Morgunblaðið - 06.04.1994, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 06.04.1994, Qupperneq 66
66 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994 SLYSFARIR OG HRAKNINGAR UM PASKA Morgunblaðið/Vilhelm Gunnarsson Stúlka sótt í Landmannalaugar NÍU ára stúlka fótbrotnaði í Jökuldölum, austan Landmannalauga, á föstudaginn langa þegar hún varð á milli tvegja vélsleða. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kvödd á staðinn til að flytja telpuna til Reykja- víkur, þar sem gert var að beinbrotinu. Á myndinni sést þar sem verið er að bera hana um borð í þyrluna. Þijár stúlkur hætt komnar í stórhríð Borg í Miklaholtshreppi. FULLVÍST má telja að bóndinn á Snorrastöðum í Kolbeinsstaða- hreppi, Kristján Magnússon, hafi bjargað lífi þriggja stúlkna sem ætluðu að ganga á Eldborg á páskadag. Innbrot í söluskála á Höfn BROTIST víir inn í söluskála á Höfn í Hornafirði aðfaranótt annars í páskum og stolið þaðan ýmsum varningi og peningum. Enginn hefur verið handtekinn vegna þessa máls. Að sögn lögreglunnar var hurð baka til á skálanum spennt upp. Þjófarnir höfðu á brott með sér bílútvarpstæki, geisladiska, tóbak, sælgæti og peninga úr spilakassa Rauða krossins sem var brotinn upp. Þjófunum yfírsást hins vegar hluti peninganna því ekki voru all- ir peningar í söluskálanum hirtir. Á gjörgæslu eftir bílveltu Ungur maður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Borgar- spítalans eftir bílveltu skammt frá Blönduhlíð í Langadal á skírdag. Stúlku sem ók bílnum sakaði ekki. Fólksbíllinn lenti í snjódyngju, fór út af veginum og valt niður 30 metra langa brekku. Tvennt var í bílnum, stúlka sem ók og var hún í bílbelti og maður sem svaf í aftursætinu. Hann var ekki í belti. Var maðurinn fluttur á Borgar- spítalann þar sem gerð var á hon- um aðgerð. Tveir bílar út- af í grennd við Blönduós Tvær bifreiðar keyrðu útaf veg- inum í grennd við Blönduós á annan dag páska. Engan sakaði. Mikil hálka og slæmt skyggni var þegar þetta gerðist. Fyrri bíllinn fór út af veginum við Geitaskarð um hádegisbilið. Tvær konur voru í bílnum sem lenti í hálku og krapi. Missti öku- maður vald á bifreiðinni og fór hún útaf. Síðdegis fór svo Econoline með tengivagni með snjósleðum út af við Húnaver. Femt var í bílnum og sluppu allir ómeiddir. Slasaðist á öxl o g fæti Ungur maður slasaðist á öxl og fæti þegar hann kastaðist af mót- orhjóli á Garðsvegi aðfaranótt páskadags. Maðurinn var að fara fram úr bifreið og að sögn lögreglunnar í Keflavík er talið að hann hafi lent fyrir utan malbikið og misst stjórn á hjólinu. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að meiðslum hans. Þýfi og pen- ingar fundust við húsleit Brotist var inn í tvær matvöru- verslanir í Keflavík á aðfaranótt skírdags og þaðan stolið talsverð- um verðmætum. Menn grunaðir um verknaðinn voru handteknir í Reykjavik síðar um nóttina og gerð var húsleit í íbúð sem þeir höfðu til umráða á Grettisgötu. Fannst þar talsvert af þýfí auk peninga, ávísana og gjaldeyris að upphæð 400 þúsund krónur. Mennirnir fóru akandi til Kefla- víkur á stolnum bíl. Þeir voru síðan handteknir, að sögn lögreglunnar í Reykjavík, þegar sást til þeirra þar sem þeir voru að bera kassa inn í hús. Óskað var eftir húsleitar- heimild og við hana fundust tíu kassar af sígarettum og 600 vindl- ingalengjur af ýmsum tegundum. Mennirnir, sem eru 23 og 24 ára gamlir, hafa oft komið við sögu lögreglunnar áður í sambandi við fíkniefnamál, innbrot, þjófnaði og líkamsmeiðingar, en við húsleit- ina fundust einnig áhöld til fíkni- efnaneyslu. Annar mannanna situr enn inni en hinum hefur verið sleppt að sögn Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Bifhjól lenti á mannlausri bifreið Bifhjól skall á mannlausri bif- reið þegar ökumaður þess missti vald á því á mótum Snorrabrautar og Grettisgötu skömmu eftir mið- nætti aðfaranótt páskadags. Tvennt var á hjólinu og meiddust ökumaður og farþegi hans lítillega þegar þau skullu í götuna. Bifreið- in er talsvert skemmd. Eins árs drengur brenndist illa á fótum Eins árs drengur brenndist illa á fótum á skírdag þegar hann opnaði þvottavél sem full var af 95°C heitu vatni. Herdís Storgaard hjá Slysa- varnafélagi íslands, en móðir drengsins hafði samband við fé- lagið, segir að drengurinn hafi verið ásamt móður sinni í þvotta- húsi í fjölbýlishúsi. Á vélinni hafí átt að vera öryggislæsing en hún hafi verið skemmd þannig að þeg- ar móðirin leit undan náði dreng- urinn að opna vélina. Hún hafí verið í gangi þar sem verið var að þvo suðuvél og vatnið hafi hellst yfír fætur barnsins. Drengurinn hlaut annars stigs bruna á öðrum fæti, en fyrsta og annars stigs bruna á hinum og liggur nú á sjúkrahúsi. Herdís segir að húð barna sé mun þynnri en húð fullorðinna og því fái þau iðulega verri brunasár en þeir sem eldri eru. Því sé brýnt að fólk gangi úr skugga um að slíkar öryggislæsingar á þvotta- vélum séu í lagi, því þetta sé ekki í fyrsta skipti sem atburður af þessu tagi gerist. 18 innbrot og þjófnaðir í Hafnarfirði Átján innbrot og þjófnaðir voru framin í Hafnarfírði um páskana og ýmsum verðmætum stolið. Að sögn lögreglunnar í Hafnar- fírði var brotist inn í sjö hús, sjö bifreiðar og fjórir aðrir þjófnaðir voru tilkynntir. Þjófarnir höfðu ekki peninga upp úr krafsinu, til dæmis var fjór- um kuldagöllum stolið frá verk- takafyrirtæki í bænum og brotist var inn í tölvustofu í Víðistaða- skóla. Ákafir sund- menn á Sel- tjarnarnesi Komið var að þremur ungum mönnum á sundi i sundlauginni á Seltjarnarnesi aðfaranótt páska- dags og að hópi fólks aðfaranótt annars í páskum. Var lögreglan kvödd á vettvang í bæði skiptin. Það var vaktmaður sem kom að fólkinu í bæði skiptin, en það var allt undir áhrifum áfengis. Drengimir voru allir rúmlega tvítugir og var þeim vísað úr laug- inni. Aðfaranótt mánudags kom vaktmaður aftur að fólki í lauginni og gerði lögreglu viðvart. Þegar hún kom á vettvang hafði fólkið ekið í burtu á tveimur bílum sem náðust skömmu síðar og eru öku- menn beggja bílanna grunaðir um ölvun. Stúlkurnar eru allar útlendar og höfðu ætlað, í samráði við hús- ráðendur á Snorrastöðum, að fá sér göngutúr og skoða Eldborg. Klukkan mun hafa verið um 10.30 fyrir hádegi þegar stúlkurnar lögðu af stað frá Snorrastöðum. Veður var þá gott en kólga í lofti. Enginn nýfallinn snjór var á þess- ari leið en þar var nokkuð harð- fenni. Að sumarlagi er talið að um það bil 40 mínútna gangur sé frá Snorrastöðum að Eldborginni. Rétt fyrir klukkan eitt var farið að undrast um þær enda komið hið versta veður, stórhríð með mikilli fannkomu, en lítið frost. Höfðu mennirnir verið varaðir við að leggja á fjöllin en fóru samt á vanbúnum bílum. Komust þeir norður í Austari-Fjallgarð á Möðrudalsöræfum þar sem þeir sneru við vegna ófærðar og kom- ust þeir austur að Þrívörðuhálsi eins og áður sagði, þar gengu þeir frá bílnum og í sæluhús Slysa- varnafélagsins, Landakot austan á Þrívörðuálsi, og báðu um hjálp um Nesradíó klukkan 20 á páska- dagskvöld og var þá slysavarna- sveitin Jökull kölluð út. Brugðust þeir Benedikt Arnórs- son frá Jökli og Eiríkur Skjaldar- son frá Hjálparsveit skáta fljótt Fundvís fjárhundur Brá því Kristján snarlega við og hóf leit að stúlkunum. Hann er ungur maður og knár og byij- aði á að kalla til sín fjárhund sinn sem er skynugur og fundvís á för. Kristján hljóp mestalla leiðina að heiman og var því ótrúlega fljótur að komast þessa leið, þar sem stúlkurnar fóru. Þegar hann taldi sig vera kominn þá leið sem stúlk- urnar ætluðu að fara fann hundur hans för eftir þær í snjónum og þá voru liðnar um 40 mínútur frá því að Kristján fór að heiman, en skyggni var mjög lítið. Eftir að hafa fundið slóð stúlknanna með við og lögðu af stað mönnunum til hjálpar. Sagði Benedikt að vont skyggni hefði verið vegna skaf- byls þó mátti segja að stikuljós hefðu verið sem þó kom að litlu gagni vegna þess að mikið þurfti að fara utan vegar. Gekk ferðin nokkuð vel, enda voru þeir á vel búinni Ekonlæn-bifreið Benedikts sem er á 44 tommu dekkjum. Tóku þeir mennina í bílinn og fóru með þá niður í Skjöldólfsstað en þeir voru vel á sig komnir og væsti ekki um þá í Landakoti, að sögn Benedikts, og voru þeir komnir til byggða fyrir miðnætti. - Sig. Að. aðstoð hundsins fann hann þær fljótlega en höfðu þær þá tekið ranga stefnu og óvíst hvar þær hefðu lent. Á leiðinni heim skánaði veður svolítið en það tók þau rúma klukkustund að komast heim. Stúlkunum varð ekki meint af þessu volki þótt þær væru orðnar mikið blautar eftir fannkomuna. Páll ------» » ♦------ Tveir bíl- ar ultu á sama stað á Fjöllum Grímsstöðum á Fjöllum. TVEIR jeppar ultu um 12 kíló- metra frá Grímsstöðum á Fjöll- um á skírdag og aðfaranótt föstudagsins langa. Engin meiðsl urðu á fólki. Fyrri bílveltan varð um hádegis- bil á skírdag. Einn maður var í bíln- um, en bíllinn er mikið skemmdur og óökufær. Ökumaðurinn gekk til Gríms- staða í stórhríð en farsími sem hann var með í bílnum bilaði við óhappið. Vörubíll kom frá Akureyri til að sækja bílinn og var hann 6-7 tíma á leiðinni, en venjulega tekur ferðin um tvo tíma í góðri færð. Um kl. 1 aðfaranótt föstudagsins langa var svo bankað upp á að Grímsstöðum á ný. Þar var kominn maður sem hafði velt jeppa á Bisk- upsháls, á svipuðum slóðum og hinn fyrri. Jeppinn var í samfloti við annan bíl og var ökumaður einn í bílnum. Þurfti hann að gista á Grímsstöð- um. Var bíllinn sóttur og gerður ökufær á föstudaginn langa en hann var mikið skemmdur. B.B. í erfiðleikum á Þrívörðuhálsi Vaðbrekku, Jökuldal. SLYSAVARNADEILDIN Jökull var kölluð út á páskadagskvöld að sækja tvo menn sem strandað höfðu á þjóðveginum norðan á Þrívörðuhálsi á Jökuldalsheiði í ófærð þar sem kúpling bilaði í bíl þeirra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.