Morgunblaðið - 06.04.1994, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994
Ægi miðar hægt
að draga frakt-
skip til landsins
VARÐSKIPIÐ Ægir er nú að draga leiguskip Eimskips, Europe
Feeder, til landsins, en vél skipsins bilaði um 720 mílur suðvestur
af landinu sunnudaginn 27. mars sl. Varðskipið hóf að draga Europe
Feeder á miðvikudagskvöld í síðustu viku, en vegna mikillar brælu
hefur ferðin gengið illa. Skipin eru væntanleg til Reykjavíkur á
föstudag.
Samkvæmt
upplýsingum
Landhelgisgæsl-
unnar bað Eim-
skip um aðstoð
vegna skipsins
sunnudaginn 27.
mars og var
ákveðið að Ægir
færi til áðstoðar.
Varðskipið kom
að Europe Feed-
er á miðvikudag
og um kvöldið
hafði tekist að
koma taug á milli
skipanna. Frá
þeim tíma hefur
Ægi miðað hægt
og bítandi hingað
til lands, með
flutningaskipið í eftirdragi. Ægir
er ekki útbúinn til stórskipadráttar
og sækist ferðin því seint, enda
vegur Europe Feeder 12 þúsund
tonn fullestað. Aðfaranótt mánu-
dags var brælan
svo mikil að skip-
in reyndu að
halda sjó, en
færðust samt 10
mílur undan
veðrinu suður á
ný. í hádeginu í
gær voru enn 8
vindstig á þeim
slóðum þar sem
skipin voru
stödd, en Land-
helgisgæslan
vonast til að þau
nái höfn á föstu-
dag.
A Europe
Feeder er 18
manna áhöfn, 15
Pólveijar, 2 ís-
lendingar og þýskur skipstjóri.
Skipið er nýtt, smíðað síðasta haust
og er í leigu hjá Eimskip, eins og
áður sagði. Það vegur tæp 6 þúsund
tonn ólestað.
21-29% hærra verð en í marz í fyrra
Helmingi minná utan
af óunnum þorski
SALA á þorski héðan á innlend-
um og erlendum fiskmörkuðum
í nýliðnum marzmánuði var á
bilinu 42 til 57% minni en á sama
í dag
Kristinn tók bestu myndina
Úrval blaðaljósmynda er til sýn-
is í Listhúsinu í Laugardal 25
Gjaldþrot Kaldbaks__________
Um 60 fyrrverandi starfsmenn
Kaldbaks á Grenivík skráðu sig
atvinnulausa í gær 30
Valdabarátta í Rússlandi
Zhírínovskíj og Rútskoj fara í
framboð gegn Jeltsín forseta 32
Leiðari___________________
Agreiningur um vaxtamál 34
HtorjguttÞfoMfr
► Skíðamót íslands - Eiður
Guðjohnsen bestur á Möltu -
Úrslitakeppni kvenna í körfu
og handbolta; ÍBK vann KR
og Stjaman vann Víking
úrVERINU
SÉMLAO UM SJÁVARÚTVEQ
► Mun minna af þorski fer á
markaði heima og ytra -
Skrápflúruvinnsla á Höfn -
Nýja Guðbjörgin - Nýjung í
ufsavinnslu í Eyjum
\
► Gæludýr vikunnar - Papp-
írsflugvél - Orðaleikur -
Heimsmet í sturtu - Brandar-
ar - Ljóð - Munið eftir páska-
getrauninni
tíma í fyrra. Það sem af er árinu
nemur útflutningur á ísuðum
þorski á markaðina í Hull og
Grimsby rúmum 1.000 tonnum,
sem er aðeins helmingur þess,
sem fór utan á sama tíma í fyrra.
Þá hafa langleiðina í 14.000 tonn
verið seld á innlendum mörkuð-
um, það sem af er ári, en þar
er um 20% samdrátt að ræða.
Nú í marzmánuði fóru aðeins
263 tonn af slægðum þorski héðan
á uppboðsmarkaðina í Hull og
Grimsby. Það er 57% minna en í
sama mánuði í fyrra, en verð var
nú 128 krónur á kíló, sem er 21%
hærra en þá. Salan frá áramótum
ytra er 1.030 tonn og er meðal-
verðið 142 krónur á hvert kíló.
Sala á þorski á innlendum mörk-
uðunum í marz nam 5.344 tonn-
um, sem var 42% minna en í fyrra.
Meðalverð var 93 krónur, sem er
29% hærra en fyrir ári.
Sjá nánar í Úr verinu á bls. Cl.
Morgunblaðið/Sverrir
Klukkurnar í Landakotskirkju
KLUKKURNAR í Landakoti sem tóku skyndilega upp á því að
hringja. Ujá standa prestar safnaðarins, sem enga skýringu kunna
á þessum atburðum frekar en aðrir safnaðarmeðlimir.
Jartein í Landakoti við útför kaþólska biskupsins
Kirkjuklukkurn-
ar hringdu sjálfar
KIRKJUKLUKKUR Landakotskirkju fóru að hringja af einhverj-
um óútskýrðum orsökum á mánudeginum í síðustu viku, daginn
sem Alfred Jolson, biskup kaþólsku kirkjunnar á íslandi, var jarð-
aður. Klukkurnar hringdu einnig tvo daga á eftir. Ekki er vitað
til þess að klukkurnar hafi hagað sér svona áður. Sumar vilja
kalla þessar klukknahringingar jartein eða kraftaverk og líkja
jafnvel við það þegar Jón biskup Arason var jarðsettur árið 1550,
en þá er sagt að kirkjuklukkur hafi skyndilega tekið upp á því
að hringja án þess að nokkur mannlegur máttur hafi komið
þar nærri.
„Fyrir hádegi útfarardaginn
byrjuðu kirkjuklukkurnar að
hringja án þess að nokkur hafi
átt við stjórnborð klukknanna.
Þær hringdu oftar þennan dag
og næsta dag og aftur á miðviku-
dag. Við skoðuðum stjómborðið
og sáum ekki að það hafí orðið
nein breyting á því. Við höfum
því enga skýringu á þessu,“ sagði
séra Jakob Roland, prestur í
Landakoti, en hann var ritari hins
látna biskups.
Mikið rætt í söfnuðinum
Jakob sagði að mikið hefði ver-
ið rætt um þessar undarlegu
klukknahringingar í söfnuðinum.
Sumir vildu setja þær í samband
við útför biskupsins. Hann sagði
að ekkert væri hægt að fullyrða
um það, en þetta væri a.m.k.
mjög sérkennileg tilviljun, ef þetta
væri tilviljun.
„Síðasta skiptið sem mér er
kunnugt um svona atburði er við
útför Jóns biskups Arasonar. Það
var sagt að þegar hann var flutt-
ur frá Skálholti norður til Hóla
hafí kirkjuklukkur farið að
hringja," sagði séra Jakob.
12 skip leita loðnu
87 þús. tonn
óveidd af
heildarkvóta
TÓLF loðnuveiðiskip voru við
loðnuleit í gær, og voru flest
þeirra út af Snæfellsnesi, en ekki
var vitað til þess að nein loðna
hefði þó veiðst eftir páskana.
Flest skip hafa afskrifað frekari
loðnuveiði á þessari vertíð.
AIls hefur veiðst um 531 þúsund
tonn af loðnu frá áramótum og er
heildarveiðin á loðnuvertíð frá júlí
komin í tæp 985 þúsund tonn, mið-
að við löndun hjá loðnuverksmiðjum
og það sem hefur verið fryst á tíma-
bilinu. Heildarloðnukvóti á vertíð-
inni er 1.072 þús. tonn og eru eftir-
stöðvar loðnukvótans því um 87
þúsund tonn.
Móttaka loðnuverksmiðja á vétr-
arvertíðinni hefur verið mest hjá
SR-mjöli á Seyðisfirði, tæp 56 þús.
tonn, Vinnslustöðinni hf. í Vest-
mannaeyjum, tæp 56 þús. tonn,
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar, 54 þús.
tonn, og rúm 49 þús. tonn hjá verk-
smiðjum SR-mjöls á Siglufirði.
’»-♦ ♦
Vill starf-
rækja tívolí
í Reykjavík
ÓLAFUR Ragnarsson, sem rekið
hefur Tívolí í Hveragerði, hefur
óskað eftir aðstöðu í Reykjavík
fyrir reksturinn í tilraunaskyni i
tvo mánuði, frá maí til júlíloka
eða fram yfir verslunarmanna-
helgi. Borgarráð vísaði beiðninni
til Borgarskipulags.
Óskað er eftir að starfsemin geti
farið fram á möl eða malbiki og að
þar verði salernisaðstaða^Mgstæði,
greið aðkoma, strætisý'agnasam-
göngur og snyrtilegt umhvéífúGért
er ráð fyrir að opið verði daglega
frá kl. 13 til kl. 19 og að helstu
viðskiptavinir verði ungt fjölskyldu-
fólk og böm undir 14 ára aldri.
Fram kemur að æskilegur staður
fyrir reksturinn sé í Laugardal en
ef það fæst ekki er óskað eftir sam-
ráði og samvinnu um aðra staðsetn-
ingu.
-----»■■♦ ♦--
Formanns-
skipti í KÍ
Kennarasamband íslands heldur
fulltrúaþing sitt á Hótel Loftleiðum
dagana 6.-8. apríl. Þingið kýs nýjan
formann, en Svanhildur Kaaber
laetur af embætti í samræmi við lög
KÍ um að formaður megi ekki sitja
lengur en þrjú kjörtímabil.
VMS stefnir Mjólkurfræðingafélaginu fyrir Félagsdóm
Deilt er um lögmæti að-
gerða mjólkurfræðinga
VINNUMÁLASAMBAND samvinnufélaganna hefur stefnt Mjólkur-
fræðingafélagi íslands fyrir Félagsdóm, vegna aðgerða félagsins í
mjólkursamlögunum á Húsavík og Egilsstöðum og var málið þing-
fest fyrir dóminum í gær. Vinnumálasambandið telur aðgerðir mjólk-
urfræðinga ólöglegar samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeil-
ur, þar sem boðað var til aðgerðanna með aðeins tveggja daga fyrir-
vara og segir þær tilefnislausar. Búist er við að Félagsdómur kveði
upp úrskurð sinn um komandi helgi.
Vinnumálasambandið krefst þess
fyrir Félagsdómi að aðgerðirnar
verði lýstar ólögmætar og að Mjólk-
urfræðingafélagið verði dæmt til
greiðslu sektar og málskostnaðar.
Þá áskilur sambandið sér rétt til
að höfða sérstakt skaðabótamál.
Aðgerðirnar lögmætar
Geir Jónsson, formaður Mjólkur-
fræðingafélags íslands, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að fé-
lagið hefði engar áhyggjur af stefnu
Vinnumálasambandsins, enda væru
aðgerðirnar fyllilega lögmætar.
„Við boðuðum ekki verkfall, heldur
nýttum okkur heimild í lögum til
að banna félagsmönnum okkar að
vinna með ófaglærðum að þeim
störfum, sem eru á sviði mjólkur-
fræðinga," sagði hann. „Öll mjólk-
ursamlög landsins hafa viðurkennt
að mjólkurfræðingar einir megi
vinna þau störf sem hér er tekist á
um, fyrir utan samlögin á Húsavík
og á Egilsstöðum. Nú hefur samlag-
ið á Húsavík hins vegar viðurkennt
rétt mjólkurfræðinga til þessara
starfa og deilan þar er úr sögunni.
Á Egilsstöðum hefur samlagið einn-
ig viðurkennt þennan rétt í raun,
en þar er enn tekist á um uppsögn
mjólkurfræðings. Honum var sagt
upp störfum um áramótin, en hefur
að vísu verið ráðinn aftur til hausts-
ins. Við viljum að samlagið fastráði
mjólkurfræðing, í stað þess að laus-
ráða hann til skamms tíma í senn.“