Morgunblaðið - 03.07.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1994 B 11
Dans-
safna-
hátfð
SAFNPLÖTUR streyma á
markað, nú síðast danssöfnin
Reif í staurinn, sem Spor
gefur út, og Transdans 2.
sem Skífan sendi frá sér. Á
báðum plötunum er bland
innlendrar tónlistar og er-
lendrar, þó meira sé um inn-
lenda tónlist á fyrrnefnda
disknum.
Reif í staurinn er í „reif-
“röð frá Spori sem á
er danstónlist ýmiskonar. Á
plötunni eru lögin Loose
Your Mind með Bong og
Bubbleflies, Live in a Life
með Bong, Lollypops með
Tweety, Dans, dans, dans,
með Fluxus og Screaming
Sax með Atsjú, en þessar
sveitir eru allar íslenskar.
Erlendir flytjendur eru meðal
annars 2 Unlimited, Capella,
K3m, Urban Cookie Collec-
tive og Maxx.
Transdans 2 er líka í út-
gáfuröð, eins og nafnið ber
með sér. íslensku flytjend-
urnir eru Scope, sem leikur
gamlan diskóslagara, Was
That All it Was, og Ten-
nessee Trans, sem flytur lag-
ið um Hipp hopp Halla. Er-
lendir flytjendur eru meðal
annars Dr. Alban, Hadd-
away, A Tribe Called Quest,
Urban Species og Pandora.
Söngbók
SÖNGBÆKUR er þarfaþing
hið mesta, en slík útgáfa
hlýtur að vera mikið vanda-
verk, því smekkur manna er
ólíkur og síbreytilegur. Fyrir
skemmstu kom út frá Set-
bergi ný söngbók, með
óvenju fjölbreyttu lagavali.
ISetbergs-
bókinni,
sem heitir
einfaldlega
550 laga
söngbókin,
eru einmitt
550 lög, sem
spanna allt
frá þjóðlögum til þunga-
rokks. Þannig er grúi laga
sem allir þekkja úr tjald- og
rútuferðum, og svo þó nokk-
uð af nýrri popp- og rokklög-
um, til að mynda lög með
Bubba Morthens, Bítlunum,
KK bandi, Metallica, Stuð-
mönnum, Nirvana, Megasi
og Guns ’n’ Roses, svo lítið
eitt sé nefnt. Lögin valdi
Hallgrímur Óskarsson, sem
segir að þau hafi verið valin
með tilliti til vinsælda og
sönghæfni.
DÆGURTÓNLIST
Er útgáfa naubsynlegf
Þúsund
andlit
-
Ódrepandi Lipstick Lovers.
Morgunblaðið/Kristinn
Tónlist 25 tíma
sólarhringsins
LIPSTICK Lovers er ein
harðasta tónleikasveit sem
um getur og síðustu fjögur
ár hafa sveitarmenn spilað
nær samfellt. Á næstu dög-
um kemur frá þeim lag á
safnplötu Spors.
Bjarki Kaikumo, söngvari
sveitarinnar segir þá
félaga hafa mikið spilað á
þessu ári, en þeir hafí reynd-
ar ævinlega verið iðnir. „Við
ætluðum að taka okkur
nokkurra vikna frí; hætta
að hittast og hætta að hugsa
um tónlist, en þegar á reyndi
fannst okkur ómögulegt að
vera ekki að semja eða spila,
enda hefur okkur aldrei
gengið betur,“ segir Bjarki
og bætir við að þeir félagar
hafi alltaf eins gaman af
tónlistinni, þo sveitin sé orð-
in fjögurra ára gömul.
Lipstick Lovers á lag á
safnplötu Spors og Bjarki
segir sveitarmenn stefna að
því að koma að minnsta kosti
frá sér öðru lagi á þessu
ári, „þó helst vildum við
senda frá okkur breiðskífu,
en við erum nánast búnir að
taka eina slíka upp“, segir
hann og bætir við að tónlist
sveitarinnar hafi tekið mikl-
um breytingum frá því hún
sendi frá sér fyrstu lögin á
plasti.
Eins og áður segir hefur
Lipstick Lovers verið iðin við
spilirí það sem af er, og
Bjarki segir að ekkert verði
slegið af. „Það verður tónlist
hjá okkur 25 tíma á dag eins
og hingað til.“
Alvaran.
Safn-
plötu-
teiti
SPOR sendir frá sér um
þessar mundir safnplötuna
„Ýkt böst“. Sú er í útgáfu
röð Spors sem fléttar saman
innlendri tónlist og erlendri
og til að kynna plötuna
verða tvennir útgáfutónleik-
ar í næstu viku.
*
A„Ýktu bösti“ eiga meðal
annars lög Alvaran
Fantasía, Dead Sea Apple,
In Bloom, Rask, Valgerður
Guðnadóttir, Lipstick Lovers,
Vitrun, Jet Black Joe og
Blackout. Á útgáfutónleikun
um, sem verða í 2 vinum
fimmtudagskvöld og Rósen
bergkjallaranum á föstu
dagskvöld, leika In Bloom,
Dead Sea Apple, Lipstick
Lovers, Blackout og Rask
Aðgangur er ókeypis.
BALLMARKAÐSSÓKN er erfið, að margra mati nú erfið-
ari en nokkru sinni. Liður í að hasla sér völl er að vera
duglegur að spila og helst að koma frá sér plötu. Ein þeirra
sveita sem beitir slfku er Þúsund andlit.
eftir Árne
Motthtosson
Þúsund andlit var áberandi
fyrir nokkru, en tók sér
svo frí frá störfum allt stðasta
ár. Uppúr áramótum fór
sveitin svo aftur á kreik og
fyrir stuttu
kom út með
henni fyrsta
platan,
samnefnd
henni, sem
á eru fjögur
ný lög og
sex eldri,
þar á meðal
lagið Full-
kominn, sem náði mikilli hylli
fyrir skemmstu.
Ari Einarsson, gítarleikari
Þúsund andlita og annar
lagasmiða hennar, segir að
sveitin hafi alltaf ætlað sér
að gefa út breiðskífu, en bið
hafi orðið á meðal annars
vegna frísins á síðasta ári.
Hann segir það sitt mat að í
útgáfa sé hverri hljómsveit
nauðsynleg; „það kemst .eng-
inn á kortið nema með því
að gefa út plötu“, segir hann
og bætir við að næsta skref
verði að gefa næst út plötu
með öllu nýju efni. „Við erum
farin að vinna úr ýmsum hug-
myndum sem þegar hafa orð-
ið til og eru til og farin að spá
í næstu plötu þó þessi piata
sé rétt út komin. Það liggur
þó ekkert á. við eigum eftir
að fylgja þessari plötu vel á
eftir."
Ari segir að á plötunni
megi heyra að Þúsund andlit
hafa tekið breytingum, þó
Sigrún Eva setji alltaf sterk-
an svip á tónlistina.
Ari segir að sveitin uni vel
við sitt, þó slagurinn sé harð-
ari nú en áður, „mörg þessara
gömlu laga lifa vel með fólki
og það virkar alltaf best að
vera að spila eigin lög“, segir
hann og bætir við að lögin á
plötunni séu öll á Dalldag-
skránni og greinilegt að
margur kemur á böll með
Þúsund andiitum til þess að
heyra einmitt þau lög.
Þúsund andlit er dans-
hljómsveit fyrst og fremst og
Ari segir að það sé einmitt
það sem þau vilji vera, enda
sé fátt skemmtilegra en spila
fyrir fólk sem er að skemmta
sér. Því geri sveitin lítið af
því að halda tónleika, „nema
þá tónleika þar sem fólk get-
ur dansað“.
Konungur
söngvaranna
Ballsvelt Þúsund andlit
KONUNGUR söngvaranna er tvímælalaust spænski bós-
inn Julio Iglesias, sem selt hefur fleiri plötur á seinni
árum en dæmi eru um. Þó Julio eigi fleiri gull- og plat-
ínuplötur en gengur og gerist og sé átrúnaðargoð tug-
milljóna um heim allan hyggur hann á frekari landvinn-
inga, því fyrir stuttu sendi hann frá sér plötuna frábæru
Crazy, þar sem söngtextar eru flestir á ensku.
Julio Iglesias
hugðist í ár-
daga verða at-
vinnumaður í
knattspymu og
var meðal ann-
ars í markinu
hjá Real Madrid
á sjötta ára-
tugnum. Alvar-
leg slys batt
hann við hjóla-
stól í tæpt ár og
gerði út um
knattspyrnufer-
ilinn og þá heill-
aði , tónlistin
hann. Síðan má
segja að ferill
Julios hafi verið
samfelld sigur-
ganga, því hann hefur selt
um 160 milljón plötur um
allan heim og getur vegg-
fóðrað heimili sitt með 960
gullplötum og 350 platínu-
plötum, sem hefur komið
honum í heimsmetabók Gu-
inness. Það þykja því meiri
háttar tíðindi að Julio Igles-
ias sendir frá sér plötu.
Óra tíma tók
að taka Crazy
upp, enda segist
Julio verða að
geta lagt alla sál
sína í lag annars
geti hann ekki
sungið það og
það taki tíma
fyrir hann að
kafa svo djúpt í
lag og texta. Á
plötunni nýtur
'Julio aðstoðar
ýmissa tónlist-
armanna og
meðal annars
syngur hann
dúett með
Sting, Dolly
Parton og Art
Garfunkel. Lagavalið sýnir
vel breiðan tónlistarsmekk
Julios, því hann syngur með-
al annars Crazy Willys Nel-
sons, Mammy Blue, lag
Everly-bræðra Let it Be Me,
Oye Como Va, sem Santana
tók upp á sínum tíma, og
Óð til gleðinnar úr níundu
sinfóníu Beethovens.
Bósi Julio Iglesias.