Morgunblaðið - 10.07.1994, Page 4

Morgunblaðið - 10.07.1994, Page 4
4 SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 3/7 - 9/7. ►ÚTLIT er fyrir að halli borgarsjóðs verði á þessu ári 2,2 miHjarðar króna. ►NÝ STJÓRN var kjör- in í Islenska útvarpsfé- laginu á laugardaginn var. Eggert Skúlason fréttamaður var kjörinn í stjórn félagsins og samdægurs var hon- um vikið úr starfi af El- ínu Hirst fréttastjóra. ►HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði 32 ára gamlan HlV-smitað- an mann af ákæru um að hafa nauðgað tæplega 15 ára gömlum pilti og hafa með því stofnað Iífí hans i hættu. I dóminum eru vinnubrögð Rann- sóknarlögreglu ríkisins harðlega gagnrýnd. ►HITABYLGJA gekk yfir landið í liðinni viku og fór hiti víða yfir tutt- ugu gráður. Hlýr og ryk- mettaður loftmassi ætt- aður frá austanverðri Evrópu umlauk landið. ►DÖKKT gler í nýjum glerskála framan við Iðnó olli miklum deilum. Formaður skipulags- nefndar Reylyavíkur- borgar vill að glerskálinn verði tekinn niður. ►KRISTJÁN Jóhanns- son söng fyrsta hlutverk sitt í konunglegu óper- unni i Covent Garden á miðvikudagskvöld. Hann hljóp i skarðið fyrir kol- lega sinn og söng hlut- verk Radamesar í Aidu. Ný fyrirtæki inn í Samskip ÁTTA innlendir aðilar og einn erlend- ur, þýska fyrirtækið Bruno Bischoff, hafa í sameiningu keypt hlutabréf í Samskipum að upphæð 510 milljónir króna. Landsbanki íslands fjármagn- ar kaup innlendu fyrirtækjanna að hluta og er stefnt að því að hlutafé fyrirtækisins í árslok verði 8-900 milljónir. Innlendu fyrirtækin eru Samhetji, Fóðurblandan, Hagkaup, Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, VÍS, Olíufélagið hf. og Samvinnulíf- eyrissjóðurinn. Þá hefur Eignarhalds- félag Alþýðubankans ákveðið að kaupa hlut en það er gert með fyrir- vara um samþykki stjórnar. Bjartari þjóðhagsspá ÞJÓÐHAGSSTOFNUN telur að þró- un efnahagsmála sé hagstæð um þessar mundir einkum vegna upp- gangs í efnahagslífi annarra ríkja og hagstæðra starfsskilyrða hér á landi. Davíð Oddsson segir að efnahags- kreppan sé á undanhaldi. Þjóðhags- stofnun geri nú ráð fyrir að lands- framleiðslan standi í stað en dragist ekki saman eins og áður var gert ráð fyrir. Þá er búist við að hagvöxtur verði 1% árið 1995. Flugleiðir á Indlandi FLUGLEIÐIR vinna nú að því í sam- vinnu við indverska fjármálamanninn Ravi Tikkoo að stofna flugfélag í Indlandi, sem nefnist Indotik Air- ways. Um er að ræða áætlunarflug til 11 áfangastaða á Indlandi og er áformað að nota fyrst um sinn 3 Boeing-farþegaþotur. PLO og ísraelar ræða næstu skref YASSER Arafat, leiðtogi Frelsissam- taka Palestínu, og Yitzhak Rabin, forsætisráðherra Israels, hittust á fundi í París á miðvikudag, þar sem þeir ræddu um hvemig næstu skref- um sjálfsstjórnar Palestínumanna skuli háttað. Leiðtogamir voru á eitt sáttir með að fundurinn hefði verið árangursríkur. Þeir samþykktu að skipa þijár nefndir til þess að ræða óleyst vandamál varðandi samkomu- lagið um Gaza og Jeríkó, hvemig flýta megi fyrir því að Palestínumenn á öðrum svæðum á Vesturbakkanum fái sjálfsstjóm, og að boðað verið til ráðstefnu með Egyptum og Jórdaníu- mönnum um örlög palestínskra flóttamanna. Leiðtogarnir eru fjarri því að vera sáttir um framtíð Jerúsal- emborgar, en Yossi Beilin, aðstoðar- forsætisráðherra ísraels, sagði á fimmtudaginn að sá vandi væri yfir- stíganlegur og að sátt myndi nást í því efni á lokastigum friðarviðræðn- anna. Breytingar á fær- eyska þinginu LJÓST er að mjög erfitt verður að mynda nýja stjóm eftir kosningamar sem fram fóru í Færeyjum á fimmtu- daginn. Átta flokkar fengu sæti á lögþinginu og eru úrslitin túlkuð sem sigur fyrir tvo nýja smáflokka, Verkamannafylkinguna og Miðflokk- inn. Sambandsflokkurinn er nú stærstur á þingi, fékk 23,4% at- kvæða, bætti við sig tveim þingsæt- um og hefur nú átta menn. Flokkur- inn hafði stefnt að því að fá tíu þing- sæti. ERLENT ►FUNDUR leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims hófst í Napólí á Ítalíu á föstudag. Þar var meðal annars rætt um leiðir til þess að draga úr atvinnu- leysi og útvega meira en 20 milljónum manna vinnu. Bandaríkjaforseti lagði áherslu á að einnig yrði rætt um fríverslun, og að leiðtogarnir myndu ekki eyða tíma sínum í að ræða hvemig hægt yrði að bregðast við lágu gengi bandaríkjadollars, eða gripu til örþrifaráða vegna þess. Boris Jeltsín, forseti Rússlands, situr fundinn á sunnudag. ►STJÓRNARHER Norð- ur-Jemen náði borginni Aden, síðasta vígi sunnan- manna í styijöldinni í Jemen, á sitt vald á fimmtudag. Leiðtogar sunnanmanna ætla þó að safna liði að nýju og halda áfram baráttunni fyrir aðskilnaði frá norðurhlut- anum. Vatnslaust var orð- ið í borginni og skortur á matvælum. Hermdu fregnir að flestir íbúarnir hafi einfaldlega fengið sig fullsadda á ástandinu og snúist á sveif með stjórn- arhernum sem herjaði á borgina. ► FRANSKA stjórnin sagði á miðvikudag að uppreisnarmenn í Rúanda hefðu virt griðarsvæðið sem hún ákvað að vernda skyldi, og hefðu ekki gert sig líklega til þess að ráð- ast á franska hermenn . FRETTIR Tvær belgískar stúlkur á hjólhestum um Island |ÆtIa að hjóla um heiminn á 4 árum TVÆR belgískar stúlkur, sem ætla að hjóla um allan heim á fjómm árum, hafa ferðast hjól- andi um Island síðastliðnar þrjár vikur. Ingrid De Wilde og Nicole Dierckx, báðar þrí- tugar, héldu til New York síð- degis í gær því ferðin liggur næst til Alaska. Þær stöllur hafa áður farið í 15.000 kíló- metra hjólreiðaferð um Kína og að þessu ævintýri Ioknu munu þær að auki eiga 70.000 kílómetra að baki, að eigin sögn. Fjögurra ára ferðalagið hófst í Belgíu 9. apríl siðastlið- inn og hjóluðu Ingrid og Nicole fyrst sem leið lá um Evrópu, fóru sjóleiðina yfir til Hull í Bretlandi og áleiðis norður á bóginn til Skotlands, þá til Orkneyja, þvínæst Færeyja og þaðan með Smyrli til íslands. Frá Seyðisfírði hjóluðu þær til Mývatns, skoðuðu Dettifoss og komu við á Húsavík og Akur- eyri. Frábært fólk „Þaðan hjóluðum við eftir þjóðvegi eitt alla leið til Reykja- víkur,“ segir Ingrid, en þær era báðar sammála um að ferðin hafi tekist sérstaklega vel hér- lendis, veðrið hafí verið yndis- legt og þær fengið frábærar yiðtökur. „Fólkið er svo gott að við gætum borðað það,“ seg- ir Nicole og lýsir aðdáun þeirra á hreinu og fallegu umhverfi. Ingrid og Nicole verða tvo daga í New York en halda síðan til nyrsta hluta Alaska þaðan sem þær munu hjóla niður til Kanada. Þrjú þúsund kilómetr- um síðar verða þær í Bandaríkj- unum og ætla að hjóla sömu vegalengd niður með Vestur- ströndinni til Kaliforníu. Ætla að búa sig sem stráka Þaðan halda þær til Mexíkó, þá Gvatemala og Hondúras og gera ráð fyrir að verða á ferð- inni í Suður-Ameríku fram í apríl á næsta ári. „Það er erfitt fyrir konur að ferðast einar á Morgunblaðið/Árni Sæberg BELGÍSKU stúlkumar Ingrid og Nicole sem ætla að hjóla um heiminn á fjómm ámm. þessum slóðum svo við ætlum að búa okkur sem stráka, lita hárið á okkur svart og vera með yfirskegg," segja þær. Aðspurðar hvemig hug- myndin hafi kviknað segja þær að einhvern tíma á ferðalagi í Indónesiu hafi þær verið að bölsótast yfir stopulum rútu- ferðum þegar borið hafi að aldraðan mann á reiðhjóli. „Hann sagði bara við okkur: „Hvað eru svona hraustar stúlkur að bíða eftir rútum, þið eigið bara að hjóla“. Við dauð- öfunduðum hann og ákváðum að fara að dæmi hans í framtíð- inni,“ segja þær. Hjóluðu með blæjur og í síðum pilsum Ingrid og Nicole kunna margar sögur af ferðum sínum og nefna sem dæmi að þær hafi þurft að endurskoða klæðaburðinn í múhameðstrú- arlöndum í fyrri hjólreiðarferð- um. „Við hjóluðum í síðum pils- um og með blæjur fyrir andlit- inu. Pilsin voru alltaf að flækj- ast í petölunum og teinunum og urðu sífellt styttri,“ segja þær hlæjandi. Annað ár ferðarinnar verða Ingrid og Nicole á Indlandi og þar um kring, það þriðja í Ástr- alíu og á Nýja Sjálandi og hið fjórða í Suður-Áfríku og öðnim Afríkuríkjum, þaðan sem þær halda til upp til Belgiu til að ljúka ferðinni. Að því búnu ætla þær að koma aftur til íslands. „Okkur Iangar til þess að opna skrif- stofu og koma með fólk hingað í hjólreiðaferðir. Viðtökumar hafa verið frábærar og Flug- leiðir era eina flugfélagið sem hefur viljað styrkja okkur til fararinnar. Við komum ömgg- lega aftur enda eigum við eftir að hjóla um Suðurland og Aust- fírði,“ segja þær. Ingrid og Nicole skrifa greinar um ferð- ina mánaðarlega sem birtar eru í Gazet van Antwerpen, sem styrkir ferðina, og einnig koma þær reglulega fram í útvarpi og tala meðal annars frá fs- landsferðinni í New York. The Financial Times um Aidu-sýningu Krisljáns Jóhannssonar í Covent Garden Sundurleitir áhorfendur og sundurleitir flytjendur SÝNINGIN á Aidu í Konunglegu óperunni í Covent Garden sem Kristján Jóhannsson stökk inn í með nánast engum fyrirvara, fær heldur slaka umsögn hjá óperu- gagnrýnanda The Financial Times, David Murray. Hann segir hópinn sem saman var kominn á Aidu Verdis hafa verið sundurieitari en hann minnist að hafa áður séð í óperunni og greinilega víða að kominn. Þetta eigi við áhorfendurna en nýir flytj- endurnir hafi ekki síður verið sund- urleit hjörð, og þeir alls ófærir um að ná hver til annars, hvað þá til hljómsveitarstjórans Edward Dow- nes. Gagnrýnandinn segist hins vegar verða að skýra frá því að áhorfendur flestir hafí verið alsælir í lokin. David Murray segir líka of mikla einfóldun að tala um nýja flytjendur því að þeir sem ráðnir hafí verið í þessa uppfærslu Elijah Moshinsky á Aidu hafi allt fram undir það síð- asta hrunið niður eins og flugur. Einhver hjá óperunni hljóti að hafa varið örvæntingarfullum stundum í talsambandi við útlönd. Þannig hafi Radames í miðvikudagssýningunni, íslendingurinn Kristján Jóhanns- son, (sem ekki hafi áður sungið í London) komið fljúgandi þanga fyrr um daginn. Því sé vart að undr þótt virst hafi sem hann og Aid hans hafí aldrei verið almennileg kynnt. Um söng Kristjáns segir gagi rýnandinn að öðru leyti að Italíi skóluð tenórrödd hans sé skær o hljómmikil, (hann hljóti að vei áhrifamikill Manrico í Trovatore en hún búi ekki yfír miklum þokki Aría hans Celeste Aida hafí veri brothætt og hann þanið sig til hir ýtrasta, og þótt stjórnandinn ha hvað eftir annað gefið honum un talsvert svigrúm til að anda, ha hann hafnað því að notfæra sér þa>

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.