Morgunblaðið - 06.04.1994, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994
45
Doktor í
efnafræði
SNORRI Þór Sig-
urðsson varði 2.
nóvember sl.
doktorsritgerð
sína í efnafræði
við University of
Washington í
Seattle, Banda-
rikjunum. Leið-
beinandi hans var
Paul B. Hopkins,
prófessor í lífrænni efnafræði.
Doktorsritgerðin nefnist á frum-
málinu „DNA-DNA Interstrand
Cross-Linking by Bifunctional, Pyr-
role-Derived Electrophiles" og fjall-
ar um hvörf tvígildra rafsækinna
efnasambanda við DNA.
Sýnt hefur verið fram á að mörg
lyf sem eru notuð við krabbameins-
lækningar eru fær um að víxltengja
DNA (mynda samgild efnatengi
milli strendinga DNA) og er það
talin meginástæða fyrir líffræðilegri
virkni þeirra. Eitt þessara efnasam-
banda, krabbameinslyfið Mitomycin
C, myndar aðeins víxltengi við
ákveðna basa í vissum basaröðum
DNA. Einn megintilgangur rann-
sókna Snorra var að ákvarða hvaða
hluti efnabyggingar Mitomycin C
olli þessari sérvirkni. Sú vitneskja
var notuð til þess að hanna ný efna-
sambönd sem síðan voru mynduð
með hefðbundnum aðferðum líf-
rænna efnasmíða. Þessi nýju efna-
sambönd reyndust vera sérstækari
DNA-víxltenglar en Mitomycin C
og gáfu mun betri heimtur á vixl-
tengdu DNA en önnur sambærileg
efnasambönd.
Snorri Þór fæddist í Reykjavík
14. nóvember 1963. Foreldrar hans
eru Vélaug Steinsdóttir og Sigurður
Ingvarsson sölustjóri hjá Securitas.
Hann lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum við Sund vorið
1982 og útskrifaðist frá efnafræði-
deild Háskóla íslands vorið 1987.
Ári síðar lauk hann fjórða árs verk-
efni sem unnið var undir hand-
fleiðslu dr. Guðmundar G. Haralds-
sonar við Háskóla íslands og hélt
þá til University of Washington, þar
sem hann hefur unnið að doktors-
rannsóknum sínum. Nú stundar
hann rannsóknir við Max-Planck
stofnunina í Göttingen, Þýskalandi,
með styrk frá Evrópsku sameinda-
líffræðisamtökunum (EMBO).
Dr. Snorri Þór
Sigurðsson
„Það er vægast sagt
skammarlegt og veikir
mjög svo tiltrú á sljórn-
málamönnum og þeim
sem sjá um rekstur Rík-
isspítala, að árum sam-
an sé hægt að humma
fram af sér eins mikil-
vægt mál og fæðingar-
hjálp.“
sóma sinn í að standa við orð sín
og sjá til þess að Fæðingarheimilið
verði eflt og það verði rekið sem
fæðingarstaður til frambúðar. Það
er vægast sagt skammarlegt og
veikir mjög svo tiltrú á stjórnmála-
mönnum og þeim sem sjá um rekst-
ur Ríkisspítala, að árum saman sé
hægt að humma fram af sér eins
mikilvægt mál og fæðingarhjálp.
Fulltrúar R-listans tala um að
undirskrift leigusamningsins sé
kosningabrella hjá Sjálfstæðis-
flokknum í borgarstjórn. Þess skal
getið að framkvæmdastjóri Land-
spítala skipar nú 4. sæti R-listans.
Hvernig væri nú að þær konur sem
skipa listann með honum, beittu
áhrifum sínum og þrýstu á að nægi-
legt fjármagn fáist til að opna
Fæðingarheimilið og reka það á
mannsæmandi hátt. Nú er tækifær-
ið, sýnið styrk ykkar og getu!
Höfunilnr eru í stjórn samtaknnna
Náttúrubarna. Helsta baráttumál
snmtakanna erað tryggja konum
valá fæðingarstað. 1
K R A K K A R !
Ef þib litiö efri myndina og finniö út hvaö þaö er sem vantar á neöri myndina getiö þiö átt von á aö vera í hópi 100
krakka er veröa dregin úr innsendum myndum og fá í verölaun miöa á bíómyndina Rokna-Túli sem Sam-bíóin
frumsýndu um páskana ásamt límmiöa frá Morgunblaöinu. Þegar þiö eruö búin aö lita myndina og setja hring utan um
þau 10 atriöi sem vantar á neöri myndina þá merkiö þiö úrlausnina, klippið og sendið til Morgunblaðsins, merkta:
Rokms-Túii
Kringlunni 1
103 Reykjavík
r Skilafrestur er
tll 15. apríl nk.
GÓÍ><J ,
Skem^tu
Nafn Aldur
Heimili
Stabur \
Póstnr. Sími