Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 51

Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994 51 vel með fólki og framkvæmdum, þar sem hann þekkti til. Ögmundur kvæntist 17. júní árið 1951 Sigur- fljóð Jónsdóttur frá Litla Langadal á Skógarströnd. Þau eignuðust tvö börn; Sigrúnu sjúkraliða, gifta Þór- arni Böðvarssyni prentara og eiga þau fjögur börn, og Ragnar sem lést ungur. Auk þess gekk hann í föðurstað Halldóru Guðmundsdótt- ir, dóttur Sigurfljóðar. Hún giftist Konráði R. Bjarnasyni fram- kvæmdastjóra og eiga þau þrjú börn og tvö barnabörn. Ögmundur var mjög vel laghent- ur maður og gerði mörgum greiða á þeim vettvangi, enda má segja að mestan hluta ævinnar félli hon- um aldrei verk úr hendi. Marga fyrirgreiðslu höfum við hjónin notið á heimili þeirra hjóna, Ögmundar og Sigurfljóðar, um áratuga skeið. Dætur okkar nutu dvalar, gestrisni og elskusemi á heimili þeirra á námsárum sínum í Reykjavík og raunar alla tíð síðan. Heimili þeirra hjóna var sem þeirra annað heimili og er raunar enn. Fyrir það skal nú þakkað, þó það verði aldrei þakk- að svo sem vert væri. Við Margrét vottum Sigurfljóð, börnum þeirra, barnabörnum og systkinum hans samúð okkar. Blessuð sé minning Ögmundar Sigurðssonar. Siggeir Björnsson. Að snöggum og óvæntum leiðar- lokum finn ég mig knúna til að minnast góðvinar míns í gegnum tíðina, Ögmundar Sigurðssonar. Ég verð að viðurkenna að lítið veit ég um ættir hans, en fæddur er hann á Hálsi á Skógarströnd, Snæfellsnesi, þann 16. nóvember 1913 einn sex systkina. Aðrir sem betur til þekkja munu ef tíl vill bæta úr því. Það sem mig langar til að gera er að skýra frá hvern mann Ög- mundur hafði að geyma og því við- móti, sem ég fullyrði að hann sýndi öllum sem hann umgekkst, jafnt háum sem lágum. Það viðmót ein- kenndist af hjartahlýju, hógværð og lítillæti. Þó gat hann verið glett- inn á góðri stund, kunni vel að meta góð vín og þótti gott að taka í nefið. ' Ögmundur var ævinlega boðinn og búinn til að hjálpa þeim sem til hans leituðu og sparaði sig hvergi. Hann hjálpaði okkur Sólmundi heitnum, eiginmanni mínum, við innréttingu okkar húss að miklu leyti, því hann var hagur í höndum, en taldi hvorki tímann sem í það fór né ætlaðist til launa fyrir. Þetta var okkur ómetanlegt því vð réð- umst í þessa húsbygginu nánast með tvær hendur tómar. Elsta son okkar tók hann til sín í suamrvinnu, þá nýfermdan, og varð sá tími m.a. til þess að með þeim tókst náið samband og vænt- umþykja sem entist ævilangt. Þó gerði hann ekki upp á milli sona okkar þriggja og fylgdist ævinlega vel með þeim. Ögmundur var mikill fjölskyldu- maður enda sá gæfumaður að eign- ast góða konu, Sigurfljóð Jónsdótt- ur, sem hann elsakaði og dáði. Fljóða og Sólmundur voru systk- inaböm en voru þó meira eins og systkini eftir að Fljóða kom ung- lingur á heimili fyrrverandi tengda- móður minnar, Kristínar Jónsdótt- ur, Njálsgötu 58, og átti þar heim- ili um árabil. Mér fannst alltaf svolítið gaman að heyra hvernig Ögmundur talaði um konu sína við aðra, því hann nefndi hana ekki nafni, heldur sagði: „Mín kona.“ Hann lifði fyrir hana og börn þeirra, Sigrúnu, Ragnar heitinn og Halldóru Guð- mundsdóttur sem hann tók að sér sem hans barn væri. Það var gam- an að heimsækja þau hjón, eðlislæg gestrisni sat þar í fyrirrúmi. Elsku Fljóða mín. Á öllum stærstu stundum lífsins verður manni orða vant, en ég og fjöl- skylda mín biðjum Guð að blessa þig og alla þína ástvini. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfr hið sama, en orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Sigríður G. Elíasdóttir. Minning Egill Karlsson Fæddur 22. júní 1920 Dáinn 25. mars 1994 Þann 25. mars sl. lést á Eskifirði Egil! Karlsson, mágur okkar og vin- ur. Hann fæddist 22. júní árið 1920 að Jaðri, á heimili foreldra sinna Augustu og Karls Jónassonar frá Svínaskála. Augusta var norsk, hún fluttist hingað til lands ung að árum. Heimilið bar alla tíð sterkan svip af uppruna hennar í gamalgró- inni menningu heimalandsins. Systkini Egils voru fjögur, Aðal- björg, Jensína, Lauritz og Guðbjörg, sem lést á barnsaldri, en hin þrjú lifa bróður sinn. Árið 1957 kvæntist Egill Arn- heiði Halldórsdóttur Árnasonar frá Hlíðarenda og Sólveigar Þorleifs- dóttur frá Svínahólum i Lóni. Þau stofnuðu sitt heimili að Jaðri, en Karl faðir Egils var þá látinn. Áug- usta bjó hjá þeim til dauðadags árið 1966. Börn Egils og Arnheiðar eru: Guðbjörg, gift Kristjáni Kristins- syni; Karl Ingvar, kvæntur Kristínu Kristjánsdóttur; Kolbrún Brynja, gift Bernharði Bogasyni; Atli Börk- ur, kvæntur Beu Meijer og Aug- usta, gift Hauki Björnssyni. Sólveig dóttir Arnheiðar var Agli sem dótt- ir, hennar maður er Árni Helgason. Barnabörnin eru orðin 13. Karl Jónasson var útgerðarmað- ur og á yngri árum starfaði Egill með honum bæði heima á Eskifírði og á Höfn í Hornafirði á vetrarver- tíðum. Síðar setti hann upp harð- fiskverkun í félagi við mág sinn, Lúðvík Ingvarsson sýslumann. Verkuðu þeir fiskinn á mjög nýstár- legan hátt, í bitafisk, sem lands- frægur er orðinn að gæðum. Fljótlega tók Egill einn við rekstri fyrirtækisins, sem fékk nafnið Sporður hf., og vann við það til dauðadags. Er það mál manna að annan eins sælgætis-harðfisk og hann framleiddi sé hvergi að fá, þó margir hafi reynt að líkja eftir honum. Þennan árangur má þakka einstakri nákvæmni og snyrti- mennsku Egils, sem kom fram í öllum hans verkum. Til dæmis hafði hann einstaklega fallega rithönd. Egill var vinsæll og vel látinn af sínum samferðamönnum, enda greindur vel og gæddur góðri kímnigáfu. Mun margur Eskfirð- ingur sakna þess að eiga við hann orðastað þegar gengið er framhjá Jaðri, en þar var hann iðulega á ferli milli vinnustðar og heimilis. Hann fylgdist grannt með málefn- um líðandi stundar, var íhugull og áhugasamur um menn og málefni, lagði fólki gott til og tók nærri sér vitneskju um erfiðleika náungans. Egill unni náttúru landsins og hafði ákaflega gaman af að ferðast og sjá sig um. Fallegar náttúru- myndir, sem hann tók mikið af, bera áhuga hans á því sviði glöggt vitni. Einnig hinn fallegi og sérs- taki garður við heimili þeirra hjóna. Þar lagði hann konu sinni gott lið, þó að hún væri aðal hönnuðurinn. I hlíðinni fyrir ofan gróðursetti Egill mikinn fjölda trjáplantna sem vonandi eiga eftir að dafna og verða hvort tveggja, yndisauki nýrra kyn- slóða og minnisvarði um þann sem þeim sáði. Með kæru þakklæti fyrir sam- fylgdina kveðjum við Egil Karlsson. Guð blessi minningu hans. Árni Halldórsson, Ragnhildur Kristjánsdóttir. Minning Ragna Pétursdóttir Mig langar að kveðja hana Rögnu mína hinstu kveðju, en hún verður til grafar borin í dag. Mest- an hluta ævi minnar hef ég þekkt hana og notið samfylgdar hennar í tæp 40 ár. Aldrei hef ég fundið annað en velvild og góðar óskir frá henni, sem mig langar að þakka. Ragna var ákaflega dagfarsprúð kona, ég man ekki eftir að hafa séð hana skipta skapi. Hún stundaði til margra ára prjónaskap með sínum heimilisstörfum. Hún átti þessa fínu pijónavél og aðrar vélar sem tengd- ust prjónaskapnum, m.a. overlock- vél, sem er sú fyrsta sem ég heyrði um og hafa án efa verið sjaldgæfar í þá daga. í hverfinu okkar gekk hún undir nafninu Ragna pijónakona og finnst mér að flesta daga hafi heyrst í prjónavélinni hennar, sem í minningunni hljómar sem þægileg- ur niður. Nokkrar flíkur man ég eftir að hafa fengið, sem hún prjón- aði og þótti okkur krökkunum og unglingunum mikið til þeirra koma. Ég man vel eftir rauðu dressi sem hún prjónaði á mig eftir máli, útvíð- ar buxur og sítt vesti, ekki ósvipað og unglingar ganga í í dag. Hún Ragna vann verk sín hljóðlega og held ég að fáir hafi staðið framar henni í prjónaskap á þeim tíma, enda hafði hún nóg að gera og átti ánægða viðskiptavini. Hún vildi öll- um gera til hæfis og átti auðvelt með það. Við hittumst síðast þegar yngsti dóttursonur hennar var að láta skíra sitt fyrsta barn. Ekki grunaði mig þá að ég myndi ekki sjá hana aftur á lífi. Þó að vissulega hafi hún verið heilsulítil lengi, þá bar hún það ekki utan á sér að svo væri, hún var glöð og hress í tali og giaddist með unga fólkinu og öðrum nærstöddum. Eg sendi börnum hennar, barnabörn- um, barnabarnabörnum og öðrum aðstandendum innilegar samúðar- kveðjur. Ljúf minning um góða konu lifir um ókomin ár. Stella. t Móðir okkar, MAGNFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, Árbakka, lést á Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, þriðjudaginn 5. apríl. Börnin. Eiginmaður minn, t JÓHANN JÓNSSON, Sunnubraut 9, Garði, lést á heimili sínu 1 apríl. Anna Birna Björnsdóttir. t Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, GUÐRÚN DAÐADÓTTIR, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 1. apríl 1994. Jónina Pétursdóttir, Björn Pétursson, Elrsabet Sigurðardóttir, Valdimar Pétursson, Ásdfs Kristjánsdóttir. t Eiginkona mín og móðir okkar, ÁSTRÚN JÓNSDÓTTIR (RÚNA), lést að kvöldi föstudagsins langa í sjúkrahúsi í Danmörku. Útförin mun fara fram á íslandi og verður auglýst síðar. Haukur Dór Sturluson, Tinna Hauksdóttir, Tanja Hauksdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, GUÐMANN HÖGNASON, Skerseyrarvegi 7, Hafnarfirði, lést á Sólvangi 30. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Jenný Sigmundsdóttir. t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR BJÖRNSDÓTTIR, andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, þann 30. mars siðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Jón Leósson, Iðunn Elíasdóttir, LeóJónsson, Ragna Haraldsdóttir, Hrönn Jónsdóttir, Guðjón Þórðarson, Viktor Jónsson, Ingibjörg Grétarsdóttir og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir mín, PETRÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Bolungavík, andaðist á Hrafnistu, Reykjavík, þann 5. apríl. Kristinn G. Árnason. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORLEIFUR JÓNASSON skipstjóri frá Dagsbrún, Neskaupstað, Naustahlein 19, Garðabæ, lést 1. apríl. Sigurfinna Eirfksdóttir, Guðmundur Þorleifsson, Berta Kjartansdóttir, Sigurbjörg Þorleifsdóttir, Ólafur Gíslason, Eiríkur Þorleifsson, Þóra Erlendsdóttir, Jónas Þorleifsson, Gina Cuizon, Herbert Þorleifsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.