Morgunblaðið - 06.04.1994, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C/D
76. tbl. 82. árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skíðasvæði og sumarbústaðahverfi ísfirðinga rústir einar eftir snjóflóð
...• ■ ,> i # . .. v.... >. . Morgunblaðið/RAX
Fjorutiu sumarbustaðir eyðilogðust
SUMARBÚSTAÐIRNIR í Tungudal eru flestir spýtnabrak eitt, en á myndinni sést í bústaður þeirra Ásgeirs Lýðssonar og Sólveigar Guðnadóttur, sem björguðust lítt
forgrunni bústaður, sem færðist nokkur hundruð metra frá sumarbústaðalandinu og meidd. Þar fyrir aftan er hvítur bústaður, annar tveggja bústaða af 42 sem skemmd-
niður á bakka Tunguár. Aftar til vinstri sést gulur bústaður á hliðinni, en það er ist ekki í flóðinu.
Eiim maður fórst og eigiia-
Ijón metið
MAÐUR á sextugasta aldursári lést og eiginkona hans slasaðist nokk-
uð þegar stórt snjóflóð féll á sumarhús þeirra í Tungudal á ísafirði
snemma í gærmorgun. Hjón sem voru í öðrum sumarbústað sluppu
lítið meidd. Um 40 sumarbústaðir í Tungudal eyðilögðust í snjóflóðinu
og flest mannvirki á skíðasvæði ísfirðinga í Seljalandsdal. Aætlað er
að tjón af völdum snjóflóðsins nemi um 130 milljónum króna.
Ásgeir Lýðsson og Sólveig Guðna-
dóttir björguðust úr flóðinu. Ásgeiri
segist svo frá, að hann hafi vaknað
og gengið fram í stofu. „Allt í einu
sá ég mikinn blossa, sem líkast til
kom frá háspennulínu í nágrenninu.
Þá heyrðist mikill hávaði og síðan
kom högg á bústaðinn, hann lék á
reiðiskjálfi og ég mátti hafa mig
allan við til að halda jafnvægi, því
þetta var líkast því að vera í stórsjó."
Ásgeir og Sólveig segja að þegar
þeim varð ljóst að þau voru bæði
heil á húfi hafi fyrsta hugsun þeirra
verið sú að komast úr húsinu og
sækja hjálp, því þau vissu af fólki í
nálægum bústað. Skólaus óðu þau
snjó upp fyrir hné að golfskála
skammt frá. Þar fundu þau skó sem
þau gátu notað til að komast áfram
að Bræðratungu, sem er heimili fyr-
ir þroskahefta, og láta lögreglu vita.
Flóðið hreif allt með sér
Snjóflóðið féll kl. rúmlega 5 í
gærmorgun af brúnum fjallsins fyrir
ofan Seljalandsdal og hreif með sér
flest tæki og byggíngar á skíðasvæð-
inu, aðrar en Skíðamiðstöðina. Þá
hélt það áfram fram af ijallinu, yfir
sumarbústaðabyggðina í Tungudal
og eyðilagði 40 sumarbústaði af 42,
sem á vegi þess urðu. Flestir sumar-
bústaðirnir eru nú spýtnabrak eitt
og hafa dreifst yfir stórt svæði, ásamt
innanstokksmunum og trjám úr
skóginum, sem flóðið reif upp með
rótum. Þegar flóðið féll fram var það
4-500 metrar á breidd og 2-3 metr-
ar á þykkt. Almannavarnanefnd ísa-
fjarðarkaupstaðar heimilaði eigend-
um sumarbústaða að líta inn á
á 130 milljónir
svæðið stutta stund í gærkvöldi. I flóðahættu þar og nokkur hús í ná- I ástandi, þar sem spáð var slæmu
Almannavarnanefndin lét í gær- grenni Seljalandsdals á ísafirði. Á veðri og snjókomu.
morgun rýma 12 hús í Hnífsdal, sem fundi sínum síðdegis í gær ákvað Sjá fréttir og viðtöl á bls. 26-27
í búa liðlega 50 manns, vegna snjó- | nefndin að aflýsa ekki hættu- | og 34-35.
Sveitir Bosníu-Serba
sækja að Gorazde
Sanyevo, Belgrad. Reuter, The Daily Telegi'apli.
SVEITIR Bosníu-Serba hafa sótt liart að bænum Gorazde í Bosníu
undanfarna daga og hafa um þrjú hundruð manns fallið eða særst í
átökunum. Svæðið í kringuin Gorazde, þar sem 65 þúsund manns búa,
er undir stjórn múslima og eitt af þremur yfirlýstum „gi-iðasvæðum“
Samcinuðu þjóðanna í Bosníu. Að sögn embættismanna SÞ höfðu Bos-
níu-Serbar sótt allt að tíu kílómetra inn á svæðið í gærkvöldi og voru
stórskotaliðs- og skriðdrekasveitir þeirra einungis í fimm kílómetra
fjarlægð suður af bænum. Serbar sóttu einnig að Gorazde úr norð-
austri og austri.
Tæplega tvö þúsund manns hafa
flúið þrettán þorp, sem Serbar hafa
náð á sitt vald, og sagði talsmaður
á vegum SÞ að þorpin hefðu flest
eyðilagst algjörlega í stórskotaárás-
um. Þó að SÞ hafi geit Gorazde að
griðasvæði fyrir múslima í fyira er
fyrst nú fyrirhugað að senda þangað
friðargæsluliða. Bandaríkjastjórn
sagðist í gær ekki hafa uppi áform
um að stöðva framrás Serba með
loftárásum. Sagði Jolin Shaliskahvili,
yfirmaður herráðsins, að aðstæður í
Gorazde væm nrjög frábrugðnar að-
stæðum í Sarajevo þó að það gæti
breyst. í dag heimsækir yfírmaður
friðargæslusveita SÞ í Bosníu, Bret-
inn Michael Rose, Gorazde til að
kanna aðstæður af eigin raun.