Morgunblaðið - 13.04.1994, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1994
M9LÆKWÞAUGL YSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Verkstjóri
í rækjuvinnslu
Frystihús á Vesturlandi óskar eftir að ráða
verkstjóra í rækjuvinnslu.
Reynsla á þessu sviði æskileg.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „V - 4774“, fyrir 19. apríl.
Ritari
Ritari óskast til starfa á lögmannsstofu.
Góð kunnátta í íslensku og þekking á
Windows tölvukerfi nauðsynleg. Bókhalds-
kunnátta æskileg.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um menntun, fyrri störf og
launakröfur sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „R - 12173“, fyrir 16. apríl nk.
Organleikari
óskast til starfa við Seltjarnarneskirkju.
Á Seltjarnarnesi er ungur söfnuður og nýleg
kirkja. Tónlistarlíf í söfnuðinum er enn í mót-
un. í kirkjunni er lítið, færanlegt pípuorgel,
en stefnt er að því að festa kaup á vönduðu
pípuorgeli á árinu, sem væntanlega yrði kom-
ið upp árið 1997. Kirkjan þykir hafa góðan
hljómburð þannig að innan fárra ára verði
til staðar mjög góð aðstaða fyrir færan og
áhugasaman kirkjuorganista.
Leitað er eftir vel menntuðum og hæfileika-
ríkum organista, sem hefur áhuga á fjöl-
breyttu og vönduðu kirkjutónlistarlífi, og er
fús til að leggja sig allan fram við að byggja
upp slíka starfsemi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags
íslenskra organleikara og sóknarnefndar
Reykjavíkurprófastdæma.
Skriflegar umsóknir, er greini menntun og
fyrri störf, ásamt meðmælendum, sendist
sóknarnefnd Seltjarnarnessóknar, Kirkju-
braut 2, 170 Selstjarnarnesi.
Nánari upplýsingar gefur formaður sóknar-
nefndar, Haukur Björnsson, í símum
91-17272 vs. og 91-623434 hs.
KENNSLA
Frá grunnskólum
Reykjavíkur
Á morgun, fimmtudag, lýkur innritun barna
og unglinga, sem þurfa að skipta um skóla
fyrir næsta haust, í Skólaskrifstofu Reykjavík-
ur, Tjarnargötu 12, sími 28544.
Það er mjög áríðandi að allir skólaskyldir
nemendur, sem þurfa að skipta um skóla,
verði þá innritaðir.
Þá lýkur einnnig í grunnskólum borgarinnar
innritun sex ára barna, þ.e. barna sem fædd
eru á árinu 1988.
HÚSNÆÐIÓSKAST
3ja herbergja íbúð óskast
Góð 3ja herbergja íbúð óskast frá 1. maí nk.
fyrir einn að viðskiptavinum okkar.
Reglusemi og öruggar greiðslur.
Upplýsingar á skrifstofu fasteignasölunnar
Stakfells, sími 687633, eða hjá Gísla og
Þórhildi, sími 33771.
Fiskeldi/bændur
Til sölu eftirtalið lausafé úr þrotabúi Klak-
stöðvarinnar hf.:
• 10 eldisker úr plasti, ca 3 m í þvermál.
• 11 eldisrennur fyrir startfóðrun,
ca 60 x 65 x 350.
• 7 klakrennur fyrir 4 hrognabakka.
Tilboð sendist til Benedikts Ólafssonar hdl.,
Ráðhústorgi 5, 600 Akureyri.
Tilkynning frá
'flHf félagsmála-
ráðuneytinu
varðandi sumardvalarheimili/
sumarbúðir barna
Samkvæmt lögum nr. 58/1992, um vernd
barria og ungmenna og reglugerð um sumar-
búðir og sumardvalarheimili, þurfa þeir, sem
hyggjast stofna sumarbúðir eða sumardval-
arheimili, eða reka slíka starfsemi, að sækja
um leyfi til félagsmálaráðuneytisins.
Sumardvalarheimili telst hvert það heimili,
sem tekur 6 börn eða fleiri til dvalar gegn
gjaldi. Börn starfsmanna innan 12 ára aldurs
eða eigin börn heimilismanna teljast með
sumardvalarbörnum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í félags-
málaráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu, 4. hæð.
Umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir
1. maí 1994.
Útivistarsvæði til leigu
Hvammsvík í Hvalfirði
Til leigu er rekstur staðarins, en hann býður
upp á alhliða útivistarsvæði, golf, veiði og
siglingar. Aðstaða fyrir hestaleigu o.fl.
Um er að ræða heilsársleigu.
Áhugasamir leggi inn umsóknir, merktar:
„Ú - 14776“, á auglýsingadeild Mbl. fyrir
15. apríl 1994.
Trésmiðja - Selfossi
Auglýst er eftir aðilum, sem áhuga hefðu á
samstarfi og sameign um trésmiðju á Sel-
fossi.
Upplýsingar gefa kaupfélagsstjórar KÁ í
símum 98-21208 og 98-21207.
Húsgögn og innréttingar hf.
Kaupféiag Árnesinga.
Bygging þjónustu-
miðstöðvar í Reykjahlíð
við Mývatn
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps hefur ákveð-
ið að hefja undirbúning að byggingu þjón-
ustumiðstöðvar í Reykjahlíð. Ataksverkefni í
atvinnumálum í Mývatnssveit hefur verið
falið að vinna að undirbúningi málsins.
Fyrirhugað er að í þjónustumiðstöðinni geti
rúmast hvers kyns opinber þjónusta, versl-
un, veitingar, bensínsala og annað það, er
getur eflt viðskipti og starfsemi í húsinu.
Þjónustumiðstöð er ætluð lóð í Reykjahlíð á
horni Hlíðavegar og þjóðvegar 87, örskammt
frá vegamótum þjóðvegar no 1 til Austurlands.
Aðilar, sem kynnu að hafa áhuga á að taka
þátt í byggingu á húsinu eða kaupa þar hús-
rými fyrir starfsemi sína, hafi samband við
skrifstofu Átaksverkefnisins, Múlavegi 2, 660
Reykjahlíð, sími 96-44390, fax 96-44390,
fyrir 26. apríl nk. Skrifstofan er opin mánu-
daga til fimmtudaga frá kl. 10.00-15.00.
Ármannsfell
hf.
Aðalfundur
Aðalfundur Ármannsfells hf. verður haldinn
fimmtudaginn 28. apríl nk. kl. 16.00.
Fundurinn fer fram á skrifstofu félagsins á
Funahöfða 19, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál, löglega fram borin.
Stjórn Ármannsfells hf.
Aðalfundur
Aðalfundur Hafnarfjarðardeildar Rauða kross
íslands verður haldinn í Bæjarhrauni 2 mánu-
daginn 18. apríl nk. kl. 17.30.
Stjórnin.
-^3* BÚSETI
Aðalfundur Búseta
í Reykjavík verður haldinn miðvikudaginn
27. apríl kl. 20.30 í Hamragörðum, Hávalla-
götu 24, Reykjavík.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt sam-
þykktum félagsins.
Ársskýrsla og reikningar liggja frammi á skrif-
stofu félagsins, Hamragörðum, Hávallagötu 24,
Reykjavík, frá 20. apríl.
KAUPMANNASAMTOK
ÍSLANDS
Hádegisverðarfundur
verður haldinn
á Hótel Holi-
day Innfimmtu-
daginn 14. apríl
nk. kl. 12.00.
Gestir fundar-
ins verða: __________
Árni Sigfússon, borgarstjóri, og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, alþingismaður.
Fundarefni: Verslun í Reykjavík.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma
687811.
Kaupmannasamtök íslands.
ATVINNUHUSNÆÐI
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu er 150-200 fm vandað skrifstofuhús-
næði í Skeifunni 11A, Reykjavík.
Upplýsingar veittar í síma 687400.
Stéttarfélög athugið!
Til leigu er á Hallormsstað 90 fm húsnæði
frá því í byrjun júní til ágústloka 1994.
Húsið er timburhús, byggt 1991, og stendur
við götu með bundnu slitlagi.
Upplýsingar í síma 97-11880 eftir kl. 20.00.