Morgunblaðið - 06.04.1994, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1934
11
Samkeppni
um vatns-
listaverk
STJÓRN Vatnsveitu Reykjavík-
ur hefur ákveðið í samráði við
borgaryfirvöld að halda lokaða
samkeppni um gerð vatnslista-
verks í Grasagarðinum í Laug-
ardal. Dómnefnd skipuð af
Reykjavíkurborg og SÍM hefur
valið sex þátttakendur til að
gera tillögur að listaverkinu í
lokaðri samkeppni að undan-
gengnu forvali (í formi auglýs-
ingar eftir áhugasömum lista-
mönnum). Þátttakendum verð-
ur greitt fyrir tillögugerðina.
Samkeppnisreglur SIM munu
gilda um samkeppnina.
Tilgangur samkeppninnar er að
fá fram tillögúr sem eru til þess
fallnar að útfæra í fullri stærð.
Gert er ráð fyrir að dómnefnd ljúki
störfum 20. júní. í framhaldi af
því fer fram sýning á tillögunum
fyrir almenning. Myndlistarmenn-
irnir sem valdir hafa verið til þátt-
töku í samkeppninni eru eftirfar-
andi: Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Inga S. Ragnarsdóttir, Kristján
Guðmundsson, Ólöf Nordal, Rúrí
og Sigurður Guðmundsson.
ÁRBÆJARKIRKJA:
Mömmumorgunn í fyrramálið
kl. 10-12. Opið hús fyrir eldri
/ borgara í dag kl. 13.30. Fyrir-
bænaguðsþjónusta í dag kl.
16. Starf 10-12 ára (TTT) í
dag kl. 17.
BREIÐHOLTSKIRKJA:
Kyrrðarstund kl. 12 á há-
degi. Tónlist, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur málsverður
í safnaðarheimili eftir stund-
ina. Unglingastarf (Ten-Sing)
í kvöld kl. 20.
FELLA- og Hólakirkja:
Helgistund í Gerðubergi kl.
10.30.
SKIPIN__________________
REYKJAVÍKURHÖFN: í
fyrradag kom Jón Baldvins-
son og eftirlitsskipið Frithjof
sem fór aftur í gær. Frosti
kom og fór aftur samdægurs.
Freyja fór. I gær fóru Húna-
röstin, Faxi og Júpiter. Brú-
arfoss kom að utan og rúss-
neski togarinn Obelon kom.
Grænlandsfarið _ Makka
Artica kom og Ásbjörn kom
af veiðum og landaði. Súlna-
fellið fór á veiðar og Rex kom
til viðgerðar. Helgafellið er
væntanlegt.
H AFN ARFJ ARÐ ARHÖFN:
í fyrradag kom Sjóli af veið-
um en togarinn Már fór á
veiðar. Hvítanesiö fór á
ströndina. I gær kom Kyndill
til Straumsvíkur. Lagarfoss
keinur í dag og Strong Is-
lander fer.
gíiöil/i
i
T,t
isn'nkv
SVONA '
AUGLÝSA
ERLENDIR
LYFJAFRAM-
LEIÐENDUR
Svona auglýsingar hafa ítrekað birst í
síðustu tölublöðum Læknablaðsins.
Þær eru frá þremur tiigreindum,
eriendum lyfjaframleiðendum.
Ekki er heimilt að birta nöfn þeirra hér,
vegna ákvæða í siðareglum um
auglýsingar.
Heildarkostnaður við lyfjanotkun á
íslandi árið 1993 nam tæpum 5,1
milljarði króna. Verulegur hluti lyfjanna
eru erlend, innflutt eftir umboðs-
mannakerfi, samkvæmt viðteknum
viðskiptaháttum.
Hér er um gífurlega fjárhagslega
hagsmuni að tefla. Það sýnir birting og
framsetning auglýsinganna sem hér eru
sýmdar á síðunni og er beint til
íslenskra lækna.
Annarsvegar eru hagsmunir hinna
erlendu lyfjaframleiðenda og
umboðsmanna þeirra, hinsvegar
hagsmunir kaupenda, þ.e. íslenskra
sjúklinga og samfélagsins.
Þessa upphæð, 5,1 milljarð króna, er
mögulegt að lækka verulega, án þess að
draga úr gæðum eða magni lyfja. Það er
einfaldlega gert með því að læknar
heimili afgreiðslu ódýrustu
samheitalyfja og merki ©
í stað ® við lyfjaheiti, ætíð þegar
mögulegt er.
Læknar, sjúklingar, almenningur, tökum
höndum saman, lækkum lyfjakostnað!
Aðhald og sparnaður í rekstri
veitir aukið svigrúm til betri
heilbrigðisþjónustu.
Merki læknir bókstafinn (R) við lyfjaheiti á lyfseöli, fær
sjúklingur eingöngu afgreitt tiltekið lyf. Merki iæknir hins
vegar bókstafinn (s) við lyfjaheiti, fær sjúklingur afgreitt
ódýrasta samheitalyf í sama lyfjaflokki.
HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLA-
RÁÐUNEYTIÐ
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
*ÉÍRjMMMMMMMMl||i|aMa!t^l^lWtWMiMMM8MWri4raiMlM>íl |