Morgunblaðið - 24.03.1994, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
41
Ferming, hvers virði
er hún og fyrir hvern?
eftir Sigurð Snævar
Gunnarsson
Það vakti furðu mína, þegar ég
frétti, að Þjóðkirkjan hefði hafnað
að taka þátt í kynningu í Perlunni
til handa fermingarbörnum og að-
standendum þeirra. Forsendur væru
þær, að þarna væri um að ræða
kaupstefnu fyrir verslunareigendur
til að selja fermingarbörnum meira
nú en nokkru sinni áður í tilefni
tímamóta viðkomandi barna og fjöl-
skyldna.
Þarna fannst mér vera kjörið
tækifærið fyrir alla aðila til að skoða
og ígrunda, hvað stæði til boða, og
hvernig skyldi halda á málum varð-
andi fermingu hvers og eins. Ef ein-
hveijir kaupmenn vildu ota sinni
vöru framar öðrum, þá væri það
þeirra mál eða vandamál, hvemig
sem á það yrði lítið. Fermingarböm
og aðstandendur þeirra eiga að
stjórna sínu vali sjálf, en loksins
gæfist gott færi á að kveða niður
þær öfgar, sem þekkst hafa í ferm-
ingargjöfum og öðra sem til ferm-
ingar heyrir.
Mér fannst þarna vera besta tæki-
færi fyrir Þjóðkirkjuna til þess að
taka í taumana og leiða þjóðina inn
á rétta braut, hvað varðaði ferming-
una. Benda fermingarbömum, fjöl-
skyldum þeirra og kaupmönnum eða
öðrum sem að fermingunni koma
að einhveiju leyti á þann gullna
_____________Brids________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag Sauðárkróks
Úrslit í tveggja kvölda tvímenn-
ingi spiluðum 14. og 21. mars:
ÞórarinnThorlacius-ÞórðurÞórðarson 257
Birgir Rafnsson - Sigurgeir Angantýsson 249
JónÖmBerndsen-GunnarÞórðarson 242
Bridsdeild Barðstrend-
ingafélagsins
Eftir 5 umferðir í barómeter er
röð efstu para eftirfarandi:
Þórarinn Ámason - Gísli Víglundsson 64
Haraldur Sverriss. - Leifur Kr. Jóhanness. 61
Skarphéðinn Lýðsson - Guðbjöm Eiríksson 50
Gunnar R. Pétursson - Allan Sveinbjömsson 49
Þórir Bjamason - Sigríður Andrésdóttir 30
Edda Thorlacius - Siprður ísaksson 27
NYR SJÁLFVIRKUR
OFNHITASTILLIR
Lágmarks
orkunotkun
- hámarks
þægindi.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SEUAVEGI2 Sl'MI 91-624260
„Ég bið þess, að kirkju-
höfðingjarnir líti nú
upp, dusti sandinn úr
augunum og hugi að
umhverfi sínu og þeirri
þjóð sem kristin á að
teljast og byggir þetta
land og reyni að efla trú
vora með því að koma
út á meðal vor.“
meðalveg sem tilheyrir hófsemi og
auðmjúku hjarta í trúnni.
Nei, öðra nær. Hér brást Þjóð-
kirkjan og höfuðpaurar hennar söfn-
uði sínum. Þeir, þ.e. paurarnir, tóku
sín annars ágætu höfuð og gerðu
sem strútarnir, stungu þeim í
sandinn og létu sem þetta væri þeim
ekki viðkomandi.
Hér gat Þjóðkirkjan haft veruleg
áhrif til betra mannlífs og meiri trú-
ar, en hikaði við og gerði ekkert,
eins og oft áður. Slík kirkja er ekki
lifandi og gefur fermingarbörnum
lítið veganesti til síðari tíma.
Gjarnan vildi ég, að trú mín væri
sterkari en hún er, þó naut ég
tveggja trúar- og æskulýðsleiðtoga,
séra Friðriks og séra Árelíusar. Þeir
kenndu mér að taka hveiju sem að
höndum bæri. Þetta gerir Þjóðkirkj-
an ekki mínu mati nógu vel, og er
það miður.
Oft er fjallað um, hvort Kirkjan
sé í vörn eða sókn, en þá gleymist
yfirleitt það sem skiptir mestu máli,
en það er trúin. Það fer oft fram
hjá kirkjuhöfðingjum hvers tíma, að
kirkja er ekki ávallt hið sama og
trú. Sjaldan er spurt, hvort trúin,
þ.e. kristin trú, sé í vörn eða sókn.
Að mínu mati er hún ávallt í sókn,
en ýmsar hindranir verða á vegi
hennar, eins og kirkjurétturinn á
öldum áður sem og margir öfgahóp-
ar sem telja sig kristna í dag, og
síðan er skeytingarleysi forystu-
manna Þjóðkirkjunnar gagnvart
Sigurður Snævar Gunnarsson
okkur sem iðkum okkar trú, hver
fyrir sig á sinn eigin hátt, en vildum
þó gjarnan vera virkari í samfélagi
kristinna en við erum.
Enginn skyldi halda, að ég vildi
lasta þessa ágætu kirkjuhöfðingja.
Þeir gera eins og þeim er best gefið
og trú þeirra sjálfra býður. En stund-
um finnst mér, þegar til kastanna
kemur, sem þá skorti það sem mest
er um vert, en það er kærleikurinn.
Ef einhver vill gera eitthvað öðru-
vísi en til friðar höfðingjanna heyrir,
þá er brugðist illa við. Allt er fært
á verri veg og allt málað dökkum
litum.
Ábendingar og skFif Rósalindar
Ragnarsdóttur, eins þeirra kaup-
manna sem hafa á boðstólum ýmis-
legt til ferminga, um tvískinnung
Þjóðkirkjunnar, vöktu hjá mér hvöt
til að benda á, að kirkja vors lands
gegndi ekki skyldu sinni á þann veg
sem best væri.
Svar framkvæmdastjóra Kirkju-
hússins, Eddu Möller, sem teljast
verður talsmaður Þjóðkirkjunnar,
var gjörsamlega út í hött og er eng-
um til gagns sem á fermingu fyrir
höndum. Segja má, að það sé í takt
við annað hjá forystumönnum kirkj-
unnar, þ.e. höfuðið í sandinum.
Kirkjuhúsið er sjálfsagt góð verslun,"
en þar með er ekki sagt, að aðrar
verslanir geti ekki boðið sömu þjón-
ustu eða jafnvel betri.
Ég bið þess, að kirkjuhöfðingjam-
ir líti nú upp, dusti sandinn úr augun-
um og hugi að umhverfi sínu og
þeirri þjóð sem kristin á að teljast
°g byggir þetta land og reyni að
efla trú vora með því að koma út á
meðal vor.
Megi guðs blessun fylgja þeim í
þeirra starfi og allar mínar bestu
óskir sendi ég þeim.
Höfundur er sölumaður.
aitmiwi ftfl athif
k 10 MÍH.
EKKI AÐEINS HEITT, HELDUR NÝBAKAÐ
HATTING brauðið er fryst áður en það er fullbakað. Settu HATTING smábrauð eða
rúnstykki í ofninn og aðeins 10 mín. síðar er brauðið tilbúið, nýtt og rjúkandi á borðið.
ÖHKIN 1012