Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 42

Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994 Menntun afgreiðslu- fólks í verslunum eftir Magnús E. Finnsson Verslun og viðskipti hafa fylgt mannkyni frá öndverðu. Af ein- hveijum ástæðum hafa verslunar- störf hér á landi ekki notið þeirrar virðingar sem þeim ber og löngum verið litið á þau sem biðstörf þar til stefnan er tekin annað þar sem krafist er ákveðinnar skólamennt- unnar. Slík viðhorf skjóta nú skökku við þegar á það er litið að verslun og viðskipti er sú atvinnu- grein sem talin er geta skapað flest atvinnutækifæri í framtíðinni. Með harðnandi samkeppni í verslun hafa menn vaknað til vitundar um mikil- vægi menntunar verslunarfólks og í því sambandi hafa nágrannaþjóð- imar gengið á undan með góðu fordæmi. I Danmörku hvílir starfs- menntun á gömlum merg og hefur hún að verulegu leyti þróast í sam- vinnu við aðila vinnumarkaðarins, samtaka atvinnurekenda og laun- þega. Ný lög um starfsmenntun tóku gildi í Danmörku árið 1991. í stórum dráttum taka lögin til 85 grunngreina með yfir 200 mögu- leikum á sérhæfingu. Um er að ræða svokallað „víxlnám“, þ.e. námið er stundað til skiptis í skóla og innan fyrirtækjanna. Umsögn (einkunn) fylgir hverjum nemenda þegar hann fer út á vinnustað og er hann settur í stöðupróf þegar hann kemur aftur til náms á næstu skólaönn. í Danmörku gefst mögu- leiki á að heija nám eftir tveimur byijunarleiðum í starfsmenntunar- skóla eða úti í atvinnulífinu. Með- alnámstími er 3-4 ár alls. Þá kveða dönsku lögin einnig á um starfs- menntun fyrir fullorðna, þ.e. endur- og símenntun sem ætluð er þeim sem þegar eru komnir út á vinnu- markaðinn og gerir þeim þannig kleift að fylgjast með tækniþróun og síbreytilegum kröfum markaðar- ins. Ljóst er að áhrif atvinnulífs á starfsménntun í Danmörku eru veruleg og byggjast á langri hefð sem þegar er komin góð reynsla af. Þess má einnig geta að aðilar vinnumarkaðarins standa reglulega fyrir kynningu á atvinnulífinu í grunnskólum landsins, námsráð- gjafar starfa í grunn- og framhalds- skólum og gefa auk þess út að- gengilegt upplýsingaefni fyrir nem- endur sem eru á þeim tímamótum að taka ákvörðun um framtíð sína. Af framansögðu má sjá að ís- lendingar hafa til þessa staðið Dön- um langt að baki hvað varðar starfsmenntun í atvinnulífinu. Fyrsti vísir að úrbótum leit dagsins ljós með lögum um starfsmenntun í atvinnulífinu sem tóku gildi 15. maí 1992. Þar er m.a. kveðið á um bætta verkkunnáttu og aukna hæfni starfsmanna til að mæta nýjum kröfum og breyttum aðstæð- um. Auk þess er það markmið lag- anna að jafna stöðu fólks á vinnu- markaði með öflugu framboði grunnmenntunar til ákveðinna starfa í tiltekinni atvinnugrein. Lög um starfsmenntun í atvinnulífinu taka til námskeiða sem þátttakend- ur sækja til að auka færni sína og þekkingu til þeirra starfa sem þeir fást við eða stefna að. Til slíkrar menntunar telst annars vegar grunnstarfsmenntun til ákveðinna starfa og hins vegar eftirmenntun sem feiur í sér endurnýjun fagkunn- áttu og viðbótarmenntun sem fólk stundar á sínu sviði. í lögunum er jafnframt kveðið á um að ráðherra skipi sjö manna starfsmenntunarráð þar sem til- nefndir eru fulltrúar frá atvinnurek- endum og samtökum launafólks. Þá er gert ráð fyrir sérstökum starfsmenntunarsjóði sem hefur heimild til að veita styrki til greiðslu kostnaðar við undirbúning nám- skeiða, kennslugagnagerðar, kennsluaðstöðu og fl. sem tengist starfsmenntuninni. Sem fyrr segir hefur lítið sem ekkert val verið á námskeiðum eða annarri menntun til handa starfs- fólki í verslunum. í kjarasamning- um árið_ 1992 gerðu Kaupmanna- samtök íslands, Vinnuveitandasam- band Islands, Verslunarmannafélag Reykjavíkur, Landssamband ís- lenskra verslunarmanna og Vinnu- málasamband samvinnufélaga með sér samkomulag um að beita sér fyrir aðgerðum til að greiða fyrir starfsmenntun verslunarmanna. Skipuð var nefnd til að vinna tillög- ur að skipulagi náms sem hefur það markmið að undirbúa nemendur undir störf í verslun. Auk þess var nefndinni ætlað að ieita samstarfs við yfirvöld menntamála um upp- byggingu styttri námsbrauta í framhaldsskólum sem gætu verið hluti af lengra námi. Einnig var nefndinni ætlað að undirbúa nám- skeiðahald sem byggist á framan- greindu námi. Nú fyrst má sjá árangur þess Magnús E. Finnsson „Hugmyndir eru einnig uppi um að gefa atvinnu- lausu verslunarfólki tækifæri á að sækja slík námskeið sem ætti að auka möguleika þess á starfi síðar.“ samstarfs í reynd. Um miðjan mars hófust námskeið fyrir afgreiðslufólk í verslunum á vegum samstarfs- nefndar Vinnuveitendasambands íslands, Kaupmannasamtaka ís- lands, Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna, Verslunarmanna- félags íslands og Landssambands verslunarmanna. Hér er um tvenns konar námskeið að ræða — annars vegar grunnnámskeið, sem ætlað er öllu afgreiðslufólki, og hins veg- ar námskeið fyrir starfsfólk í kjöt- deildum verslana. Á námskeiðun- um, sem spanna 20 klst., er m.a. rætt um hlutverk verslunar, fram- boð og eftirspurn, verðmyndun og álagningu, samskipti og samstarf á vinnustað og við viðskjptavini og meðferð ijármuna. Þá er fjallað um hreinlæti, vörumeðferð, vörusam- setningu og þjónustu, svo fátt eitt sé nefnt. Starfsfólk sækir þessi námskeið í vinnutíma sínum og styrkir viðkomandi verslunarfélag það þannig að þátttaka er starfs- fólki að kostnaðarlausu. Hugmyndir eru einnig uppi um að gefa atvinnulausu verslunarfólki tækifæri á að sækja slík námskeið sem ætti að auka möguleika þess á starfi síðar. Fyrirhugað er að halda námskeið j húsakynnum Kaupmannasamtaka íslands, í Húsi verslunarinnar, og fer skráning á námskeiðin fram þar og hjá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. Þá hefur verið ákveðið að halda sérstakt námskeið fyrir leiðbeinendur sem munu kenna á námskeiðum sem haldin verða úti á landi í samstarfi við kaupmenn og launþegafélög á hveijum stað. Með þessum námskeiðum hefur verið stigið mikilvægt skref til stór- aukinnar menntunar verslunar- fólks. Með harðnandi samkeppni og auknu samstarfi á alþjóðavettvangi hafa aðrar þjóðir áttað sig á mikil- vægi starfsmenntunar í verslun og hefur það þegar skilað sér í hæfari starfskröftum og aukinni hagræð- ingu. Varla þarf að fara mörgum orðum um þá ládeyðu sem nú ríkir í sjávarútvegi og landbúnaði enda ekki mikill vaxtarbroddur í þeim atvinnugreinum nú um stundir. Með samningum við önnur lönd í Evrópu og annað samstarf á alþjóðavett- vangi horfa menn björtum augum til framtíðar. Þar mun verslun og viðskipti leika stórt hlutverk. En til þess að taka þátt í þeirri hörðu samkeppni verða íslendingar að standast samanburð hvað varðar gæði vöru og þjónustu. Þar gegnir vel menntað og upplýst verslunar- fólk mikilvægu hlutverki. Höfundur er framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka íslands. 14. apríl til 11. maí Vegna gífúrlegrar eftirspurnar eru vorferðir Úrvals»Útsýnar í sólina meira og minna uppseldar. Þess vegna bjóðum við 27 daga aukaferð til Kanaríeyja þann 14. apríl. Sérverð fyrir Verödæmi: OKr. 63.400,- OKr. 60.400,- URX/SU.S-FOLK 4 4 14F ÚRVANÍISVN Tryggmgfynr gœðum O Verð miðað við tvær manneskjur í 2ja herb. íbúð á GREEN-OASIS. Föst aukagjöld innifalin. . s: 699300 • Hufniiíiirói, s: '(>52A6(> • Akurevri, s: 250QQ • l níhoAsfTionn uni hnui :iUt Reykjarvíkurvegi 72 Hafnarfiröi / Box dyna með krómgrind 90x200 19.900 kr 120x200 28.900 kr 140x200 29.900 kr Skeifunni 13 Auöbrekku3 Noröurtanga3 Reykjavík Kópavogi Akureyri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.