Morgunblaðið - 06.04.1994, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994
31
Samþykkt bæjarsljórnar Vestmannaeyja
Abyrgist bak-
vaktagreiðslur
á Sjúkrahúsinu
V estmannaeyj um.
BÆJARSTJÓRN Vestmannaeyja hefur gefið vilyrði fyrir því við
stjórn Sjúkrahúss og Heilsugæslustöðvar Vestmannaeyja, að Vest-
mannaeyjabær ábyrgist aukna greiðslu vegna bakvakta starfsfólks
Sjúkrahússins næstu þijá mánuði. Er þetta gert til að hægt verði
að halda gangandi gæsluvöktum allan sólarhringinn, en í kjölfar
dóms hæstaréttar um bakvaktagreiðslur sjúkrahússins til starfs-
fólks aukast launagreiðslur um 270.000 krónjir á mánuði, en sjúkra-
húsið hefur enn ekki tryggt fé frá ríkinu til þessara greiðslna.
Því hafði verið ráðgert að hætta bakvöktum sem hefði haft í för
með sér skert öryggi og því gekkst bæjarsjóður í bakábyrgð fyr-
ir greiðslunum meðan unnið væri frekar að málinu.
Sjúkrahúsið hafði gert samning
við starfsfólk sitt um greiðslur
fyrir bakvaktir. Meinatæknir sem
vann hjá Sjúkrahúsinu höfðaði mál
gegn því þar sem hún taldi þá
samninga ekki standast og í
Hæstarétti fyrr í vetur féll dómur
á þann veg að Sjúkrahúsinu hefði
verið óheimilt að gera samninga
við starfsfólkið sem fólu í sér lak-
ari kjör en í almennum samning-
ura. Það var því dæmt til að greiða
þennan mismun aftur í tímann,
greiða síðan samkvæmt almenn-
um samningum í framtíðinni.
Þessar breytingar fela í sér að
launagreiðslur vegna bakvakta
aukast um 270.000 á mánuði og
þá fjármuni hefur Sjúkrahúsið
ekki enda hefur verið unnið hörð-
um höndum að niðurskurði hjá
stofnuninni til að ná endum saman
miðað við fjárframlög ríkisins.
Stjórn Sjúkrahússins hefur ósk-
að eftir því við heilbrigðisráðu-
Samstaða um
+
óháð Island
vill útvarps-
þætti um EES
SAMSTAÐA um óháð ísland
hefur sent útvarpsráði bréf þar
sem farið er fram á að Sjón-
varpið geri þætti um áhrif EES-
samningsins á íslenskt þjóðfélag
þar sem gagnrýnum röddum
verði gert kleift að koma sjónar-
miðum sínum og viðhorfum á
framfæri.
Þá er vísað til svokallaðra
fræðsluþátta um EES-samninginn
sem sýndir voru í tvígang í sjón-
varpinu í lok mars þar sem áhrif
samningsins voru rómuð í bak og
fyrir án þess að neinni gagnrýnni
röddu væri hleypt að.
Viðtalstím-
um borgar-
stjóra fjölgað
VEGNA eftirspurnar hefur
verið ákveðið að fjölga við-
talstímum borgarbúa við
Arna Sigfússon borgar-
stjóra, segir í frétt frá skrif-
stofu borgarstjóra.
Viðtalstímar verða á mið-
vikudögum og föstudögum
milli kl. 10 og 12 og milli kl.
13 og 15 á föstudögum. Við-
tal við borgarstjóra þarf að
panta með símtali við Ráðhús-
ið daginn áður og eru þau
skráð eftir röð þeirra sem
hringja.
MnsiilMk)á Imrjum degi!
neytið að fá aukin fjárframlög til
rekstrar sem þessu nemur og þrátt
fyrir að fulltrúar ráðuneytisins
hafi verið í Eyjum hefur enn ekki
tekist að leysa vanda Sjúkrahúss-
ins.
Reynt að tryggja fé frá ríkinu
Ráðgert hafði verið að hætta
bakvöktum frá og með síðustu
mánaðamótum sem hefði þýtt
verulega skerðingu á þjónustu og
öryggisleysi fyrir Vestmanney-
inga. Stjórn Sjúkrahússins óskaði
því eftir því við 'bæjaryfirvöld í
Eyjum að þau gengju í bakábyrgð
vegna aukinnar greiðslu bakvakta
næstu þijá mánuðina en á meðan
myndi stjórnin nýta tímann til að
reyna að tryggja fjármagn frá rík-
inu til að hægt verði að halda
þessari öryggisþjónustu uppi í
framtíðinni.
- Grímur
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
671800
Ford F-250 6.9 diesel '84, 4 g., nýl. uppt.
vél. V. 750 þús.
Toyota Corolla XL '91, blár, 5 g., ek. 20
þ. km. V. 790 þús., sk. á ód.
3
Renault 21 GTX Nevada 4x4 station
'90, dökkgrænn, 5 g., ek. 61 þ., rafm. í
rúðum o.fl. V. 1180 þús., sk. á ód.
MMC Lancer EXE '92, hlaðbakur, dökk-
blár, 5 g., ek. aðeins 15 þ., ram. í öllu
o.fl. V. 1160 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla DX '86, 3ja dyra, stein-
grár, 4 g., ek. 90 þ. km. V. 320 þús.
MMC Lancer GLXi hlaðbakur '92, rauð-
ur, sjálfsk., ek. 22 þ., rafm. í rúðum, centr-
al læs. Tilboðsverð 950 þús. stgr.
Toyota Corolla Touring XL '90, hvítur, 5
g., ek. 77 þ. V. 950 þús. stgr., skipti.
Toyota Camry GLi 2000 '87, steingrár,
sjálfsk., ek. 110 þ. km., rafm. í rúðum,
central læs., spoiler, loftræsting o.fl. V.
760 þús., sk. á ód.
Subaru Justy J-12 '87, hvítur, 5 g., ek.
96 þ. km., sóllúga o.fl. V. 390 þús., sk. á
ód.
Toyota Double Cab V-6, 4,3I '89, rauður,
sjálfsk., 6 cyl., ek. 30 þ. á vél, 44“ dekk.
Mikið breyttur. V. 1590 þús. stgr.
Nissan Sunny SLX station '91, vínrauð-
ur, 5 g., ek. 50 þ. V. 890 þús.
Toyota Corolla Touring XL 4 x 4 '89, hvít-
ur, ek. 80 þ. Fallegur bíll. V. 890 þús. stgr.
Subaru Legacy 1.8 Sedan '91, rauður, 5
g., ek. 56 þ., sóllúga, dráttarkúla, rafm. í
rúðum o.fl. V. 1380 þús.
Daihatsu Feroza EFi '91, rauður/grár, 5
g., ek. 21 þ. V. 1150 þús.
MMC Pajero V-6 '91, 5 g., ek. 40 þ., ál-
felgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1890 þús.,
sk. á ód.
Stemmningsmynd frá Munaðarnessvæðinu í Norðurá
Þau vatnasvæði sem SVFR býður upp á eru ekki af verri endanum:
□ Elliðaár □ Norðurá 1 □ Norðurá II
□ Gljúfurá □ Langá - fjall □ Miðá í Dölum
□ Flóðatangi □ Tungufljót □ Stóra Laxá í Hreppum
□ Sog - Alviðra □ Snæfoksstaðir □ Laugarbakkar í Ölfusi
□ Sog - Bíldsfell □ Sog - Ásgarður □ Sog - Syðri Brú □ Sog - Ásgarður, silungsv.
# Á flestum veiðisvæðunum eru góð hús til afnota fyrir
veiðimenn svo hægt er að taka fjölskylduna með.
Er ekki kjörið að samtvinna fjölskylduferð og
starfsmannafélagsferð með meiru í fallegu og friðsælu
umhverfi við veiði á silungi eða laxi?
Kynnið ykkur hvað í boði er og skellið ykkur
í góðan veiðitúr á veiðisumrinu mikla 1994
Skrifstofa okkar á Háaleitisbraut 68
(Austurveri) er opin alla virka daga
frákl. 9.00 til 18.00.
SVTR
Sími 686050 og 813425
DIPLOMAT FISTÖLVAN FRÁ MORE
Alvöru
486
UPPFÆRANLEG
VÍRUSVÖRN í BIOS
nstölva
Diplomat fistölvan fæst 25, 33 eða 66 MHz, með
grátóna- eða litaskjá, hörðum diski allt að 340 MB, sem
einfalt er að skipta um og vinnsluminni allt að 20 MB.
Diplomat hefur tengimöguleika við öll helstu jaðar-
tæki, innbyggt disklingadrif og tengi fyrir bílrafmagn.
"Docking Station" er búin tengjum fyrir skjá, lykla-
borð og mús, og 4 tengiraufum fyrir netkort, hljóðkort,
fax/módem og viðbótar hlið- eða raðtengi.
Rými er fyrir 2 viðbótardrif, t.d. geisladrif og 51/4”
disklingadrif. Með einu handtaki er Diplomat breytt í
hefðbundna borðtölvu.
BOÐEIND
Austurströnd 12» Sími 612061 • Fax 612081