Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 26

Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994 MESTU SNJÓFLÓÐ í SÖGU ÍSAFJARÐAR Yfirgáfu heimili vegna snjóflóðahættu Leiðinlegt þó ekkert ami að HJÁLMAR Kjartansson hélt til í félagsheimilinu í Hnífsdal í gær. Hann var þar ásamt 15 ára dóttur sinni, Vilhelmínu, þeg- ar Morgunblaðið kom á vettvang, en fjðlskylda Hjálmars var meðal þeirra sem beðnar voru um að yfirgefa heimili sín végna yfirvofandi snjóflóðahættu. Alls fluttu fjölskyldur tíma- bundið úr 13 húsum í Hnífsdal og auk þess voru íbúar í verbúð í Hnífsdal meðan snjóflóðahætta var yfirvofandi. Fjölskyldur sem þurftu að yfir- gefa heimili sín í Hnífsdal í gær fóru flestar til vina og vanda- manna annars staðar í bænum eða á ísafirði. Nokkrir héldu til í félagsheimilinu og var Hjálmar einn þeirra. „Við fluttum hingað fyrir þremur árum frá ísafirði og þetta er í annað sinn sem við erum beðin um að yfirgefa heim- ilið vegna snjóflóðahættu," sagði Hjálmar. - Hvað tókuð þið með ykkur að heiman? „Kók, svefnpoka, útvarp og spilastokk. Það er gott að geta fylgst með fréttum og það amar svo sem ekkert að okkur, en þetta er óskaplega leiðinlegt." Morgunblaðíð/Kagnar Sigurðsson Hjálmar Kjartansson og Vilhelmína Hjálmarsdóttir héldu til í félagsheimilinu í Hnífsdal í gær meðan siýóflóðahætta var yfir- vofandi. Verður viðhaldinu í sumar sinnt samkvæmt byggingar- reglugerð? Hefur þú, húseigandi hugleitt eftirfarandi: 1. Að samkvæmt byggingarreglugerð er viðhaldsvinna tilkynningarskyld. 2. Að hjá iðnmeisturum er mesta reynslan. 3. Að viðhaldsvinnu er best borgið í höndum fagmanna. 4. Að iðnmeistarar eru þeir einu, sem eru ábyrgir gagnvart byggingaryfirvöldum. 5. Að við sölu fasteignar getur það ráðið úrslitum hver hefur framkvæmt viðhaldsvinnuna. 6. Að meistarafélögin í Reykjavík veita alla þá tækniþjónustu sem með þarf varðandi viðhald og endurbætur á fast- eignum, sem og nýsmíði, og alla þá þjónustu er þarf vegna útboðs. 7. Þessa þjónustu getið þið fengið hjá Meistaraafll hf., Skipholti 70, Reykjavík [ síma 36282. Sumarbústaðah verfið MYNDIN var tekin fyrir réttri viku og sýnir Ásgeir Lýðsson standa fyrir framan sumarbústaðahverfið, sem snjóflóðið jafnaði við jörðu í gær. Bergmann Ólafsson skíðafrömuður um skíðasvæðið á Selialandsdal Verðum að hefja uppbyggingu strax „ÉG SÉ ekkert annað en að við verðum að hefja uppbygg- ingu þarna strax. Það er ekkert annað að gera. Skíðin eru svo stór hluti af þessum bæ,“ sagði Bergmann Ólafsson, fyrrverandi formaður Skíðafélags ísafjarðar, í gær. Ljóst virðist að ekkert verði skíðað á þessu svæði það sem eftir er vetrar. Bergmann er einn þeirra fjöl- mörgu ísfirðinga sem hafa unnið árum saman í sjálfboðavinnu við uppbyggingu skíðasvæðisins í Seljalandsdal en þar var búið að byggja upp eitt af bestu skíða- svæðum landsins. Aðstaðan var formlega í eigu ísafjarðarkaup- staðar, en skíðamenn höfðu safnað fyrir ýmsum tækjum og gefið. Þeir áttu sjálfír eignir þarna. Snjóflóð á troðarann Hafsteinn Ingólfsson, umsjón- armaður skíðasvæðisins, fór við annan mann upp á Seljalandsdal í gærmorgun til að reyna að skoða aðstæður. Hann sagði að mikið hefði snjóað og þegar hann var á leiðinni niður í snjótroðarann féll snjóflóð á hann. Komust þeir úr troðaranum og sagðist Hafsteinn ekki telja að þeir hefðu verið í mikilli lífsiiættu. Fleiri flóð runnu nálægt þeim. Sagði Hafsteinn að menn á vélsleða hefðu nýlega ver- ið famir frá þeim og rétt sloppið við snjóinn. Hann sagði að mikil snjókoma hefði verið og erfítt að átta sig á tjóninu. Smári Haraldsson bæjarstjóri sagði að í dag yrðu skemmdimar metnar. Hann sagði ömggt að ís- firðingar byggðu upp skíðasvæði, spurningin væri einungis hvort það yrði gert á þessum stað. Bergmann sagði að unnið hefði verið að uppbyggingu svæðisins í núverandi mynd frá því á ámnum 1965-70. Hann sagði að mikið hefði verið unnið í sjálfboðavinnu og ekki tækist að byggja svæðið upp að nýju nema með gríðarlegri sjálfboðavinnu. „Þetta er hjartans áhugamál hjá svo mörgum hér. Það er ekkert annað að gera en að hefjast handa við uppbygging- una,“ sagði Bergmann. **• í—~Á.S Seljalandsdalur SKÍÐASVÆÐI ísflrðinga í Seljalandsdal er nú rústir einar og Ijóst að áralöng uppbygging þar eyðilagðist emm svipan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.