Morgunblaðið - 03.07.1994, Qupperneq 14
14 B SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN NUAUQ YSINGAR
Vélvirkjar
- bifvélavirkjar
Þekkt og traust fyrirtæki, sem sér um eigið
viðhald, óskar að ráða vélvirkja og bifvélavirkja
til starfa í viðhalds- og framkvæmdadeild.
1. Vélvirkja, vönum smíði, viðhaldsvinnu og
viðgerðum.
2. Bifvélavirkja, vönum alhliða viðgerðum
og helst með reynslu af vélastillingum.
Leitað er að traustum og reglusömum aðilum.
Um framtíðarstörf er að ræða, en einnig
kæmi afleysing til greina.
Nánari upplýsingar veita Auður Bjarnadóttir
eða Torfi Markússon frá kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar viðkomandi starfi, fyrir
9. júlí nk.
RÁE)GAIŒ)URhf.
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI686688
Sölumenn
- meðeigendur
Fasteignasala og lögmannsstofa óskar eftir
sölumönnum og/eða meðeigendum til að
starfa við atvinnuhúsnæðis- og firmasölu.
Upplagt tækifæri fyrir áhugasama og fram-
takssama menn, sem vilja starfa sjálfstætt.
Upplýsingar sendist til auglýsingadeildar
Mbl., merktar: „B - 11748", fyrir 7. júlí.
gjjg Frá Gagnfræða-
W skólanum á
Sauðárkróki
Kennara vantar til starfa nk. skólaár.
Um er að ræða sér- og stuðningskennslu,
kennslu í raungreinum og almennri kennslu.
Umsóknir berist fyrir 15. júlí nk.
Upplýsingar gefa Björn Sigurbjörnsson,
skólastjóri, v/sími 95-35382, h/sími
95-36622, og Óskar Björnsson, aðstoðar-
skólastjóri, v/sími 95-35385, h/sími
95-35745.
KOLAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
Verkstjórar óskast
íhelgarvinnu!
Kolaportið óskar eftir að ráða tvo verkstjóra
í hlutastarf til að stjórna hópi duglegra starfs-
manna, sem vinna við uppsetningu og frá-
gang markaðstorgsins á föstudagskvöldum,
laugardögum og sunnudögum. Verkstjóri er
helsti aðstoðarmaður markaðsstjóra, sem
er yfirmaður markaðarins um hverja helgi.
Verkstjóri, sem vinnur að meðaltali aðra
hverja helgi, sér um að skipuleggja vinnu
starfsmanna, stjórna öllum framkvæmdum á
staðnum og bera ábyrgð á þrifum.
Umsækjendur um ofangreind störf þurfa að
vera 25 ára eða eldri og hafa hagnýta reynslu
af verkstjórn, þekkja til tölvuvinnslu, vera
hugmyndaríkir, duglegir og heiðarlegir.
í umsókn þarf að tilgreina aldur, menntun
og fyrri störf. Umsóknir um ofangreind störf
skal senda til Kolaportsins, Garðastræti 6,
101 Reykjavík.
Fyrirspurnum er ekki svarað í síma, en öllum
umsóknum verður svarað.
jj
iiimiiK l!I|l!lfift !■& ífil jfifi Pfíi HEBKKKRSl IIKIlfilll fifififil|fill
Frá Háskóla íslands
★ Starf fulltrúa hjá Samstarfsnefnd at-
vinnulifs og skóla er laust til umsóknar.
Um er að ræða verkefnabundna ráðningu frá
l. ágúst nk. Starfið felst m.a. í því að hafa
umsjón með nemendaskiptum sem Sam-
starfsnefndin annast. Fulltrúinn hefur einnig
umsjón með stórum gagnagrunni, sér um
bókhald og útsendingar auk ýmissa annarra
verkefna. Leitað er að einstaklingi, sem á
auðvelt með að vinna að mörgum verkefnum
í einu og búi yfir sjálfstæði og frumkvæði í
starfi ásamt samstarfs- og skipulagshæfileik-
um. Krafist er góðrar enskukunnáttu en
þekking á öðrum tungumálum er einnig mjög
æskileg. Starfið krefst auk þess tölvukunn-
áttu. Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk.
★ Hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins er
laust til umsóknar hlutastarf á Upplýsinga-
stofu um nám erlendis. Háskólamenntun og
góð tungumálakunnátta er nauðsynleg.
Menntun í bókasafnsfræðum æskileg. Um-
sækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðuneytis.
Umsóknarfrestur er til 7. júlí 1994.
★ Starf fulltrúa hjá Sjávarútvegsstofnun er
laust til umsóknar. Um er að ræða verkefna-
bundna ráðningu í hálft starf. Starfið felst
m. a. í umsjón með bókhaldi, skrifleg sam-
skipti við erlenda aðila ásamt öðrum verkefn-
um er tengjast daglegum rekstri stofnunar-
innar. Leitað er eftir einstaklingi, sem getur
unnið sjálfstætt að mörgum verkefnum í
einu. Góð ensku- og tölvukunnátta nauðsyn-
leg ásamt kunnáttu í einu Norðurlandamáli.
Æskilegt er að umsækjandi sé með háskóla-
próf. Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk. Við-
komandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknum um ofangreind störf skal skilað
til starfsmannasviðs Háskóla íslands, aðal-
byggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Kynningarstörf
Kynningarfyrirtæki í Reykjavík leitar að
raddþýðu fólki á aldrinum 30-50 ára með
góða framsögn og framkomu ásamt víð-
tækri þekkingu á tónlist.
Um er að ræða kynningarstörf á haustdögum.
Umsækjendur sendi skriflegar umsóknir um
menntun og fyrri störf, merktar „Kynningar-
störf". Farið verður með umsóknir sem trún-
aðarmál.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk.
GuðniTónsson
RÁÐGJÖF & RÁÐN l N CARÞJÓN USTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Sölufólk
óskast nú þegar.
Leitum að fólki með reynslu.
Skriflegar umsóknir þurfa að berast fyrir
6. júlí 1994 með upplýsingum um fyrri störf
ásamt meðmælum.
Umsækjendur verða að hafa bíl til umráða.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „Mark - 12785“.
Forstöðumaður
- verslunarstjóri
Verslunin Borg hf. á Skagaströnd auglýsir
eftir manni, vönum verslunarstjórn, til að
veita versluninni forstöðu. Um er að ræða
sjálfstætt starf. Tilvalið fyrir hjón, sem vilja
takast á við skemmtilegt verkefni. Aðeins
vanir aðilar koma til greina. Húsnæði er til
staðar.
Umsóknarfrestur er til 12. júlí nk.
Umsóknir skulu vera skriflegar og sendast
til Péturs Arnar Péturssonar, Húnabraut 4,
540 Blönduósi, sem jafnframt veitir allar
nánari upplýsingar í síma 95-24200.
Sölufólk
Kraftmikið sölufólk óskast fyrir árbókina Árið
1993 sem kemur út núna íjúlí.
Góðir tekjumöguleikar..
Umsækjandi þarf að hafa bíl til umráða.
Nánari upplýsingar gefur Brandur í síma
812300.
FRÓDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Hjúkrunarforstjóri -
hjúkrunarfræðingar
Staða hjúkrunarforstjóra við Meðferðarheimilið
- Sogni - í Ölfusi er laus til umsóknar frá
1. ágúst 1994.
Ennfremur stöður hjúkrunarfræðinga
(hlutastörf).
Æskilegt er að umsækjendur hafi geðhjúkr-
unarmenntun eða verulega reynslu af hjúkr-
un geðsjúkra.
Upplýsingar um störfin veita: Yfirlæknir eða
staðgengill yfirlæknis og hjúkrunarforstjóri í
síma 98-34853 á Sogni, einnig skrifstofa
Sjúkrahúss Suðurlands á Selfossi
í síma 98-21300.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal senda framkvæmdastjóra
Sjúkrahúss Suðurlands v/Árveg, 800 Selfossi.
Frá leikskólum
Kópavogs
Leikskólakennarar og annað
uppeldis menntað starfsfólk.
Lausar eru stöður leikskólakennara í leikskól-
anum Marbakka v/Marbakkabraut í haust.
Á Marbakka er unnið að skapandi starfi, þar
sem hugmyndafræði Reggio Emilia er aðlög-
uð íslenskum aðstæðum óg menningu.
Upplýsingar gefa leikskólastjórar, Lilja Krist-
jánsdóttir og Ólöf Guðmundsdóttir,
í síma 642737.
Einnig eru lausar stöður leikskólakennara í
leikskólunum Kópahvoli v/Bjarnhólastíg,
sími 40120,
Grænatúni v/Grænatún, 100% staða,
sími 46580,
Smárahvammi v/Lækjarsmára,
sími 644300,
Efstahjalla v/Efstahjalla, eftir hádegi,
sími 46150
og á skóladagheimilinu Ástúni v/Ástún,
100% staða, næsta vetur,
sími 641566.
Upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Einnig vantar leikskólakennara eða þroska-
þjálfa vegna stuðnings barna með sérþarfir.
Upplýsingar gefur leikskólaráðgjafi, Anna
Karen Ásgeirsdóttir í síma 45700.
Ennfremur gefur leikskólafulltrúi upplýsingar
í síma 45700.
Stjórnin.
Starfsmannastjóri.