Morgunblaðið - 03.07.1994, Page 12
12 B SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
-f
Steikjandi hiti i Njálsbúö
Svitnaö ð sveitaballi
með SSS6I
SSSól er ein vinsælasta rokkhljómsveit landsins og
sveitaböll hljómsveitarinnar eru landsþekkt. Það
sem dregur hvað flesta aðdáendur að hljómsveit-
inni er kraftmikil sviðsframkoma, grípandi tónlist og
rafmögnuð stemmning. Eitt þessara sveitaballa var
haldið á Njálsbúð laugardaginn 25. júní. Þangað
hópuðust skemmtanaþyrstir unglingar hvaðanæva
að með það markmið að gefa sig á djöfulsvald
rokktónlistar og gera kvöldið sér ógleymanlegt
og fyrir þann sem fylgdist með unglingunum þetta
kvöld var það vissulega ógleymanleg lífsreynsla.
Ofáir Islendingar öðlast sína fyrstu reynslu af
skemmtanalífi á sveitaböllum. Þar hófst mörg sam-
búðin í villtum dansi í skjólgóðu myrkri þvögunnar
og við dunandi dægurtónlist eða dillandi harmon-
ikkuleik. Margt gamalmennið roðnar áreiðanlega
enn í vöngum þegar það minnist ástarfundar sem
átti sér stað inni á dansleiknum eða í ilmandi rjóðri
úti í sumargrænni náttúrunni. Sú kyrrð sem fylgir
þessum minningum fuðrar þó fljótt upp ef litið er
inn á sveitaball með SSSól.
Scope var upphitunarhljómsveit á ballinu og
óhætt er að kalla hana eina efnilegustu hljóm-
sveit landsins í dag. Söngkona hljómsveitarinnar
sem heitir Svala Björgvinsdóttir sagði að það
hefði verið dálítið erfitt að bjóða upp á danstón-
list á sveitaballi þar sem flestir væru innstilltir á
rokk. Tónleikarnir hefðu þó gengið vel og hún
væri ánægð. A meðan blaðamaður Morgun-
blaðsins spjallaði við Svölu rifu upprifnir ballgest-
ir söngvarann Helga Björnsson í sig í trylltum
dansi og Helgi lét ekki sitt eftir liggja, svo húsið
hristist og skókst í hamförunum. Honum gafst lítil
hvíld frá atganginum þetta kvöld og ekki var að
sjá að blæðandi magasárið sem olli því að hann
hneig niður á tónleikum fyrrí sumar hefði haft
mikil eftirköst.
Helgi sagói eftir ballió að stemmningin hefði
verið engu lík og hann væri afar ánægður með
undirtektirnar. Þetta kvöld hefði tónninn fyrir sum-
arið verið sleginn og það yrði rokkað mikið á
böllum Sólarinnar. Ef einhver vefengir orð Helga
ætti hann að láta sannfærast vió það að skoóa
myndirnar af sveitaballinu. Þær sýna svo ekki
verður um villst að Sólin er alveg jafn heit þetta
sumar og undanfarin sumur, ef ekki heitari.