Morgunblaðið - 24.03.1994, Side 19

Morgunblaðið - 24.03.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994 19 strengurinn sé grafinn 0,6—1,5 m niður í botninn niður á 500 m sjáv- ardýpi. Við lagningu á þriðja Skag- errak-strengnum voru gerðar sömu kröfur, en hámarksdýpi er um 550 m á strengleiðinni. Sá búnaður sem notaður var til að grafa strenginn niður í botninn getur unnið niður á 550 m dýpi. Á níunda áratugnum voru gerð- ar tilraunir með lagningu strengja milli eyja á Hawaii. Ætlunin var að framleiða raforku með jarðgufu og flytja milli eyja um sæstrengi og minnka þannig notkun orkuvera sem nota olíu. Sjávardýpi á leiðinni er mest um 1.900 m í sundinu milli Maui og Hawaii og var til- raunastrengur lagður þar eftir fyr- irfram ákveðinni leið og síðan tek- inn upp aftur. Þrátt fyrir mikla sjávarstrauma var meðalfrávik við lagningu aðeins 4,7 m frá fyrirhug- aðri leið. Það er því ljóst, að með nútímatækni má ná fram mikilli nákvæmni við sæstrengslagningu og sneiða hjá hvers kyns fyrirstöðu á sjávarbotni. Endabúnaður Við hvorn enda strengsins eru umriðilsstöðvar sem breyta rið- straumi í jafnstraum í sendienda og aftur í riðstraum í móttöku- enda. Þessar stöðvar eru hannaðar sérstaklega fyrir það jafnstraums- samband sem um er að ræða hveiju sinni, með tilliti til þeirrar áraunar sem þær verða fyrir og þeirra krafna sem eru um rekstrareigin- leika. Mikil lengd sæstrengs milli Islands og Bretlandseyja eða meg- inlandsins gerir það að verkum að í honum hleðst upp mikil orka sem þarf að afhlaða við tilteknar að- stæður. Slíkt veldur margföldum straum í gegnum umriðilsstöðv- arnar, en á toppgildi straumsins má hafa áhrif með svokallaðri jöfn- unarspólu. Með réttri hönnun umr- iðilsstöðvanna eru ekki talin vand- kvæði vegna þessa, en unnið er að rannsóknum á þessu ásamt frumhönnun umriðilsstöðva og munu niðurstöður liggja fyrir um mitt árið. Höfundur er rafmagnsverk- fræðingur, sem unnið hefurað athugunum á útflutningi raforku I um sæstreng. sem ekki trúði á æðri máttarvöld, og sýnir það um leið að umburðar- lyndi á sér jafnan takmörk. Hlýtur að eiga sér takmörk. Páll postuli sagði í bréfi sínu, að kærleikurinn umbæri allt, en þá veltur á skilningi okkar á því, hvað það er að umbera. Þótt við umberum sannfæringu annarra, felst ekki í því að við þurfum að fallast á hana, heldur viðurkennum við rétt þeirra til eig- in sannfæringar, til að halda henni fram og veija hana og lifa sam- kvæmt henni. Það segir sig sjálft, að menn yrðu hamingjusamari í veröld, þar sem umburðarlyndi er viðurkennt og virkt. Það er grundvöllur um- bóta, eins og Shaw sagði. Sérhver maður ber í bijósti þá löngun að fá að lifa samkvæmt sannfæringu sinni. Og almenn skynsemi segir okkur, að slíkt geti því aðeins gerst, að allir eigi þann rétt. En umburðarlyndi er ekki fólgið í því að láta hvaðeina viðgangast. Þótt orðabókin segi, að umburðar- lyndi sé að taka vægt á yfirsjónum annarra, þá táknar það ekki að umburðarlyndur maður sé reiðubú- inn að taka hveiju sem er. Hann getur ekki látið vaða yfir sig og taka frá sér rétt sinn. Og hann getur ekki umborið umburðarleysi. Hinn umburðarlyndasti maður get- ur þurft að vera mjög umburðar- laus og harður til að veija um- burðarlyndi sitt — og þar með mannlega reisn. Höfundur er rithöfundur og prófessor í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands. fe____________________________________ Mynd eftir Sheng’- elaja í bíósal MÍR KVIKMYNDIN Stjúpmóðir Shamanishvili verður sýnd í biósal MÍR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 27. mars kl. 16. Þetta er kvik- mynd frá áttunda áratugnum, gerð 1974 í Georgíu í Kákasus. Leikstjóri er Eldar Shengelaja, sem lengi var í hópi fremstu kvikmyndagerðarmanna Sovétríkjanna. í myndinni segir frá Georgíu- manninum Belina Shamanishvili sem ákveður á elliárunum, þegar hann hefur verið ekkill um nokk- urt skeið, að kvænast aftur. Sonur hans Platon reynir- að fá föður sinn til að hætta við þessi gift- ingaáform, því hann óittast að fá minni arf í sinn hlut ef faðir hans gengur aftur í hjónaband og eign- ast börn með nýju konunni. En fortölur fá ekki haggað áformum hins gamla. Kvikmyndin hlaut verðlaun á þriðju alþjóðlegu kvikmyndahátíð- inni í Kaíró á sínum tíma. Aðgang- ur er ókeypis og öllum heimill. Tím ogm Samhjálp nál félag arit um trúi annlegt sam Stofiiað 1983 4 tölublöd á ári/verð aðeins kr. 1620 ÁskriJftarsímar 91-611000 & 610477 KAROLINA borðlampi TWIST drykkj arkönnur BETSEL borðklukka LEGITIM skurðarbretti 2 í pk, KLAMPEN motta 120x180 sm, BUNDIS herðatré 10 stk. í pakka KNAPPEN motta 45x75 sm ISOBAR halogen borðlampi tr SILO glerkrukkur m/smelltu loki fyrir fólkið í landinu SYNTES kaffisett fyrir 6 KRINGLUNNI 7 • SÍMI 91-686650 ÓTRÚLEG TILBOÐ FRAM AÐ PÁSKUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.