Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994
41
Hverjir vita best?
eftir Jón Gunnar
Egilsson
Þann 11. febrúar sl. birist í Morg-
unblaðinu grein eftir undirritaðan,
þar sem gerðar voru athugasemdir
við grein tveggja manna um þyrlu-
kaup okkar Islendinga, sem birtist
í Morgunblaðinu þann 1. febrúar.
Einhvetjar hugrenningar hefur
þessi grein mín vakið, því þeir félag-
ar svara henni í Morgunblaðinu
þann 3. mars.
Mismundandi skoðanir
Ekki er það nú svo að ég hafi
nokkurn tímann amast við því að
þeir félagar hefðu skoðun á þyrlu-
kaupamálinu svonefnda þó að þeir
virðist hafa tekið grein mína þann-
ig og er í raun ánæjulegt að vita
til þess að menn séu að hugsa um
það mikilvæga mál. Það er tvennt
ólíkt að hafa skoðun á máli og að
rita um hana grein í jafn víðlesnu
blaði og Morgunblaðið er. Greinar
í íj'ölmiðlum hafa áhrif á þá sem
þær lesa og geta þannig haft víðtæk
áhrif í öflugum fjölmiðlum. Því er
það skýlaus krafa þegar menn
rökstyðja skoðanir sínar frammi
fyrir alþjóð með fullyrðingum og
upptalningu staðreynda, að þá sé
farið með rétt mál en ekki stað-
lausa stafi. Því miður er þessu ekki
alltaf fyrir að fara í greinum þeirra
félaga um val á björgunarþyrlu fyr-
ir okkur íslendinga.
Af þeirri ástæðu gerði ég athuga-
semdir við fyrri greinina, en ekki
vegna þess að ég væri að amast
við því að þeir félagar hefðu skoðun
á þyrlukaupamálinu eða létu hana
í ljós.
í síðari grein félagana er undir-
rituðum gerð upp sú skoðun að vilja
fá hingað til lands þyrlu af gerðinni
AS332L Super Puma. Það kom hins
vegar hvergi fram í minni grein að
ég teldi persónulega einhveija
þyrlutegund annarri betri. Auðvitað
hef ég sjálfur velt þyrlukaupamál-
inu mikið fyrir mér og myndað mér
skoðun á því, en sú skoðun kom
hvergi fram í grein minni og skiptir
í rauninni engu máli. í jafn mikil-
vægu máli sem val á björgunar-
þyrlu er skipta skoðanir okkar leik-
mannanna einfaldlega engu. Það
eina sem skiptir máli er hvað fag-
mennirnir segja, atvinnumenn í
björgun með þyrlum. Þeir einir hafa
næga þekkingu og reynslu í þyrlu-
„I jafn mikilvægu máli
sem val á björgunar-
þyrlu er skipta skoðan-
ir okkar leikmannanna
einfaldlega engu. Það
eina sem skiptir máli
er hvað fagmennirnir
segja.“
björgunarstörfum á og við landið
til að geta lagt raunhæft og faglegt
mat á hlutina. Þeir hafa nú þegar
bent á hvaða þyrlutegund henti
okkur íslendingum best til björgun-
arstarfa.
Þetta var það eina sem ég lagði
til í grein minni, ásamt því að leið-
rétta hluta þess sem ekki var rétt
í fyrri grein þeirra félaga.
Þau orð mín standa enn.
Gagnrýnin stendur enn
Við nánari athugun kemur í ljós
að allar þær athugasemdir sem ég
gerði við fyrri grein þeirra félaga
standa enn, þrátt fyrir ýmsar full-
yrðingar í seinni grein þeirra.
í dag eru ekki fjórar HH-60G
(MH-60G) þyrlur á Keflavíkurflug-
velli heldur þrjár og þær hafa aldrei
verið fimm. Það eru ekki 1.800
H-60 björgunarþyrlur í rekstri í
heiminum. Þyrlur varnarliðsins eru
ekki búnar 1.940 hestafala hreyfl-
um. Þyrlur varnarliðsins eru ekki
búnar flotholtum og það er ekki
hægt að koma fyrir 20 öryggissæt-
um í þeim.
Það skal hér fúslega viðurkennt
að þyrlur varnarliðsins eru heldur
ekki búnar 1.560 hestafla hreyflum
eins og undirritaður hélt fram í
grein sinni (samkvæmt upplýsing-
um frá umboðsmanni Sikorsky á
íslandi, sem reyndust vera orðnar
gamlar) og skrifast sú missögn al-
gjörlega á undirritaðan.
V arðandi það hvað þyrlur varnar-
liðsins eru nefndar taldi ég það nú
enga stórsök hjá þeim félögum að
nefna þær MH-60G, en benti ein-
ungis á að réttara væri að kalla
þær HH-60G, eins og þeir hafa síð-
an viðurkennt að björgunarsveit
varnaliðsins geri. Mun ég því halda
uppteknum hætti og nefna þyrlurn-
ar HH-60G. (Þeim félögum og öðr-
um til fróðleiks skal bent á að
MH-60K þyrlan, sem þeir nefna til
leiks í síðari grein sinni, er ein-
göngu „special operation“ útgáfa
fyrir bandaríska landherinn (US
Army), en flugherinn (USAF) nefn-
ir sínar „special operation“ þyrlur
MH-60G, en björgunarþyrlurnar
HH-60G.)
Spurning um sætafjölda
í síðari grein sinni eru þeir félag-
ar enn að tala um að hægt sé að
búa H-60 þyrluna 20 öryggissætum
og segjast hafa teikningu af þannig
útfærslu vélarinnar.
Tilvist slíkrar útfærslu er mér
kunn, en slíkt á bara alls ekki við
um björgunarútgáfu H-60 þyrlunn-
ar, eins og ég benti á í fyrri grein
minni. í þessum skrifum okkar hef-
ur það oft komið fram að margar
útfærslur eru til af H-60 þyrlunni,
allt eftir til hvaða verkefna þær á
að nota. í sinni einföldustu mynd
(herflutningaþyrla með lítið flug-
þol) má setja í hana 20 sæti, en
þegar búið er að gera á henni nauð-
synlegar breytingar til björgunar-
starfa minnkar farþegarýmið til
muna. Því er ekki til nein björgunar-
útgáfa af H-60 þyrlu með pláss
fyrir 20 sæti í farþegarými heldur
einungis grunnútgáfa hennar og sú
vél myndi ekk i nýtast okkur neitt
við björgunarstörf hér á landi.
Björgunarútgáfur vélarinnar hafa
farþegarými sem rúma 8 til 9 sæti.
Eg er alveg sammála þeim félög-
um að því leyti að það skiptir ekki
máli hversu mörgum sætum er
Jón G. Tómasson borgarritari
hefur skilað áliti til borgarráðs
vegna fyrirspurnar um hvort inn-
heimta megi aftur í tímann gjöld
af fasteignum sem ekki hafa verið
teknar fasteignamati. í áliti hans
segir að í lögum um tekjustofna
sveitarfélaga segi að leggja skuli
skatt á allar fasteignir innan lög-
sögu sveitarfélags sem Fasteigna-
mat ríkisins hefur lagt mat á og
Jón Gunnar Egilsson
hægt að koma fyrir í björgunar-
þyrlu heldur einungis hversu mörg-
um mönnumm megi troða þar inn
í neyð. Almenn skynsemi segir að
sú tala hljóti alltaf að vera hærri
en mögulegur sætafjöldi og því má
ætla af skrifum þeirra að H-60
þyrla geti bjargað meira en 20
mönnum í einu. Það er bara al-
rangt! Björgunarsveit varnaliðsins
gefur t.d. upp að þeir geti tekið
10-12 farþega í neyð í hveija af
HH-60G björgunarþyrlum sínum.
Allt tal um 20 farþega eða fleiri
í H-60 björgunarþyrlu er því ein-
ungis til að slá ryki í augu fólks.
Eins og ég sagði í fyrri grein er
H-60 þyrlan bæði góð og aflmikil
vél og það þarf ekki að ýkja á neinn
skuli embættið skila skrá yfir
álagningastofn til sveitarfélagsins
fyrir 1. desember ár hvert. Einnig
segir að lagður hafi verið skattur
vegna gjaldárs á fasteignir sem
komið hafi til mats síðar en þó
innan ársins. í lögum um skrán-
ingu og mat fasteigna segir að
skráð matsverð fasteignar skuli
vera gangverð eignar miðað við
kaup og sölu í nóvembermánuði
hátt þegar kostir hennar eru taldir
upp. Því eru fullyrðingar á borð við
sumt af því sem þeir félagar hafa
látið frá sér fara í greinum sínum
algjörlega óþarfar, og til þess eins
að leiða fólk í villu. Hver er tilgang-
urinn með slíku? Hægt væri að
gera efnislegar athugasemdir við
ýmislegt fleira í greinum þeirra fé-
laga um björgunarþyrlur, en of
langt mál að fara út í slíkt í stuttri
grein sem þessari.
Að lokum
Það hefur verið til siðs hér á
landi, og gefist okkur vel, að láta
löglærða menn fjalla um lögfræði-
leg efni. Það hefur einnig verið til
siðs hér á landi, og gefist okkur
vel, að láta verk- og tæknifræðinga
Qalla um steinsteypu. Því hlýtur það
líka að vera okkur til heilla að hlusta
á ráð atvinnu-þyrlubjörgun-
armanna þegar keypt verður hingað
ný björgunarþyrla og þar eru flug-
liðar Landhelgisgæslunnar efstir á
blaði.
Okkur leikmönnunum er að sjálf-
sögðu heimilt að hafa skoðanir á
málinu og birta þær, en megi þjóð-
inni veitast sú gæfa að farið verði
að ráðum okkar færustu fagmanna
í hvetju máli, þar með talið þyrlu-
kaupamálinu. Veljum þá þyrlu sem
þeir telja að henti okkur best, því
engir vita betur.
Það er of mikið í húfi.
Höfundur hefur starfað að
björgunarmálum hcr á landi
síðastliðin 10 ár, meðal annars í
samstarfi við þyrlubjörgunar-
sveitir Landhelgisgæslunnar,
varnarliðsins, breska flughersins
og danska sjóhersins.
næst á undan matsgerð, umreikn-
að til staðgreiðslu. Ekki sé vitað
um dæmi þess að fasteign hafi
verið metin aftur í tímann.
Því segir í áliti borgarritara að
hafi farist fyrir að meta fasteign
verði ekki séð að Fasteignamati
ríkisins sé heimilt að meta eignir
eftir öðrum reglum en að framan
greinir, það er áætlað gangverð
eignar í nóvembermánuði á undan
matsgerð. Álagningarstofn sé því
ekki fyrir hendi og innheimta fast-
eignagjalda þar af leiðandi ekki
möguleg.
Ekki unnt að innheimta fast-
eignagjöld aftur í tímann
EKKI er unnt að innheimta fasteignagjöld aftur í tíniann af eignum
sem ekki hafa verið teknar í fasteignamat samkvæmt áliti Jóns
G. Tómassonar borgarritara.
RAÐ AUGL YSINGAR
• - MANNÍAGNADUR
Aðalfundur
Aðalfundur Ráðstefnuskrifstofu íslands verð-
ur haldinn föstudaginn 15. apríl 1994
kl. 15.30.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Stjórnin.
492147
FJÖRÐUR FJÖRÐUR
ÍÞRÓTT AFÉLAG
Aðalfundur Fjarðar,
íþróttafélags fatlaðra í Hafnarfirði, verður
haldinn laugardaginn 16. apríl kl. 13.30 í
Álfafelli, íþróttahúsinu við Strandgötu.
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
Sma auglýsingor
Aðalfundur EDI-félagsins
Aðalfundur EDI-félagsins, félags um pappírs-
laus viðskipti, verður haldinn í Skála, Hótel
Sögu, miðvikudaginn 20. apríl kl. 12-14.
Skráning hjá Verslunarráði íslands í síma
676666 eða bréfsíma 686564.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn EDI-félagsins.
mmm^^^mm^mmm
KENNSLA
S)
Mf MATREIÐSLUSKÓUNN
UKKAR
Námskeið í apríl
Grænmetisréttir
11. aprfl kl. 18-21.
Austurlensk matargerð
18.-19. apríl kl. 19.30-22.30.
Smurt brauð
20. apríl kl. 18-21.
Grillréttir og meðlæti
25.-26. apríl kl. 18-21.
Nánari uppl. í sfma 91-653850.
□ GLITNIR 599404061911 Frl.
□ HELGAFELL 5994040619 VI
3
I.O.O.F. 9 = 174468'U =
I.O.O.F. 7 = 17546872 =
Skyggnilýsingarfundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingarfund mið-
vikudaginn 6. apríl kl. 20.30 í
Tjarnarbíói, Tjarnargötu.
Húsið opnað kl. 19.30.
Miðar seldir við innganginn.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Fjölskyldunámskeið í kvöld
kl. 20, fyrri hluti.
Kennari Bill Pricefrá Suður-Afriku.
Vægt námskeiðsgjald.
Allir hjartanlega velkomnir.
®SAMBAND (SLENZKRA
r KRISTNIBODSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Fjáröflunarsamkoma Kristni-
boðsfélags kvenna i kvöld kl.
20.30 í Kristniboðssalnum. Efni
og hugleiðing verður í höndum
kristniboöanna Benedikts Jason-
arsonar og Margrétar Hróbjarts-
dóttur. Happdrætti verður og
kaffi selt eftir samkomuna. Syst-
urnar Helga Vilborg og Agla
Marta Sigurjónsdætur syngja.
Samkoman er öllum opin. Fjöl-
mennum og styrkjum kristni-
boðsstarfið.
UTIVIST
'Hollveigarstig 1 • simi 614330
Myndakvöld 7. aprfl
Hinn ungi og efnilegi Ijósmynd-
ari, Haukur Snorrason, sýnir
myndir víðsvegar að af landinu.
Sýningin hefst kl. 20.30 í hús-
næði Skagfirðingafélagsins (
Stakkahlíð 17. Hlaðborð kaffi-
nefndar er innifalið í miðaverði.
Allir velkomnir.
Utivist.
Breski miðillinn Glennis Carry
kemur til starfa hjá félaginu 5.
apríl. Auk þess að vera frábær
miðill er hann meðal færustu
læknamiðla Bretlands og mun
verða með námskeiö í heilun,
sem munu verða auglýst siöar,
en bókanir í einkatíma og heilun
eru hafnar í síma 92-14121.