Morgunblaðið - 13.04.1994, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.04.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1994 45 ÞESSI börn efndu til hlutaveltu til styrktar Rauða krossi íslands. Samtals söfnuðu þau 1.418 krónum. Þau eru Hafdís Ársælsdóttir, Aldís Guðrún Ársælsdóttir, Christina Miller og Andri Miller. skrá sig sem fyrst, því það fylltist í Kópavogsmótið Góð byrjun margra Islendinga ______________Brids____________________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsklúbbur Félags eldri borgara í Kópavogi Þriðjudag 5. apríl ’94 var spilaður tvímenningur og mættu 22 pör, spilað var í 2 riðlum, A og B. Úrslit í A-riðli: BergurÞorvaldsson/ÞórarinnÁmason 156 Karl Adolfsson/EggertEinarsson 119 Einar Einarsson/Svavar Sigurðsson 110 Meðalskor 108 B-riðill: Jónína Halldórsd./Hannes Ingibergsson 203 Helga Ámundad./Hermann Finnbogason 187 Þorleifur Þórarinsson/Þorsteinn Erlingsson 183 Eysteinn Einarsson/Garðar Sigurðsson 173 Föstudaginn 8. apríl '94 var spilað- ur tvímenningur. 20 pör mættu. Spilað var í 2 riðlum, A og B. Úrslit í A-riðli: Sveinn Sæmundsson/V aldimar Lárusson 134 EysteinnEinarsson/GarðarSigurðsson 126 Alfreð Kristjánsson/Gunnar Hjálmarsson 118 B-riðill: Ragnar Halldórsson/Hallgrimur Kristjánsson 127 EinarEinarsson/SvavarSigurðsson 123 ÁsthildurSigurgislad./LárusAmórsson 120 Meðalskoríbáðumriðlum 108 Opið bridsmót í Hveragerði nk. laugardag Opna Edenmótið í brids verður í Hveragerði laugard. 16. apríl og byij- ar kl. 10 stundvíslega. Spilaður er tvimenningur (Barometer). Hámarks- fjöldi 32. pör. Þátttökugjald kr. 2.500, pr. mann. Skráning þátttöku hjá BSÍ, sími 91-619360, og Þórði, hs. 98-34191 vs. 98-34151 (símsvari). Góð verðlaun eins og í fyrra. Vænt- anlegum þátttakendum er bent á að fyrra. Nú verður spilað í Eden. Bridsfélag Suðurnesja Aðaltvímenningur félagsins hófst sl. mánudag og eru Pétur Júiísson og Heiðar Agnarsson langefstir eftir fyrsta kvöldið. 28 pör mættu til þátt- töku og komast ekki fleiri að vegna stærðar húsnæðisins en segja má að í tvímenningi taki salurinn ekki nema 20-22 pör svo ve! fari. Staðan í mótinu: PéturJúlíusson-HeiðarAgnarsson 148 Valur Símonarson - Kristján Kristjánsson 66 Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson 59 Einar Jónsson - Hjálmtýr Baldursson 50 GarðarGarðarsson-EyþórJónsson 48 Bjami Kristjánss. - Þorger Ver Halldórss. 39 Gunnlaugur Sævarss. - Ingvar Guðjónss. 38 Spilaðar verða 27 umferðir og eru spiluð 4 spil á milli para. Jafnhliða mótinu fer fram keppni með forgjöf. Nokkur vinna er við út- reikninginn og er honum ekki lokið. Barðstrendingafélagið Eftir 17 umferðir í Barómeter- keppni deildarinnar er staða efstu para eftirfarandi: ÞórarinnÁmason-GísliVíglundsson 257 Halldór B. Jónsson - Ólafur Jóhannesson 189 Gunnar R. Pétursson - Allan Sveinbjömsson 140 FriðjónMagnússon-ValdimarSveinsson 121 BirgirMagnússon-PéturSigurðsson 110 EðvarðHallgrimsson-ValdimarJóhannsson 91 Friðgerður Friðgeirsd. - Friðgerður Benediktsd. 76 Besta skor 11. apríl: Þórarinn Ámason—Gísli Víglundsson 145 Edda Thorlacius - Sigurður Isaksson 81 Kristján Jóhannsson - Ámi Eyvindsson 57 ____________Skák_________________ Margeir Pétursson JÓN L. Árnason stórmeistari vann kollega sinn Helga Ólafs- son í þriðju umferð alþjóðlega skákmótsins í Digranesskóla í Kópavogi og tók þar með foryst- una á mótinu ásamt ensku al- þjóðlegu meisturunum Kumar- an og John Emms. Þeir hafa tvo og hálfan vinning. Andri Áss Grétarsson teflir áfram af miklu öryggi og gerði jafntefli við langstijahæsta kepp- andann, Almasi frá Ungveijalandi. Þröstur Þórhallsson vann enska stórmeistarann Hebden og heldur enn í von um þriðja áfanga sinn að stórmeistaratitli. Jón Garðar Viðarsson sigraði stigaháan enska alþjóðameistara, Peter Wells. Það er þó enn of snemmt að fagna framförum og framgangi okkar efnilegu skákmanna. Á Hell- ismótinu í haust byijuðu margir íslensku keppendanna einnig vel, eftir fyrstu umferðimar var búist við mörgum áföngum. Þegar upp var staðið náðist þó ekki einn ein- asti. Við skulum vona að lærdómur hafi verið dreginn af þeirri reynslu og menn nái að halda sínu striki allt til loka. Urslit þriðju umferðar: Andri Áss—Almasi jafnt, Helgi Ól.—Jón L. 0—1, Skembris—Kumaran 0—1, Griv- as—Hannesjafnt, Emms—Helgi Áss 1—0, Þröstur—Hebden 1—0, Jón Garðar—Wells 1—0, Ólafur—Benedikt jafnt, Kristens- en—Áskell jafnt, Bragi—Guðm. Gíslason jafnt, Tómas—Guðm. Halldórsson 0—1. Staðan eftir þrjár umferðir: 1—3. Jón L. Ámason, Emms og Kum- aran, Englandi 216 v. 4—9. Almasi, Ungveijalandi, Hannes H. Stefánsson, Grivas, Grikklandi, Þröstur Þórhallsson, Andri Áss Grétarsson og Jón Garðar Viðarsson 2 v. 10—13. Helgi Ólafsson, Skembris, Grikk- landi, Helgi Áss Grétarsson og Ólafur B. Þórsson 1 'h v. 14—20. Hebden og Wells, Englandi, Kristensen, Danmörku, Guðmundur Gíslason, Benedikt Jónasson, Guðm. Hall- dórsson og Áskell Öm Kárason 1 v. 21. Bragi Halldórsson 16 v. 22. Tómas Bjömsson 0 v. Þröstur Þórhallsson vann skemmtilegan sigur á Hebden: Hvítt: Þröstur Þórhallsson Svart: Hebden, Englandi Tveggja riddara tafl I. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bc4 - Rf6 4. d4 Andri Áss lék 4. Rg5 í fyrstu umferð gegn Hebden og vann! 4. - exd4 5. e5 - d5 6. Bb5 - Re4 7. Rxd4 - Bc5 8. Be3 - Bd7 9. Bxc6 - bxc6 10. 0-0 - De7 11. f4!? 11. f3 er vel svarað með 11. — Rd6! en 11. Hel hefur verið talinn besti leikurinn í stöðunni. Nú gæti svartur vel leikið 11. — f6!?, en leið sú Hebden velur er einnig ágæt. II. - Bb6 12. Rd2 - c5 13. R4f3 - Rxd2 14. Dxd2 - d4 15. Bf2 - 0-0 16. h3 - Bc6 17. Bh4 - f6!? Ef hvítur léki nú 18. exf6 — gxf6 þá flytti svartur kónginn til h8 og fengi sóknarfæri eftir c lín- unni. 18. a4 - c4?! Rétt eins og í skákinni við Andra er Hebden of bráður á sér. Sjálf- sagt var 18. — a5. 19. Rxd4 - Dd7 20. c3 - Had8 21. Bf2 - Dd5 22. Be3 - fxe5 23. fxe5 - Dxe5 24. Hxf8+ - Hxf8 25. a5 - Bc5 Svartur hefur unnið peðið til baka og biskupaparið virðist tryggja honum góða stöðu. En Þröstur lumar á snjallri vendingu sem einfaldar taflið honum í hag. Hebden freistar þess að ná mát- sókn eftir svörtu reitunum. Þetta tekst þó ekki betur til en svo að hann verður sjálfur mát. Þröstur nær frábæru samspili drottningar og riddara. 26. Rxc6! - Bxe3+ 27. Khl - Dg3 Eftir 27. - De6 28. Dd5! - Dxd5 29. Re7+ fær hvítur betra endatafl og 27. - Df4 28. Dd5+ — Kh8 29. Hdl er einnig betra á hvítt. 28. Dd5+ - Kh8 29. Re5 - h6? Tapar, en svartur á í miklum erfiðleikum. Hann er mát í fjórum eftir 29. - Bf4? 30. Rf7+. Skást var 29. — g6. 30. De4! - Hf4 31. Rg6+ - Kg8 32. De8+ — Kh7 33. Re7 og svart- ur gaf því hann er óveijandi mát. Jón Garðar Viðarsson hefur aldrei verið talinn til heppinna skákmanna en virðist loksins kom- inn í náðina hjá skákgyðjunni: Svart: Peter Wells Hvítt: Jón Garðar Viðarsson Báðir keppendur voru í miklu tímahraki. Svartur stendur síst lakar eftir 38. — Hc5! eða 38. — Dc7, en Wells var of bráður á sér: 38. — Rxb3?? 39. Db7 og svartur gafst upp því hann tapar manni. Gylfi Akureyrarmeistari Skákþing Akureyrar var haldið í mars. Gylfi Þórhallsson sigraði fjórða árið í röð eftir harða keppni við Rúnar Sigurpálsson. Úrslitum réð að Gylfi hafði betur í innbyrð- is viðureign þeirra. A flokkur, úrslit: 1. Gylfi Þórhallsson 7 v. af 8 2. Rúnar Sigurpálsson 6'/2 v. 3. Þórleifur Karl Karlsson 5'/2 v. 4. Smári Ólafsson 4 v. 5. Þór Valtýsson 3'/2 v. 6. Stefán Andrésson 3 v. 7. Smári Rafn Teitsson 2xh v. 8—9. Guðm. Daðason og Jón Björgvinsson 2 v. B flokkur, úrslit: 1. Halldór Ingi Kárason 6V2 v. af 8 2. Gestur Einarsson 6 v. 3. Páll Þórsson 5 v. 4. Hafþór Einarsson 4'/2 v. 5—6. Loftur Baldvss. og Magnús Ásbjöms.3'/2 v. 7—8. Bjöm Finnbogas. og Davíð Stefánss. 3 v. 9. Sverrir Amarson 1 v. Fræsáning og upp eldi sumarblóma Efnilegar fræplöntur. Blóm vikunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir 283. þáttur Það hefur verið venja okkar flest vor að veita lesendum þáttarins lít- ilsháttar leiðbeiningar um sáningu sumarblóma og matjurta og svo mun enn verða — þó í seinna lagi sé — og að þessu sinni er það dr. Einar Ingi Siggeirsson sem veitir fræðsluna: „Flestum tegundum sumarblóma er jafnan sáð í mars/maí. Til þess má nota mörg tiltæk ílát svo sem hverskyns potta, ílát undan mjólkurvörum, eða mis- munandi gerðir af sáðbökkum og best er að halda hverri tegund út af fyrir sig. Þá má einnig sá í vermi- eða sólreiti og hafa yfir þeim gler- glugga eða plastdúk. í þeim tilvik- um er nauðsynlegt að opna glugga- na þegar sól skín, til að lofta um plönturnar og lækka hitann sem ekki má fara mikið yfir 20° C. Svo þarf að vökva fræið og plöntumar daglega. ílátin sem sáð er í er heppilegast að hafa um það bil 10 cm á dýpt og hafa smá göt eða rifu á botni til þess að hleypa niður umframvatni eftir vökvun. í fræpökkum er oftast nægilegt fræmagn til að upp komi 25-100 plöntur en það fer eftir spírunar- hæfni fræsins og stærð þess. Gam- alt fræ spírar yfirleitt illa. í heimahúsum er tiltölulega auð- velt að ala upp plöntur en þó ber að hafa nokkur atriði í huga í var- úðarskyni og þá fyrst og fremst að moldin sé sótthreinsuð, annað- hvort með lyíjum sem fá má í garð- yrkjuvöruverslunum með leiðbein- ingum um notkun eða „þurrsuðu". Einfaldasta aðferðin við „þurrs- uðu“ er sú að setja moldina í bök- unarofns-skúffuna og hita í 100° C í 10-15 mín., eða þar til að moldin er orðin vel þurr, þá er hún kæld niður í stofuhita. Eftir að moldin hefur verið sótthreinsuð þarf að fara mjög þrifalega með hana, skaðleg sveppagró gætu leynst í henni og valdið sjúkdómum í plöntunum. Oftast tekst vel til með ræktun- ina í byijun, en til er að plönturnar taki vaxtarkipp, tijónist upp á skömmum tíma, en falli síðan dauð- ar niður. Oft stafar þetta af ónógri birtu, ofmikilli eða misjafnri vökv- un frá degi til dags eða sveppa- gróðri í moldinni. Sáðmold er hægt að fá keypta í garðyrkjuvöruversl- unum en þeim sem sjálfir vilja blanda sér mold til að sá í má benda á eftirfarandi: 2 hlutar grasrótarmold, sigtuð í sigti með 1 cm möskvastærð, 1 hluti mómold, 1 hluti grófur vikur eða sandur, kornastærð 2-3 mm. í hveija 35 lítra af mold er hæfi- legt að blanda 50 gr superfosfat og 40 gr af áburðarkalki. Einnig má nota þurrt, mulið hrossatað, sótthreinsað, eða tilbúinn stofu- blómaáburð og fara þá eftir leið- beiningum á umbúðum. Ofaná fræ- ið er sett um það bil */>cm moldar- lag, vökvað vel með úðara og merkt. Til þess að rakinn haldist í sáðílátunum og flýta fyrir spírun má breiða yfir þau rök dagblöð, sem fjarlæg eru þegar blöð fara að vaxa. Fræ og fræplöntur mega aldrei þorna og þurfa helst að vera á stað þar sem sólar nýtur smá- stund úr deginum. Samræmi þarf að vera milli raka og birtu. Ef birta er of lítil og hiti of mikill verða plönturnar teygðar og veiklulegar. Fyrstu tvö blöðin sem upp koma eru nefnd kímblöð, síðan koma önnur tvö sem verða að laufblöðum og er þá tími kominn til að dreif- planta í ílát sem plönturnar eru látnar vaxa í þar til tímabært verð- ur að planta þeim út í garð, venju- lega um miðjan júní. Eftirfarandi moldarblanda hefur reynst vel fyrir dreifplöntun: 7 hlutar grasrótarmold, sigtuð á sama hátt og áður var getið, 2 hlutar mómold, 1 hluti grófur vikur. í hveija 35 lítra af þessari blöndu er hæfilegt að setja 100 gr af blönduðum garðárburði og 40 gr af áburðarkalki. Ef dreifplantað er í bakka er hæfilegt bil milli plantna 2,5X2,5 sm. Eftir umplöntun er nauðsynlegt að vökva með svart- rótarsveppalyfi sem fæst í garð- yrkjuvöruverslunum." E.I.S.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.