Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994
33
Reuter
Annar sigur í höfn
FRÁ innrás bandamanna í Normandí 6. júní 1944, á D-deginum svo-
kallaða. Fyrrverandi hermenn, sem tóku þátt í innrásinni, hafa unn-
ið annan sigur, nú gegn frönskum yfirvöldum sem ætluðu að meina
þeim um gistingu á hóteli í júní þegar þess verður minnst að 50 ár
eru liðin frá innrásinni.
Hermenn sigra í
„orrustunni um
hótelherbergin“
Lundúnum, París. Reuter, The Daily Telegraph.
BRESK dagblöð fögnuðu í gær sigri fyrrverandi hermanna í „orr-
ustunni um hótelherbergin" eftir að frönsk yfirvöld lýstu því yfir stað-
ið yrði við hótelpantanir þeirra vegna hátíðahaldanna í júní í tilefni
þess að 50 ár verða liðin frá innrás bandamanna í Normandí í síðari
heimsstyrjöldinni.
200 fyrrverandi hermenn, sem
tóku þátt í innrásinni, höfðu greitt
fyriifram fyrir gistingu á Hotei du
Golf í franska bænum Deauville.
Eigendur hótelsins skýrðu þó frá því
á sunnudag að hermennirnir gætu
ekki gist á hótelinu þar sem embætt-
ismenn í franska utanríkisráðuneyt-
inu hefðu gefið fyrirmæli um að
bandarískir sjónvarpsmenn, blaða-
menn og erlendir embættismenn
fengju herbergi þeirra. Fjölmiðla-
mennirnir höfðu átt að gista á Hotel
Royal en þeir urðu að víkja fyrir
'erlendum þjóðhöfðingjum og ráð-
herrum. Ákveðið var að láta fjölm-
iðlamennina gista á Hotel du Golf
og hermönnunum fyrrverandi var
Arafat til
Jeríkó eft-
ir mánuð
ætþað að gista á einkaheimilum.
Áformin oilu miklu uppnámi í
heimalöndum hermannanna, Bret-
landi og Kanada, og frönsk yfirvöld
tilkynntu daginn eftir að þeir fengju
að gista á hótelinu. Þau sögðu
ákvörðunina byggða á misskilningi.
„Hetjurnár okkar frá D-deginum
hafa unnið annan eftirminnilegan
sigur. Reynið ekki að traðka á Bret-
um,“ sagði í forystugrein breska
æsifréttablaðsins Sun í gær.
„Hverflyndir Frakkar. Frönsk yf-
irvöld hafa komið svívirðilega fram
við hermennina frá D-deginum,“
sagði í forystugrein The Times. „Það
er erfitt að hugsa sér bresk hótel
sniðganga skuldbindingar sínar með
hrokablandinni fyrirlitningu vegna
fyrirmæla frá embættismönnum.
Fjarlægðin milli þessara tveggja
landa er mun meiri en breidd Ermar-
sundsins segir til um.“
Franska dagblaðið Le Monde sagði
að deilan endurspeglaði það sjónar-
mið Frakka að þeir hefðu unnið stríð-
ið „af eigin rammieik og án hjálpar
bandamanna".
Erfið stjórnarmyndun auðjöfursins Berlusconis á ítalíu
Leiðtogar hægriafla
skiptast á skömmum
Mílanó, ^.ondon. Reuter, The Daily Teíegraph.
TVEIR íif leiðtogum Frelsisbandalagsins á Italíu, Silvio Berlusconi
og Umberto Bossi, skiptust á hvössum skeytum í gær og virðast líkur
á stjórnarmyndun hins fyrrnefnda fara minnkandi. Flokkarnir þrír í
bandalaginu, Forza Italia undir stjórn BerlUsconis, Norðursamband
Bossis og nýfasistar undir forystu Gianfrancos Finis, hlutu samanlagt
meirihluta í neðri deild þingsins er nýtt þing var kjörið fyrir skömrnu.
Berlusconi ákvað í gær að fresta stjórnarmyndunartilraunum til 15.
apríl þegar nýtt þing kemur saman.
Jeríkó, Túnis, Amnian, Jerúsalem. Reuter.
The Daily Telegraph.
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO)
hyggst snúa til Jeríkó í maí, tak-
ist að Ijúka samningum Israels-
manna og PLO um sjálfstjórn
Palestínumanna á hernumdu
svæðunum á tilsettum tíma. Isra-
elsher vann á mánudag að brott-
flutningi sínum frá Jeríkó, flutti
m.a. á brott búnað hers og lög-
reglu. Kváðust Palestínumenn
eygja von í fyrsta sinn frá fjölda-
morðunum í Hebron í síðasta mán-
uði, er landnemi myrti tugi Palest-
ínumanna í mosku.
Arafat tilkynnti um ákvörðun sína
á sunnudagskvöld í hópi útlægra
Palestínumanna, sem hafa fengið
leyfi til að snúa til hernumdu svæð-
anna. Hann hyggst halda til Jeríkó
eftir fimm til sjö vikur. Rúmlega
helmingur útlaganna 46 héldu í gær
heim. Tóku hundruð manna á móti
þeim og hrópuðu vígorð í garð Isra-
els og Bandaríkjanna.
ísraelsmenn og PLO funda nú í
Kaíró til að leggja lokahönd á samn-
ing um framkvæmd sjálfstjórnar
PLO og brottför ísraelshers fyrir 13.
apríl. Israelsmenn sögðu á mánudag
að kraftaverk þyi-fti til að samningar
tækjust á þeim tíma, töldu að þeir
myndu nást um mánaðarmótin.
Frelsisbandalagið skorti aðeins
þijú sæti til að ná einnig meirihluta
í öldungadeildinni og er talið að því
myndi reynast' auðvelt að tryggja
sér stuðning nokkurra óháðra þing-
manna þar. Þingið kemur saman 15.
apríl og reyna flokkarnir í bandalag-
inu nú að koma sér saman um ríkis-
stjórn fyrir þann tíma.
Berlusconi minnti Bossi á að
Norðursambandið, sem fékk minnst
fylgi flokkanna þriggja, hefði ekki
unnið kosningarnar hjálparlaust.
Hinn síðarnefndi svaraði því til að
sigur Forza Italia, sem Berlusconi
stofnaði fyrir fáeinum mánuðum,
hefði valdið því að sjálft lýðræðið í
landinu væri í hættu. „Við erum í
þeirri stöðu að flokkur sem ekki er
til hefur unnið kosningarnar. Sigur-
vegarinn var maður, ekki flokkur",
sagði Bossi og taldi að einvörðungu
Norðursamband hans gæti treyst
lýðræðið í sessi.
Fyrir helgina kom til harðra orða-
skipta milli Finis og Bossis sem
hundsar nýasistana og hefur gengið
svo langt að neita að eiga við þá
stjórnarsamstarf. Norðursamband
Bossis hefur barist fyrir því að dreg-
ið verði úr opinberum styrkjum við
suðurhéruð Ítalíu, sem eru langtum
fátækari en norðursvæðin. Bossi vill
að landið verði sambandsríki og
krefst þess að liðsmaður Norðursam-
bandsins vei'ði forsætisráðherra nýju
stjórnarinnar. Nýfasistar sækja fylgi
sitt aðallega suður á bóginn.
Forza Italia er nú stærsti flokkur
á Ítalíu og vill hrinda í framkvæmd
róttækum efnahagsaðgerðum í anda
markaðshyggju og einkavæðingar.
Berlusconi sakaði í gær Bossi um
að haga sér eins og hann væri enn
í kosningabaráttu.
Major leit-
ar ráða hjá
Ingham
London. Daily Telegraph.
JOHN Major, forsætisráðherra
Bretlands hefur falið Sir Bernard
Ingham, fyrrverandi blaðafulltrúa
Margaret Thatclier, að leggja á
ráðin um hvernig bæta megi
ímynd ráðherrans og endurheimta
stuðning kjósenda við Ihaldsflokk-
inn.
Sir Bernard er kunnur fyrir óhefl-
aða framkomu og klókindi í sam-
skiptum við fjölmiðla í þau 11 ár sem
hann starfaði fyrir Thatcher. Hefur
hann átt nokkra fundi með Major
að undanförnu. „En ég legg til að
ég.segi ykkur ekki hvað ég hef að
segja honurn," sagði Sir Bernard um
fundi þeirra Majors.
Talið er að samband sé á milli
heimsókna Sir Bernards í Downing-
stræti 10, embættisbústað forsætis-
ráðherrans, og ráðningar vinar hans
og fyrrum samstarfsmanns, Chri-
stophers Meyers, í starf blaðafulltrúa
Majors.
Hlutverk Meyers er að matreiða
stefnu stjórnar Majors fyrir fjölmiðla
og þykir hafa staðið sig vel. Hann
hefur og fengið Major til að hætta
við óformlega fundi með fréttamönn-
um en þær fréttir sem skaðað hafa
ráðherrann hvað mest hafa orðið til
í framhaldi af slíkum fundum.
Sir Bernard átti stóran þátt í að
móta ímynd Thatcher og stjórnarstíl
sem aflaði henni viðurnefnisins
„Járnfrúin."
Heill eftir
fall úr þotu
Colchester. The Daily Telegraph.
„ÞETTA var dálítið áfall,"
var það sem Des Moloney
hafði að segja við blaðamenn
uni þá eldraun að þeytast út
úr stjórnklefa herþotu í 3.000
feta hæð, með fallhlíf sem
opnaðist ekki til fullnustu.
Atvikið átti sér stað að kvöldi
páskadags og Moloney, sem
er 28 ára gamall, lenti heilu
og höldnu á aki’i.
Moloney og bfóðir hans flugu
25 ára gamalli tveggja sæta
þotu af Provost-gerð er skot-
búnaður undir farþegasætinu
brást og skaut sætinu, sem Des
sat í, upp úr stjórnklefanum.
Des kippti fljótlega í spott-
ann á fallhlífinni en hún opnað-
ist ekki að fullu. Hann lenti
engu að síður heilu og höldnu
á akri þrátt fyrir erfiðleika á
síðustu sekúndúnum. „Ég gat
ekki dregið andann síðustu 20
sekúndurnar en hélt meðvitund
í lendingunni. Ég hef aldrei
stokkið í fallhlíf en hef séð
hvernig fólk ber sig að.“
NÝJA BÍLAHÖLLIN FUNAHÖFÐA 1 S:672277
Nissan Primera 2,0 SLX árg. '92, ek. 12
þ. km., d-grór, 5 g. Verð kr. 1.170.000
stgr., skipti - engin útborgun.
Nissan Sunny SLX 4WD árg. '91, ek. 27
þ. km., l-grár, 5 g. Verð kr. 1.090.000 stgr.,
skipti.
MMC Lancer GLXi árg. ’91, ek. 40 þ. km.,
d-blár, sjálfsk. Verð kr. 990.000 stgr., skipti.
Toyota Touring GLi árg. '92, ek. 53 þ.
km., v-rauður, 5 g., álfelgur. Verð kr.
1.390.000 stgr., skipti.
Ford Econoline Club Wagon XLT 7,3 dies-
el, 11 manna árg. ’91, ek. 46 þ. km., grár,
sjálfsk. Verð kr. 2.080.000 stgr., engin út-
borgun.
BÍLATOBG FUNAHÖFÐA 1 S:6834AA
VW Jetta CL árg. '91, svartur, sjálfsk.,
vökvastýri, ek. 37 þ. km. Verö kr. 990.000,
skipti-skuldabréf.
Suzuki Vitara JLXi árg. '92, hvítur, sjálf-
skiptur, álfelgur, upphækkaflur, 30“ dekk,
ek. 55 þ. km. Verð kr. 1.790.000.
Chrysler Saratoga SE árg. '92, vínrauöur,
einn m/öllu, ek. aðeins 10 þ. km. Verð kr.
1.790.000.
Mercedes Benz 613D árg. '83, grár húsbíll
m/öllum hugsanlegum búnaði. Verð kr.
2.450.000, skipti-skuldabréf.
Toyota Corolla 1300 XL árg. '90, rauður,
sjálfsk., vökvastýri, ek. 25 þ. km. Verð kr. g
750.000.
Auglýsingin okjinr - er árangur ykknr