Morgunblaðið - 24.03.1994, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
FN selur elstu Twin Qtter-flugvél sína til Kanada
Áhugí á að komast inn
á nýjar áætlunarleiðir
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fer til Kanada
ELSTA Twin Otter-flugvél Flugfélags Norðurlands hefur verið seld
til Kanada en þangað fer hún á morgun, föstudag.
FLUGFÉLAG Norðurlands, FN,
hefur selt elstu Twin Otter-flug-
vél sína til Kanada. Forráðamenn
félagsins eru famir að huga að
kaupum eða leigu á annarri
Metro-skrúfuþotu, en félagið
festi kaup á slíkri flugvél fyrir
þremur ámm og hefur hún
reynst mjög vel. Aætlunarflug
félagsins milli Akureyrar og
Keflavíkur hefst að nýju í byrjun
maí eftir hlé í vetur. Útlit er
fyrir hagstætt ár í rekstri félags-
ins á yfirstandandi ári líkt og var
í fyrra en þá varð hagnaður af
rekstrinum.
Sigurður Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Norður-
lands sagði að gengið hefði verið frá
sölu á elstu Twin Otter-flugvél fé-
lagsins til flugfélags í Kanada og fer
vélin frá Akureyri á morgun, föstu-
dag. „Við höfum notað þessa vél
mikið og hún hefur reynst ákaflega
vel. Það er alltaf viss eftirsjá að
góðum grip,“ sagði Sigurður. Ákveð-
ið var að selja vélina fyrir löngu eða
þegar félagið keypti Metro-Fairchild
skrúfuþotu árið 1991 en sölunni'var
frestað þar til nú vegna ýmissa verk-
efna. Sigurður sagði að gott mark-
aðsverð hefði fengist fyrir vélina,
„við erum að fá sömu upphæð í doll-
urum fyrir hana nú og við keyptum
hana á fyrir 15 árum.“
Góð nýting
FN á nú tvær Twin Otter-flugvél-
ar, tvær Chieftain-flugvélar og eina
Metro-vél en Sigurður sagði að farið
væri að huga að annaðhvort leigu
eða kaupum á annarri Metro-skrúfu-
þotu. Sú sem fyrir er hefur reynst
vel og verður nýting hennar afar góð
í sumar að sögn Sigurðar.
Keflavíkurflug að nýju
Áætlunarflug FN milli Akureyrar
og Keflavíkur hefst að nýju 5. maí
næstkomandi eftir hlé í vetur. Fyrir-
hugað er að fljúga þrisvar í viku á
þessari leið í fyrstu en þegar sumará-
ætlun tekur gildi í júní verður flogið
daglega milli staðanna þar til í sept-
ember. Sigurður sagði að greinileg
þörf væri á slíku áætlunarflugi að
sumrinu en yfir vetrarmánuðina virt-
ist hún tæplega fyrir hendi.
FN hefur 20% hlutdeild í áætlun-
arleiðinni milli Húsavíkur og Reykja-
víkur á móti Flugleiðum sem hefur
80% og hafa forráðamenn FN áhuga
á auknum réttindum á þeirri leið.
Þá hafa þeir einnig áhuga á að taka
að sér hluta af flugleiðinni milli Sauð-
árkróks og Reykjavíkur og er ætlun-
in að FN fljúgi fjórar ferðir í viku
fyrir Flugleiðir sem hefur sérleyfi á
þeirri leið. Beðið er eftir samþykki
samgönguráðuneytis við þeirri til-
högun. Sigurður sagði að þetta
væri liður í viðleitni félagsins til þess
að fá ný verkefni sem henti félaginu
en fyrirsjáanlegur samdráttur væri
á ýmsum þeim áætlunarleiðum sem
félagið hafí sérleyfí á einkum á Norð-
austurlandi. Vegir hefðu batnað og
margir kysu fremur að aka en ferð-
ast með fiugvélum og til marks um
það sagði Sigurður að nokkurs sam-
dráttar hefði gætt á leiðinni milli
Akureyrar og Egilsstaða í vetur eftir
að vetraropnun á leiðinni var tekin
upp en góð nýting hefði jafnan verið
á þessari leið.
Hagnaður
Hagnaður varð af starfsemi Flug-
félags Norðurlands á síðasta ári og
er útlitið gott hvað þetta ár varðar.
„Það lítur allt út fyrir að árið verði
okkur hagstætt. Við höfum næg
verkefni í Grænlandsflugi annað árið
í röð en það er mikilvægur þátt í
okkar starfsemi," sagði Sigurður.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gunnar Örn sýnir á Pollinum
Á POLLINUM á Akureyri stendur nú yfír sýning á verkum myndlistarmanns-
ins Gunnars Arnar. Gunnar Örn er sjálfmenntaður myndlistarmaður sem
hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1970 og eru þær orðnar fjölmargar síðan
bæði á Íslandi og erlendis t.d. í Kaupmannahöfn og New York. Þá hefur
hann tekið þátt í samsýningum víða um heim, á Norðurlöndunum, Lundún-
um, nokkrum stöðum í Bandaríkjunum, Sao Paulo og Tókýó. Á Pollinum
eru 23 olíuverk sem unnin voru á þessu og síðasta ári. Þá sýnir Gunnar
Örn þrjú verk á Tryggingamiðstöðinni sem er í sama húsi og Pollurinn.
-----» ♦ ♦---
Smygl í
Hvítanesi
TOLLGÆSLAN á Akureyri fann
55 flöskur af áfengi og 12 lengjur
af vindlingum við tollafgreiðslu
og leit í Ms Ilvítanesi í Dalvíkur-
höfn í fyrrakvöld en skipið var
að koma frá Portúgal og Spáni.
Sigurður Pálsson yfirmaður Toll-
gæslunnar á Akureyri sagði að
smyglvarningnum hefði verið hagan-
lega fyrir komið í sérstöku hólfí í
dekkhúsi skipsins sem búið var að
setja fyrir járnplötu og mála yfir.
Þrír skipvetjar játuðu að eiga
varninginn og er málið að fullu upp-
lýst.
Niðurstaða könnunar á kynhegðun
55,6% fráskilinna
breyttu kynhegð-
un vegna alnæmis
FJÓRÐUNGUR þeirra karla sem farið hafa erlendis í viðskiptaerind-
um, hafa haft kynmök við einstakling sem stundar vændi. Hlutfallið
er mun lægra meðal þeirra karla sem ekki hafa farið utan í við-
skiptaerindum, eða 7,1%. Ekki er þó ljóst hvenær á ævi karlanna
eða undir hvaða kringumstæðum mök gegn greiðslu fóru fram.
Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar á kynhegðun og þekk-
ingu á alnæmi sem gerð var á vegum Landlæknisembættis og Lands-
nefndar um alnæmi árið 1992 og birt var í gær. Könnunin leiðir
jafnframt í Ijós að að 8,4% þeirra sem voru giftir eða í sambúð
kváðust hafa breytt kynhegðun sinni vegna alnæmis og stofnað til
færri skyndikynna en áður, 29,6% þeirra sem voru í föstu sam-
bandi, 36,3% einhleypra og 55,6% fráskildra.
Fjöldi þeirra sem segjast hafa
breytt hegðun sinni er meiri meðal
karla en kvenna, 14,3% á móti 9,3%,
og segja aðstandendur könnunarinn-
ar að þessi munur sé marktækur.
Samsvarandi kannanir sem gerðar
voru 1987 sýndu að um 7,9% karla
og 7,0% kvenna töldu sig hafa breytt
hegðun sinni vegna alnæmis, þanníg
að um talsverða fjölgun er að ræða.
Smokkurinn meira notaður
Svipaður fjöldi karla og kvenna,
eða 5,3% á móti 4,0%, var alvarlega
að hugsa um að breyta hegðun sinni,
en talsvert fleiri karlar en konur
hafa hins vegar ekki hugsað um að
breyta hegðun sinni vegna hættu á
alnæmissmiti. Fleiri karlar en konur
segjast stofna til færri skyndikynna
en áður, 20,2% á móti 14,8%. Fleiri
karlar en konur segjast neyta áfeng-
is eða annarra vímuefna í minna
mæli en áður, 11,3% á móti 8,2%,
en þessi hegðunarbreyting er mest
meðal einhleypra, 21,1%, og frá-
skildra, 27,8%. Af öllum þeim sem
svöruðu segjast 25,4% nota smokk-
inn við fyrstu samfarir eða meira
en áður, og er hlutfallið svipað hjá
báðum kynjum en eins og við er að
búast svara flestir játandi i yngsta
aldurshópnum sem eru að hafa
kynmök í fyrsta skipti, eða 70,2%,
og meðal fráskildra, eða 55,9%.
Herferð meðal ferðamanna
Könnunin dró fram að stór hluti
ungs fólks hefur ferðast víða, m.a.
til landa Mið- og Suður-Evrópu, þar
sem útbreiðsla alnæmis er mikil,
aðallega vegna eiturlyfjanotkunar.
Guðjón Magnússon, formaður
Landsnefndar um alnæmisvandann,
segir ýmislegt í könnuninni gefa til
kynna að beina eigi sjónum að ferða-
mönnum, og tilfelli sem upp hafa
komið sýni óbein tengsl milli ferða-
laga og alnæmissmits. Því hafi verið
ákveðið að blása til kynningarher-
ferðar sem aðallega beinist að ferða-
löngum. Gefínn verður út einblöð-
ungur í 70 þúsund eintökum um
smokkinn og smitleiðir alnæmis, sem
dreift verður til ferðamanna við af-
greiðslukassa í Leifsstöð. Herferðin
stendur frá apríl og fram í septem-
ber. Að sögn Guðjóns var rætt við
stærstu ferðaskrifstofurnar um að
dreifa efni af þessum toga með far-
seðlum, en þær voru ekki tilbúnar
til þess af ótta við missa viðskipta-
vini. Einnig mun tvíblöðungur með
samsvarandi fræðslu liggja frammi
á þeim stöðum sem ferðamenn eru
bólsettir fyrir ferðir til fjarlægra
landa.
Könnunin fór fram 29. apríl til
6. ágúst 1992 með aðstoð félagsvís-
indadeildar Háskóla íslands. Úrtakið
var 1.500 einstaklingar á aldrinum
16-59 ára sem valdir voru af handa-
hófi úr þjóðskrá, hvaðanæva af land-
inu. Gild svör voru 975 eða 65% en
ef þeir eru dregnir frá sem vitað er
að bjuggu erlendis, er svarprósentan
heldur hærri, eða 65,4%. Hlutfall
aldursskiptingar var jafnt, utan þess
að fækkað var um 50 einstaklinga
í elsta hópnum, 50-59, og þeim
dreift á aldurshópinn 30-49 ára, þar
sem sá hópur telst frekar í áhættu
en hinn.
83 einstaklingar hafa greinst með
alnæmi hérlendis frá því að mæling-
ar hófust, og þar af eru 63 enn á
lífi en 11 eru með sjúkdóminn á loka-
stigi. Átta létust úr alnæmi á sein-
asta ári. Þrjú alnæmistilfelli greind-
ust á seinasta ári sem er það minnsta
sem greinst hefur frá 1988, en árin
1990, 1991 og 1992 voru að meðal-
tali 12 greindir með alnæmi á ári.
„Færri greindust í fyrra en áður, en
við vitum ekki hvort um svikalogn
sé að ræða, þó að við vonum að
þetta gefi vísbendingu að forvarna-
starf okkar hafi skilað árangri," seg-
ir Guðjón. „Umræða um alnæmi
hefur verið óvenju lítil upp á síðkast-
ið, og við vitum að fenginni reynslu
að aldrei má hætta að fræða og
fyrirbyggja á þessu sviði.“
Marin Brmnd de Creve-
coeur ræðismaður látin
MARÍN Briand de Crevecoeur
ræðismaður lést úr krabbameini
í gærmorgun. Lést hún í sjúkra-
húsi í borginni Malaga á Spáni.
Marín fæddist í Reykjavík 25.
september 1929. Foreldrar hennar
voru Gísli Jónsson bifreiðasmíða-
meistari og járnsmiður frá Hróars-
holti í Villingaholtshreppi, fæddist
27. febrúar 1901, lést 15. mars
1959, og Guðrún Magnúsdóttir hús-
freyja frá Vorsabæ á Skeiðum,
fæddist 22. júlí 1895, lést 10. ág-
úst 1979. Marín útskrifaðist frá
Kvennaskólanum í Reykjavík árið
1947. Árið 1949 giftist hún Jean
Philipe Briand de Crevecoeur. Þau
hjónin fluttust til Kaupmannahafn-
ar sama ár en Jean Philipe vann
hjá Grænlandsversluninni í Kaup-
mannahöfn. Þau fluttust síðan til
Malaga á Spáni árið 1969 og var
Marín ræðismaður íslands þar hátt
í 20 ár. Marín og Jean Philipe varð
tvejgjg barijja auð|ð. Þau heita
30. nóvember 1950, og René Gísli,
sem fæddist 2. desember 1953, og
eru bæði búsett í Malaga.