Morgunblaðið - 06.04.1994, Page 65

Morgunblaðið - 06.04.1994, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994 65 Að kasta bolta Kast Ég er bvo m*3" íbróttaábugamaður aðþaðfyrstasem mér dettur ibug r kringtukast V ogsvo-eifvers \ konar skap- \ gerðarkast^ Ja, nú kastar áttunum, eða voru það tíurnar Björg Mér dettur í hug æðiskast og af því ég er svo íþrótta- lega sinnaður einsogjónþá \ sleggjukast / p *to c al co c • - V - . Einar Þetta er engin strákaíþrótt Rapp og Simpsons Nafn: Örn Óskar Guðjónsson. Heima: Reykjavík. Aldur:16 ára. Helstu áhugamál: Að fara á skíði og spila körfubolta. Uppáhalds hljómsveit: Eg fíla helst rapp-tónlist og núna hlusta ég mest á Snoop dogy dog. Uppáhalds kvikmynd: Aladdín. Uppáhalds sjón- varpsefnið: The Simp- sons. Besta bókin: Stungið í stúf. En uppáhalds tímaritið mitt er Vouge. Hver myndir þú vilja vera ef þú værir ekki þú? A1 Capone. Hvernlg er að vera unglingur í dag? Það er bara best - gott skemmt- analíf. Hverju myndir þú vllja breyta í þjóðfélaginu? Ég myndi ekki vilja breyta neinu, þetta er fínt eins og það er. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að fara á skíði, horfa á góðar bíómyndir og borða góðan mat. Hvað er það lelðin- legasta sem þú gerir? Að láta mér leiðast og hlusta á nöldur. Hvað ætlar þú að verða ar þú verður stór? g ætla að verða tískuhönn- uður. Hvað gengur þú með í vösun- um? Lykla, smokka, bréfarusl og pening. Hvað viltu segja að lokum? Bless. Um unglingasídu Morgunblaðsins Inga Björg Ingadóttir nemandi í Pellaskóla var kosin ræðumaður kvöldsins á úrslitakeppni Mor- gron. Við heimsóttum hana, kikt- um á bikarinn, óskuðum henni til hamingju og spurðum hana út í ræðumennsku. Hveraig stóð á því að þú tókst þátt í þessari keppni? Ég keppti í keppninni í fyrra líka og þá unnum við líka. En það var eiginlega hálfgerð tilviljun að ég fór í keppnina þá. Það voru valdir tveir úr hveijum bekk til að taka þátt í forkeppninni í skólanum og ég var valin í liðið og þetta bara heillaði mig svo rosalega að ég ákvað að vera aftur með í ár. Þetta er alveg ofboðslega gaman, þetta er með því skemmtilegasta sem ég geri. Hvað er svona skemmtilegt? Bara að standa uppi í pontu og tala. Sá sem hefur ekki gert það getur ekki ímyndað sér það. Það er alveg meiri háttar. En er þetta ekki stressandi? Jú, þetta er það, alveg rosalega. Og það fer líka alveg ofsalegur tími í æfingarnar, maður gerir lítið ann- að á meðan maður er í þessu. Hvernig fara æfingarnar fram? Við byijum á því að pæla í efninu sem við fáum og skoða bæði það sem er með og á móti. Síðan semj- um við ræður sem verða að vera visst langar og svo fer mjög mikill tími í að æfa flutning. Hvað er það sem þarf að prýða góðan ræðumann? Ég veit það ekki. Ætli þetta sé ekki bara meðfætt í mínu tilfelli. Maður þarf náttúrlega að geta talað fyrir framan fullt af fólki og það gengur ekki að vera feiminn. Svo þarf maður að geta skrifað ræður og maður þarf að geta tekið leið- beiningum, að þola gagnrýnina. En þetta er alveg ofboðslega þroskandi og maður verður að geta talað á móti sínum eigin skoðunum. Við vorum samt rosalega heppin með það efni sem við drógum; vorum oftast fylgjandi því. Finnurðu ekkert fyrir sviðs- skrekk? Jú, í fyrra þegar ég var að gera þetta í fyrsta skipti var ég auðvitað dálítið hrædd, en svo verður þetta bara svo skemmtilegt að maður gleymir hræðslunni. Hefurðu farið á ræðunám- skeið? Nei, en það var stelpa sem hefur verið í ræðuliðinu hjá okkur í tvö ár sem sagði okkur út á hvað þetta gengur og svo fengum við auðvitað ofboðslega mikla þjálfun á æfingum fyrir keppnina. Er stelpum að fjölga í keppn- inni? Já, þetta er að breytast alveg rosalega mikið. í úrslitakeppninni hjá framhaldsskólunum voru í fýrsta skipti jafnmargar stelpur og strákar. Enda er þetta engin stráka- íþrótt og á ekki að vera það. Ætlarðu að halda áfram? Ég er nú að útskrifast og get ekki lengur keppt í grunnskóla- keppninni en ef mér gefst tækifæri á að vera með á næsta ári í fram- haldsskólakeppninni þá á ég eftir að gera það, alveg hiklaust. Ég á eftir að halda þessu áfram eins lengi og ég hef röddina og tækifæri til að vera með. Frá Grundaskóla á Akranesi VIÐ viljum byija á því að þakka Ölduselsskóla í Reykjavík fyrir að gefa okkur þetta frábæra tæki- færi til þess að koma á framfæri skoðunum okkar á unglingasíðu Morgunblaðsins. Okkur nemendum og kennurum í Grundaskóla finnst unglingasíða Morgunblaðsins mjög skemmtileg. Þó er alltaf eitthvað sem má bæta. T.d. mætti gefa unglingasíðuna út oftar, a.m.k. einu sinni í viku því það er ekki svo mikið sem unglingar hafa áhuga á í dagblöð- unum. Okkur þykir góð hugmynd að láta skólana skora hver á ann- an. Því mætti halda áfram og láta skóla úti á landi taka líka þátt svo að ungling- ar á höfuðborgarsvæð- inu viti meira um hvað jafnaldrar þeirra úti á landi gera í frítíma sín- um. Það mætti t.d. kynna félagslífið í hinum og þess- um byggðarlögum. Hér á Akra- nesi er starfandi mjög góð félags- miðstöð undir stjóm Einars Skúla- sonar og aðstoðarmanna hans og nefnist sú félagsmiðstöð Arnardal- ur. Hana sækja unglingar á aldrin- um 13—16 ára. Þar er hægt að gera ýmislegt sér til skemmtunn- ar, t.d. eru þama billjardborð og borðtennisborð, þar er mikil tónlist spiluð og svo em sjónvörp og gervihnöttur fyrir þá sjónvarps- sjúku. Þó að húsið sé ekki stórt, þá rúmar það þó þann fjölda sem þangað sækir. Haldin em böll til skiptis í Arnardal, Grundaskóla og Brekkubæjarskóla, annan hvem föstudag. Fyrir stuttu var haldin hin árlega árshátíð Amar- dals og biðu menn í biðröðum eft- ir að fá miða á hana. Þar var matur, skemmtiatriði og þá vom veitt verðlaun fyrir hin og þessi mót sem höfðu verið haldin yfir veturinn, t.d. pílumót, borðtennis og billjardmót og svona mætti lengi áfram telja. í lokin var svo haldið dúndrandi diskótek. Gott væri að gefa unglingum á landsbyggðinni tækifæri á að senda hugmyndir og viðtöl í blaðið — það eru til bílar og skip! Svo væri gaman að fá að vita hvernig unglingar hér áður fyrr höfðu það og hvernig þeir eyddu frítíma sínum. Þrátt fyr- ir þessar neikvæðu hlið- ar er flest mjög gott á unglingasíðunni. Hún er það sem unglingar hafa beðið eftir. Og þessar hugmyndir komum við með til að gera opnuna enn betri. í lokin ætlum við að skora á hinn frábæra skólann á Akra- nesi — Brekkubæjarskóla — að fjalla um atvinnuhorfur unglinga á Akranesi. Hér er annað gert en að spila fótbolta. Svo vonumst við til að Brekku- bæjarskóli skori á skóla úti á landi til að skrifa í unglingas- íðu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.