Morgunblaðið - 06.04.1994, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 06.04.1994, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994 Hverjii’ eiga að borga hæsta olíuverðið? * eftir Ofeig Gestsson Að undanförnu hefur mátt Iesa fréttir, viðtöl og a.m.k. eina forystu- grein Morgunblaðsins þar sem því er fagnað að komið er fram frum- varp viðskiptaráðherra um að fella úr gildi lög nr. 81/1985 um flutn- ingsjöfnunarsjóð og innkaupajöfn- un olíu og bensíns. Frumvarpið hefur ekki verið birt í blöðum eða því dreift um landið. Því er lítið hægt um það að segja á þessari stundu. Þó hefur eftirfarandi komið fram m.a.: Af viðtölum við forstjóra Skelj- ungs hf., Kristin Björrisson, kemur fram að hann fagnar frumvarpinu, Vilhjálmur Egilsson, alþm., fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs ís- lands, fagnar frumvarpinu, Jóhann- es Gunnarsson, formaður Neyt- endasamtakanna, mælir með frum- varpinu og telur samtök sín þeirrar skoðunar að svona verðjöfnunar- sjóðir skuli aflagðir. Geir H. Haarde, alþm., formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, talar varlega, Matthías Bjarnason, alþm., er með fyrirvara í viðtali við Morgunblaðið, einnig Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins hf., sem bíður með frekari orðræðu þar til frumvarpið er komið fram. Ofangreindar tilvitnanir urðu til þess að undirritaður skoðaði lítil- lega þetta málefni og finnst margar spurningar vakna þess eðlis að til- efni sé til að senda vangavelturnar inn á síður Morgunblaðsins, leitandi eftir svörum og nánari upplýsing- um. Lögin frá 1985 Lögin sem leggja á niður sam- kvæmt frétt Morgunblaðsins eru aðeins um níu ára gömul, byggjast væntanlega á lögum frá 1953, sett þegar Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra, Geir Hall- grímsspn utanríkisráðherra, Matt- hías Á. Mathiesen viðskiptaráð- herra, Albert Guðmundsson fjár- málaráðherra, Ragnhildur Helga- dóttir menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra, Matthías Bjarnason heilbrigðis-, tryggingarmála- og samgönguráð- herra, Halldór Ásgrímsson sjávar- útvegsráðherra, Jón Helgason land- búnaðar-, dóms- og kirkjumálaráð- herra og Alexander Stefánsson fé- lagsmálaráðherra. Tæpast var þetta ofangreinda sómafólk að beita sér fyrir lagasetningu árið 1985 sem nú, 1994, „eru síðustu leifar af gömlu hafta- og skömmtunar- kerfí“ eins og Morgunblaðið kallar lögin í forystugrein sl. sunnudag. Spyrja má: hversvegna var verið að setja þessi lög 1985? Sighvatur Björgvinsson segir í viðtali við Morgunblaðið: „Nú hefur komið í ljós að þetta stendur í vegi fyrir viðskiptum okkar við skip sem koma hingað til landsins að landa afla og til viðgerða. Vegna hás olíu- verðs ...“ I millifyrirsögn sömu greinar er sagt að niðurfelling lag- anna muni auka möguleika ís- lenskra fyrirtækja á olíuviðskiptum við erlend skip. í lögunum frá 1985 segir m.a. í 6. gr.: „Undanþegið innkaupajöfn- un er flugbensín og flugsteinolía ásamt öðrum olíutegundum sem eru seldar úr landi til erlendra aðila.“ Undirritaður leyfir sér því að efast um að gildandi lög séu rétt meðfar- in af hálfu viðskiptaráðherra ef lög- in standa í vegi fyrir viðskiptum við útlendinga. Líklegra er að skatt- heimta ríkissjóðs hindri viðskipti. Haft er í huga að í 11. gr. lag- anna er kveðið á um að viðskipta- ráðuneytið geti sett nánari reglur um framkvæmd þeirra. í 1. gr. lag- anna er ijallað um flutningsjöfnun- argjaldið og gerð grein fyrir því að hlutverk þess er að tryggja að full- nægt verði eftirspurn eftir þessum vörum hvar sem er á landinu með því að greiða flutningskostnað þeirra. í greininni er gert ráð fyrir að gjaldið skuli tekið af öllum olíum og bensíni, þó ekki eldsneyti á flug- vélar í utanlandsflugi. Spyija má hvert olíuverð til erlendra skipa væri ef flutningsjöfnunargjaldið er tekið af í 1. gr. laganna, svipað og gert er með jöfnunargjald í 6. gr. Hvert væri þá olíuverð til skipa á íslandi, í Noregi, á Bretlandseyjum og í Þýskalandi, svo dæmi séu tekin? I 4. gr. laganna segir: „Söluverð á ofangreindum olíuvörum skal vera hið sama til sömu nota hjá hveijum innflytjanda og útsölumönnum hans hvar sem er á landinu.“ í 8. gr. laganna segir: „Jöfnunar- verð hverrar olíutegundar er kostn- aðarverð olíunnar að viðbættum jákvæðum eða neikvæðum mismun sem jafna skal kostnaðarverð milli einstakra farma eða hluta úr förm- um ...“ og rakið hvernig milda skuli verðsveiflur. Hvað er framundan verði lögin felld úr gildi? Forstjóri Skeljungs segir lögin vera forneskju og þá sammála þeim Ófeigur Gestsson „Hverjar eru líklegar olíuverðslækkanir að meðaltali? Hver myndi þurfa að greiða hæsta verðið? Yrði það ríkis- sjóður fyrir vitaverði á afskekktustu stöðum landsins? Eða bændur landsins?" sem skrifar áðurnefnda forystu- grein Morgunblaðsins, hann segir m.a. í Dagblaðinu: „Ef lögin verða afnumin þá gæti það gerst að mis- munandi verð verði eftir landshlut- um. En það er enginn kominn til með að segja að svo verði. Það verður eðlileg samkeppni þannig að olíufélögin beijast um hvern ein- asta kúnna. í dag er ekkert verið að því.“ Fullyrt er að Neýtendasam- tökin fagni samkeppni. Flestir þeirra sem hafa tjáð sig, sbr. tilvitnanir hér að ofan, segja að breytingin feli í sér auðveldari viðskipti við útlendinga og Morgun- blaðið heldur því fram að olíuvörur verði ódýrari og viðskiptaráðherra að verðstríð hefjist milli olíufélag- anna. Hinsvegar eru þingflokksfor- maður Sjálfstæðisflokksins, Matthí- as Bjarnason, og forstjóri Olíufé- lagsins hf. orðvarari og vilja skoða málið betur. Hver er ávinningur neytenda? I Reykjavík eða Þingvallasveit — á ísafirði eða Bolungavík — á Akur- eyri eða Mývatnssveit — á Neskaup- stað eða Egilsstöðum — á Hvols- velli eða Laugarvatni? Það væri fróðlegt að vita. Eða er e.t.v. líklegt að ódýrustu olíuna fái ég í kaupfélaginu mínu um leið og ég kaupi brauðið með teinu? Hveijar eru líklegar olíuverðs- lækkanir að meðaltali? Hver myndi þurfa að greiða hæsta verðið? Yrði það ríkissjóður fyrir vita- verði á afskektustu stöðum lands- ins? Eða bændur landsins? Undirritaður er ekki með þessum orðum að leggja áherslu á þessi atriði og ætlast ekki til þess að vangaveltur þessar séu túlkaðar sem rödd úr Draugagili fortíðarinn- ar. Miklu frekar leggja áherslu á að umræðan í blöðunum virðist ekki í neinu samræmi við gildandi lög og ekki skýrt hveijar afleiðing- ar kynnu að verða með lagabreyt- ingunni, heldur er slegið á prent ómerkilegum frösum í stað hald- góðra upplýsinga sem sýna stöðu málsins í dag, hvort ekki megi sníða af lögunum vankanta ef einhveijir eru og þess sem koma skal, fái fell- ing laganna úr gildi brautargengi á hinu háa Alþingi. Blönduósi, 9. marz 1994. Höfundur er bæjarstjóri á Blönduósi. Fromleiðum óprentaða tau-burð- arpoka. Lógmarkspöntun 30 stk. Húfugerð og tauprent, sími 91-677911. Hönnum og smíðum eftir þínum hugmyndum t.d. skápa, afgreiðsluborð, skilti, auglvsingastanda, sýningarklefa o.mfl. Faxafeni 12. Sími 38 000 Vterkurog KJ hagkvæmur auglýsingamiöill! Ég á að gæta bróður míns eftir Jóhannes Benediktsson Kærleikur, góðir landsmenn, það er stórt orð, en að mínu mati eitt það mikilvægasta sem til er í orða- safninu. Nú þegar atvinnuleysi er farið að vera viðvarandi og fátt er meira áberandi í okkar annars ágæta landi, svo ekki sé minnst á þolend- urna, sem eru að sjálfsögðu aðalat- riðið, er okkur bráð nauðsyn á að skerpa hugann og íhuga hvert við stefnum. í mínum huga er það alveg ljóst að þetta er ástand sem ekki er hægt með nokkru móti að una við, því að hvert heilbrigt þjóðfélag á og verður að sjá til þess að hver einstaklingur fái hlutverk við sitt hæfi, að öðrum kosti verður að úr- skurða það á gjörgæslu vegna veik- inda, því þá kemur í ljós hvort það gengur með læknanlegan sjúkdóm eða ekki, þeim mun fyrr sem við viðurkennum þetta þeim mun fyrr getum við vonast til að batinn hefj- ist. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það sem okkur vantar mest núna er sanngirni og kærleikur, í miklu magni, mér finnst einhvern veginn að í okkar hagfræði og peninga- hyggju vanti þetta nær alveg, alla- vega finnst mér að ég hafi breytt þannig gagnvart náunga mínum, alltof oft. „Hvað um þig, finnst þér þetta líka með sjálfan þig?“ Ef svo er, er það vel því að þegar við erum •'orðin meðvituð um að við þurfum fyrst og fremst að breyta okkur sjálfum er von um bata í samfélag- inu, því samfélagið er bara ég og þú og það snýr fyrst og fremst að mér sjálfum að lækna mig, annars mun ég aldrei verða friskur og held- ur ekki samfélagið. Við gætum t.d. prófað í svo sem eina viku að gera ekkert gagnvart sjálfum okkur og öðrum, nema það sem við vildum að aðrir gerðu, hvernig haldið þið að þetta yrði ef allir gerðu þetta. Fullkomið samfélag, það held ég. Ég er ekki með þessum orðum að segja að allt sem við höfum verið að gera sé ómögulegt, síður en svo, það hefur mjög margt gott verið gert. Það er samt allt of algengt að við föllum í þá gryfju að breyta gagnvart öðrum á þann hátt sem við viljum ekki a& aðrir geri gagn- vart okkur. Ekki veit ég hvort það er unnið markvisst að því að gera þá ríku ríkari og þá fátæku fátækari, en mér sýnist það vera ljóst að því miður sé það svo. Það er sorgleg staðreynd hjá þjóð sem vill státa sig af velmegun fyrir alla, „getur verið að við séum ekki á réttri leið“? Því miður sýnist mér það í mörgum atriðum staðreynd og má benda á nokkur atriði því til sönnunar. Nú- verandi kvóti í sjávarútvegi og land- búnaði leiðir til þess að þeir fáu sem eiga peningana munu „eignast" og ráða undirstöðum þjóðfélagsins, það er mitt álit að það sé mannréttinda- brot að setja veiðihömlur á smá- báta, það hefur enginn haldið því fram að þeir geti ofveitt sjóinn, einn- ig stendur í lögum að fiskurinn í sjónum sé eign allrar þjóðarinnar. Nú er ég farinn að koma við kvik- una á einhveijum svo það er best að hætta þessu tali, en það er stað- reynd að engin jurt grær án um- hyggju, eins er það með okkar sam- félag, ef við hlúum ekki að rótum þess og viðhöldum hvatanum hjá einstaklingnum úrkynjast það mjög fljótt. Ég vil taka það fram að ekki hef ég þurft að kvarta, bæði verið nokk- uð heilbrigður og haft nóg að bíta og brenna, auk þess að eiga hraust og heilbrigð börn. Einnig vil ég táka Jóhannes Benediktsson „Til hvers eru öll stóru og ljótu orðin sögð á Alþingi íslendinga? Það væri til dæmis gaman að sjá það breytast. Ég held að það væri gott hverjum manni að hug- leiða, í það minnsta einu sinni á dag.“ fram að þrátt fyrir að ég sé að setja þessi orð á blað er ekki þar með sagt að ég hafi hæfileika til að breyta samkvæmt þeim, en ég vona svo sannarlega að svo gæti orðið, einnig vona ég að þau verði einhvetj- um öðrum umhugsunarefni (dropinn holar steininn, ekkí satt?). Það er mín ósk og von til allra þeirra sem halda á valdasprota í þjóðfélaginu að þeir hugleiði kær- leikann og manneskjuna í hvert skipti sem einhver ákvörðun er tek- in. Þannig gætum við lagt okkur fram um að minnka og eyða því neikvæða sem, því miður, er allt of oft að finna í okkar samskiptum. Til hvers eru öll stóru og ljótu orðin sögð á Alþingi íslendinga? Það væri til dæmis gaman að sjá það breyt- ast. Ég held að það væri gott hveij- um manni að hugleiða, í það minnsta einu sinni á dag. Aðgát skal höfð í nærveru sálar Við ykkur sem af einhveijum ástæðum finnst þið hafa orðið undir í hinni margslungnu lífsbaráttu vil ég segja, herðið upp hugann, það eru ljósar hliðar á öllum viðfangs- efnum, bara að koma auga á þær. Það er enginn vafi í huga mínum að ég á að gæta bróður mín. Hvað um þig? Átt þú ekki að gæta bróður þíns? Einn vinur minn kenndi mér fyrir nokkrum árum eftirfarandi vísu sem ættuð mun vera af Austfjörðum. Þótt þig lífið leiki grátt og veiti lítið gaman. Skalt þú bera höfuðið hátt og hlæja að öllu saman. Og hvað sagði ekki Steinn Stein- arr í kvæðinu Að sigra heiminn: Að sigra heiminn er eins og spila á spil með spekingslegum svip og taka í nefið. (Og allt með glöðu geði er gjarnan sett að veði.) Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til, því það er nefnilega vitlaust gefið. Höfundur er verkUiki og formuður Sjálfstædisfclags Dalasýslu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.