Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994
félk f
fréttum
„Borgarnesdætur" heilluðu alla upp úr skónum með frábærum söng.
Frá vinstri: Guðrún H. Jóhannsdóttir, Theodóra Þorvaldsdóttir,
Guðríður Ringsted, Kristín Lilja Eyglóardóttir og Berglind Hallgeirs-
dóttir.
„Elvis lifir“. Stefán V. Ólafsson
söng af innlifun og öryggi.
Morgunblaðið/Theodór
„Á lýðveldishátíðinni á Þingvöllum 1944“.
F.v. Magnús Eyjólfsson, Sóley Ósk Sigur-
geirsdóttir, Soffia Magnúsdóttir, Finnur
Jónsson og Ágúst Einarsson.
SKEMMTUN
Eldfjörug árshátíð
*
Arshátíðarsýning nema úr Grunnskóla Borgaraness hefur
hlotið frábærar viðtökur Borgnesinga. Alls urðu sýning-
arnar átta og uppselt var á þær allar. Þátttakendur í árshá-
tíðinni voru um 130, þar af komu 60 nemendur fram í leik-
ritinu „Á eigin fótum“.
Fyrir hlé fluttu yngri nemendur söng- og dansatriði auk
smærri leikþátta undir stjórn þeirra, Birnu Þorsteinsdóttur,
Bjargar Kristófersdóttur og Kolbrúnar Kjartansdóttur. Eftir
hlé sýndu eldri nemarnir leikritið „Á eigin fótum“ eftir þá
Sigþór Magnússon skólastjóra á Klébergi og Þorstein Guð-
mundsson leikara.
Verkið var samið í tilefni af 50 ára afmæli íslenska lýð-
veldisins og hefst árið 1944 og lýkur árið 1994. Leikstjórar
eru Margrét Jóhannsdóttir og Eygló Egilsdóttir. Þær breyttu
leikritinu töluvert með leyfi höfundanna. Kváðust þær hafa
tekið út þyngra efnið og spunnið við söng og dansatriðum.
Markmiðið hafi verið að gefa sem flestum nemendum tæki-
færi til að komast á svið og taka þátt í leik, söng eða dans-
atriðum verksins. í verkinu er á skemmtilegan hátt brugðið
upp brotum úr dans og dægurlögum síðastliðinna 50 ára
með viðeigandi klæðaburði og hegðunarmynstri ungmenna.
Styrkur sýningarinnar er góður söngur nemendanna ásamt
fijálslegri og öruggri framkomu þeirra á sviðinu, auk leiftr-
andi leikgleði.
Morgunblaðið/Kristinn
Herdís Jónsdóttir (t.v.) og Hugrún Ivarsdóttir hlutu viðurkenningu
fyrir bestu gluggaútstillingu á nemendasýningu í Dupont-skólanum.
GLU GG AUT STILLIN G AR
*
Islenskar stúlkur
fengu viðurkenningxi
Tvær íslenskar stúlkur, Hugrún
ívarsdóttir og Herdís Jóns-
dóttir, sem eru nemendur í glugga-
útstillingum við Dupont-skólann í
Kaupamannahöfn, fengu viður-
kenningu fyrir bestu gluggaútstill-
inguna á sýningu sem haldin var
meðal nemenda um miðjan mars
sl. Morgunblaðið náði tali af Her-
dísi, sem stödd var hér á landi í
páskaleyfi, og sagði hún að það
væru gestir sýningarinnar
sem greiddu atkvæði um
besta básinn. „Básinn okkar
þótti mjög seljanlegur, þar
sem margar vörur voru
kynntar, auk þess var gott
jafnvægi eða ryðmi í honum.“
Að sögn Herdísar máttu
þær velja sér verkefni að eig-
in vali og kusu þær sér búsá-
haldaverslun. Stilltu þær upp
alls kyns glervörum,
kökuboxum, bastkörfum og
öðrum búsáhöldum. „Það eru
ekki veitt verðlaun fyrir þess-
ar útstillingar, en viðurkenn-
ingin gefur okkur mikið
sjálfstraust og eru ákveðin
meðmæli í sjálfu sér,“ sagði
Herdís, sem hefur hugsað sér
að dveljast áfram í Danmörku
í um það bil ár eftir að námi
lýkur nú í vor. Hugrún snýr hins
vegar aftur til KEA á Akureyri
þar sem hún starfar.
Herdís og Hugrún eru einu ís-
lendingarnir í skólanum þetta árið,
en fjöldi íslendinga hefur stundað
nám við skólann gegnum tíðina.
Nemendur eru að langmestu leyti
kvenkyns og stundar aðeins einn
karlmaður nám við skólann núna.
Glugginn sem Herdís og Hugrún völdu
sér sýndi búsáhaldaverslun.
yOff/tíMMMÚSMV // aprí/- ff.Ján/
Höldum skapinu og línunum í lagi með
hækkandi sól! ListasmiSia barna
Leikfími:
Músikleikfimi
Kennarar:
Hafdís & Elísabet
Leikfimi fyrir bakveika
Kennarar:
Harpa og Margrét,
sjúkraþjálfarar
Kripalujóga
Kennarar: Jenní
Tai-Chi kínversk
morgunleikfimi
Kennari: Guðný
„Callanetics“
Árangursrík leikfimi
Kennari:
Ólöf
t
Tónlist - Myndlist - Dans - Spuni - Leiklist
Afró
Kennarai: Orville
Kalypso
Kennari: Orville
Argentínskur Tangó
Kennarar:
Hany og Bryndís
Danssmiðja
Kennari:
Ólöf
m.,11 DANS„ WORKSHOP"
nffin í.-u. júní
99 Gestakennuri: Clé Douglas
Fýrir aíta tjötskyfduna
Upplýsingar og innritun í súna 15103 og 17860.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
UPPÁKOMUR
Hártíska á simdmótinu
Margir sundmannanna á Innanhúsmeistaramóti íslands sem fram
fór í Vestmannaeyjum nokkru fyrir páska höfðu látið klippa sig
fyrir mótið og var klipping sumra eftirtektarverð. Strákarnir á
myndinni, frá vinstri, Svavar Svavarsson, Sverrir Sigmundsson,
Kristbjörn Björnsson og Jóhannes F. Ægisson, eru allir úr Ægi og
hafði hver sinn stíl á klippingunni. Þeir sögðu að tilgangurinn væri
bara að vera í stuði og vekja kátínu.