Morgunblaðið - 24.03.1994, Síða 64
m
HEWLETT
PACKARD
---------UM60ÐJÐ
HP Á iSLANDI H F
Höfðabakka 9, Beykjavík, sími (91) 671000
Frá möguleika UI veruleíka
[ORGUNBLADW, KRINGLAN I 103 REVKJA VtK
ÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3010 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Ný loðnuganga komin að vestan
Verðmæti loðnu-
afurða nemur nú
ellefu milljörðum
HEILDARVERÐMÆTI frystrar loðnu og loðnuhrogna nemur nú tæpum
fjórum milljörðum króna, samkvæmt samantekt Morgunblaðsins hjá
stærstu aðilum á þessu sviði. Jafnframt er búið að landa um 915 þús-
und tonnum hjá fiskimjölsverksmiðjum frá því að loðnuvertíð hófst 1.
júlí og nemur verðmæti þess afla rúmum 7 milljörðum króna, að sögn
Teits Stefánssonar hjá Félagi íslenskra fiskimjölsframleiðenda, þar af
5,2 milljarðar fyrir mjöl og um 1,8 milljarðar fyrir lýsi. Veiði á vetr-
arvertíð er nú orðin meiri en á sumar- og haustvertíð. Eftirstöðvar
loðnukvóta eru um 136 þúsund tonn, miðað við að um 20 þúsund tonn
af loðnu hafi farið í frystingu. Ný loðnuganga fannst í fyrrinótt, út
af Snæfellsnesi.
fyrirtækið muni kappkosta að upp-
fylla samninga og hafi loðnugangan
að -vestan aukið bjartsýni þeirra til
muna, að nálgast að minnsta kosti
umsamin markmið._ Heildarverðmæti
frystrar loðnu hjá íslenskum sjávar-
afurðum nemur um 750 milljónum
og verðmæti frystra loðnuhrogna er
um 250 milljónir, eða samtals 1 millj-
arður. Bakvið þessa upphæð standa
samtals um 5.300 tonn af loðnu og
hrognum. Heildarverðmæti frystrar
loðhu og hrogna hjá þeim aðilum sem
óháðir eru Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsa og íslenskum sjávarafurðum,
má, miðað við upplýsingar Morgun-
blaðsins, áætla um 400 milljónir, þar
af um 225 millj. fyrir hrogn.
Ný loðnuganga lengir vertíð
Mörg skip hafa afskrifað frekári
loðnuveiði seinustu daga og skipt
yfir á rækjuveiðar. En nú eru stórar
loðnutorfur úti fyrir Snæfellsnesi og
voru um níu skip þar á veiðum seint
í gærkvöldi. Grindvíkingur GK var
eitt þeirra og hafði að sögn Willards
Ólasonar skipstjóra fengið um 500
tonn af loðnu í einu kasti, og áætl-
aði hann að 35-40 tonn af loðnu-
hrognum fengjust úr aflanum. Will-
ard spáir því að nýja gangan lengi
vertíðina um vikutíma og standi von-
ir til að kvóti klárist að miklu leyti.
„Hrognafyllingin er mjög mikil hjá
þessari loðnu, en hún er ögn smærri
en skipin hafa verið að fá, sem stað-
festir að mínu mati að þetta hljóta
vera 'ein af svokölluðum vestan-
göngum sem eru fremur sjaldgæf-
ar,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson,
fiskifræðingur. Hann segir að vest-
angöngur komi úr norðvestri og fari
beint að Vesturlandi til hrygningar,
án þess að fara hringinn í kringum
landið eins og venjan er. Göngur
þessar séu misstórar, allt frá því að
vera nokkrir tugir þúsunda tonna upp
í að vera hálfur hrygningarstofninn,
eða yfir hálf milljón tonna, og sé
óvíst að gangan nú hafi verið í
mælingum Hafrannsóknastofnunar.
Heildarverðmæti frystrar loðnu
hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsa er
1,7 milljarðar króna og verðmæti
frystra loðnuhrogna nemur 840 millj-
ónum króna. Bakvið þessi verðmæti
eru 12 þúsund tonn af loðnu og um
2.800 tonn af loðnuhrognum. SH
hefur gert samninga um sölu á um
5.500 tonnum af loðnuhrognum, og
segir Halldór Eyjólfsson hjá SH að
Svend-Aage Malmberg
Sókninof
mikilí
fiskstofna
SVEND-Aage Malmberg haf-
fræðingur á Hafrannsókna-
stofnun segir að sókn í fisk-
stofna á Norður-Atlantshafi
hafi verið og sé langtum of
mikil. Ofveiðin felist í of mik-
illi sókn miðað við bæði ástand
sjávar og fiskstofna, eða með
öðrum orðum of mikilli sókn
í sveiflugjörnu ástandi sjávar.
Svend Aage segir að hvað sem
líði ágreiningi um ástæður fyrir
sveiflum í fiskstofnum, umhverfi
eða veiðar, þá verði menn að
gera sér grein fyrir því að ís-
lenski þorskstofninn sé í sögu-
legu lágmarki, sem alls ekki
verði rengt eða vefengt með til-
vitnun í einhver ónákvæm vís-
indi. Hann bendir á að það séu
beinar mælingar á hlut árganga
í afla ár eftir ár sem standi að
baki þessum niðurstöðum, mæl-
ingar sem vart verði vefengdar,
og ekki séu einhverjar véfréttir
ófullkominna vísinda eins og
stundum sé gefið í skyn.
Sjá „Óheft sókn í fisk-
stofna“ á miðopnu.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Eftir að sandrokinu létti voru sandskaflar upp á miðjar hliðar á þessum Bronco-jeppa.
Vörðu rúður með koppafeiti
Vík í Mýrdal. ■*-
HÆTT er við að töluverðar skemmdir hafi orðið á syðstu húsum
í Víkurþorpinu bæði á gluggum, þökum og klæðningu í miklu
suðvestan roki sem gerði síðari hluta þriðjudags. Að sögn Bryndís-
ar Harðardóttur sem býr við syðstu götuna er þetta eitt versta
sandveður sem gert hefur um árabil, hún og maður hennar brugðu
á það ráð að smyrja koppafeiti á rúðurnar í húsi sínu til að verja
þær skemmdum.
Orsakirnar fyrir þessu mikla
sandfoki eru þær að sjórinn hefur
brotið mikið framan af íjörunni,
u.þ.b. 40-50 metra á ári síðustu
3 árin, og vegna þess að mikill
snjór er á melnum suður af þorp-
inu átti sandurinn greiða leið úr
fjörunni yfir þorpið.
Fyrir austan Vík var þjóðvegur-
inn ófær á 3 km kafla um tíma
vegna sandfoks og varð veghefill
að ryðja sandsköflunum af vegin-
um þegar lygndi á miðvikudag.
Fréttaritari hafði samband við
einn bíleiganda sem þurfti að fara
austur fyrir Vík síðdegis á þriðju-
dag og sagði hann að lakkið á
bílnum sínum væri töluvert
skemmt vegna sandfoks.
íslenska vatnsfélagið semur við aðila í Brasilíu og Saudi-Arabíu
Islenskt vatn fyrir
yfir milljarð á ári
ÍSLENSKA vatnsfélagið hf. hefur samið um mánaðarlega sölu á
375.000 fimm lítra kössum af neysluvatni til umboðsaðila í Brasilíu
og jafnmörgum þriggja lítra kösssum til umboðsaðila í Saudi-Arabíu.
Haukur Snorrason, forstjóri fyrirtækisins, segir að stefnt sé að því
að framleiðslan verði komin í fullan gang í lok júlí og fyrsta pöntun-
in verði afgreidd í ágúst. Mánaðarlegar greiðslur vegna samningsins
nema um 1,2 til 1,5 milljónum dollara á mánuði, eða rúmum 86 til
108 milljónum íslenskra króna. Á ársgrundvelli eru greiðslurnar því
yfir milljarður króna, eða á bilinu 1.037 til 1.296 milljónir. Vatnið er
selt undir vörumerkinu Dalmar-vatn.
Haukur sagði að eftir um þriggja
ára þróunarvinnu hefði fyrirtækið
verið stofnað í byijun janúar. Þegar
hefði verið gengið frá áðurnefndum
samningi. Næst á dagskrá væri að
semja við umboðsaðila í Bandaríkjun-
um, á Spáni, Ítalíu, í Portúgal og
Austurlöndum fjær. Hann sagði að
mikill áhugi væri á vatninu erlendis.
„Kannanir hafa t.d. sýnt að Evr-
ópubúar eru farnir að taka vatn fram
yfir vín í hádeginu. Náttúrulegt vatn
er að vinna á sæta og ósæta gos-
drykki og hvergi fæst eins hreint
vatn og á íslandi. Við erum líka svo
heppin að vera með beina tengingu
úr holu inn i Mjólkursamsöluna í
Borgarnesi. Þar verður vatnið sett í
poka og kassi utan um með sérstöku
tæki sem verið er að hanna fyrir
okkur úti í Chicago," sagði Haukur.
Vatn í kössum
Úttekt á olíukostnaði útgerðar gerð fyrir Landssamband íslenskra útvegsmanna
Hægt að spara 650 millj. á ári
SAMKVÆMT úttekt sem gerð hefur verið fyrir Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna gæti olíureikningur útgerðarinnar lækkað um
r 650 milijónir króna á ári ef byggt yrði upp nýtt olíudreifingarkerfi
og flutt inn ein tegund af olíu í stórum förmum til fiskiskipaflotans.
Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs segir að hægt sé að dreifa olíu
hagkvæmar en nú er gert með því að fella úr gildandi lögum flutnings-
jöfnun. „Ég er sannfærður um að hægt væri að bjóða olíu á betra verði
ef þau lög væru felld úr gildi,“ segir hann.
Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ segir að LIÚ hafi í sjálfu sér
-•^ekki áhuga á að byggja upp fjórða
dreifingarkerfið fyrir olíu, en útgerð-
inni finnist núverandi kerfi mjög
ósanngjamt. Dreifíngarkerfi olíufé-
laganna þriggja sé ekki samkeppnis-
kerfi, en þar sé ekki eingöngu við
olíufélögin að sakast heldur löggjaf-
ann sem fyrirbyggi alla samkeppni.
Þannig sé lögbundið að hvert olíufé-
lag selji olíuna á sama verði hvort
sem um stór eða lítil viðskipti sé að
ræða, og að auki væri lögbundin
flutningsjöfnun þar sem flutnings-
kostnaði til viðskiptavinanna væri
jafnað hvar sem þeir væru. „Við
höfum bjargfasta trú á því að ef
þetta kerfi verður afnumið þá muni
okkur bjóðast aðrir kostir hjá olíufé-
lögunum. Þá eigum við kost á því
sem stórkaupendur að fá olíuna á
lægra verði,“ sagði Kristján.
Kristinn Björnsson sagði i samtali
við Morgunblaðið að hann þyrfti að
skoða forsendur LÍÚ betur áður en
hann gæti tekið undir það að verið
sé að tala um réttu verðin í úttekt-
inni, og hann yrði að hafa uppi efa-
semdir um að svo væri.
„Mín skoðun hefur verið sú að á
meðan flutningsjöfnunarkerfið er við
líði þá er ekki eðlileg samkeppni
milli olíufélaganna, en hvort hún
hafi svo stórkostleg áhrif eins og
Kristján Ragnarsson hefur látið í ljós
að hún komi til með að lækka olíulítr-
ann um 5 krónur veit ég ekki hvort
er rétt,“ sagði hann.
Sjá bls 4: „Nýtt olíudreifingar-
kerfi.,
Hann sagðist m.a. hafa undirbúið
framleiðsluna með því að kanna
markaðsaðstæður í Brasilíu og kom-
ist að því að ekki væri hagstætt að
flytja vatnið út í flöskum. Hins vegar
hefði hann rekið minni til þar til
gerðra mjólkurkassa og komist að
þeirri niðurstöðu að raunhæft væri
að framleiða þriggja, fimm og tíu
lítra vatnskassa til útflutnings.
Framleiðsla væri hins vegar ekki
hafin, þar sem beðið væri eftir tæk-
um, t.d. áðurnefndu tæki til að vefja
kassa utan um vatnspokana. Stefnt
væri að því að framleiðsla yrði kom-
in í fullan gang í júlí og fyrsta pönt-
unin færi úr landi í ágúst. Vélarnar
yrðu væntanlega keyrðar áfram 18
tíma á dag af 6 til 7 starfsmönnum
og stefnt væri að því að framleiða
milljón fimm lítra kassa á mánuði
um áramót.