Morgunblaðið - 06.04.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.04.1994, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994 Gjaldþrot frystihússins Kaldbaks hf. á Grenivík 60 skráðu sig at- vinnulausa í gær UM 60 manns, fyrrverandi starfsmenn frystihúss Kaldbaks hf. á Grenivík, komu á skrifstofu Grýtubakkahrepps í gær til atvinnuleys- isskráningar í kjölfar gjaldþrots fyrirtæksins fyrir páska. Fundur er fyrirhugaður með þingmönnum kjördæmisins vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna gjaldþrotsins en Kaldbakur var stærsti vinnuveitandinn á staðnum. „Guð almáttugur hjálpi okkur ef ekki verður hægt að endurreisa fyrirtækið í einhverri mynd,“ sagði Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri Grýtubakkahrepps. Frá því Kald- bakur var lýstur gjaldþrota á mið- vikudag í síðustu viku hafa heima- MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit verður með opið hús í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju í dag, miðvikudaginn 6. apríl frá kl. 15.-18. Sveinn Jónsson bóndi í Kálfs- skinni mun þar setja fram og ræða ýmsar hugmyndir að nýjungum í atvinnumálum og láta hugann reika „frá fjöru og upp til fjalls- brúna“, en Sveinn er þekktur af verkum sínum bæði sem mikill menn verið að skoða möguleikann á því að endurreisa fyrirtækið en Guðný sagði að ekkert væri enn fast í hendi í þeim efnum. „Yið erum að skoða vissa möguleika en enn er óljóst hvað verður. Við vitum að það þýðir ekki að ana út í ein- athafnamaður og hugmyndasmið- ur. Kaffi og brauð verður á borðum að vanda þátttakendum að kostnaðarlausu og dagblöðin liggja frammi. Þá verða ýmsar til- kynningar á dagskrá og síðasta tækifærið til að skrá sig til þátt- töku á námskeið í heimilisbók- haldi. Einnig verður sérstök send- ing til Miðstöðvarinnar afhent um kl. 16.30. (Fréttatilkynning.) hverja vitleysu, setja eitthvað fyrir- tæki á koppinn ef það er vonlaust að það gangi." Töluverðar birgðir voru til af saltfiski þegar fyrirtækið varð gjaldþrota og ljóst að hann þarf að meta og pakka og verður það vænt- anlega gert á næstu dögum. Fundur með þingmönnum Guðný hefur óskað eftir fundi með þingmönnum kjördæmisins til að ræða þá stöðu sem upp er komin í atvinnumálum á Grenivík í kjölfar gjaldþrots stærsta fyrirtækisins á staðnum og þá mun sveitarstjórn, fulltrúar Iðnþróunarfélags Eyja- fjarðar og fleiri aðilar einnig eiga fund síðar í vikunni þar sem farið verður yfir stöðu mála og hvort grundvöllur reynist fyrir endurreisn fyrirtækisins í einhverri mynd. Örlygur Hnefill Jónsson skipta- stjóri þrotabús Kaldbaks sagði að fljótlega yrði haldinn fundur með helstu veðhöfum, en þeir eru At- vinnutryggingasjóður, Landsbanki íslands, Byggðastofnun, Sparisjóð- ur Höfðhverfinga og Fiskveiðisjóð- ur íslands. í framhaldi af þeim fundi sagðist Örlygur Hnefill væntanlega auglýsa eignir þrotabúsins til sölu, en þær eru m.a. stórt frystihús með tilheyrandi vélbúnaði, verbúð og tvö íbúðarhús fyrir starfsmenn. Sveinn í Kálfsskinni ræðir um atvinnumál Hvert stórafmælið á fætur öðru á Dalvík _ Dalvík. ÁRIÐ 1994 er sannkallað af- mælisár á Dalvík því fjöldi fyrir- tækja og félaga í bænum eiga stórafmæli á þessu 50 ára af- mæli íslenska lýðveldisins og minnst er atburða í sögu bæjar- ins. Sparisjóður Svarfdæla verður 110 ára 1. maí næstkomandi, en sjóðurinn var stofnaður 1. maí 1884 af nokkrum bændum í Svarfaðar- dal. Ungmennafélag Svarfdæla SKEIFUNNI 11 • SÍMI 67 97 97 verður 85 ára í lok ársins, en það var stofnað 30. desember árið 1909 að tilstuðlan Snorra Sigfússonar og gengu á stofnfundi í félagið 38 manns, 32 karlar og 6 konur. Sundskáli Svarfdæla verður 65 ára, en hann var vígður á sumar- daginn fyrsta árið 1929 og þá opn- aður almenningi. Dalvíkurskjálftarnir 2. júní 1934 urðu miklir jarð- skjálftar við Eyjafjörð en þeirra gætti mest á Dalvík og því jafnan nefndir Dalvíkurskjálftarnir. Miklar skemmdir urðu á mannvirkjum af þeirra völdum. í sumar verður skjálftanna minnst í máli og mynd- um á Dalvík. Slysavarnasveit kvenna var stofnuð á Dalvík 21. maí árið 1934 og verður sveitin því 60 ára nú á næstunni. Kvennadeild slysavarna- félagsins var stofnuð að tilstuðlan Egils Júlíussonar. Fyrr á árinu átti Leikfélag Dal- víkur 50 ára afmæli en það var stofnað 19. janúar árið 1944. Það minnist tímamótanna með tveimur frumsýningum þetta leikár. Hafíð eftir Ólaf Hauk Símonarson var frumsýnt í febrúar síðastliðnum og í haust verður Land míns föður eft- ir Kjartan Ragnarsson frumsýnt. Söltunarfélag Dalvíkur var stofn- að verður 50 ára síðar á þessu ári en 17. desember 1944 stofnuðu útgerðarmenn með sér söltunarfé- lag til að síldarsöltun mætti verða markvissari og hagkvæmari. Nú snýst rekstur félagsins einkum um rækjuvinnslu. Árið 1954 var fyrirtækið Óskar Jónsson og Co stofnað á Dalvík en það er fyrirtækið sem annast vöru- flutninga. Útgerðarfélag Dalvíkur var stofnað í júlí 1959 um kaup átogar- anum Björgvin EA-311 og fagnar félagið því 35 ára afmæli á árinu. Netagerð Dalvíkur tók til starfa í júní árið 1964 og verður því 30 ára 1 sumar en fyrr á árinu hafði fyrir- tækið Netjamenn hf. hætt rekstri. Tónlistarskóli Dalvíkur hóf starf- semi haustið 1964 og lýkur því 30. starfsári skólans í haust. Hitaveita var formlega tekin í notkun á Dalvík fyrir 25 árum, en sá atburður varð 29. október árið 1969. Bærinn tvítugur Þann 5. apríl árið 1974 afgreiddi Alþingi lög um kaupstaðarréttindi handa Dalvíkurbæ og 10. apríl voru þau staðfest af forseta íslands. Afmælisins verður minnst með há- tíðardagskrá um næstu helgi, 9. og 10. apríl. Þá má geta þess að Sæpiast hf. átti nýlega 10 ára afmæli en það var árið 1984 sem fyrir tilstuðlan Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar og nokkurra framtakssamra einstakl- inga á Dalvík að fest voru kaup á plastverksmiðju í Garðabæ og hún flutt til Dalvíkur. Loks má geta þess að fiskverkunar- og útgerðar- félagið Otur hf. verður 20 ára á árinu en það eins og Verslunin Sogn sem er bóka- og gjafavöru- verslun var stofnað árið 1974. HG Morgunblaðið/Rúnar Þór Þríeykið TVEIR ritstjórar hafa verið ráðnir að Degi, bræðurnir Óskar Þór og Jóhann Ólafur Halldórssynir, og munu þeir ásamt Kristjáni Krisljánssyni fréttastjóra, sem er á milli þeirra á myndinni, bera ábyrgð á því að koma blaðinu út í framtíðinni. Jarðbrúarbræð- ur ritstýra Degi BRÆÐURNIR Óskar Þór og Jóhann Ólafur Halldórssynir hafa tekið að sér ritsljórn dagblaðsins Dags en þeir munu jafnframt áfram sinna störfum sínum sem blaðamenn. Kristján Kristjánsson verður áfram fréttasljóri blaðsins. Öllu starfsfólki Dagsprents, sem gefur blaðið út, var sagt upp störfum fyrir páska og lýsti Bragi V. Bergmann fráfar- andi ritstjóri þá yfir að hann myndi ekki Iáta á það reyna hvort hann yrði endurráðinn að blaðinu en hann er afar ósáttur við stefnu stjórnar og framkvæmdastóra blaðsins í málefnum Dags. „Það var leitað eftir því að við tækjum að okkur ritstjórn blaðsins,“ sagði Óskar Þór „og við munum bæta því við þau störf sem við höfum fram til þessa sinnt, við verðum sem sagt áfram á fullu í fréttamennsk- unni.“ Útgáfa Dags verður þunga- miðjan í rekstri Dagsprents í kjölfar endurskipulagningar á rekstri sem nú er verið að ráð- ast í. Að sögn Harðar Blöndal framkvæmdastjóra verður rekst- ur prentsmiðjunnar lagaður að þörfum blaðsins og í farvatninu er breytt vinnslufyrirkomulag vegna útgáfunnar. Á næstu tveimur vikum verður gengið frá endurráðningu þess starfsfólks sem nauðsynlegt er til útgáfunn- ar. Þegar er ljóst að fækkað verður um einn mann á ristjórn blaðsins, þannig að eftir 1. júlí næstkomandi verða 8 starfs- menn á ritstjórn blaðsins. Á síð- asta ári var tveimur blaðamönn- um sagt upp störfum hjá blað- inu. Líflegra „Markmið okkar er að efla blaðið sem vettvang skoðana- skipta á Norðurlandi því það er trú okkar að það komi enginn miðill í stað Dags hvað það varð- ar. Dagur er málsvari lands- byggðar og nýtur sérstöðu sem slíkur,“ sagði Óskar Þór. „Nýj- um ritstjórum fylgja ávallt ein- hveijar breytingar og þær munu birtast á síðum blaðsins á næstu misserum. Við ætlum okkur að breyta blaðinu til batnaðar, gera það líflegra." Óskar Þór sagði að vissulega yrði starfið krefjandi „við erum að bæta þessu á okkur í viðbót við fréttamennskuna því höldum báðir ótrauðir áfram í henni og því fylgir auðvitað mikið vinnu- álag. En við vitum að hér innan- dyra er samhentur hópur sem er staðráðinn í því að vinna sig út úr þeim erfiðleikum sem blað- ið hefur lengi verið í og við erum sannfærðir um að það verði ekki gert nema með góðri samvinnu og við trúum því að það takist,“ sagði Óskar Þór og bætti því við að samkomulag bræðranna hefði ávallt verið með ágætum þannig að hann óttaðist ekki að upp kæmi alvarlegur ágreiningur milli ritstjóranna tveggja. Bræð- urnir eru frá Jarðbrú í Svarfað- ardal og hefur Jóhann Ólafur starfað á Degi frá því í maí árið 1987 og Óskar Þór hóf þar störf haustið 1988. ■ / ÁRSBYRJUN auglýsti land- búnaðarráðuneytið stöðu héraðs- dýralæknis til umsóknar í Austur- Eyjafjarðardæmi. Umsóknar- frestur var til 1. febrúar 1994. Um stöðuna sóttu tíu dýralæknar. Ein umsókn var dregin til baka. Um- sækjendur voru: Alfreð Schiöth, Ármann Gunnarsson, Elfa Ág- ústsdóttir, Gísli Sverrir Halldórs- son, Gunnar Gauti Gunnarsson, Gunnar Þorkélsson og Vignir Sigurólason. Tveir umsækjendur óskuðu nafnleyndar. Að tillögu landbúnaðarráðherra hefur forseti íslands skipað Ár- mann Gunnarsson í embætti hér- aðsdýralæknis í Austur-Eyjafjarða- rumdæmi. ■ BROTIST var inn í þrjú fyrir- tæki á Akureyri um páskahelgina, myndbandaleigu og bifreiðaverskt- æði aðfaranótt skírdags og í sölut- urn aðfaranótt laugardagsins. Úr söluturninum og myndbanda- leigunni var stolið einhverju af pen- ingum, sælgæti og- tóbaki. Engu var stolið úr bifreiðaverkstæðinu, samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Ákureyri. Ekki hefur enn tekist að hafa hendur í hári j þjófanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.