Morgunblaðið - 24.03.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
31
Whitewater-málið verður tekið fyrir á Bandaríkjaþingi
Báðar deildir sam-
þykkja vitnaleiðslur
Washinglon. Reuter.
FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings fór í gær að dæmi öldungadeild-
arinnar og samþykkti að efna til vitnaleiðslna í Whitewater-málinu.
Leiðtogar flokkanna, demókrata og repúblikana, eiga eftir að ákveða
tímasetningu vitnaleiðslnanna en samþykktir deildanna eru ekki
bindandi og demókratar gefa í skyn, að náist ekki samkomulag um
framkvæmdina muni ekkert verða af vitnaleiðslunum. Roger Altman
aðstoðarfjármálaráðherra var yfirheyrður í gær en hann var á sínum
tíma skiptaráðandi Madison Guaranty, sparisjóðs, sem varð gjald-
þrota og tengdist Whitewater-málinu.
Fulltrúadeildin samþykkti vitna-
leiðslurnar með 408 atkvæðum gegn
15 en í samþykktinni sagði, að þær
mættu á engan hátt hafa áhrif á þá
rannsókn, sem Robert Fiske, sérstak-
ur rannsóknardómari, hefur nú með
höndum í Whitewater-málinu. Meðal
annars verður vitnum ekki lofuð frið-
helgi leggist Fiske gegn því. Líkleg-
ast þykir að vitnaleiðslurnar verði
fyrir kosningarnar í nóvember.
Altman aðstoðarfjármálaráðherra
var yfirheyrður í gær en hann var
áður yfirmaður Resolution Trust
Corp., stofnunar, sem sér um að
gera upp gjaldþrota sparisjóði og
aðrar lánastofnanir. Síðastliðið haust
lagði hún til, að hafín yrði opinber
rannsókn á gjaldþroti Madison Guar-
anty en sparisjóðurinn var í eigu
James McDougals og konu hans, sem
aftur voru meðeigendur Bills Clint-
ons og Hillarys, konu hans, í Whitew-
ater-fasteignafvrirt,ækinu. Leikur
grunur á, að sparisjóðurinn hafí veitt
fé í kosningasjóð Clintons í gegnum
Whitewater-fyrirtækið.
McDougal, sem segist vera gjald-
þrota, er nú farinn að selja lófastóra
bletti úr landinu, sem Whitewater-
fyrirtækið ætlaði upphaflega að
hagnast á og segir, að vinur sinn
hafi gefið sér þijár ekrur af því af
vorkunnseminni einni. 1978 átti ekr-
an að kosta tæpar 100.000 kr. en
nú vill McDougal fá 1.440 kr. fyrir
sneið sem er ekki stærri en vasakiút-
ur. Ekran er þá komin í 60 milljónir
kr. og McDougal er viss um, að
margir vilji eiga hlut í þessari frægu
landspildu.
Clinton forseti segir í viðtali, sem
birtist í gær í tímaritinu USA
TODAY, að honum gremjist sleggju-
dómarnir í fjölmiðlum, sem telji fyrir-
fram víst, að hann hafi brotið eitt-
hvað af sér í Whitewater-málinu.
bllémciycil!
Metsölublað á hvetjum degi!
Leiðbeinandinn og
miðillinn Patrice Noli
býður upp á
eftirtalin námskeið
Skyndistefnumót til frambúðar — Þetta
námskeið er með þeim allra
vinsælustu sem hún hefur haldið í
Bandaríkjunum. Það er ætlað báðum
kynum, hvort sem fólk er í sambúð eða ekki.
Kenndar eru aðferðir til að skapa og viðhalda
ástríðum, spennu og FRELSI skyndistefnumóta i ollum samskiptum.
Kvöldið verður fullt af visku og gleði.
Föstudagskvöldið 25. mars
kl. 20—23:
Helgina 26. og 27. mars kl. 10—17.30:
Þjálfun miðilshæfileika —Námskeiðið er byggt á aðferðum Sanaya
Roman, sem kenndar eru í nýútkominni samnefndri bók.
Kennt er að koma á sambandi og taka á móti skilaboðum frá
andlegum leiðbeinendum og miðla þeim.
SKRÁNING OG NÁNARI UPPLÝSINGAR í
VERSLUNINNI BETRA LÍF í SÍMA 811380
Dagskrá:
Stórskemmtileg söng- og danssýning
byggð á tónlist úr söngleiknum GREASE
Fjörinu halda uppi Battú dansflokkurinn,
Eyjólfur Kristjánsson, Sigríður Beinteinsdóttir
auk I4 glæsilegra þátttakenda í Fegurðarsamkeppni Reykjavíkur.
Krýndar verða vinsælasta stúlkan, Ijósmyndafýrirsæta
Reykjavíkur og Fegurðardrottning Reykjavíkur um miðnætti.
Kynnir: Anna Björk Birgisdóttir.
Matseóill:
Freyðandi fordrykkur
Púrtvínsbætt sjávarréttasúpa
Hunangsreykt grísafillé með rjómasósu,
sykurbrúnuðum jarðeplum og smjörgljáðu grænmeti
Súkkulaðiís með vanillukremi og ávöxtum
Miðaverð kr. 3.900 með mat, kr. I.500 án matar.
Húsið opanð kl. I9. Dansleikur að lokinni krýningu.
Borðapantanir í síma 687 III.