Morgunblaðið - 24.03.1994, Side 27

Morgunblaðið - 24.03.1994, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994 27 Hiti í vatnsrúminu tapast ef ekki er búið um ÁKJÓSANLEGUR hiti á vatninu í vatnsrúmi er um 27 gráður á Celsíus. Mörgum finnst þægilegt að hafa 26 gráðu hita að sumrinu en 28 gráðu hita yfir veturinn og er reyndar mælt með því. Hafa ber í huga að rúmfötin ein- angra vatnsdýnuna frá umhverfinu og hindra að hiti berist frá vatns- rúminu út í umhverfið. Búið því vel um rúmið strax eftir notkun. Sé það dregið tapast hiti að óþörfu og þann hita þarf rafmagnshitarinn að bæta upp með meiri notkun. Að deginum til er nægilegt að lofta út í 10-15 mínútur með því að hafa opinn glugga. Sé gluggi hafður opinn í átta klst. á köldum vetrardegi má ætla að vatnsrúmið noti 2-3 kWh aukalega. Sé skipt um vatn og látið kalt vatn í vatns- rúmið þarf að nota um 22 kWh til að hita rúmið að nýju og það tekur tvo sólarhringa áður en 27 gráðu hita er náð, miðað við 400 W raf- magnshitara. Slökkvið ekki á vatnsrúminu vegna stuttrar fjarveru. Ef slökkt er á því tekur sólarhring að hita það um 9 gráður. Það er að segja úr 18 gráðum í 27 gráður og til þess þarf rafmagn er svarar til fimm til sex daga notkunar. Gera má ráð fyrir að vatnsrúm noti 2-3 kWh á sólarhring eða um 1.000 kWh á ári. ■ ONDVEGIS URBEINAÐ HANGILÆRI ÚRBEINAÐUR HANGIFRAMPARTUR MALEE ANANASMAUK 425 g ANANASSNEIÐAR 425 g ÁÐUR 57,- Bakaðar kartöflur og átta tegundir af fyllingum NÝR veitingastaður verður opnaður í Reykjavík í dag, en hann er sérstakur að því leyti að þar verður aðaláherslan lögð á matarmiklar bakaðar kartöflur með alla vega fyllingum. Staðurinn hefur hlotið nafnið „Jakkar og brauð“, er til húsa í Skeifunni 7 og tekur um 60 manns í sæti. Eigendurnir eru mæðgumar Hulda Ósk Ólafsdóttir og Guðrún Margrét Kjartansdóttir og segja þær fyrir- myndina sótta til Bretlands. „Þannig var að dóttir mín var „au-pair“ í London og kynntist þessu þar. Við erum m.a. í sam- starfi við aðila í London sem rekur nokkra svona veitingastaði þar undir nafninu „Jacket Potatoes“. Við fáum t.d. frá honum allar umbúðir," segir Hulda. Kartöflurnar, sem notaðar verða, eru hollenskar. Eftir bökun er skorið í þær og þær fylltar með einhveijum af þeim átta fyllingum sem í boði eru. Kartöfluskammturinn kostar 250-300 kr., en auk þess ætla þær Hulda og Guðrún að bjóða upp á fáeina aðra rétti, t.d. kjötmeti og smurbrauð, en áður en þær keyptu staðinn var þar rekin smurbrauðs- stofa. ■ Morgunblaðið/Sverrir Mæðgurnar Hulda Ósk Ólafs- dóttir og Guðrún Margrét Kjart- ansdóttir á nýja veitingastaðn- um, „Jakkar og brauð“. Áhersla verður lögð á bakaðar kartöflur með ýmsum fyllingum. Árúteikningar og árulestur Teikna árukort og les úr þeim líkamleg, tilfinningaleg og andleg áföll úr fortíðinni. Les einnig úr árulitunum framtíðarmöguleika einstaklingsins. Býð upp á nokkrar mismunandi gerðir korta m.a. heildarkort og sálarkort. Einkatímar. RAGNHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR, sími 674775 ■ EÐALFISKUR REYKTUR OG GRAFINN LAX SNEIDD FLÖK TILB. VERÐ BASSETS LAKKRÍS- KONFEKT 400 g Tl AÐUR 199,- DOGUN RÆKJUR — 1 KG 449 Pr* Lg SPÆNSKAR APPELSÍNUR Tl y-: w pr. kg ÁÐUR 99,- EMMESS DAIM SKAFÍS 1 ltr NIF L AÐUR 349,- SVEPPIR n pr. kg ÁÐUR 599, HAGKAUP gœöi úrval þjónusta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.