Morgunblaðið - 03.07.1994, Blaðsíða 16
16 B SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN NUAUGIYSINGAR
p BORGARSPÍTALINN
Leikskólakennarar
Á leikskólanum Birkiborg við Borgarspítalann
eru stöður leikskólakennara lausar til um-
sóknar. Einnig staða þroskaþjálfa eða leik-
skólaráðgjafa v/stuðningsbarns.
Nánari upplýsingar veita leikskólastjórar,
Gróa Gunnarsdóttir og Magnea G. Sverris-
dóttir, í síma 696702.
Uppeldisfulltrúi
óskast á meðferðarheimili fyrir börn á Kleifar-
vegi 15, 100% starf, sem fyrst.
Uppeldismenntun og reynsla áskilin.
Spennandi og krefjandi starf.
Upplýsingar veitir deildarstjóri
í síma 812615.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólastjóri
Staða leikskólastjóra við leikskólann Staðar-
borg við Mosgerði er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk.
Leikskólamenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefur Margrét Vallý Jó-
hannsdóttir, deildarstjóri, í síma 27277.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
HVOLSVÖLLUR
Skólastjóri/kennarar
Starf skólastjóra við Hvolsskóla á Hvolsvelli
er laust til umsóknar.
Hvolsskóli er einsetinn skóli með 180 nem-
endur í 1 .-10. bekk og 10 stöðugildi kennara.
í skólanum er skólaathvarf, mötuneyti og
bókasafn.
Umsóknarfrestur er til 11. júlí.
Einnig vantar kennara til kennslu í íþróttum,
tónmennt og myndmennt.
Umsóknarfrestur til 27. júní.
Upplýsingar veita: Halldóra Magnúsdóttir,
aðstoðarskólastjóri, í síma 78384 og Ágúst
Ingi Ólafsson í síma 78173 dftir kl. 17.00.
Til upplýsinga: Hvolsvöllur er 100 km frá Reykjavik í miðju landbúnaðarhér-
aöi á Suðurlandi. Ibúar eru um 800. Á Hvolsvelli er gott mannlíf og fjöl-
breytt félagslff fyrir unga og aldna. Á staðnum er nýr leikskóli, tónlistar-
skóli, íþróttavöllur, sundlaug og golfvöllur í næsta nágrenni. Á Hvolsvelli
er gott að ala upp börn.
Heilsugæslulæknar
Laus er til umsóknar staða heilsugæslulækn-
is við Heilsugæslustöðina í Stykkishólmi.
Henni fylgir hlutastaða (50%) aðstoðarlækn-
is við St. Franciskusspítalann, Stykkishólmi.
Nánari upplýsingar veita yfirlæknir heilsu-
gæslustöðvarinnar, Guðbrandur Þorkelsson,
og framkvæmdastjóri, Róbert Jörgensen, í
síma 93-81128.
„Au pair“
- Bandaríkin
Ég er 10 ára íslenskur strákur á Long Island
í New York-fylki og mig vantar „au pair" til
að hugsa um mig og nýfætt systkini mitt
meðan mamma og pabbi eru í vinnunni.
Ef þú ert a.m.k. 18 ára, reykir ekki, kannt á
smábörn, getur komið í september og verið
í 1 ár, sendu þá umsókn á auglýsingadeild
Mbl., merkta: „G.I.H. - 13216“, fyrir 12. júlí.
Sölu- og
markaðsstjóri
Viðskiptablaðið leitar að hæfum, kraftmiklum
og metnaðarfullum starfsmanni til að taka
þátt í uppbyggingu, stjórn og framkvæmd á
útgáfu vikublaðs Viðskiptablaðsins.
Æskilegt er að viðkomandi hafi viðskipta-
eða rekstrarfræðimenntun, reynslu í sölu-
mennsku og þekkingu á beinni markaðs-
sókn. Viðkomandi þarf að hafa samskipta-
og skipulagshæfileika, þjónustulund og mikla
löngun til að takast á við krefjandi verkefni.
Skriflegar umsóknir berist til skrifstofu Við-
skiptablaðsins, Nýbýlavegi 16, Kópvogi,
fyrir 8. júlí nk.
Kennarar!
Kennara vantar við Grunnskólann í Súðavík.
Æskilegar kennslugreinar: íþróttir, raun-
greinar og önnur almenn kennsla. Aðstoðum
við útvegun á húsnæði. Skólinn er einsetinn
með 50 nemendum í 1.-10. bekk. Um er að
ræða samkennslu. Skólinn er vel búinn tækj-
um og öðrum námsgögnum og er með nýjan
íþróttasal.
Súðavík er sjávarþorp í 18 km. fjarlægð frá ísafirði og er vegurinn þar á
milli með bundnu slitlagi. Góðar samgöngur eru frá Súðavík til Reykjavík-
ur og ísafjarðar og er vegurinn milli Súðavíkur og ísafjarðar mokaður
daglega allan veturinn.
Nánari upplýsingar gefa sveitastjóri í síma
94-4912 og form. skólanefndar í síma
94-4967.
Eitt ár sem au pair
í Bandaríkjunum
er ógleymanleg
reynsla.
Síðastliðin 4 ár hafa á
fimmta hundrað íslensk
ungmenni farið sem au pairí okkar
vegum til Bandaríkjanna.
Og ekki að ástæðulausu þar sem
engin önnur samtök bjóða eins góða,
örugga og ódýra þjónustu.
AUar ferðir friar, ekki aðeins til
og frá Bandaríkjunum heldur einnig
innan þeirra. Auk þess greiðir gistifjöl-
skyldan fyrir námskeið.
Ef þú ert á aldrinum 18-25 ára og
langar til Bandaríkjanna sem au pair
hafðu þá samband eða líttu inn og við
veitum þér allar nánari upplýsingar.
Við erum að bóka f brottfarir í
ágúst, september, október,
nóvember og desember.
AuPAIR
VISTASKIPTI & NÁM
PÓRSOATA26 101 REYKJAVlK SlMI 91- 62 23 62 FAX91-62 96 62
SAMSTARFSFYRITÆKI MENNINGARSKIPTASAMTAKANNA
WORLD LEARNING INC. / AuPAIR HOMESTAY SEM STOFNUÐ VORU ÁRIÐ 1932 .
SAMTÖKIN ERU EKKI REKIN í HAGNAOARSKYNI
OG STARFA MEÐ LEYFI BANDARÍSKRA STJÓRNVALDA.
Prentarar
Prentari óskast til starfa við
Prentsmiðjuna hf., Stykkishólmi.
Þarf að geta hafið störf eigi síðar en
1. október.
Nánari upplýsingar veita framkvæmdastjóri,
systir Petra, og stjórnarformaður, Róbert
Jörgensen, í síma 93-81128.
Meinatæknar
Meinatækni eða meinatæknanema vantar í
sumarafleysingar í Sjúkrahús og á Heilsu-
gæslustöð Patreksfjarðar
tímabilið 10. júlí til 22. ágúst 1994.
Góð kjör í boði.
Upplýsingar gefa Steinar, deildarmeinatæknir,
og Jón, yfirlæknir, í síma 94-1110.
Sjúkrahús og
Heilsugæslustöð Patreksfjarðar.
Listasafn Reykjavíkur
Kjarvalsstaðir
Óskum eftir að ráða starfskraft í kaffiteríu
Kjarvalsstaða frá og með 1. september.
Vinnutíminn er frá kl. 10.00-18.00
virka daga.
Skriflegar umsóknir, með upplýsingum um
aldur og fyrri störf, berist til skrifstofu
Kjarvalsstaða fyrir 6. júlí.
Útflutningsyrirtæki
f Garðabæ
óskar eftir starfskrafti hálfan daginn frá
kl. 13-17. Starfið felst í ýmsum skrifstofu-
störfum, s.s. vélritun, tölvuvinnslu og síma-
vörslu.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg, svo og
ensku- og þýskukunnátta.
Þeir, sem hafa áhuga, sendi inn umsóknir,
merktar: „D - 2211“, fyrir 8. júlí 1994.
Frá Háskóla Islands
Dósentsstaða í jarðeðlisfræði við eðlisfræði-
skor raunvísindadeildar Háskóla íslands er
laus til umsóknar. Um er að ræða tímbundna
ráðningu til þriggja ára. Áætlað er að ráða
í stöðuna frá 1. janúar 1995. Einkum er ósk-
að eftir kennara til starfa að eðlisfræði fastr-
ar jarðar ásamt kennslu í almennri eðlis-
fræði. Mjög hæfir umsækjendur á öðrum
sviðum jarðeðlisfræði koma einnig til álita.
Umsækjendur um stöðuna skulu láta fylgja
umsóknum sínum rækilega skýrslu um vís-
indastörf þau, er þeir hafa unnið, ritsmíðar
og rannsóknir, svo og námsferil og störf.
Með umsóknunum skulu send eintök af vís-
indalegum ritum og ritgerðum umsækjenda,
prentuðum og óprentuðum. Ennfremur er
óskað eftir greinargerð um rannsóknir, sem
umsækjandi hyggst stunda, verði honum
veitt staðan.
Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla-
kennara og fjármálaráðuneytis.
Nánari upplýsingar veitir Einar H. Guð-
mundsson, formaður eðlisfræðiskorar, í síma
694800. Umsóknarfresturertil 3. ágúst 1994
og skal umsóknum skilað til starfsmanna-
sviðs Háskóla íslands, aðalbyggingu við Suð-
urgötu, 101 Reykjavík.