma eru þau bara heima hjá sér allar
helgar og horfa á sjónvarp eða gera ekki neitt. Svo eru diskó-
tek í skólanum svona Ijórum sinnum á ári. Mér finnst reynd-
ar flestir á mínum aldri frekar lúðalegir.
Það sem ég sakna mest frá íslandi er að fara út að skemmta
mér með vinum mínum, vera niðri í bæ um helgar og svoleiðis.
Það sem er hvað jákvæðast við Eindhoven er að krakkarn-
ir eru mjög hreinskilnir og planaðir. Það er ekkert um kjafta-
sögur, baktal eða neitt slíkt. Það er enginn á móti neinum og
ef þeim fínnst eitthvað að hjá manni þá bara segja þau manni
það.
Besta vinkona mín úti er flóttamaður frá Bosníu og við
kynntumst í útlendingaskólanum síðasta vetur. Við vorum
með mestu lætin í skólanum, langopnastar og þekktum flesta.
Þegar við hættum í útlendingaskólanum fórum við í sama
skóla, en ekki sama bekk, því ég fór alltaf til íslands í fríum
og missti svo mikið úr í hollenskunni. Við stöndum alltaf með
hvor annarri og það er gott þegar maður er útlendingur ein-
hvers staðar.
Það er enginn munur á skólum í Eindhoven og hér nema
þar þarf ég að læra á hollensku. Mér gengur vel í skólanum
en sumt er ógeðslega erfitt og ég skil ekki neitt. Það er svo-
lítið erfitt að læra á öðru máli en sínu eigin. Og þá komum
við að því sem ég sakna allra mest af öllu og það er að geta
ekki talað við alla á mínu eigin máli.
* Kennarar ákveða að fara í verkfall rétt fyrir vorpróf
en hætta við. Þeir ákveða svo aftur að fara í verkfall en
hætta aftur við á síðustu stundu. Þetta skapar mikinn
glundroða í skólakerfinu og hætt er við að sumir nemend-
ur nái ekki að taka eins góð próf og efni stóðu til.
* Með vorinu verður reist risastór félagsmiðstöð í mið-
borginni. Þegar byggingu hússins er lokið og í ljós kemur
hve glæsilegt það er verður því breytt í skemmtistað fyr-
ir fullorðna.
* Michael Jordan fyrrverandi körfuboltamaður slær í
gegn sem förðunarmeistari og opnar stofur í helstu stór-
borgum heims svo sem Los Angeles, New York, Reykja-
vík og París.
* Luke Perry verður rekinn úr sjónvarpsþáttaröðinni
Beverly Hills 90210 og hrapar í vinsældum hjá unglings-
stúlkum þegar í ljós kemur að hann er kona.
* Unglingahljómsveit frá Akureyri keppir fyrir íslands
hönd í sjónvarpskeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og sigr-
ar öllum að óvörum. í kjölfarið fylgja hljómplötusamning-
ar og heimsfrægð.
* Meðlimir hljómsveitarinnar Bubbleflies setja á lagg-
irnar ráðgjafarstöð fyrir foreldra unglinga á villigötum
og hljóta að launum viðurkenningu Sálfræðingafélags
íslands.
* Seint á árinu stofna unglingar með sér samtök und-
ir nafninu „Svo glöð er vor æska ekki“ og munu samtök-
in beijast fyrir því að æskan þurfi ekki að erfa landið.
* Sylvester Stallone kemur til landsins til að leika í
kvikmynd og neitar að fara héðan aftur. Hann verður
að öllum líkindum orðinn íslenskur ríkisborgari fyrir næstu
áramót.
* Lýðveldishátíð verður haldin um allt land 17. júní.
Ekki lengur
gaman í miðbænum
Nafn: Harpa Júlía Sævarsdóttir.
Helma: Reykjavík.
Aldur: 14 ára.
Skóli: Austurbæjarskólinn.
Helstu áhugamál: Skemmta mér,
fara í bæinn og í partý. Ég æfði líka
ballett og hef gaman af að dansa.
Uppáhaldshljómsvelt: Ég á enga
sérstaka uppáhaldshljómsveit. Oftast
er bara eitt lag sem maður fílar með
hverri hljómsveit, en það lag sem ég
hlusta mest á núna er Since I don’t
have you með Guns and Roses.
Uppáhaldskvikmynd: Maður á
enga uppáhaldskvikmynd. Eigið þið
einhveija uppáhaldskvikmynd? En
mér fannst „The Hand that Rocks the
Cradle“ góð og líka „Indecent Propo-
sal“.
Besta bókin: Dýragarðsbörn.
Hver myndir þú vilja vera ef þú
vserlr ekki þú? Æ, þetta eru svo
óþægilegar spurningar. Ég segi bara
Julia Roberts, hún er sæt, vel vaxin
og með fallegt hár.
Hvernig er að vera unglingur í
dag? Það var ágætt þangað til þessi
stelpa var lamin niðri í bæ. Eftir það
er ekkert að gerast niðri í bæ, bara
fyllibyttur að kaupa sér pulsur.
Hverju myndlr þú vllja breyta í
þjóófélaginu? Ég
myndi vilja opna
skemmtistað fyrir
unglinga í grunn-
skóla. Svo myndi
ég lækka skattana
og eyða peningun-
um í eitthvað skyn-
samlegra en að
byggja ráðhús, eitt-
hvað sem kæmi
fleirum að notum.
Hvað er það
skemmtllegasta
sem þú gerir? Ég
ætla ekki að fara
að segja það I ein- *
hveiju blaði.
Hvað er það leið-
Inlegasta sem þú
gerir? Fara til
tannlæknis, vera í
skólanum og rífast
við vini mína.
Hvað ætlar þú að
verða þegar þú
verður stór? Ég
er ekki búin að
ákveða það en mig langar að verða
innanhúsarkitekt eða iðnhönnuður eða
eitthvað svoleiðis.
Hvað gengur þú með I vösunum?
Það er nú svolítið misjafnt. Lykla,
veski, oftast varasalva og tyggjó.
Hvað viltu segja að lokum? Ekki
neitt.