Morgunblaðið - 10.07.1994, Page 2
2 SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Forstjóri Eimskips
Líkur á
ábyrgari
samkeppni
HÖRÐUR Sigurgestsson forstjóri
Eimskips segist telja líklegt að
með nýjum eigendum Samskipa
verði samkeppni á flutningamark-
aðnum ábyrgari en verið hefur á
síðustu árum en að öðru leyti
geri hann ekki ráð fyrir stórvægi-
legum breytingum á markaðnum.
„Okkur þykja það tímamót þeg-
ar Landsbankinn dregur úr þátt-
töku í samkeppnisrekstri í flutn-
ingum,“ sagði Hörður Sigurgests-
son við Morgunblaðið. „Þá sjáum
við að þama oru komnir nýir eig-
endur að fyrirtækinu sem við höf-
um keppt við mjög lengi.
Samkeppnin á þessum markaði
hefur verið mjög hörð á undan-
fömum misserum og ámm og
kemur náttúrlega fram í því að
Samskip hafa tapað 1 milljarði
króna á síðustu þremur árum. Við
teljum því líklegt að þessi eigenda-
skipti verði til þess að samkeppnin
verði ábyrgari en verið hefur,“
sagði Hörður.
Landsbankinn seldi
Samskip
Landsbankinn seldi á föstudag
9 fyrirtækjum og nokkmm stjóm-
endum Samskipa 510 milljóna
króna hlutafé í fyrirtækinu.
Landsbankinn mun eiga áfram
164 milljóna hlut i fyrirtækinu en
ráðgerir að selja hann síðar meir.
Stærri skip komast nú inn í Sundahöfn á ísafirði
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
FARÞEGASKIPIÐ Vista Mar frá Panama við bryggju í Sundahöfn á ísafirði. Skipið sem er
7.500 tonn er stærsta skip sem komið hefur að bryggju þar vestra.
Farþegaskip við landfestar
ísafirði. Morgunblaðið.
SUNDAHÓFN á ísafirði hefur
verið endurbætt. Stór skip þurfa
ekki lengur að fara um þrönga
rennuna milli Suðurtanga og
flugvallarins, en það hefur haml-
að því að stæiri skip kæmust
að bryggju á Isafirði.
Á föstudag lagðist 7.500 lesta
farþegaskip þar að bryggju, en
það er langstærsta skip sem hér
hefur legið við landfestar. Með
skipinu voru 300 ferðamenn,
flestir Þjóðveijar. Farþegar
eyddu síðdeginu á ísafirði í góðu
veðri og fóru meðal annars með
Herði Guðmundssyni í útsýnis-
flug um nágrennið. Von er á
fleiri farþegaskipum í sumar, en
mörg þeirra eru enn allt of stór
fyrir nýju hafnarmannvirkin.
Unnið er að því, að flutninga-
skipafélögin flytji starfsemina í
Sundahöfn seinna á þessu ári.
Hafnarstjórinn á Isafirði, Her-
mann Skúlason, sagði að vel
hefði gengið að koma skipinu
að bryggju og ekkert i veginuin
með að taka skip af þessari
stærð og eitthvað stærri að
bryggju.
Umfangsmikil rannsókn
á botndýrum við Island
Á milli 60 og 70 erlendir vísindamenn tengjast verkefninu með einhverjum hætti
HÓPUR fræðimanna lagði af stað í gær frá
Akureyri á norsku rannsóknarskipi í alþjóðleg-
an rannsóknarleiðangur í umsjón umhverfis-
ráðuneytisins til að rannsaka samfélag botn-
dýra á íslandsmiðum. Dr. Jörundur Svavarsson
prófessor í sjávarlíffræði, annar tveggja ís-
lenskra fræðimanna sem þátt taka í verkefn-
inu, segir að ætlunin sé að taka sýni og safna
lífverum af botni sjávar út af Norð-Austurlandi.
Þetta er gert með það að markmiði að safna
upplýsingum um hvaða botndýrategundir finn-
ist á miðunum við ísland en einnig til að rann-
saka ætisskilyrði botnfiska. Þá hafí rannsókn-
imar það langtímamarkmið að kanna áhrif
veiða á samfélag botndýra. Jörundur segir að
á milli 60-70 erlendir fræðimenn muni á einn
eða annan hátt tengjast verkefninu.
„Hafsvæðið út af Norð-Austurlandi er á
margan hátt merkilegt," sagði dr. Jörundur í
samtali við Morgunblaðið. „Island er staðsett
á skilum heitra og kaldra sjávarstrauma og
markar það sérstöðu hafsvæðisins út af land-
inu. Neðan við 400 m dýpi fer hiti sjávar t.a.m.
niður fyrir frostmark. Þar má búast við að fínna
botndýralíf sem er einkennandi fyrir Norður-
íshaf.“
Fyrri leiðangur af tveimur
Fræðimenn í leiðangrinum verða níu utan
áhafnar skipanna og koma frá flestum þjóðum
Norðurlanda. Rannsóknarskipið, Hákon Mosby,
er norskt og kemur hingað í fjórða rannsóknar-
leiðangurinn í íslenskri efnahagslögsögu.
Jörundur segir að leiðangurinn sé annar
tveggja í þessu verkefni. Því verði framhaldið
í lok ágúst þegar kanna á hafsvæði út af Vest-
ÍSLENSKAR hjúkrunarkonur
reykja mun minna en konur al-
mennt hér á landi. Samkvæmt
rannsókn sem gerð var meðal
hjúkrunarfræðinga í vor reykja
7,3% þeirra daglega og 7,7% þeirra
reykja sjaldnar en daglega. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Krabba-
meinsfélaginu reykja 28% kvenna
á íslandi daglega.
Þessar upplýsingar koma fram
í niðurstöðum könnunar sem fimm
hjúkrunarfræðingar í sérskipu-
lögðu hjúkrunarnámi til BS-gráðu
við HÍ gerðu í vor.
Heildarúrtakið var allir kven-
hjúkrunarfræðinger búsettir á ís-
landi, en 400 manna tilviljunarúr-
Hjúkrunarkonur
reykja mun minna
en aðrar konur
tak (17%) var valið úr þeim hópi.
Svör bárust frá 69,3% þátttak-
enda. Könnunina gerðu Kristín
Björnsdóttir lektor, Hanna Karen
Kristjánsdóttir, Hjördís Birg-
isdóttir, Ingileif Ólafsdóttir, Olga
Hákonsen og Ruth Guðbjartsdótt-
ir.
''Samkvæmt könnuninni telja
flestir hjúkrunarfræðingar að
fjalla eigi sérstaklega um tóbaks-
varnir í grunnnámi í hjúkrun og
urlandi á rannsóknarskipinu Bjama Sæmunds-
syni.
Ymsir innlendir og erlendir aðilar eru þátt-
takendur í þessu alþjóðlega samstarfsverkefni
að sögn Jörundar. Verkefnið er í umsjón um-
hverflsráðuneytisins en Hafrannsóknastofnun-
in, Líffræðistofnun HÍ, Náttúrufræðistofnun
íslands, Sjávarútvegsstofnun HÍ og Sandgerðis-
bær taka einnig virkan þátt í því. Margir háskól-
ar á Norðurlöndum koma ennfremur að rann-
sóknunum.
„Við gerum síðan ráð fyrir að um 60-70
fræðimenn komi að verkefninu með einum eða
öðrum hætti. Sýni verða t.d. send til sérfræð-
inga um allan heim.
Krabbadýr verða þannig tekin til rannsóknar
hjá sjávarlíffræðingum sem sérhæfa sig í
krabbadýrum, sniglar hjá sniglafræðingum
o.s.frv.,“ sagði Jörundur.
Nýleg rannsókn sýnir að færri umbera reykingar en áður
flestir hjúkrunarfræðingar telja
einnig að tóbaksvarnir eigi að vera
hluti af starfi hjúkrunarfræðinga.
Þá telja 73,4% hjúkrunarfræðinga
viðhorf sitt til reykinga hafa breyst
þannig að reykingar séu ekki
umbornar eins vel og áður.
Stór hluti þeirra hjúkrunarfræð-
inga sem enn reykja eða 83,8%
telja sig hafa minnkað reykingar
í kjölfar reykingabanns á vinnu-
stöðum. 85,7% þeirra hjúkrunar-
fræðinga sem reykja daglega segj-
ast hafa reykt lengur en í 11 ár,
89,2% segjast hafa áhuga á að
hætta að reykja og 80,6% segjast
hafa gert tilraun til að hætta reyk-
ingum.
> Aldamótaríkið ísland
►í dag eru tvö þúsund dagar þar
til árið 2000 rennur upp. Af því
tilefni kveða nokkrir aðilar vítt og
breitt um þjóðfélagið sér hljóðs og
spá í framvindu mála fram til alda-
móta./lO
Á bak við lokaðar dyr
►Ofbeldi á heimilum er mikið í
sviðsljósinu í Bandaríkjunum um
þessar mundir./ 12
Hvíti draumurinn
►Enn af máli O.J. Simpsons./12
Úr fórum ungra fræði-
manna
►Háskóli íslands brautskráði
kandídata nýlega. Seilst verður í
smiðju þeirra./14
Með ýmsum ráðum má
bæta lífshorfurfólks
►Þórður Harðarson, prófessor,
segir frá nýjungum í meðferð
hjartasjúkdóma./16
Reykofninn í súrheyst-
urninum
►Skúli Hauksson bóndi í Útey við
Apavatn hefur lífsviðurværi sitt
af silungsveiði./18
B
► l-24
Með flugið í blóðinu
►Ragnheiður Amgrímsdóttir er
einungis 22 ára en er engu að síð-
ur að liúka atvinnuflnomannsnrófi
Ast, friður og kærleik-
ur
►Söngleikurinn Hárið frumsýnd-
ur í Óperunni í leikstjóm Baltasars
Kormáks gerir lukku. /2
Ólíkur ferðamáti
►Hvað skyldi það vera á Kanarí-
eyjum sem fær fólk til að eyða þar
hveiju fríinu á fætur öðru?/4
í hópi þeirra allra
bestu
► Sylvester Stallone var víðsfjarri
þegar nýjasta Stallone-kvikmynd-
in Judge Dredd tekin upp á ís-
landiívikunni./lO
Hlýddi kalli Drottins
►Halla Bachmann hefur í 7 ár
haft óvenjulegt viðfang, aðstoðað
innflytjendur frá Rússlandi í ísrael
og gyðinga í Hvíta-Rússlandi./22
c
BÍLAR
► 1-4
Verð á japönskum bíl-
um hækkar mikið á
næstunni
►Lækkunjensins kemurfram í
verði bíla./ 1
Renault Clio RNfæst
nú með vökvastýri
►Renault Clio hefur breytt lítil-
lega um svip./4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak ídag 32
Leiðari 22 Fólk I fréttum 34
Reykjavíkurbréf 22 Bíó/dans 35
Minningar 24 Skoðun 38
Helgispjall 28 íþróttir 40
Þjónusta 28 Útvarp/sjónvarp 41
Myndasögur 30 Veður 43
Brids 30 Gámr Gb
Stjömuspá 30 Mannlífsstr. 6b
Skák 30 Kvikmyndir 8b
Brd tn blaðsins 30 Dægurtónlist 9b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4