Morgunblaðið - 24.03.1994, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
sæt og ilmandi
súr og safarík
EPLUM ER gjarnan skipt í tvo flokka, súr og sæt. Sætu ilmandi
eplin eru vinsæl í ábætisrétti en hin súru og trefjaríku í matreiðslu.
í stóru matreiðslubók Iðunnar kemur fram að það fer ekki aðeins
eftir tegund hvort epli verður súrt eða sætt, hart eða mjúkt. Upp-
skerutími og meðhöndlun við geymslu ræður einnig mildu þar um.
Morgunblaðið/Þorkell
Rauð epli í tveimur
stærðum. Verð á stórum
er hærra en á litlum.
Græna eplið Granny er
súrt og þolir matreiðslu
mjög vel.
(
Gula eplið Golden delici-
ous kemur frá vestur-
strönd Bandaríkjanna.
Eistar heitir þetta epli,
sem var ræktað upp af
nokkrum eplategundum.
Jonagold er mjölmikið
epli og oft ódýrara en
önnur.
Empire-epli eru örlítið
súr og eru mikið notuð
i salöt.
Mclntosh-epli eru ekki
alltaf fáanleg en þykja
nyög góð ábætisepli.
í eplum er ekkert
prótein, engin fita,
notríum eðn kól-
esteról, segir í
mntreiðslubók Ið-
unnnr
í eplum er ekkert prótein, engin
fíta, natríum eða kólesteról, segir í
matreiðslubók Iðunnar. Þar kemur
jafnframt fram að meðalhitaein-
ingafjöldi í 100 g af eplum eru 59
og kolvetni 15 grömm.
Aðal uppskerutími epla er á sumr-
in og haustin. Viktor Kieman inn-
kaupamaður hjá Hagkaup og Ólafur
Sigurðsson gæðastjóri sama fyrir-
tækis, segja að þroski epla sé stöðv-
aður í sérstökum kæligeymslum við
loftstirðar aðstæður og þess vegna
séu epli eins og nýtínd af tijánum
allan ársins hring. „Þeim mun stærri
sem epli em þeim mun viðkvæmari
eru þau. Ef epli dettur I gólf mynd-
ast mar í þvf um klukkustund síðar.“
Þesslrauðu
Þótt úrval epla sé talsvert hér á
landi og hver tegund hafi ákveðin
bragðeinkenni, segja þeir að lang-
flestir velji epli eftir útliti. Rauðu
bandarísku eplin eru þau mest fram-
leiddu í heiminum að sögn Viktors
og Ólafs. Þau em seld í ýmsum
stærðum og er kílóverð á stómm
eplum hærra en á hinum minni.
Tvær algengustu stærðimar em
miðaðar við að 100 epli eða 64 kom-
ist í kassa. Stóru gimilegu jólaeplin
em stærri, því miðað er við að 56
jólaepli komist fyrir í hveijum kassa.
„Þessi epli em frá Washington, enda
þykja epli frá vesturströnd Banda-
ríkjanna mun betri en þau sem rækt-
uð em á austurströndinni. Þessi
epli em þétt í sér og best hrá.“
Grœn og gul
Græn epli sem kölluð em Granny
Smith fóm sigurför um heimin upp
úr 1850, segja ólafur og Viktor. Þau
em ýmist sögð eiga uppmna í
Frakklandi eða Ástralíu. „Þessi epli
þurfa töluvert sólskin svo þau nái
að þroskast og því eru þau ekki
ræktuð mjög víða. Grænu eplin em
mjög þétt í sér, safarík og þau þola
suðu mjög vel.“ Matreiðslubók Ið-
unnar mælist til að þau séu notuð
til matreiðslu, en Ólafur og Viktor
segja þau jafnframt mjög góð hrá.
Gul epli, sem einnig em stundum
nefnd Golden Delicious, þykja sér-
lega góð í eplasafa vegna hins sæt-
súra bragðs. Gul epli sem seld eru
hér á landi koma yfirleitt frá Frakk-
landi. Gul epli em ekki sérlega safa-
rík.
Jónagold eru mjölmlkil
Verð á Jónagold eplum er yfir-
leitt mun lægra en á öðrum tegund-
um. Þau eru vinsæl til matreiðslu
en em einnig góð ábætisepli að sögn
Ólafs og Viktors. Jónagold epli eru
mjölmikil, sérstaklega hin stóm og
er bragðkeimur sætur. Jónagold
epli draga nafn sitt af uppruna, en
þau em ræktað afbrigði af Jonat-
han-eplum og Golden delicious.
Eistar heitir afbrigði sem ræktað
er upp af nokkrum tegundum, m.a.
hinum gulu Golden delicious. Þessi
epli em safarík og stökk.
Breskur bóndi að nafni Cox rækt-
aði upp eplaafbrigði í kringum 1830.
Eru eplin nefnd eftir honum. Að
sögn Viktors og Ólafs em þau
stundum kölluð „konungur átepla“
en sérstakur bragðkeimur þeirra
skilur þau frá öðmm eplum. Eplið
er ólíkt flestum öðmm tegundum í
lögun og er rautt á þeirri hlið sem
snýr að sólinni. Cox-epli em ekki
alltaf til hér á landi. Þau em stökk
og þykja best hrá.
Mclntosh
Mclntosh-epli eru aðallega rækt-
uð í Kanada og þykja einstaklega
góð til átu. Þau eru stinn og safa-
rík. Lögun þeirra er ekki ósvipuð
lögun Cox-epla og oftast eru þau
tvílit eins og Cox. Að sögn Ólafs
og Viktors er þetta þriðja mest
ræktaða eplaafbrigði í heiminum.
Nýtt afbrigði, sem heitir Empire
hefur náð miklum vinsældum í
Bandaríkjum að undanfömu, segja
títtnefndir heimildarmenn okkar.
Eplin em ræktuð í New York-ríki
og em svolítið súrari en önnur
bandarísk epli. Þau em vinsæl í
hvers kyns salöt, til dæmis Waldorf-
salat, þar sem þau þykja hafa frí-
skandi bragð.
Þegar bitið er í epli eða skorið,
líður ekki á löngu þar til sárið fer
að dökkna. Gamalt húsráð segir að
gott sé að bera sítrónusafa í sárið
til að halda ljósa litnum. Ólafur og
Viktor voru spurðir um notkun
eiturefna í eplarækt og sögðu þeir
að hún væri undir þeim mörkum sem
evrópskir staðlar kvæðu á um.
„Eiturefni sem notuð em, em til að
vemda ávextina og þau brotna nið-
ur. Þess vegna er hverfandi lítið
eftir af eiturefnum þegar þau koma
á markað.“
BT
w/-l_______________£_______________l-M
PUHÍIHHHI
Opið alla daga vikunnar
Ný tilboð vikulega:
■ Herrahúsið: Allir leöur og rúskinsjakkar kr. 6.900
^ Barna íþróttagallar frá kr. 1.290
• Lilja tískuverslun Blússur kr. 2.990
• Spor hf. Geislaplötutilboö:
___Ef þú kaupir 5 geislaplötur á 999 kr. hverja færöu eina fría.
■ X & Z barnajakkar stæröir 128-170 kr. 4.900
► Verkfæri - þau ódýrustu í bænum
t.d. 8" skrúfstykki m/snúning og steöja kr. 4.900
• Flash tískuverslun kjólar kr. 2.990
I ♦ Gallabuxur ný sending svartar/bláar, allar stæröir kr. 2.900
B íslensk gæðavara - tilboð rækjur kr. 500 kg.
► Skór - ótrúleg verð, nýjar sendingar daglega
• Páskasælgæti á verksmiðjuverði
Blómalist: PáskalUjur 10 stk. kr. 590
Gjafavörur Páskaliljur 20 stk. kr. 990
FAXA FENI 10 g 882666
SKRIFSTOFAN OPIN MÁN.-FÖS. 08.30-13.00
I Garði eru framleiddar
fiskisælur, ýsurúllur og fiskisúpur
í GARÐINUM er nú starfandi lítil fiskiréttaverksmiðja, sem framleið-
ir tilbúna fiskrétti í neytendaumbúðum undir vörumerkinu Fiskmar.
Útflutningsráð vinnur að markaðssetningu vörunnar erlendis og
náðst hafa samningar við Flugleiðir um kaup á töluverðu magni auk
þess sem vonir eru bundnar við að svipaðir samningar náist við ein
fjögur leiguflugfélög, sem fljúga munu til íslands í sumar.
Það er fyrirtækið Víðir hf. sem
framleiðir réttina, sem verið hafa á
innanlandsmarkaði um nokkurt
skeið og er hráefnið fengið á fisk-
mörkuðum innanlands. Þetta eru
þrenns konar réttir unnir úr ís-
lensku fiskmeti í þannig umbúðum
að þeir eru tilbúnir í örbylgjuofn-
inn. Fyrst skal nefna ýsurúllur með
rækju-, sveppa- eða paprikufyll-
ingu. Þá fiskisælur í sósu; sítrónu-
piparsósu, karrísósu, ostasósu og
dillsósu með hrísgijónum og græn-
meti. Loks eru framleiddar fjórar
súputegundir, það er ítölsk fiski-
súpa, frönsk fiskisúpa, rækjusúpa
og skelfísksúpa. Allir réttimir eru
um 320 grömm að þyngd og mið-
ast þar af leiðandi við einn.
Að sögn Gunnars Jakobssonar,
sem hefur með höndum markaðs-
mál, er Víðir hf. mest í ferskfiskút-
flutningi og saltfiskverkun, en hef-
ur freistað þess að fara út í tilbún-
ar neytendapakkningar og eru von-
ir bundnar við að markaðsátak er-
lendis skili árangri. Hann telur að
England sé vænlegur markaður, en
fiskirúllumar hafa um nokkurt
skeið náð fótfestu í Finnlandi.
Morgunblaðið/Júlíus
Víðir hf. í Garði framleiðir m.a.
fjórar tegundir af fiskisúpum,
ýsurúllur með þrenns konar fyll-
ingum og fiskisælu með hrís-
grjónum og grænmeti.
Gunnar segir að vel hafi gengið að
koma fískirúllunum út til ýmissa
vinnustaða, mötuneyta og sjúkra-
húsa. „Hinsvegar er samkeppnin
afar hörð þegar um tilbúin mat er
að ræða. Það liggur við að kaup-
menn segi að það sé ekki pláss í
búðunum þegar kemur að innlendri
framleiðslu þar sem að svo fjöl-
breytt úrval sé til af tilbúnum er-
lendum mat.“ ■
með rjómaís
FYRIRTÆKIÐ Emmessís hefur
nú hafið framleiðslu á íseggjum.
Um er að ræða páskaegg, súkku-
laðiegg fyllt með rjómaís.
Eggin eru þegar fáanleg í
verslunum. ■