Morgunblaðið - 24.03.1994, Page 37

Morgunblaðið - 24.03.1994, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994 37 Skipta 35 ár engii máli? eftir Birgi Hermannsson Enn heldur Björn Bjarnason áfram að berja höfðinu við stein- inn. Einfaldur samanburður á landbúnaðarstefnu Alþýðuflokks- ins og annarra flokka síðustu 35 árin leiðir í ljós að öll þessi ár hefur Alþýðuflokkurinn haft mikla sérstöðu. Fyrir þann tíma var mik- il sátt um uppbygginguna í land- búnaði og stóðu allir flokkar að henni. Báðum þessum staðreynd- um neitar Björn Bjarnason. Það blasir einnig við okkur nú að Al- þýðuflokkurinn hefur í meginat- riðum haft rétt fyrir sér í sinni landbúnaðarstefnu. Björn Bjarna- son ætti t.d. að rifja það upp hver kom á útflutningsbótum á land- búnaðarafurðir og varði þær með kjafti og klóm. Það var Sjálfstæð- isflokkurinn með Ingólf Jónsson frá Hellu í broddi fylkingar. Allir viðurkenna það nú að útflutnings- bæturnar voru mistök sem leiddu til gífurlegrar sóunar á almannafé. í þessu máli getur Alþýðuflokkur- inn borið höfuðið hátt. Ég skil vel að sjálfstæðismenn vilji horfa fram hjá þessu og tala í staðinn um 1934 eða 1956. Bjöm Bjarnason ætti hins vegar að huga að því hyersu traustvekjandi slík fortíðarhyggja sé. Vekur það traust hjá ungu fólki að telja það engu skipta hvaða stefnu flokkar hafa haldið á lofti í landbúnaðar- málum síðustu 35 árin? Vandamál- ið við landbúnaðarstefnu Sjálf- stæðisflokksins virðist vera það að hann getur ekki slitið sig úr fjötrum sinnar fortíðar og horfst í augu við mistök sín. Gylfi Þ. Gíslason telur landbúnaðarstefnu viðreisnarstjórnarinnar hafa verið ein helstu mistökin í því langa og farsæla stjórnarsamstarfi. Gaman væri að fá við tækifæri álit Björns Bjarnasonar á því. Deilur ríkisstjórnarflokkanna í landbúnaðarmálum hafa snúist um tvennt. Annars vegar um framtíð- arstefnu og fjárframlög ríkissjóðs til landbúnaðarmála og hins vegar um túlkanir á lögum varðandi inn- flutning á landbúnaðarafurðum. I ljósi sögunnar var fyrirfram vitað að hart yrði deilt um stefnu og fjárframlög, en innflutningsdeilan kom flatt upp á flesta. Dómur hæstaréttar í skinkumálinu tók af öll tvímæli um það að Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hafði rétt fyrir sér í því máli. Björn Bjarnason og aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins ættu að draga sfna lærdóma af því. Ég hirði ekki um að svara geð- vonskulegum aðfinnslum Björns Yfírlýsing frá forseta bæj- arstjómar Njarðvíknr MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Ingólfi Bárðarsyni, forseta bæjarstjórn- ar í Njarðvík: „Ég, undirritaður, Ingólfur Bárð- arson, hefi tekið þá ákvörðun í sam- ráði við fjölskyldu mína og stuðn- ingsmenn að gefa ekki kost á mér á framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins fyrir sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Keflavík, Njarðvík og Höfnum í vor. Ég hefi starfað fyrir Sjálfstæðis- flokkinn frá 16 ára aldri í nefndum og ráðum og undanfarin 12 ár ver- ið bæjarfulltrúi þar af forseti bæjar- stjórnar síðastliðin 3 ár. Ég hefi fórnað miklum tíma í þessi störf, sem ég sé ekki eftir. Það er kominn tími hjá mér til þess að létta aðeins á og sinna mínum persónulegum málum betur og gefa öðrum tækifæri til að tak- ast á við þessi verkefni. Mér finnst ég skili góðu og traustu búi í hendur nýrrar bæjar- stjórnar og Sjálfstæðisflokkurinn í Njarðvík fékk yfir 50% fylgi í síð- ustu skoðanakönnun. Það er von nn'n að eining náist um framboðslista flokksins í nýja bænum okkar. Mér hefir verið boðið heiðurssæti Takk fyrir komuna í afmæli Hagstofunnar. Vinningshafar í spurningaleiknum eru eftirfarandi: 1. vinningur Ámi Baldvin Þórðarson, Vífilsstöðum, húsi 7, 210 Garðabaer Guðrún Rósaísberg, Grandavegi 7, 107 Reykjavflc Hákon Vignir Smárason, Kársnesbraut 49, 200 Kópavogur Aðrir vinningar Benedikt Sveinsson, Blönduhlíð 20, 105 Reykjavflc Bjartmar Leósson, Nóatúni 28, 105 Reykjavflc Fjóla Loftsdóttir, Salthömrum 5, 112 Reykjavflc Guðni Rósmundsson, Leirubakka 16, 109 Reykjavflc Haukur Jóhannsson, Hraunbæ 198, llOReykjavflc Jón öm Bjamason, Reynimel 74, 107 Reykjavflc Magnús Stefánsson, Langholtsvegi 50, 104 Reykjavflc Matthildur Magnúsdóttir, Frostafold 23,112 Reykjavflc Svanur Wilcox, Krummahólum 6, 111 Reykjavflc Þorgils Arason, Dunhaga 23, 107 Reykjavflc Þorvarður Pálsson, Reykjabraut 13, 380 Króksfjarðames Þórunn Erlendsdóttir, Látraströnd 7, 170 Seltjamames Vlnningar verða sendir heim til vinningshafa. „Vandamálið við land- búnaðarstefnu Sjálf- stæðisflokksins virðist vera það að hann getur ekki slitið sig úr fjötr- um sinnar fortíðar og horfst í augu við mistök sín.“ Bjarnasonar um mína persónu eða Reykjavíkuriistann. Ég vil hins vegar spyrja Björn tveggja spurn- inga. í fyrsta lagi, ef ekkert er að marka mín skrif, hvers vegna skrifar hann þá hverja svargrein- ina af annarri? í öðru lagi spyr ég: Hvað kemur Reykjavíkurlist- inn sögulegri sérstöðu Alþýðu- flokksins í landbúnaðarmálum við? Það er ljóst að í þremur sagn- fræðiæfingum á síðum Morgun- blaðsins hefur Björn Bjarnason afrekað það að telja síðustu 35 árin engu skipta um sérstöðu Al- þýðuflokksins í landbúnaðarmál- um. Það er einnig augljóst að hann er ekki viljugur til að horfast í augu við sögu eigin flokks þegar FJAÐRAGORMAR ÍÝMSABÍLA Sími622262 Birgir Hermannsson að landbúnaðarmálum kemur. Úr þessu tel ég því tilgangslaust, að ræða þetta mál við hann frekar og læt þessum deilum okkar lokið. Höfundur er aðstoðarmaður umhverfisráðherra. |Her inn á lang X flest heimili landsins! Ingólfur Bárðarson á lista Sjálfstæóisflokksins við kom- andi bæjarstjórnarkosninar og mun ég taka því með þökkum og vinna í framtíðinni að heill flokksins og nýja byggðarlagsins. Ég vil þakka það traust sem mér hefir verið sýnt um árabil og óska samborgurum mínum alls góðs.“ fí — — »vf? — rnism 30. mars til 4. apríl Matreiðslumeistari yfir páskana Sigurður L. Hail Sigmar B. Hauksson verður með vínkynningu. Eyjólfur Kristjánsson heídur uppi stemmningunni og Helena Jónsdóttir verður með danskabarett. Helga Backmann og Helgi Skúlason verða með leiklestur úr „Brekkukotsannái“ Gestgjafi Sigurður Guðmundsson Sigurður L. HaU verður með fyrirlestur um matargerð. Vínurtónleikar Þorvaldur Steingrímsson fiðluleikari og stjómandi, Sigurður Björnsson óperusöngvari, Ingibjörg Marteinsdóttir óperusöngvari, Bragi Hlíðberg harmonikuleikari, Guðni Þ. Guðmundsson píanóleikari og Pétur Urbancic bassaleikari. Verð um páskana pr. mann í tvíbýli pr. nótt með þriggja rétta kvöldverði, gistingu og morgunverði 2! næturkr. 5*4:50 1 nóttkr. 5*500 4 nætur kr. 3*950 3 nætur kr. 4.450 Þ.m.t. hátíðarréttur á páskadagskvöld og margt, margt fleira. Píemóbar ogEyjólfur öll kvöíd. Ýmsir útivistarmöguleikar, m. a. vélsleðaleiga o. fl. 0Á HOTEL ODK HVERAGERÐI - SÍMI 98-34700 - FAX 98-34775 'Th: . ----------

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.