Morgunblaðið - 24.03.1994, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
63
ÍÞfémR
FOLK
■ JEAN-Pierre Papin hélt upp á
fimmtugasta landsleik sinn fyrir
Frakkland, með því að skora mark
eftir aðeins sjö mín. þegar Frakk-
land vann, 3:1, Chile í Lyon á
þriðjudaginn.
■ MIKIL pressa er á Rai, fyrir-
liða Brasilíu í knattspyrnu — yngri
bróður Soerates, fyrrum fyrirliða
Brasilíu. Rai, sem leikur með Par-
ís St. Germain, hefur ekki komist
í Parísar-liðið að undanförnu —
þykir ekki í nægilega góðri æfingu.
■ CARLOS Alberto, þjálfari
Brasilíu, sem ætlaði sér að byggja
lið sitt upp í kringum Rai fyrir
heimsmeistarakeppnina í Banda-
ríkjunum, hefur ákveðið að gefa
honum eitt tækifæri til viðbótar —
í leik gegn Argentínu . Ef Rai
stendur sig ekki, eru litlar líkur á
að hann leiki í HM.
■ RAI fékk aðvörun frá Carlos
Alberto á síðasta ári — þjálfarinn
bað Rai um að leggja hart að sér,
til að ná fyrri getu. Það er greini-
legt að Rai hefur látið þær aðvaran-
ir eins og vind um eyru þjóta.
■ MARADONA mun ekki leika
með Argentínumönnum gegn
Brasilíu.
■ BRASILÍA leikur án Jorginho,
bakverðar hjá Bayern MUnchen
og Romario, miðherja Barcelona,
sem eru meiddir.
■ BELGÍSKA knattspyrnufélag-
ið Liege, sem var stofnað 1892,
stendur höllum fæti fjárhagslega
og sér fram á gjaldþrot takist ekki
að greiða skuldir sem samsvara um
250 millj. kr. innan tveggja til
þriggja mánaða. Hluthafar taka
ákvörðun um framhald félagsins
18. apríl.
■ ERIC Gerets, fyrrum varnar-
maður belgiska landsliðsins og
þjálfari Liege, hættir í vor og tekur
við þjálfun hjá Lierse.
■ NORÐMENN unnu flest verð-
laun á Ólympíumóti fatlaðra sem
lauk í Lillehammer í Noregi á
laugardag. Heimamenn unnu 29
gullverðlaun. Þýskaland varð í
öðru sæti með 25 gull og Bandarík-
in í þriðja með 24 gull. 500 kepp-
endur frá 31 þjóð tóku þátt.
■ JOAKIM H&ggman frá Sví-
þjóð sigraði í opna Malasíumótinu
í golfi sem lauk í Kuala Lumpur
á sunnudaginn. Hann lék bráða-
bana við heimamanninn, Perias-
amy Gunasagaran og sigraði eftir
átta holur. Hann fékk rúmlega 41
þúsund dollara í verðlaun eða 3,2
milljónir kr.
KNATTSPYRNA / REYKJAVIKURMOTIÐ
Valsmenn gera athugasemd
við gervigrasið í Laugardal
- segja völlinn of mikla slysagildru og vilja mótið á Leiknisvöll
VALSMENN sendu athugasemd til Knattspyrnuráðs Reykjavík-
ur í gær, þar sem þeir óska eftir að leikir Vals í Reykjavíkurmót-
inu í knattspyrnu verði fluttir af gervigrasvellinum í Laugardal
vegna slysahættu. Valur lék fyrsta leik sinn í mótinu gegn
Víkingi ífyrrakvöld og meiddust þá tveir leikmenn. Valsmenn
vilja að Reykjavíkurmótið verði fært á Leiknisvöll í Breiðholti.
^\ft hefur veríð rætt um það ið af skarið og segja hingað og
meðal þjálfara og forráða-
manna Reykjavíkurfélaganna að
völlurinn væri ónothæfur. Hingað
til hefur ekki meira verið gert í
málinu, en nú hafa Valsmenn tek-
ekki lengra. „Það er of mikil
áhætta fyrir leikmenn að spila á
gervigrasinu. Slysahættan er
meiri en talist getur eðlilegt,"
sagði Theodór S. Halidórsson, for-
maður knattspyrnudeildar Vals.
„Innkoman á leikina dugar varla
fyrir sáraumbúðumsagði for-
maðurinn.
í leiknum í fyrrakvöld meiddust
þeir Hörður Már Magnússon Vals-
ari og Þrándur Sigurðsson Víking-
ur. Hörður snéri sig illa á ökkla
og Þrándur á hné. Að sögn sjúkra-
þjálfara má rekja meiðsli þeirra
beggja beint til vallaraðstæðna.
Jóhannes Sævarsson, formaður
knattspyrnudeildar Víkings, sagði
að það væri varla hægt að bjóða
liðum upp á að spila leiki á gervi-
grasinu í Laugardal. „Það hlýtur
að teljast eðlileg krafa að Reykja-
víkurmótið verði fært á annan
völl ef aðstæður reynast betri þar.
Menn segja mér að gervigras-
völlur Leiknis í Breiðholti sé mun
betri en völlurinn í Laugardalnum
og því ekki að færa mótið þang-
að?“
KNATTSPYRNA
Klinsman med tvö
Reuter
JURGEN Klinsman er hér í baráttu við Franco Baresi í vináttulandsleik Þjóð-
verja og ítala í gærkvöldi. Klinsman gerði bæði mörk þýskra í 2:1 sigri þeirra
en mark ítala gerði Dino Baggio.
URSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Spánverjar vildu fá HM
til að efla handboltann
- segirGeirSveinsson, fyrirliði íslenska landsliðsins
GEIR Sveinsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í hand-
knattleik segir altalað innan
spænsku handknattleiks-
hreyfingarinnar að Spánverj-
ar hafi reynt að fá heims-
meistarakeppnina 1995 fyrst
og fremst til að rífa íþróttina
upp úr þeirri lægð, sem hún
er í á Spáni, en ekki til að
koma í staðinn fyrir Islend-
inga eins og opinbera skýr-
ingin hefur verið.
Spánveijar sendu hinni ís-
lensku framkvæmdanefnd
HM ’95 bréf í júlí s.l., þar sem
þeir sögðust vera tilbúnir að
hlaupa í skarðið, ef Islendingar
uppfylltu ekki skilyrði Alþjóða
handknattleikssambandsins, IHF,
um að halda keppnina. Skömmu
áður en ákvörðun um mótshaldið
á íslandi var tekin fór fram-
kvæmdastjóri IHF til Spánar og
kom þá fram í spænskum fjölmiðl-
um að Spánveijar væru tilbúnir
og hefðu fullan stuðning yfirvalda
til að halda keppnina. Hins vegar
voru Spánveijar fyrstir til að óska
HSÍ til hamingju, þegar endan-
lega lá fyrir að HM 95 yrði á ís-
landi.
Geir sagði í samtali við Morg-
unblaðið að flest spænsku hand-
knattleiksliðin stæðu höllum fæti
fjárhagslega og því hefðu Spán-
veijar viljað fá HM til að efla
íþróttina í landinu á ný. Opinber-
lega hefði aðeins komið fram að
þeir væru tilbúnir að hlaupa í
skarðið, en greinilegt væri að
meira hefði legið að baki.
Alzíra, sem Geir og Júlíus Jón-
asson leika með, hefur enn ekki
getað gert upp við leikmenn og
er ástandið allt annað en bjart
hjá félaginu, þó liðið standi vel
að vígi í EHF-keppninni eftir jafn-
tefli við Bidasoa á útivelli i fyrri
leik liðanna í undanúrslitum. Geir
sagðist samt ekkert vera farinn
að örvænta og ætlaði að gefa sér
tíma til að taka ákvörðun um
framhaldið,en eins og greint hefur
verið frá tók Júlíus tilboði frá
þýska félaginu Gummersbach.
Reykjavíkurmótið
B-deild:
Leiknir - Léttir................ 4:0
Óskar Albertsson 3, Birgir Ólatsson.
Æfingalandsleikir
Salonika, Grikklandi:
Grikkland - Pólland................0:0
9.000.
Dublin:
írland - Rússland..................0:0
Stuttgart:
Þýskaland - Ítalía.................2:1
Jiirgen Klinsmann (45., 47.) - Dino Baggio
(45.). 52.800. \
Lúxemborg:
Lúxemborg - Morokkó................1:2
Thomas Wolf (71.) - Larbi Hababi (45.),
Abdelkarim E1 Hadrioui (89.). 5.500.
Glasgow:
Skotland - Holland................0:1
- Bryan Roy (23.). 36.809.
Belfast:
Norður-írland - Rúmenía............2:0
Steve Morrow (42.), Philip Gray (49.).
5.500.
Valencia:
Spánn - Króatía....................0:2
- Robert Prosinecki (7.), Davor Suker (51.).
40.000.
Engtand
Bikarkeppnin
Aukaleikur í átta liða úrslitum:
Luton - West Ham...................3:2
(Oakes 35., 47., 73.) - (Martin Allen 29.,
Bishop 57.). 13.166.
■Luton mætir Chelsea í undanúrslitum á
Wembley 9. apríl.
Úrvalsdeildin
Newcastle - Ipswich................2:0
(Sellars 37., Cole 73.).
1. deild
Crystal Palace - Middlesbrough.....0:1
(Hignett 11.). 12.811.
Millwall - Petersborough...........1:0
Cantona
fékkfimm
leikja bann
Eric Cantona, markahæsti leik-
maður Manchester United, var
gær dæmdur í fímm leikja keppnis-
bann. Cantona mun missa íjóra
deildarleiki — gegn Blackburn, Old-
ham, Leeds og Wimbledon og und-
anúrslitaleik í bikarkeppninni gegn
Oldham 10. apríl á Wembley. Ray
Keane mun einnig missa af bikar-
leiknum gegn Oldham, en hann
fékk sitt sjöunda gula spjald í leikn-
um gegn Arsenal.
Manchester United er með 73
stig eftir 33 leiki og Blackburn 67
stig eftir 32 leiki. Liðin eiga eftir
að leika eftirtalda leiki:
Manchester United: Liverpool (H), Black-
bum (Ú), Oldham (H), Leeds (Ú), Wimbel-
don (Ö), Man. City (H), Ipswich (Ú), Co-
ventry (H) og Southampton (H), sem er
frestaður ieikur.
Blackburn: Swindon (H), Wilbledon (Ú),
Man. Utd. (H), Everton (Ú), Aston Villa
(H), Southampton (Ú), QPR (H), Coventry
(Ú), Ipswich (H) og West Ham (Ú), en það
er frestaður leikur.
„Þetta minnir mig óneitanlga á
baráttu Manchester United og
Leeds 1992, þegar leikmenn United
gáfu eftir undir lokin," segir David
Batty, en hann og Cantona léku
þá með Leeds, sem hafði betur á
lokasprettinum. Batty leikur nú á
miðjunni hjá Blackbum.
LISTHLAUP / HM
Rússneska
pariðbest
Evgenia Shishkova og Vadim
Naumov frá Rússlandi, sem
voru í fjórða sæti á ÓL í Lilleham-
mer, sigmðu í parakeppni í listhlaupi
á skautum á HM í Japan í gær, en
Isabelle Brasseur og Lloyd Eisler frá
Kanada urðu að sætta sig við silfrið.
Rússneska parið stóð sig mjög vel
og þó kanadíska stúlkan hefði geng-
ið heil til skógar hefði verið erfitt
að gera betur. En kanadíska parinu,
sem var í þriðja sæti á Ólympíuleik-
unum í Lillehammer, var klappað lol
í lófa og Brasseur hrósað. Hún er
með brákað rif og var við það að
hætta keppni hvað eftir annað vegna
sársauka, en lét slag standa.
Rússnesku Evrópumeistararnii’
1993, Marina Eltsova og Andrei
Bushkov, fengu bronsið.
Kanadamaðurinn Elvis Stojko,
silfurhafi frá Lillehammer og á HM
í fyrra, hafði mikla yfirburði í skyldu-
æfingum karla í gær, en ólympíu-
meistarinn Alexei Urmanov frá
Rússlandi var í fjórða sæti og brons-
hafmn Philippe Candeloro frá Frakk^