Morgunblaðið - 03.07.1994, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
búnir að gegna skyldu sinni skilyrð-
islaust og vera á varðbergi ef hætta
steðjaði að.“
Baden-Powell, stofnandi skáta-
hreyfingarinnar, var foringi í
breska hernum og lávarður. Hans
er samt hvarvetna getið sem mikils
friðarsinna og bamavinar. í Skáta-
bókinni kemur til dæmis fram að
Baden-Powell hafi orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum þegar heimstyijöld-
in síðari braust út og haft er eftir
hönum: „Það er undir þjóðunum
sjálfum komið að tryggja friðinn
og þá blessun og heill, sem honum
fylgir. Fyrstu sporin eru, að ástunda
sannleik og réttlæti, svo velþóknun
ríki meðal manna og þjóða í stað
öfundar og óvildar. Æskan kemst
fljótlega á fullorðinsár. Ég fagna
því að skátafélagsskapurinn er orð-
in alþjóðahreyfing og bræðralag."
Líf og reynsla Baden-Powells er
í raun samofín skátastarfinu, enda
byggði hann að mestu leyti á eigin
reynslu við uppbyggingu skáta-
hreyfmgarinnar. Hann hafði trú á
keppni, hrósi fyrir vel unnin störf
og verðlaunum. í skátastarfi eru
þessi viðhorf hans ennþá ríkjandi,
eins og glögglega kemur fram í
starfsemi Gilwell-skólans, þar sem
vinnuflokkarnir fá viðurkenningu
fyrir störf sem vel eru unnin.
Aðdáun og hrós skiptir máli
Séra Árelíus Níelsson skrifaði
grein um Baden-Powell í Skátabók-
ina og segir meðal annars: „Aðferð-
in til að efla þær dyggðir drengj-
anna, sem hann óskaði að rækta,
var fólgin í aðdáun hans og hrósi,
þegar vel gekk og sigrar unnir,
hvort heldur var í smáu eða stóru.
Verðlaun, sem voru þó alltaf fremur
tákn en laun, áttu einnig mikinn
þátt í að hvetja til átaka og dugnað-
ar.“
Helgi Eiríksson er formaður for-
ingjaþjálfunarráðs Bandalags ís-
lenskra skáta._ Hann segir að skáta-
hreyfingin á íslandi hafi ekki farið
varhluta af viðhorfsbreytingum í
þjóðfélaginu. Ákveðnar breytingar
hafi verið gerðar á umgjörð starfs-
ins, en grundvallarþættir sem
skátahreyfingin er byggð á, séu enn
hinir sömu. „Skátastarf kennir fólki
að vinna saman og brjóta niður
múra hvers kyns fordóma. Hver
skátaflokkur og hver sveit hefur
eigin venjur og vinnur sjálfstætt
að hinum eiginlegu markmiðum
hreyfíngarinnar sem eru falin í
skátalögunum."
Skátalögin eru:
* Skáti segir ávallt satt og
stendur við orð sín.
* Skáti er traustur félagi og
vinur.
* Skáti er hæverskur í hugsun-
um, orðum og verkum.
* Skáti er hlýðinn.
* Skáti er glaðvær.
* Skáti er öllum hjálpsamur.
* Skáti er tillitssamur.
* Skáti er nýtinn.
* Skáti er snyrtiiegur í
umgengni.
* Allir skátar eru náttúruvinir.
Skátalögin segja heilmikið um
vaxtarbrodd starfs og hugsjónar
skátahreyfmgarinnar. Hugsjónir
alheimsfriðar og bræðralags koma
fram í þeim, en í útskýringum í
Skátabókinni segir að til að al-
heimsfriður komist á og bræðralag
ríki í heiminum þurfí samskipti ót-
eljandi einstaklinga að vera vinsam-
leg og traust. „Þótt skátar hafí aldr-
ei sézt áður, heilsast þeir sem bræð-
ur í fullri alúð og trausti hver til
annars. Berið hvers annars byrðar
á þar bezt við.“
Ekki fer á milli mála að þeir sem
staddir eru í Gilwell-skólanum við
Úlfljótsvatn, eru fullkomlega með-
vitaðir um skátalögin. Þeir hafa
ekki aðeins lært þau utan að til að
þylja upp þegar við á, heldur hafa
þeir grafíð dýpra í leit að eiginlegri
merkingu þeirra. Góður andi er ríkj-
andi og heilbrigði sem því miður
er ekki allt of algeng sjón þegar
stórir hópar ungs fólks koma sam-
an. Þótt einhveijir viðstaddra kunni
að gleyma skátalögunum öðru
hvoru, jafnvel þótt þeir muni ekki
eftir þeim nema endrum og eins,
er ljóst að við erum á réttri leið, inn
í ennþá betri heim.
Sumarið er komið í
Valhúsgögn!
Vinsælu, sænsku garðhúsgögnin frá KWA
eru komin aftur. Gegnvarin fura - gæði í gegn.
15 ára reynsla á íslandi. Mikið úrval áklæða*
Yalllúsgögll ÁRMÚLA 8, SÍMI 812275. (© Sw
blabib
- kjarni málsins!
Sjábu hlutina í víbara samhengi!
SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1994 B 9
■ GJAFA VÖRUVERSLUNIN
Karel hefur flutt starfsemi sína frá
Laugavegi 13 að Laugavegi 24
(í gamla Fálkahúsið). Verslunin
Karel hefur umboð fyrir Iitala-gler-
vörur frá Finnlandi, sem margir af
þekktustu listamönnum Finnlands
hafa unnið fyrir, s.s. Alvar Alto
(sem hannaði Norræna húsið) Aino
Álto og Tabio Virkala svo að ein-
hveijir séu nefndir. Einnig hefur
verslunin umboð fyrir önnur heims-
þekkt fyrirtæki, A/S Stelton of
Danmark-stálvörur, Table de
France-postulín og Apart-púða,
einnig úrval af nýjum vörum frá
Grikklandi og Ítalíu s.s. borðlampa
og hnífapör. Verslunin Karel býður
upp á brúðkaupsgjafalista og einnig
er hægt að kaupa gjafakort. Versl-
unin Karel er opin mánudaga til
föstudaga kl. 10-18 og laugardaga
kl. 10-14, nema Langan laugardag
sem er fyrsti laugardagur í hveijum
mánuði, þá er opið til kl. 17.
■
Frá versluninni Karel, f.v.: Vilborg Ragnarsdóttir, Karen Rögn-
valdsdóttir, eigandi verslunarinnar, og Sigrún Viktorsdóttir.
3ja dyra 882.000 kr.
5 dyra 932.000 kr.
4 dyra 985.000 kr.
HYUmöRI
...tíl fratttííðar
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
í tilefni 40 ára
afmælis B&L höfum
við fengið sendingu
af Hyundai Pony
með ríkulegum
aukabúnaði.
Því er óhætt að
fullyrða að
sambærilegur bíll
er vandfundinn á
þessu verði.
Afmælisútgáfan af Pony
er með:
• 1,3 lítra og
74 hestafla vél
• samlæsingu
• styrktarbitum í hurðum
• tölvustýrðu útvarpi
og segulbandi með
4 hátölurum
• lituðu gleri í rúðum
• samlitum stuðurum
Innifalið í verði:
6 ára ryðvarnarábyrgð og
3ja ára verksmiðjuábyrgð.
Auk þess frír ís í Perlunni fyrir alla
farþega bílsins í átta sunnudaga.
Hafið samband við
sölumenn okkar eða
umboðsmenn um land allt