Morgunblaðið - 24.03.1994, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
Gunnar S. Magnússon
Myndlist____________
Eiríkur Þorláksson
Það hefur stundum verið nefnt
á þessum vettvangi, að sýningar-
salir í höfuðborginni hafa nokkuð
tínt tölunni síðustu misseri, og
því hlýtur ætíð að vekja ánægju
þegar þróunin snýst í hina áttina,
og nýir staðir bætast við. Reynsl-
an hefur því miður verið sú að
oft hafa hinir nýju staðir lifað
stutt, og litlu bætt við í listalífi
landsmanna.
Hvort hinn nýi sýningarsalur,
sem nú hefur verið opnaður á
Hverfísgötu 6, öðlast langlífi eður
ei, skal ósagt látið; þar verður
reynslan að skera úr um. Hins
vegar er nokkur bráðabirgða-
bragur á frágangi húsnæðisins á
þeirri sýningu, sem þar stendur
nú og mætti færa það til betri
vegar fyrir sýningar framtíðar-
innar. Staðsetningin er góð og
veggplássið ætti að vera nægt,
þó stórir gluggar snúi að göt-
unni; þar má líka leita fleiri
lausna.
Fyrstur til að sýna hér er
Gunnar S. Magnússon myndlist-
armaður. Gunnar er fæddur 1930
og stundaði nám í Handíða- og
myndlistaskólanum á fimmta ára-
tugnum, en hélt að því loknu til
framhaldsnáms við Ríkislistaskól-
ann í Ósló. Þar stundaði hann
nám 1949-52 og var m.a. sam-
tíma Braga Ásgeirssyni og Erró,
en Gunnar dvaldi síðar einnig við
listnám í Frakklandi, á Spáni og
Ítalíu. Hann hafði forgöngu um
stofnun Sýningarsalarins á
Hverfisgötu 8-10 árið 1957, og
hefur haldið nokkurn ijölda
einkasýninga í gegnum tíðina,
síðast í Gunnarssal á Arnarnesi
fyrir tveimur árum.
Hér sýnir Gunnar tæplega
þrjátíu verk, bæði gömul og ný.
Meðal eldri verkanna er að finna
nokkrar vandaðar módelmyndir,
sem sýna vel vald listamannsins
á teikningunni og formmótun, og
þessir þættir koma einnig vel
fram í tveimur andlitsmyndum,
sem væntanlega eru frá svipuðum
tíma. Af þessum verkum má sér-
staklega benda á „Spönsk akt
’50“ (nr. 4) og andlitsmyndina
„Ásdís Sól“ (nr. 8), sem er einkar
stílhrein.
Gunnar sýnir hér einnig flokk
nýrri mynda, sem hann nefnir
einfaldlega „Aero“ og setur síðan
Gunnar S. Magnússon: Aero I.
í númeraröð. Það orð eitt og sér
vísar að nokkru til grískrar goða-
fræði, en hér eru að mestu á ferð-
inni allt að því ósjálfráðar athug-
anir á rennsli, andstæðum og
samstæðum lita í þröngum flöt-
um. Viðlíka athuganir vorú áber-
andi hluti af þróun súrrealismans
um tíma, en bæta í raun litlu við
litafræðiathuganir formfastari
listamanna; hér ná þessar tilraun-
ir ekki flugi og verða í raun til
að draga úr gildi þeirrar formlegu
hæfni, sem felst í módelmyndun-
um, en þær eru óneitanlega sterk-
asti hluti sýningarinnar.
Sýning Gunnars S. Magnús-
sonar í Sýningarsalnum á
Hverfisgötu 6 stendur stutt, en
henni lýkur sunnudaginn 27.
mars.
Ævintýraferð
________Leiklist___________
Guðbrandur Gíslason
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
„Hobbit“
Byggt á sögu J.R.R. Tolkien
Leikstjóri: Þorsteinn Bac-
hmann
Talkennsla: Gunnar Eyjólfs-
son
Aðalhlutverk: Daníel Stefáns-
son,
ÓIi R. Ómarsson.
Sagan um Hobbit og ævin-
týraheim hans er eina kennslu-
bókin í enskudeild FB sem
kennd hefur verið þar frá stofn-
un skólans. Það segir heilmikið
um bókina að kennararnir skuli
ekki vera orðnir leiðir á henni
eftir allan þennan tíma og ekki
líkar nemendum verr við hana
en svo að þeir byggja leiksýn-
ingu sína „Hobbit“ á ævintýram
hennar. Einnig var tekið mið
af samnefndri teiknimynd og sá
Julie Victoria Castros að mestu
um þýðinguna.
í þessu ferðalagi sem leiksýn-
ingin er kennir ýmsa grasa. Hér
rekumst við á dverga, durta,
álfa, tröll og forynjur, og jafn-
vel könguló, að ógleymdum
sjálfum hobbitinum, Bilbo
Baggins. Sviðsmyndin er stór í
sniðum og haganlega gerð, enda
er farið um víðan völl, og áhorf-
endur verða að hafa sig alla við
að fylgjast með furðufólkinu á
vegferð þess frá einu horni sýn-
ingarsalarins til annars og allt
um kring. Búningar eru litríkir
og hugvitsamlegir eins og sviðs-
myndin og er það vel, því satt
að segja er þessi „Hobbit" varla
leikrit í hefðbundnum skilningi
þessa hugtaks, heldur fremur
ævintýri á gönguför.
Það er ætíð virðingarvert
þegar ungt fólk spreytir sig á
því að setja eitthvað á svið fyrir
áhorfendur og í því felst mikill
lærdómur fyrir þá sem þátt í
því taka. Þessi sýning er allra
góðra gjalda verð sem tilraun,
og ekki síst var vel til fundið
að fá Gunnar Eyjólfsson til að
kenna framsögn og sviðsfram-
komu. Sá lífsglaði hópur sem
þeyttist um salinn í FB hefur
augljóslega hagnast á því.
HASKOLABIO
SÍMI22140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
FRA FRAMþEIÐENDUM GHOST
jvinT
every
mornent
counts
MICHAEL KEATON NICOLE KIDMAN
MV Lj/e
Lionsklúbburinn Eir
Kvikmyndasýning íHáskólabíói
ídag, fimmtudaginn 24. mars, kl. 20.30.
Bossanova-bandið ieikurfrá kl. 20.00.
Lionsklúbburinn Eir þakkar veittan stuðning:
RAFvömm hf.
ARWJOS' lOBBt'rtOAVlK.ISLANO
STEYPUST0ÐIN
Hmlpn G.dLJaAonF
ÁOSIA-OG
SMJÖRSALAN 9:
Ráðgarður hf.
Ólafur Þorsteinsson & Co. hf.
Skipavarahlutir hf.
Bergvík sf.
Verkfræðistofan Vista
Andrés, fataverslun
Veitingaskálinn Friðarhöfn Vestm.
FARVIS
úpmgor
FERÐATÍMARIT
Véla og skipaþjónustan Framtak
Skóverslun Þórðar, Kirkjustræti 8
Pipar og salt
Tösku- og hanskabúðin
Ó.M. búðin
Holtsapótek
Hf. Miðnes
MENNING/LISTIR
Tónlist
Marstónleikar á
Hvammstanga
Marstónleikar Tónlistarfélags V-
Hún., sem eru 6. reglulegir tónleikar
starfsársins 1993-1994, verða haldnir
í Félagsheimilinu á Hvammstanga nk.
laugardag, 26. mars, kl. 16.
Sönghópurinn Sólarmegin frá
Akranesi mun flytja dagskrá, m.a.
danslag frá 17. öld, íslensk þjóðlög,
norræn sönglög, og popptónlist í
söngbúningi.
Sönghópurinn Sólarmegin er Vest-
ur-Húnvetningum að góðu kunnur því
þetta er í annað sinn sem hópurinn
kemur i tengslum við Tónlistarfélagið
auk þess sem hópurinn hefur komið
í önnur skipti, síðast í apríl á síðasta
ári,
Tónleikar Söngsmiðj-
unnar í Áskirkju
Tónleikar framhalds- og byijenda-
hópa Söngsmiðjunnar verða haldnir í
Áskirkju i dag, fimmtudaginn 24.
mars, kl. 20.30. Einnig munu nem-
endur úr einsöngvaradeild skólans
syngja. Sungin verður tónlist af ýms-
um toga, m.a. sönglög eftir Foster
og Gershwin.
Framundan eru tónleikar barna-
og unglingadeildar 9. apríl.
Námskeið Ratti fellur
niður
Boðað söngnámskeið Eugeniu
Ratti um páskana fellur niður af óvið-
ráðanlegum orsökum. Sama dag og
frétt birtist í Morgunblaðinu um nám-
skeiðið barst fregn um að Ratti hefði
lent í bílslysi. Hún fót- og rifbeins-
brotnaði en er ekki í lífshættu. Áform-
að er að Ratti komi hingað til lands
og haldi námskeið í haust.
Leiklist
Síðasta sýningarhelgi
á „Dónalegu dúkk-
unni“
Leiksýningum Skjallbandalagsins
á „Dónalegu dúkkunni" fer senn að
ljúka, en helgin 25.-27. mars er síð-
asta sýningarhelgin.
Sýningin samanstendur af þremur
einleikjum eftir Dario Fo og Fröncu
Rame. Sýningarnar fara fram í leik-
húsi Frú Emilíu í Héðinshúsinu.
„Þingkonurnar“ eftir
Aristófanes
Undanfarna mánuði hafa nemend-
ur úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
verið að æfa leikritið Þingkonurnar
eftir Aristófanes í þýðingu Kristjáns
Arnasonar. Frumsýnt var í gær-
kvöldi. Næstu sýningar verða á morg-
un, föstudaginn 25. mars, kl. 20 og
Kristín Guðbjörg- Guðmunds-
dóttir og Sigsteinn Sigur-
bergsson í hlutverkum sinum
í „Þingkonunum".
laugardaginn 26.-mars kl. 17 og 20.
Leikstjóri sýningarinnar er Ólöf
Sverrisdóttir og tónlistarstjóri er Sig-
urður Halldórsson. Einn nemandi
skólans, Ríkharður Arnar, hefur með
aðstoð tónlistarstjórans samið lög
fyrir leikritið. Eygló Pétursdóttir fer
með aðalhlutverkið en ails taka um
28 manns þátt í sýningunni. Helga
Björk Hauksdóttir sá um leikmynd-
ina.
Myndlist
Sýning á höggmynd-
um Sverris Olafsson-
ar í Mexíkó
Nýverið var opnuð einkasýning á
höggmyndum Sverris Ólafssonar í
Nútímalistasafninu í Tlaxcala í Mex-
íkó. Sýningin er haldin í boði borgar-
stjórnar Tlaxcala-borgar. Nýlega er
lokið sýningu á verkum Sverris í
Þýskalandi og tiefur Sverri einnig
borist boð um þátttöku í „The Osaka
Triennal“ í Osaka í Japan og f alþjóð-
legri höggmyndasýningu í Rio de
Janeiro í Brasilíu síðar á þessu ári.
Söngleikur
Söngleikurinn „Synd-
in er sæt“
Leikklúbburinn Spuni frá Lúxem-
borg sýnir á morgun, föstudaginn 25.
mars, í félagsheimili Kópavogs söng-
leikinn „Syndin er sæt“, I leikstjórn
Oktavíu Stefánsdóttur.
Húsið er opnað kl. 20 og Guðmund-
ur Haukur spilar á skemmtara. Sýn-
ingin liefst kl. 21 og húsið opið til
kl. 1.
A