Morgunblaðið - 06.04.1994, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994
29
Verðbréf
Verðsveiflur á Wall Street
New York. Reuter.
Verðbréf hækkuðu aftur í verði í Wall Street á þriðjudag eftir tals-
vert verðfall á mánudag og vaxtalækkun átti þátt í því. Dow Jones-
visitalan hækkaði um 65,65 stig í 3.659,00 um miðjan dag. Bjartsýni
ríkti á markaðnum og rúmlega 2.000 verðbréf hækkuðu í verði, en
300 lækkuðu. Viðskipti voru lífleg og verzlað var með 219 miHjónir
hlutabréfa í kauphöllinni í New York. Nasdaq-vísitalan hækkaði um
19,99 stig í 747,40.
Sérfræðingar sögðu að markað-
urinn virtist vera kominn yfir versta
hjallann. Eins og lengi hefur verið
spáð hafa vextir lækkað um því sem
næst 10% á ný síðan þeir voru
hæstir í janúar. Vaxtalækkunin ýtti
undir verulega hækkun á markaðn-
um að sögn sérfræðinganna. Gert
hafði verið ráð fyrir að verðbréf
mundu ná sér aftur á strik eftir
Hrávara
*
Albirgðir fara
senn minnkandi
London. Reuter.
ÁLBIRGÐIR, sem hafa rúmlega tvöfaldazt á tveimur árum, fara að
minnka í maí eða júní þegar áhrifa alþjóðlegs samkomulags um að
draga úr framleiðslu fer að gæta að sögn sérfræðinga. Efasemdir
um að Rússar muni ekki taka þátt í niðurskurðinum eru tilhæfu-
lausar að þeirra sögn.
Helztu álframleiðslulönd sam-
þykktu í marz að draga úr heims-
framleiðslu um allt að tvær millj-
ónir lesta til þess að stemma stigu
við offramboði og halda uppi viðm-
iðunarverði, sem hefur lækkað um
800 dollara síðan Sovétríkin liðuð-
ust í sundur og rússneskur útflutn-
ingur til Vesturlanda jókst. I Bret-
landi hafa álbirgðir minnkað um
6.050 lestir í 2.59 milljónir lesta.
Sérfræðingar telja þó ólíklegt
að verð hækki mikið, þar sem fyr-
irhugaður niðurskurður hafí þegar
verið reiknaður með. „Verð hefur
hækkað úr um 1.100 dollurum
tonnið í 1.350 dollara og það staf-
ar að vissu marki af því gert hef-
ur verið ráð fyrir skerðingunni,“
sagði brezkur álkaupmaður.
Alls hafa 22 fyrirtæki í heimin-
um heitið því að draga úr fram-
leiðslu. Þeirra á meðal eru Pechin-
ey í Frakklandi (um 120.000 tonn
ekki seinna en í apríl), Alcan Al-
uminium í Kanada, (156.000 tonn
fyrir marzlok) og Alcoa í Bandaríkj-
unum, sem hafa samþykkt að draga
úr framleiðslunni um 100.000 tonn
nú þegar.
Rússar samþykktu að minnka
framleiðsluna um 500.000 tonn —
300.000 tonn fyrir apríllok og
200.000 fyrir lok júlí. Áætlað hef-
ur verið að útflutningur Rússa
hafi numið 1.56 milljónum lesta
1993 miðað við 964.000 lestir
1992.
Sumir sérfræðingar telja að
alþjóðastofnun, sem safnar upp-
lýsingum um útflutning, fram-
leiðslu og birgðir, verði þess ekki
megnug að hafa eftirlitt með sam-
komulaginu. „Markaðurinn þarf
staðfestingu á því að vestræn ríki
og Rússar minnki framleiðsluna,“
sagði sérfræðingurinn William
Adams í London. „Þá verður hugs-
anlegt að hækka verðið aftur í um
það bil 1.400 dollara.“
Annar sérfræðingur segir að
búizt sé við að eftirspurn eftir áli
aukist 1994 um leið og efnahags-
ástandið í Bretlandi haldi áfram
að batna, byggingariðnaðurinn í
Frakklandi og Þýzkalandi taki við
sér og þjóðarbúskapur Japana nái
lágmarki.
Svíþjóð
Vaxtahækkanir í Bandaríkjunum
hafa leitt til langvarandi verðlækk-
unar í sænsku kauphöllinni og ríkið
kann því að neyðast til þess að
íhuga þann kost að fresta sölunni,
sem ráðgert hafði verið færi fram
síðar í vor.
Talsmaður iðnaðarráðuneytisins
sagði að ríkið hefði engan frest
sett til þess að ákveða skilmála
fyrir sölu á 46% hlút sínum í lyfja-
fyrirtækinu. Sérfræðingar segja þó
að ráðuneytið sé við því búið að
selja allan hlut sinn í einu í byrjun
júní. Fjármálablaðið Dagens Ind-
ustrí segir að ríkisstjórnarfundi um
einstök atriði, sem þarf að ganga
frá fyrir söluna, hafi verið frestað
til 20. maí frá 14. apríl.
Fyrirhuguð sala hlutsins í
Pharmacia er síðari liður áætlunar
rúmlega 295 stiga hrun á átta dög-
um og vaxtahækkunin kom af stað
einhveiju mesta söluæði í Wall
Street um árabil.
„Markaðurinn hlaut að komast í
jafnvægi,“ sagði sérfræðingurinn
Larry Wachtel. „Ekki hafði orðið
eins mikið hrun og í gær og í síð-
ustu viku síðan 1978, en ástandið
var viðráðanlegt."
Vextir hafa hækkað að undan-
förnu og nýjar ábendingar um meiri
efnahagsbata en búizt var við hafa
kynt undir ugg um verðbólgu.
Dow-vísitalan komst hæst í 3.978
stig 31. janúar og lækkaði í 3.552
stig á mánudag.
Þegar mörkuðunum var lokað í
Wall Street á mánudag höfðu verð-
bréf ekki lækkað eins mikið í verði
um fimm mánaða skeið vegna nýs
uggs um verðbólgu.
Margir reyndu jafnvel að losa sig
við dollara, þótt hann styrkist
venjulega þegar vextir eru hækkað-
ir í Bandaríkjunum.
Verð á olíu lækkaði fyrst, en
náði sér óvænt aftur á strik og
hafði ekki verið eins hátt í tvo
mánuði við lokun.
Dow Jones-vísitalan lækkaði á
mánudag um 42,61 stig í 3.593,25
og hafði ekki verið eins lág síðan
12. október 1993.
Fyrstu 10 mínúturnar eftir að
kauphöllin í New York var opnuð
lækkaði Dow-vísitalan um 83 stig.
Upphaflega varð lækkunin á mörk-
uðunum vegna frétta á föstudaginn
langa um að launakostnaður hefði
aukizt helmingi meira en gert hafði
verið ráð fyrir í marz.
Kauphallaróróinn
stefnir sölunni á
Pharmacia í tvísýnu
Stokkhólmi. Rcuter.
MESTA einkavæðing Svía - sala á 14 milljarða sænskra króna hlut
ríkisins í lyfjafyrirtækinu Pharmacia AB - kann að tefjast vegna
verðlækkana í kauphöllum að sögn sérfræðinga.
I
fyiýodasi
Fljótlegt-Létt-Bragðgott
BIRYANI - ÍNDVERSKT:
HRfSGRIÓN MEÐ GRÆNMETI, KIÚKLINGI OG KRYDDl.
TORTIGUONI - ÍTALSKT:
PASTASKRÚFUR MEÐ GRÆNMETI, NAUTAKIÖTI OG KRYDDI.
FARFALLE - ÍTALSKT:
PASTASLAUFUR MEÐ GRÆNMETI, SKINKU OG OSTl.
Ein msk. smjör á pönnuna,
innihaldið út í og allt tilbúið á 5 mín.
Skyndiréttir sem bragðast og líta út
sem bestu sérréttir!
i
ríkisstjórnar Carls Bildts um sölu
hlutabréfa á þessu ári. í marz var
gengið frá sölu á 49% hlutabréfa í
timbur- og pappírsvörufyrirtækinu
AssiDoman AB, sem aflaði ríkinu
7.6 milljarða sænskra króna. Lagt
er fast að stjórninni að ljúka við
söluna á Pharmacia fyrir kosning-
ar, sem fara fram 18. september.
Volvo-fyrirtækið hefur einnig
hagsmuna að gæta, þar sem það
hét stjórninni því í fyrra að halda
25% hlut sínum í lyíjafyrírtækinu.
Það hefur rétt til að auka hlut sinn
í 35%.
Bollalagt hefur verið í nokkrar
vikur hvort sölunni verður frestað.
Búizt er við tilboðum upp á 40
milljarða sænskra króna frá kunn-
um jafnt sem lítt þekktum fyrir-
t.ækjum fram ■ í júlí, <