Morgunblaðið - 06.04.1994, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994
7
Margrét Skúladóttir kjörin ungfrú Reykjavík á mánudag
Skelli í mig páskaegginu
og byrja svo aftur að púla
Sendiráð
opnað í Kína
JÓN Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra hefur verið á ferð
í Kína undanfarna daga sem gest-
ur varaforsætisráðherra Kína,
sem fer með utanríkismál, og ut-
anríkisráðherra landsins. í við-
ræðum sínum við kínverska ráða-
menn um helgina greindi Jón
Baldvin frá því að stefnt sé að því
að opnað verði sendiráð íslands í
Kína árið 1996, skv. upplýsingum
Þrastar Ólafssonar, aðstoðar-
manns ráðherra.
Í máli Jóns Baldvins kom einnig
fram að reynt yrði að taka upp sam-
starf við eitt af sendiráðum Norður-
landanna í Peking um aðstöðu og
húsaskjól fyrir sendimann úr íslensku
utanríkisþjónustunni frá og með
næstu áramótum, sem myndi annast
viðskiptatengsl landanna.
Til S-Kóreu í dag
Að sögn Þrastar hefur ferð utan-
ríkisráðherra gengið mjög vel. Jón
Baldvin var í borginni Sjanghæ í gær
en í dag heldur hann til Seoul í S-
Kóreu þar sem hann mun m.a. hitta
forseta landsins, utanríkisráðherra
og viðskiptaráðherra að máli. 10.
apríl heldurt-hanh'til Tókýó í Japan.
Valið stendur um
þrjár mismunandi
tegundir af
Merrild kaffi:
304-Dökkbrennt
104-Mjög dökkbrennt
Merrild
setut
MARGRÉT Skúladóttir Sigurz var á mánudagskvöld valin ungfrú
Reykjavík 1994 úr hópi 14 keppenda á Hótel íslandi. Margrét er 21
árs gömul og stundar nám í Fósturskóla íslands.
„Keppnin var hörð og það komu
margar sterklega til greina sem sig-
urvegarar en ég taldi mig einnig eiga
möguleika, annars hefði ég ekki tek-
ið þátt,“ sagði Margrét Skúladóttir
við Morgunblaðið.
Margrét er 21 árs gömul, dóttir
Skúla E. Sigurz og Ingunnar Þ. Jó-
hannsdóttur. Hún er stúdent úr
Verslunarskóla íslands og stundar
nú fóstrunám. Með náminu skúrar
hún skrifstofu tvisvar í viku og þríf-
ur fiskvinnslusa! Fiskkaupa hf. öll
kvöld. Margrét stundar skíðaíþrótt-
ina í frístundum en segist einnig
hafa gaman af að fara með föður
sínum á ijúpna- og svartfuglsveiðar.
Ekkert grín
Margrét sagði að vinkona sín hefði
bent forráðamönnum fegurðarsam-
keppninnar á sig og síðan hefði Est-
er Finnbogadóttir framkvæmdastjóri
Sjóbirtingur
Góð veiði
fyrsta daginn
keppninnar hringt. „Ég hélt fyrst að
það væri verið að gera grín að mér,
því mér var sagt að koma meðháhæl-
aða skó og sundbol á Hótel ísland í
prufu. Og ég fór ekki fyrr en ég var
búin að fá það staðfest að þetta
væri ekki grín,“ sagði Margrét. Hún
sagði raunar að það erfiðasta í
keppninni hefði verið að koma fram
fyrir áhorfendur á sundbolnum og
háhæluðu skónum „en þetta tókst“.
Margrét mun taka þátt í keppn-
inni um ungfrú ísland sem haldin
verður 20. maí og undirbúningur
þátttakendanna hefst innan skamms.
„Nú ætla ég að skella í mig páska-
egginu mínu og fer svo að púla aftur
við að ná því af mér,“ sagði Margrét
Skúladóttir Sigurz.
SEGJA verður að sjóbirtingsveið-
in hafi byrjað vel, sérstaklega
þegar skoðað er hversu slæmt
veður hefur herjað á veiðimenn
síðan veiði hófst á föstudaginn
langa, 1. apríl. Samkvæmt fregn-
um Morgunblaðsins fékk fyrsti
hópurinn í Vatnamótum nærri
Klaustri um 40 sjóbirtinga og ann-
ar hópur sem var á sama tíma í
Geirlandsá á Síðu fékk tíu stykki.
Voru þetta yfirleitt góðir fiskar,
allt að níu punda í Geirlandsá, en
smærri í Vatnamótum.
Þokkaleg veiði var einnig í byijun
í Varmá við Hveragerði, en hún er
hlý og leggur ekki. Þar veiddust 17
birtingar fyrsta daginn og voru það
allt að 6 punda fiskar. Eins og vant
er, var veiðin best fyrst. Hún hefur
dalað síðan, en þó verið nokkur eftir
því sem komist verður næst. Vegna
rysjóttrar tíðar á þessum árstíma
koma þó heilu dagarnir að lítið er
hægt að standa við veiðar.
Af öðrum veiðum er það að segja,
að dorgað hefur verið í Úlfsvatni
þegar færi hefur gefist á frídögum.
Bleikjan, sem mest veiðist af, hefur
verið þetta frá hálfu pundi upp í tvö
pund og urriðinn allt að fimm pund.
---------------». » ♦-------
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Margrét Skúladóttir Sigurz, ungfrú Reykjavík 1994, skálar í kampa-
víni við Brynju Xochitl Vífilsdóttur sem vann keppnina í fyrra.