Morgunblaðið - 24.03.1994, Page 62

Morgunblaðið - 24.03.1994, Page 62
62 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994 KORFUKNATTLEIKUR Tíundi sigur New Yorkíröð NEW York Knicks hefur verið á mikilli sigurgöngu að undan- förnu og í gær voru það meist- ararnir í Chicago Bulls sem urðu að lúta í lægra haldi, 87:78. Þetta vartíundi sigur Knicks í röð. Hubert Davis gerði 24 stig, þar- af þijár þriggja stiga körfur, fyrir New York sem hefur unnið tíu af síðustu ellefu leikjum þar sem andstæðingurinn nær ekki að skora yfir 90 stig. Patrick Ewing gerði 18 stig, en Scottie Pippen var stiga- hæstur í liði Chicago með 25 stig og Horace Grant kom næstur með 17 stig. Cleveland Cavaliers setti nýtt félagsmet með því að halda Indiana aðeins í 61 stigi í leik liðanna í fyrrinótt. Cleveland vann 93:61 og gerði Terrell Brandon 15 stig fyrir heimamenn, Gerald Wilkins, Chris Mills, og Danny Ferry gerðu 13 stig hver. Kevin Johnson gerði 35 stig og átti 11 stoðsendingar fyrir Phoenix sem vann Miami Heat 124:118 í framlengdum leik. A.C. Green gerði 7 af 19 stigum sínum í framlenging- unni. Oliver Miller var með 16 stig og 17 fráköst og Charles Barkley gerði 16 stig og tók 13 fráköst. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 116:116. Willie Burton gerði 28 stig og Steve Smith 27 fyrir Miami. Golden State vann Orlando Magic með einu stigi, 117:116, og gerði síðustu ljögur stigin í leiknum. Dennis Scott gerði sigurkörfuna. Latrell Sprewell var stigahæstur í liðið Golden State með 26 stig. Shaquille O’Neal var að vanda stigahæstur í liði Orlando með 29. Sam Perkins gerði 27 stig er Seattle sigraði San Antonio Spurs 105:89. Gary Payton gerði 14 af 21 stigi sínu í fyrri hálfleik fyrir Seattle. David Robinson var at- kvæðamestur í liði Spurs með 27 stig, Willie Anderson kom næstur með 18. Sacramento Kings var eina liðið sem tapaði á heimavelli í fyrrinótt eftir að Clyde Drexler skoraði sig- urkörfuna fyrir Portland, 94:96, þegar aðeins ein sekúnda var eftir. Hann gerði alls 28 stig í leiknum. Lionel Simmons var stigahæstur heimamanna með 26 stig. IMBA-ÚRSLIT Leikir aðfaranótt miðvikudags: New York — Chicago 87:78 125:91 93:61 New Jersey — L. A. Clippers 105:102 83:81 108:94 124:118 ■Eftir framlengingu. 105:89 Golden State — Orlando 117:116 Sacramento — Portland 94:96 Morgunblaðið/Einar Falur Hubert Davis, ein af skyttum New York, hefur leikið mjög vel að undan- fömu, en hann er í bakvarðastöðu John Starks, sem er meiddur. „Magic“ tekur við þjálfún hjá LA Lakers EARVIN „Magic" Johnson tek- ur við þjálfun LA Lakers af Randy Pfund og stjórnar fyrsta leiknum á sunnudag sam- kvæmt fréttum fjölmiðla í Los Angeles í gær, en forsvars- menn félagsins vildu ekki stað- festa tíðindin. Þetta er annað tímabil Pfunds með liðið, en samningur hans rennur út eftir tvö ár. Johnson hætti að leika með Lakers í nóvember 1991 og síðan hefur hallað undan fæti hjá félaginu, en Pfund hefur að sumu leyti verið kennt um hvernig komið sé. _Fregnunum var almennt vel tekið og m.a. sagði David Stem hjá NBA að ef þetta væri staðreynd væri hún af hinu góða og yrði lyftistöng fyrir deildina. Johnson átti stóran þátt í að lyfta NBA-deildinni á hærri stall en áður. Hann var kjörinn besti leikmaðurinn 1987, 1989 og 1990 og kom Lakers í úrslit NBA níu sinnum, en liðið varð meistari 1980, 1982, 1985, 1987 og 1988. Johnson, sem er 34 ára, átti 9.921 stoðsendingu á ferlin- um, sem er met í deildinni. Hann var kjörin besti maður stjömuleiksins 1992 og var í „draumaliðinu,“ sem vann til gullverðlauna á Olympíuleik- unum í Barcelona 1992. í kvöld Körfuknattleikur Úrslitakeppni karla: Keflavík: IBK-UMFN.... 20 Úrslitakeppni kvenna: Hagaskóli: KR-UMFG... 20 Handknattleikur Undanúrslit kvenna, 1. uniferð: Garðabær: Stjarnan-KR :. 20 Víkin: Víkingur - Fram... 20 2. deild karla, úrslitak. Digranes: HK - Grðtta.... 20 Hölliri: Fram - ÍH 19 Knattspyrna Reykjavíkurmótið Gervigras: Fram-Fylkir 20 Jafnræði með ÍBKog UMFN Grindvíkingarvirðastsigurstranglegri en nýliðar Skagamanna BARÁTTAN um réttinn til að leika til úrslita í úrvalsdeildinni í körf uknattleik hefst í kvöld í Keflavík þegar ÍBK tekur á móti nágrönnum sínum frá Njarðvík. Á sama tíma tekur kvennalið KR á móti Grindvíkingum í Hagaskóla. Skúli Unnar Sveinsson skrifar Það bíða margir eftir nágranna- slagnum og víst er að búast má við mikilli baráttu og bráð- skemmtilegum körfuknattleik. Bik- arúrslitaleikur fé- laganna á dögunum bar þess glöggt merki. Ef tölulegar upplýsingar um frammistöðu leikmanna liðanna í úrvalsdeildinni í vetur eru skoðaðar kemur ýmislegt forvitnilegt í ljós. í töflunni hér að neðan er miðað við tíu leikmenn í hvoru liði og í tölum um ÍBK eru bæði Bow og Foster taldir með. Keflvíkingar eru með heldur betri vítahittni en Njarðvíkingar enda hafa Keflvíkingar fimm leikmenn sem eru með betri nýtingu en Valur Ingimundarson, sem hefur besta nýtingu UMFN, 73,97%. Guðjón Skúlason hefur 89,47% nýtingu og það borgar sig því tæplega að bijóta mikið á honum. Njarðvíkingar hafa tekið talsvert fleiri fráköst í vetur. Einnig virðast þeir lunknari við að ná knettinum af mótheijum sínum og fleiri stoð- sendingar eru skráðar á Njarðvík en Keflavík. Það er athyglisvert í sambandi við stoðsendingarnar að Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leikstjórnandi ÍBK, hefur sent 125 slíkar í vetur og sker sig úr í liði ÍBK. Guðjón Skúlason er í öðru sæti með 69 stoðsendingar. Frirðrik Ragnarsson hjá UMFN hefur gefið 120 stoð- sendingar og er ekki langt að baki Jóni Kr. í því sambandi, en Teitur Örlygsson er með 92 slíkar sending- ar og þriðji maður, Rondey Robin- son er með 65 sendingar, aðeins fjórum færri en annar maður ÍBK. Ef villur liðanna eru skoðaðar kemur í ljós að 11 Keflvíkingar hafa fengið 10 villur eða fieiri í vetur og jafnmargir eru með fleiri en eina villu að meðaltali í leik. Njarðvíkingar virðast heldur rólegri í tíðinni, þar á bæ eru 10 leikmenn með 10 villur eða fleiri og 8 hafa fengið fleiri en eina villu að meðal- tali í leik í vetur. Hvað má svo lesa úr þessum tölum? Fyrst og fremst að hér eru mjög jöfn lið á ferðinni og dags- formið mun ráða mestu um hvort liðið kemst í úrslitin. Þó eru vissar blikur á lofti. Keflvíkingar urðu fyrir því óhappi að Raymond Foster slasaðist og urðu þeir því að fá sér annan erlendan leikmann, Mike Brown. Hvernig honum tekst að aðlagast liði ÍBK á tveimur sólar- hringum er stór spurning sem ekki fæst svar við fyrr en í kvöld. Hann þarf að fást við einn besta erlenda leikmanninn hér á landi, Rondey Robinson, og er alls ekki öfunds- verður af því. Það sem þó gæti sett enn stærra strik í reikninginn hjá ÍBK er ef þjálfari þeirra og leikstjórnandi Jón Kr. Gíslason verður ekki orðinn góður. Hann hefur átt við meiðsl í læri að stríða og segist ekki vera orðinn eins góður og hann hefði kosið, „en maður lætur sig samt hafa það,“ sagði Jón. Grindvíkingar líklegri Samkvæmt_ upplýsingum um Grindavík og ÍA virðist sem Grind- víkingar séu líklegri til sigurs. Fyrsti leikur liðanna verður á morg- un í Grindavík. Grindvíkingar taka mun fleiri fráköst og munar þar mikið um þá Guðmund Bragason og Nökkva Má Jónsson en Guð- mundur er með 11,4 fráköst að meðaltali í leik og Nökkvi Már 7,7. Þrír í liði UMFG hafa tekið fleiri en 100 fráköst í vetur, en Ijórir Skagamenn eru með fleiri en 100 fráköst. Steve Grayer er með 14,6 fráköst að meðaltali og næsti mað- ur, Haraldur Leifsson, er með 5,9. Skagamenn hafa gefið fleiri stoð- sendingar í vetur en Grindvíkingar eru talsvert lagnari við að krækja í bolta frá mótheijum sínum. Vítahittni liðanna er mjög áþekk, en Skagamenn ættu síður að bijóta á Bergi Hinrikssyni og Hyrti Harð- arsyni því þeir eru með góða nýt- ingu, Bergur 90,91% og Hjörtur 78,26%. Einar Einarsson í IA er einnig með góða nýtingu, 79,61% og ívar Ásgrímsson hefur 75,26% nýtingu. Skagamenn hafa fengið heldur fleiri villur. Tíu leikmenn hafa feng- ið fleiri en 10 villur og níu þeirra eru með meira en eina villu að meðaltali. Hjá Grindvíkingum eru einnig tíu leikmenn með 10 villur eða fleiri en það eru hins vegar átta sem hafa fengið eina villu eða fleiri að meðaltali. FELAGSLIF Liverpool-klúbbur Stuðningsmenn Liverpool ætla að koma saman í Ölveri, Glæsibæ, á laugardaginn kl. 17.30. Þar verða málin rædd og hugað að ferð til Anfield Road. Sýndur verður leik- ur Liverpool og Manchester United (3:3) frá 4. janúar á níu fermetra risaskjá. # W Tölulegar upplýsingar um frammistöðu liðanna i úrvalsdeildinni. Miðað er við árangur tíu leikmenn hvors liðs. 568/435 Víti 638/412 462/163 3ja stiga 446/158 917 Fráköst 990 658 (varnar) 667 259 (sóknar) 323 241 Bolta náð 331 346 Bolta tapað 348 348 : Stoðsendingar 496 Tölulegar upplýsingar um frammistöðu liðanna i úrvalsdeildinni. Miðað er við árangur tíu leikmenn hvors liðs. 601/419 Víti 598/407 485/187 3ja stiga 464/179 980 Fráköst 888 653 (varnar) 589 327 (sóknar) 299 266 Bolta náð 225 341 Bolta tapað 370 311 ! Stoðsendingar 245

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.