Morgunblaðið - 03.07.1994, Page 20
20 B SUNNUDAGUR 3. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Mikill áhugi á hesta-
íþróttinni í Ólafsvík
>Ólafsvík - Hestaeigendafélagið
Hringur í Ólafsvík stóð nýlega fyr-
ir reiðnámskeiði og var þátttaka
framar björtustu vonum en þátt-
takendur voru 30 börn og 8 konur.
Reiðnámskeiðið stóð í eina viku
og var kennari Lárus H. Hannes-
son. Nemendum var skipt í fimm
hópa og voru þátttakendur mjög
ánægðir með þetta námskeið enda
var veður mjög gott þá daga sem
námskeiðið stóð yfir.
Óvænt uppákoma var þegar
konurnar, sem tóku þátt í nám-
skeiðinu, voru í kennslu inn við
Fróða að eiginmenn þeirra tóku
af skarið og buðu þær velkomnar
í sumarbústað þar sem voru bornar
fram léttar veigar og spilað á
harmoniku.
Morgunblaðið/Alfons
Lárus Hannesson, kennari, í broddi fylkingar með einum hópi
barna í reiðnámskeiðinu sem hestaeigendafélagið Hringur í
Ólafsvík stóð fyrir.
Mikill áhugi er meðal bæjarbúa
á hestaíþróttinni og hefur Hestaeig-
endafélagið Hringur byggt nýtt og
glæsilegt hesthús og góðan
keppnisvöll. Að sögn Jennýjar Guð-
mundsdóttur, félagsmanns í hesta-
eigendafélaginu, er fýrirhugað að
Hringur verði með keppni og sýn-
ingu á Ólafsvíkurvökunni sem hald-
in er dagana 14. til 17. júlí. Jenný
sagði að unglingar hefðu sýnt hest-
um mikinn áhuga og fari hann
vaxandi og námskeið sem þetta vel
undir áhuga hjá bömum og ungl-
ingum. Hún sagði þegar nokkra
unglinga hafa nóð mjög góðum
árangri á stórmótum hestamanna.
tlíKOAUGL YSINGAR
Utboð
Húsfélagið Seilugranda 1-9 og Rekagranda
2-10 óskar eftir tilboðum í eftirtalið verk:
Bílastæði við Seilugranda
og Rekagranda
Helstu magntölur ern:
Steypt stétt 110 m2
Malbik - 170m2
Lagnir 200 m
Fyllingar 400 m3
Verklok eru áætluð 30. september 1994.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistof-
unni Hnit, Háaleitisbraut 58-60, frá hádegi,
miðvikudaginn 6. júlí 1994, gegn 2.000 kr.
skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á Verkfræðistofuna Hnit
hf., fyrir kl. 10, þriðjudaginn 12. júlí, þar sem
þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóð-
endum sem þess óska.
Útboð
Stálþil í Hrísey
Hafnarstjórn Hríseyjarhrepps óskar eftir til
boðum í byggingu stálþilsbakka.
Helstu magntölur eru: Rekstur stálþils 64 m,
steyptur kantbiti 64 m, dýpkun 4.000 m3.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. desem-
ber 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hrís-
eyjarhrepps og Vita- og hafnamálaskrifstof-
unni, Vesturvör 2, Kópavogi, frá þriðjudegin-
um 5. júlí, gegn 5.000 kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum fimmtu-
daginn 21. júlí 1994 kl. 11.00.
Hafnarstjórn Hríseyjarhrepps.
Útboð
Sjóvörn á Borgarfirði eystra
Hafnamálastofnun ríkisins og Borgarfjarðar-
hreppur óska eftir tilboðum í að leggja út
grjótgarð. Helstu magntölur eru:
Grjótvinnsla og grjótröðun um 5.000 m3.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. október
1994. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Borgarfjarðarhrepps og á Vita- og hafna-
málaskrifstofunni, Vesturvör 2, Kópavogi, frá
5. júlí, gegn 5.000 kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum þriðju-
daginn 19. júlí 1994 kl. 11.00.
Hafnamálastofnun ríkisins,
Borgarfjarðarhreppur.
■ i
auglýsingar
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Aimenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
—?
Hjáipræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Hjálpræðissamkoma kl. 20.00.
Starfsfólk gestaheimilisins sér
um samkomuna.
Verið velkomin á Her.
VEGURINN
Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Á sunnudag: Almenn samkoma
kl. 20.00. Tom James frá
Bandaríkjunum prédikar.
Allir velkomnir.
„Verið því eigi hryggir, því að
gleði Drottins er hlífiskjöldur
yðar.“ Neh. 8:10.
Ungf fófk
fm með hlutverk
YWAM - fsland
Fræðslu- og bænasamvera (
Breiðholtskirkju í kvöld kl. 20.30.
Eirný Ásgeirsdóttir fjallar um orð
guðs, lifandi raunveruleiki.
Allir velkomnir.
Auðbrekka 2 . Kópavoqur
Sunnudagur:
Almenn samkoma í dag kl. 16.30.
Þriðjudagur:
Biblíulestur kl. 20.30.
Laugardagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
*Nýja
postulakirkjan,
íslandi,
Armúla 23,
108 Reykjavík
Guðsþjónusta sunnudag kl.
11.00. Peter Tege safnaðar-
prestur þjónar. Ritningarorð:
„Allt vald er mér gefið á himni
og jörðu." (Mt. 28:18).
Hópur frá Bremen í heimsókn.
Verið velkomin í hús Drottins.
Þingvellir-
helgardagskrá 2.-3. júlí
Sunnudagur:
Kl. 13.00 Gönguferð í Skógarkot
og Vatnskot. Fjallað um búsetu
og mannlíf fyrr á öldinni. Tekur
um þrjár og hálfa klukkustund.
Farið frá Skáldareit aftan við
Þingvallakirkju stundvíslega kl.
13.00.
Kl. 17.00 Guösþjónusta í Þing-
vallakirkju. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLAND5
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Ferðafélag íslands
- sumarleyfisferðir:
Árbókarferðin 7.-14.
júlí. Ystu strandir
norðan Djúps
Hlöðuvík - Hornvík.
Enn eru laus pláss (þessa stuttu
og þægilegu Hornstrandaferð,
sem er sérstaklega tileinkuð ár-
bókini. Brottför frá Reykjavík á
fimmtudegi 7. júlí og til baka á
fimmtudagsmorgni 14. júlí. Far-
angur ferjaður milli staða. Gist
í góðum húsum á Horni og í
Hlöðuvík (aðeins 18 pláss á
hvorum stað). Einnig hægt að
vera með tjöld. M.a. verður (
boði sigling undir Hælavíkur-
bjarg. Pantið og takið farmiða
strrax.
Snæfell - Lónsöræfi
og dvöl á Lónsöræfum
Þesi gönguferö nýtur vaxandi
vir.sælda. Brottför í 7 daga ferð-
ir 16. og 30. júlí (aukaferð), 6.
og 13. ágúst. 7 daga ferðir með
dvöl í Múlaskála á Lónsöræfum
eru með brottför 22. júlí og 12.
ágúst.
9.-16. júlí (8 dagar) yfir
Vatnajökul á skíðum.
Gist á Skálafellsjökli fyrstu nótt-
ina. Á næstu dögum gengið yfir
að Goðheimum á Goðahnúk og
þaðan niður að Snæfelli. Flogið
til baka frá Egilsstöðum. Ferð
fyrir þjálfað skíðagöngufólk!
16.-20. júlí (5 dagar)
Suðurfirðir
Fariö verður um svæðið við ræt-
ur Vatnajökuls og austan við
Höfn, Lón og Suðurfirðina ásamt
dölum, s.s. Flugustaðadal,
Hofsdal og Múladal.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.l.
Ferðafélag Islands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
ísfirðingar, ferðafólk!
Miðnætursólarsigling frá
ísafirði með Fagranesi.
Kynning á árbók Ferða-
félagsins.
Sigling út (safjaröardjúp þar sem
ætlunin er að skoða sólarlagið.
Komið í land á Hesteyri. Áætlað
er að ferðin taki 4 klst.
Ferðafélag (slands mun kynna
nýja árbók sína „Ystu strandir
norðan Djúps'' sem fjallar um
svæðið og veröur hægt að eign-
ast bókina með því aö gerast
félagi í Ferðafélaginu. Djúpbát-
urinn kynnir áætlun sína. Hægt
verður að fá veitingar um borð.
Harmóníkufélag (safjarðar sér
um fjörlega tónlist. Fararstjóri
Gisli Hjartarsson. Verð aöeins
1.000 kr. fyrir fullorðna og 500
kr. fyrir börn.
Fjölmennið
Ferðafélag (slands.
FERÐAFÉLAG
© ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Sunnudagur 3. júlí:
Kl. 9.00 Skarðsheiði frá austri
til vesturs. Gengið frá Gelding-
ardraga til vesturs. Verð kr.
1.800.
Kl. 13.00 Innstidalur (Ölkeldur),
Þrengsli. Gengið upp Sleggju-
beinsskarð, til baka meðfram
Skarðsmýrarfjalli. Verð kr.
1.100.
Miðvikudagur 6. júií:
Kl. 20.00 Búrfellsgjá - Búrfell.
Létt kvöldganga.
Laugardagur 9. júlf:
Kl. 8.00 Hekla. Verö kr_ 2.300.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin og Mörkinni 6.
Helgarferðir 8.-10. júlí:
Kl. 20.00 Yfir Fimmvörðuháls.
Kl. 20.00 Þórsmörk. Gist í báð-
um feröum í Skagfjörðs-
skála/Langadal.
9.-10. júlí:
Kl. 8.00 Hvitárnes - Karlsdrátt-
ur, bátsferð.
Feröafélag (slands.
UTIVIST
[Hallveigarstig 1 • simi 614330]
Dagsferð sunnudag 3. júlf
Kl. 10.30 Sandfell við Þing-
vakavatn, 5. áfangi lágfjalla-
syrpu. Brottför frá BSl bensín-
sölu. Verð kr. 1.400/1.500.
Dagsferð laugardag 9. júlí
Kl. 8.00 Hvalfell 3. áfangi
háfjallasyrpu.
Dagsferðir sunnudag 10.
júlí
Kl. 8.00 Hítardalur.
Kl. 10.30 lýöveldisganga.
Helgarferðir 8.-10. júlí
Básar við Þórsmörk. Nú er
sumarið komið i Þórsmörk og á
Goðalandi. Fjölbreyttar göngu-
ferðir með fararstjóra. Gist í
skála eða tjöldum.
Fararstjóri: Margrét Bjömsdóttir.
Helgarferð 9.-10. júlí
Fimmvörðuháls. Fullbókað er
í ferðina.
Fararstjóri: Gunnar Gunnarsson.
Upplýsingar og miðasala á
skrifstofu Útivistar.
Útivist.
f j
UTIVIST
[Hallveigarstig 1 • simi 614330
Vatnajökull: Snæfell -
Goðahnjúkar - Skálafells-
jökull 9.-16. júlí. Fullbókað er
í ferðina. Fararstjóri: Reynir Sig-
urðsson.
Aðalvík - Hornvík 11.-18.
júlí. Gengið frá Aðalvík um
Látra, Fljótavík og Hlöðuvík til
Hornvíkur. Frá Hornvík er m.a.
gengið á Hornbjarg. Sjá grein í
Ársriti Útivistar nr. 16 eftir Gísla
Hjartarson: „Gönguleiðir í
Sléttuhreppi". Fararstjóri: Gunn-
ar Hólm Hjálmarsson.
Núpsstaðarskógur -
Grænalón 13.-17. júlí. Geng-
ið verður m.a. að Tvílitahyl,
Núpsárgljúfri, Nautavöðum,
Grænalóni og Súlutindum. Far-
arstjóri: Sigurður Einarsson.
Hornvík - Reykjarfjörður
18.-25. júll. Örfá sæti laus.
Fararstjóri: Gisli Hjartarson.
Landmannalaugar- Básar
18.-24. júlí. Fullbókað í ferð-
ina, Fararstjóri: Hörður Haralds-
son.
Snæfellsfjallgarður
21.-24. júlí.
Vatnsskarð - Loðmundar-
fjörður - Vestdalsheiði
25.-29. júlí. Sumardvöl í
Básum. Hægt er að dvelja heila
eða hálfa viku í þessari náttúru-,
paradís.
Upplýsingar og miðasala á
skrifstofu Útivistar.
Útivist.
Fjölskylduferð
skíðadeildar Ármanns
verður helgina 8.-10 júlí. Farið
verður að Arnarstapa á Snæ-
fellsnesi. Ef veðurútlit er slæmt
verða aðrir möguleikar um stað-
arval kannaðir.
Upplýsingar verða á símsvara
deildarinnar 620005 þegar nær
dregur.
Skíðadeild Ármanns.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma með Tom
James kl. 11. Allir velkomnir!
Sjónvarpsútsending á ÓMEGA
kl. 16.30.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður Hreinn Bernharðs-
son. Almenn samkoma kl. 20.00
í umsjón unga fólksins.
Ræðumaður Dögg Harðardóttir.
Barnagæsla.
Allir hjartanlega velkomnir.
fomhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Dorkas-konur sjá um samkom-
una með miklum söng og vitn-
isburðum. Stjórnandi Ásta
Jónsdóttir. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Samhjálp.