Morgunblaðið - 06.04.1994, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994
VIÐSKIFn AIVINNULÍF
Lífeyrismál
Aukið frjálsræði hjá
Frjálsa, lífeyrissjóðnum
Ný reglugerð send fjármálaráðuneytinu til staðfestingar
gjalda á milli deilda.
FRÁLSA lífeyrissjóðnum verður skipt upp í deildir með mismun-
andi fjárfestingastefnu og eignasamsetningu fái ný reglugerð
sjóðsins, sem samþykkt var á aðalfundi í síðustu viku, staðfestingu
fjármálaráðuneytis. Brynhildur Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri
hjá Fjárfestingafélaginu Skandia, sem hefur umsjón með Frjálsa
lífeyrissjóðnum, segir að þær breytingar sem hafi verið samþykkt-
ar á reglugerð sjóðsins séu í raun framhald af þeirri þróun í átt
til aukins fijálsræðis sem sjóðurinn hafi stefnt að.
„Tilgangurinn með skiptingu
sjóðsins upp í deildir er að sjóðsfé-
lagar geti haft mikil áhrif á hvern-
ig fjármunum þeirra er varið.
Þannig ætti hver og einn að geta
sniðið lífeyrisspamað sinn að eigin
þörfum," segir Brynhildur.
Lego til
Bretlands
London. Reuter
DANSKA leikfangafyrirtæk-
ið Lego hyggst koma sér upp
fyrsta skemmtigarði sínum
utan Danmerkur í gömlum
skemmtigarði í Bretlandi,
Windsor Safari Park rétt
vestan við London.
Fyrirhugaður skemmtigarður
Dana, Lego World Park, mun
kosta 70 milljónir punda og
verður opnaður 1996. Þar verð-
ur meðal annars að finna eftir-
líkingar af Tower-brúnni í Lond-
on og Nelsonsúlunni, sem verða
að sjálfsögðu úr Lego-kubbum.
Búizt er við 1,4 milljónum gesta
á ári.
í tillögum um reglugerðabreyt-
ingar hjá Fijálsa lífeyrissjóðnum,
sem bíða staðfestingar fjármála-
ráðuneytisins segir meðal annars
að sjóðfélaga sé heimilt að ákveða
með hvaða hætti iðgjöld hans og
inneignir skiptist á milli deilda.
Upplýsingar um einstakar deildir,
fjárfestingarstefnu þeirra, eigna-
samsetningu og forstíðarávöxtun
skuli vera sjóðfélögum aðgengileg-
ar.
Þá sé sjóðfélaga heimilt að flytja
inneign á milli deilda og breyta
fyrri ákvörðun um skiptingú ið-
Fyrirtæki
Á síðasta ári var haldið áfram
hagræðingu í rekstri félagsins og
fylgt eftir áætlunum frá árinu
1992 um kostnaðarlækkun. Náðist
verulegur árangur á sama tíma
og tekjur af vörusölu jukust að
því er segir í ársskýrslu. Hins veg-
ar þurfti félagið að afskrifa eign-
arhluti og stofnsjóði að fjárhæð
rúmar 7 milljónir og var sú fjár-
hæð gjaldfærð í rekstrarreikningi.
Þetta voru m.a. hlutabréf í fyrrum
sambandsfyrirtækjum eins og
Miklagarði, Jötni, Samskiptum,
íslenskum skinnaiðnaði ásamt
stofnsjóðseign í Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga.
Kaupfélag Suðurnesja stofnaði
ásamt öðrum kaupfélögum á síð-
Eignir sjóðsins ávaxtast í 5
deildum, Islandsdeild, Alþjóða-
deild, Ameríkudeild, Evrópudeild
og Asíudeild og hefur hver deild
sjálfstæða ijárfestingarstefnu.
Nettotekjur einstakra deilda skipt-
ast á milli sjóðsfélaga í hlutfalli
við eign hvers um sig og sam-
kvæmt skiptingu eigna þeirra á
milli deilda. Tekjurnar færast á
sérreikning sjóðfélaga.
Á aðalfundi Fijálsa lífeyris-
sjóðsins kom fram að stærð sjóðs-
ins um síðustu áramót var 1.935
milljonir króna og sjóðsfélagar
voru 2.662. Raunávöxtun var 12%
en að sögn Brynhildar felst skýr-
ingin á svo hárri raunávöxtun
meðal annars í vaxtalækkun spari-
skírteina sem var að hluta til tek-
in inn í ávöxtunina.
&
VORl SKIPTIN
VIÐ UTLÖND
Verðmæti vöruút- og innflutnings
íjan.-feb. 1993 og 1994 1993 1994 breytingá
(fob virði í milljónum króna) jan.-feb. jan.-feb. föstu gengi*
%
Útfiutningur alls (fob) 11.912,2 14.814,2 13,7
Sjávarafurðir 9.337,1 11.247,5 10,1
Ál 1.165,2 1.668,7 30,9
Kísiljárn 379,1 467,6 12,7
Skip og flugvélar 2,9 389,3
Annað 1.027,9 1.041,1 -7,4
Innflutningur alls (fob) 10.571,4 11.504,8 -0,5
Sérstakar fjárfestingarvörur 15,8 7,5 -56,6
Skip - -
Flugvélar - 0,5
Landsvirkjun 15,8 7,0 -59,5
Til stóriðju 455,8 1.024,8
íslenska álfélagið 372,8 914,2
íslenska járnblendifélagið 83,0 110,6 21,8
Almennur innflutningur 10.099,8 10.472,5 -5,2
Olía 1.214,1 1.162,9 -12,4
Matvörur og drykkjarvörur 1.149,9 1.218,0 -3,2
Fólksbílar 465,2 459,3 -9,8
Aðrar neysluvörur 2.295,0 2.356,5 -6,1
Annað 4.975,6 5.275,8 -3,1
Vöruskiptajöfnuður 1.340,8 3.309,4
Án viðskipta íslenska álfélagsins Án viðskipta íslenska álfélagsins, íslenska járnblendifélagsins 548,4 2.554,9
og sérstakrar fjárfestingarvöru 265,2 1.816,1
* Miðað er við meðalgengi á viðskiptavog; á þann mæiikvarða var meðalverð erlends gjaldeyris 9,4% hærra i janúar-febrúar 1994 en á sama tima árið áður.
Utanríkisviðskipti
Almennur innflutningur
dregstsaman um 4%
Hagnaður Kaupfélags
Suðurnesja 15 m.kr.
Veltuaukning á árinu um 30%
HEILDARSALA hjá Kaupfélagi Suðurnesja á síðasta ári nam alls
um 1.837 milljónum og jókst um 30% frá árinu áður. Félagið hef-
ur verið að færa út kvíarnar á síðustu misserum og keypti verslun-
ina Miðvang í Hafnarfirði á síðasta ári. í byrjun þessa árs var
síðan opnuð lágvöruverðsverslunin Kaskó. Hagnaður varð hjá fé-
laginu á síðasta ári að fjárhæð 14,8 milljónir króna eða sem nem-
ur um 1% af veltu. Eiginfjárhlutfall félagsins var í lok sl. árs
21,5% og ávöxtun eigin fjár á árinu 11,7%. Veltufjárhlutfall var
0,92.
asta ári hlutafélagið Kaupás hf.
sem á og rekur 11/11 verslanirn-
ar. Þá var kaupfélagið stofnaðili
að Innkaupasambandi kaupfélaga
hf. sem annast sameiginleg inn-
kaup fyrir aðildarfélögin. Verslun
í Vogum var seld á árinu og starf-
semi þar hætt í aprílmánuði.
Heildareignir félagsins í árslok
voru alls 675,7 milljónir. Sjóðir og
eigið fé voru samtals um 145,5
milljónir og heildarskuldir 530,2
milljónir.
A aðalfundi kaupfélagsins sem
haldinn var 19. mars sl. voru þeir
Birgir Guðnason og Pétur Þórar-
insson endurkjömir í stjórn.
Kaupfélagsstjóri er Guðjón Stef-
ánsson.
FYRSTU tvo mánuði ársins
voru fluttar út vörur fyrir
14,8 milljarða króna en inn
fyrir 11,5 milljarða fob. Af-
gangur var því á vöruskiptum
við útlönd sem nam 3,3 millj-
örðum króna en á sama tíma
í fyrra voru þau hagstæð um
1,5 milljarða króna á föstu
gengi. Dróst almennur inn-
flutningur saman um 4% á
tímabilinu.
í febrúarmánuði sl. voru fluttar
út vörur fyrir 7,6 milljarða kr. og
inn fyrir 6,4 milljarða kr. fob.
Vöruskiptin í febrúar vorú því
hagstæð um 1,2 milljarða kr. en
í febrúar 1993 voru þau nær í
járnum. Fyrstu tvo mánuði
þessa árs var verðmæti vöruút-
flutningsins 14% meira á föstu
gengi en á sama tíma árið áður.
Sjávarafurðir voru 76% alls út-
flutningsins og var verðmæti
þeirra 10% meira en á sama tíma
í fyrra.
Verðmæti vöruinnflutningsins
fyrstu tvo mánuði þessa árs var
nær hið sama á föstu gengi og á
sama tíma árið áður. Innflutning-
ur sérstakrar fjárfestingarvöru
(skip, flugvélar, Landsvirkjun),
innflutningur til stóriðju og olíu-
innflutningur er jafnan mjög
breylilegur frá einu tímabili til
annars. Að þessum liðum frátöld-
um reyndist annar innflutningur
hafa orðið 4% minni á föstu gengi
en á sama tíma árið áður. Þar af
dróst innflutningur á matvöru og
drykkjarvöru saman um 3%, inn-
flutningur á bílum dróst saman
um 10% og innflutningur annarrar
neysluvöru var 6% minni en á
sama tíma í fyrra.
í þessum samanburði frá Hag-
stofu íslands er miðað við meðal-
gengi á viðskiptavog; á þann
mælikvarða var meðalverð erlends
gjaldeyris í janúar-febrúar 1994
9,4% hærra en árið áður.
Rússland
„ Gulltryggja “ís-
lenskar fjárfestingar
SENDIRÁÐ íslands í Moskvu átti nýlega viðræður við rússneskt
fyrirtæki sem býðst til að hafa milligöngu um fjárfestingar íslend-
inga í Rússlandi. í bréfi þessa fyrirtækis, sem ber heitið „Viktor
K.“, er því lýst yfir að allar fjárfestingar íslendinga í Rússlandi
verði hægt að tryggja með gulli eða öðrum eðalmálmum sem unnt
væri að varðveita í Seðlabanka íslands.
Með bréfinu fylgir langur listi
yflr ýmiskonar möguleika á fram-
leiðslu ásamt fjárhæð fjárfestingar.
Jafnframt er tekið fram hversu
lengi fjárfestingin sé að borga sig
upp og er þar yfirleitt um að ræða
eitt og hálft til tvö ár. Þar er um
að ræða ýmiskonar iðnaðarfram-
leiðslu og má nefna sem dæmi
framleiðslu á 50 þúsund peysum
árlega. Gert er ráð fyrir að fjárfest-
ingin nemi 80 þúsund bandaríkja-
dölum sem endurgreiðist á 18 mán-
uðum.
Þessum lista hefur verið komið
á framfæri við Verslunarráð íslands
gegnum sendiráðið. Herbert Guð-
mundsson, félagsmálastjóri Versl-
unarráðs, segir, að ráðið hafi mik-
inn áhuga á því að þeir sem séu í
viðskiptum á erlendum vettvangi
skoði þessi verkefni. „Hérna liggja
fyrir ýmis gögn sem menn geta
fengið aðgang að varðandi viðskipti
í Rússlandi. Það eru griðarleg tæki-
færi þarna sem önnur Norðurlönd
hafa notfært sér og fjárfestingin
hefur oft borgað sig upp mjög
hratt.“
hagstceðkjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margir gjaldmiðlar IÐNÞROUNARS JOÐUR.
Kalkofnsvegi 1 150 Reykjavík sími: (91) 69 99 90 fax: 62 99 92