Morgunblaðið - 12.01.1994, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 1994
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Markvarsla Sigmars Þrastar og Bergsveins
20varinskot .. 20/3
Sigmar Þröstur Óskarsson, KA 150/11 18/4
FH 145/6
15
14 14/1
12/2
oc| 3
■o H C 1
o.m co Sit
14/2
1 »umf. 2« 3« 4m 5. 6i 7. 8« 9» 10. 11i
Alltá
fulla
ferð
Upphitun tyrir undan-
úrslit bikarkeppninnar
HJÓLIN eru að fara að snúast
á ný í 1. deildarkeppninni i
handknattleik — allt fer á fulla
ferð í kvöld þegar seinni um-
ferð deildarinnar hefst á sex
vígstöðum. Svo skemmtilega
vill til að liðin sem mætast í
undanúrslitum bikarkeppninn-
ar mætast á þeim stöðum sem
þau leika í bikarkeppninni; ÍBV
- KA og Selfoss - FH. Það er
Ijóst að spennan á eftir að ná
hámarki í deildinni, þar sem
staða efstu liðanna er mjög
jöfn. Níu lið koma til með að
berjast um átta sæti í úrslita-
keppninni. Það lið sem hefur
komið skemmtilega á óvart að
undanförnu, er lið Víkings, sem
hefur ekki tapað sjö síðustu
leikjum sínum, eða síðan Bjarki
Sigurðsson hóf að leika með
liðinu á ný eftir meiðsli. Víking-
ar hafa unnið fimm af síðustu
leikjum sínum, en gert tvö jafn-
tefli.
Frá því að FH-ingurinn Guðjón
Ámason skoraði fyrsta mark
1. deildarkeppninnar hafa 148 leik-
menn skorað 3.292
mörk í 66 leikjum,
sem er að meðaltali
49,87 mörk í leik.
Alls hafa verið skot-
in 5.071 skot (76,83 í leik), sem
hafa hitt innan ramma markanna,
þannig að 65% þeirra skota hafa
ratað rétta leið, en markverðir hafa
varið 35% skotanna, eða alls 1.779
skot. Af þeim 498 vítaskotum sem
hafa hafnað innan ramma, hafa 413
ratað rétta leið, sem er 83% nýting,
en markverðir hafa varið 85 skot,
sem er 17% markvarsla.
Þjálfarar 1. deildarliðanna hafa
lagt mikið kapp á að undirbúa sína
menn sem best fyrir lokabaráttuna,
þannig að leikmenn hafa lítið frí
fengið yfir jólahátíðina. Þeir eru fyr-
ir löngu búnir að brenna jólasteikun-
um og eru klárir í þann slag sem
framundan er.
Islandsmeistarar Vals verma
toppsætið með betri markatölu en
Haukar, en síðan koma FH-ingar í
þriðja sæti og Víkingar í því fjórða.
FH-ingar, sem höfðu leikið sex leiki
í röð án taps, fengu heldur betur
skell í síðasta leik sínum — töpuðu
stórt, 24:33, fyrir ÍR. Spurningin er;
hvað gera ÍR-ingar þegar þeir fá
meistara Vals í heimsókn?
Tveir aðrir stórleikir verða leiknir
í kvöld. Haukar fá Stjörnumenn í
heimsókn, en leikmenn Stjörnunnar
tóku fjörkipp fyrir jólafrí, eftir slæmt
gengi. Þá taka Selfyssingar á móti
FH-ingum.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
tók saman
Valdimar með tíu mörk í leik
Valdimar Grímsson er langmarkahæsti leikmaður 1. deildar, með
111 mörk, eða að meðaltali 10 mörk í leik. Fjórtán leikmenn
hafa skorað yfir 10 mörk í leik í deildinni og hefur Valdimar náð því
sjö sinnum. Hann hefur skorað mest 14 mörk í leik, síðan einu sinni
13 og 12, þrisvar 11 og einu sinni 10.
■ Sigurður Sveinsson hefur skorað flest mörk í leik — 17/6 mörk
þegar Selfoss lagði KR að velli, 34:30.
Sigmar Þröstur ver mest
Sigmar Þröstur Óskarsson, félagi Valdimars hjá KA, er sá markvörð-
ur sem hefur varið mest, eða alls 150 skot. Hann hefur varið flest
vítaköst, eða ellefu. Þá hefur hann varið flest vítaköst í leik — fjögur
gegn FH á Akureyri.
■Alexander Revine, markvörður KR, er sá leikmaður sem heftur
varið flest skot í leik — 27/2 í leik gegn ÍBV.
■Fjórir markverðir hafa skorað í 1. deildarkeppninni. Viktor Viktors-
son hjá Aftureldingu hefur verið iðnastur við kolann, skorað þrjú mörk.
Valsvörnin sterk
Valsmenn hafa þurft að hirða knöttinn sjaldnast úr netinu hjá sér,
eða 240 sinnum. Það er átján mörkum færra en næstu lið, sem koma
á blaði — Haukar, KA og ÍR (258). Markverðir Vals hafa varið 145
skot, sem hafnað hafa á marki — innan markrammanns, þannig að
þeir hafa varið 37,6% af þeim skotum sem hafa ratað rétta leið að
markinu.
■Markverðir Selfyssjnga hafa varið flest skot samtals. Hallgrímur
Jónasson og Gísli Felix Bjarnason hafa varið 175 skot, en Selfyssing-
ar hafa fengið á sig 286 mörk, þannig að 461 skot að marki þeirra
hafa ratað rétta leið. Þeir félagar hafa varið 38% skota, sem hafa
komið á markið.
148 leikmenn hafa skorað
Alls hafa 148 leikmenn skorað í 1. deild. Akureyrarliðin KA og Þór
hafa 29 þeirra í herbúðum sínum — KA 15, en Þór 14. Fjöldi leik-
manna sem hafa skorað í öðrum liðum, eru: Víkingur og Haukar 13,
Valur, FH, ÍBV, Afturelding, KR og ÍR 12, Stjarnan 11 og Selfoss 10.
■Víkingar hafa skorað flest mörk, eða 293, en fast á eftir koma
Selfyssingar (292), FH-ingar og Haukar (291).
■ Sjö af leikmönnum Selfyssinga hafa skorað öll mörk þeirra nema 7.
Þannin hafa Valdimar og Hilmar skorað
mork 14
13
Valdimar Grímsson, KA 111/46
Hilmar Þórlindsson, KR 81/29
1. umf
Víkingar fá táningalið KR-inga í
heimsókn og Afturelding sækir Þór
heim. Þórsarar hafa ekki fagnað
sigri frá því í 2. umferð er þeir lögðu
Eyjamenn á Akureyri. Síðan hafa
þeir leikið níu leiki í röð án sigurs.
Eyjamenn taka á móti KA.
KA-liðið, sem hefur verið á upp-
sveiflu eins og Víkingur, hefur leikið
fimm leiki í röð án taps — unnið
þrjá, en gert tvö jafntefli. Valdimar
Grímsson sagði í viðtali við Morgun-
blaðið á dögunum, að KA-liðið hafi
verið frekar lengi að komast í gang,
þar sem leikmenn liðsins voru að
æfa upp ný leikkerfi. „Þetta er allt
að smella saman hjá okkur.“
STAÐAN
Fj. leikja u i T Mörk Stig
VALUR 11 8 1 2 276: 240 17
HAUKAR 11 7 3 1 291: 258 17
FH 11 7 1 3 291: 285 15
VÍKINGUR 11 6 2 3 293: 273 14
UMFA 11 5 3 3 278: 275 13
STJARNAN 11 5 2 4 266: 260 12
KA 11 4 3 4 270: 258 11
SELFOSS 11 4' 3 4 292: 286 11
IR 11 4 2 5 256: 258 10
KR 11 3 1 7 251: 272 7
IBV 11 1 1 9 267: 305 3
ÞOR 11 1 O 10 261: 322 2
Valdimar Grímsson í leik gegn
Eyjamönnum á Akureyri, en þar
skoraði hann 10 mörk 128:22
sigri KA. KA leikur í Eyjum í
kvöld og síðan aftur í undanúr-
slitum bikarkeppninnar 6. febr-
úar.
Markahæstu menn 1
ValdimarGrímsson, KA 111/45
HilmarÞórlindsson, KR 81/29
Jóhann Samúelsson, Þór 72/11
Birgir Sigurðsson, Víkingi 70/ 7
Sigurður Sveinsson, Selfossi 65/21
Konráð Olavson, Stjörnunni 65/15
Dagur Sigurðsson, Val 64/27
Guðjón Árnason, FH 63/15
Björgvin Þ. Rúnarsson, ÍBV 59/ 4
Jónann Örn Ásgeirsson, ÍR 58/26
Einar G. Sigurðsson, Selfossi 55
GunnarGunnarsson, Víkingi 55/11
Zoltan Belany, ÍBV 55/28
Magnús Sigurðsson, Stjörnunni 52/18
Sævar Árnason, Þór 52/ 1
Páll Ólafsson, Haukum 51/11
Halldór Ingólfsson, Haukum 50/15
Guðfinnur Kristmannsson, ÍBV 49
Knútur Sigurðsson, FH 49/22
Ólafur Stefánsson, Val 48
Alexei Trúfan, Aftureldingu 47/29
Jason Ólafsson, Aftureldingu 47
Branislav Dimitrijv, ÍR 46/ 9
Njörður Árnason, IR 46
Patrekur Jóhannesson, Stjörnunni... 45
Róbert Sighvatsson, Aftureldingu.... 45
Petr Baumruk, Haukum . 44/14
Páll Beck, KR 43
Sigurður Sveinsson, FH 43
Alfreð Gíslason, KA 41
Gunnar Andrésson, Aftureldingu 41
Gústaf Bjamason, Selfossi . 40/ 7
Þeir verja mest
Sigmar Þröstur Óskarsson, KA .150/11
Bergsveinn Bergsveinsson, FH .145/ 6
Magnús Sigmundsson, ÍR .131/ 5
Guðmundur Hrafnkelsson, Val .118/ 4
Hallgrímur Jónasson, Selfossi .116/ 3
Alexander Revine, KR .104/ 6
Hlynur Jóhannesson, ÍBV .103/ 4
Reynir Þ. Reynisson, Víkingi .103/ 5
Ingvar Ragnarsson, Stjörnunni . 97/ 4
Hermann Karlsson, Þór . 96/ 4
Bjami Frostason, Haukum . 74/ 7
| Flest skot varin
29 markverðir hafa varið skot í 1. deildar-
keppninni. Árangur félagsliða í markvörslu
er þessi: (tölur innan sviga sýna hve mörg-
um markvörðum hefur verið teflt fram).
Selfoss (2)......................179/ 6
Stjaman(3).......................155/ 6
FH (2)............................154/8
ÍR (4)...........................154/ 8
KA(2)............................154/12
KR (2)...........................150/ 8
Víkingur(2)......................147/ 5
Valur(2).........................145/ 5
Haukar(2)........................142/11
Afturelding (3)..................140/ 4
Þór (3)..........................131/ 7
ÍBV (2)..........................128/ 5