Morgunblaðið - 10.07.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 9
FRETTIR
Lufthansa
Borgarstgórn skipar starfshóp til að móta húsafriðunarstefnu
Reglur um húsafriðun brýnar
Morgunblaðið/Rúnar B. Ólafsson
FARÞEGAÞOTA Airbus A-321 á Keflavíkurflugvelli.
Ný farþegaþota á
Keflavíkurflugvelli
NÝ farþegaþota af gerðinni Airbus
A-321 hafði skamma viðdvöl í Leifs-
stöð laugardaginn 26. júní sl. Þotan
var hér í leiguflugi fyrir Flugfélag-
ið Atlanta og er þetta í fyrsta sinn
sem þota af þessari gerð lendir á
Keflavíkurflugvelli.
Airbus A-321 þotan er lengd út-
gáfa af annarri Airbus þotu sem
er af gerðinni Airbus A-320. Þessi
nýja þota er í eigu þýska flugfélags-
ins Lufthansa og var þotan afhent
félaginu í maí á þessu ári. Airbus
A-321 þotan tekur 180-199 far-
þega og er 16% lengri en A-320
sem nemur tæpum 7 metrum. Nýja
1.530 bíða
eftir leik-
skólaplássi
SAMKVÆMT upplýsingum sem
kynntar hafa verið stjórn Dagvistar
barna eru um 630 börn eldri en
tveggja ára og um 900 börn yngri
en tveggja ára á biðlistum eftir leik-
skólaplássi í Reykjavík. Eru þá ótal-
in börn þeirra foreldra sem ekki
hafa átt þess kost að sækja um
heijsdagsvistun fyrir börn sín.
I þeim tilgangi að fá skýra mynd
af raunverulegri þörf fyrir leik-
skólarými hefur stjórn Dagvistar
barna samþykkt að skipa þriggja
manna starfshóp sem geri tillögur
um hvernig staðið verði að könnun
um þörf fyrir leikskóla fyrir öll eins
til fimm ára börn í Reykjavík. Af
hálfu stjórnarinnar eiga Kristín
Blöndal og Árni Þór Sigurðsson
sæti í starfshópnum og Jónína
Bjartmarz af hálfu foreldra.
------».--------
Nautakjöt
til Banda-
ríkjanna
FYRSTA sending íslensks nauta-
kjöts á Bandaríkjamarkað fer utan
um miðjan ágúst næstkomandi,
en Landssamband kúabænda hef-
ur samið um sölu á 300 tonnum
á ári til verslanakeðju sem sérhæf-
ir sig í hreinleikavörum.
Guðmundur Lárusson formaður
Landssamtaka kúabænda sagði í
samtali við Morgunblaðið að í
fyrstu sendingunni til Bandaríkj-
anna yrðu tíu tonn af nautakjöti
| og ef neytendum þar í landi líkaði
kjötið ætti að geta komist skriður
, á útflutninginn.
þotan er knúin áfram af tveimur
hreyflum af gerðinni IAE V2530-
A5.
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að frum-
kvæði meirihluta borgarstjórnar
Reykjavíkur, að skipa starfshóp
til að undirbúa framtíðarstefnu-
mótun í húsafriðunarmálum í
Reykjavík. Guðrún Ágústsdóttir,
forseti borgarstjórnar, vakti at-
hygli á því á síðasia borgarstjórn-
arfundi að á síðustu 10 árum hefðu
49 hús verið rifin í miðborg
Reykjavíkur. Hún sagði brýnt að
móta reglu um húsafriðun í borg-
inni þannig að fólk, sem býr í
gömlum húsum, viti um stöðu
þeirra.
Starfshópurinn verður skipaður
fulltrúum frá byggingarnefnd
borgarinnar, umhverfismálaráði,
menningarmálanefnd og skipu-
lagsnefnd. Nefndinni er ætlað að
skila áliti fyrir lok nóvember nk.
Nefndin á að fara yfir þær
ákvarðanir sem þegar hafa verið
teknar í húsafriðunarmálum í
Reykjavík. í öðru lagi, 'að koma
með tillögur um hvað þurfi að
gera í húsafriðunarmálum í borg-
inni. I þriðja lagi, að gera tillögur
um breytingar, ef nauðsynlegar
eru, á aðalskipulagi og deiliskipu-
lagi þannig að skipulagsákvarðan-
ir samræmist menningarlegum
markmiðum húsafriðunar.
í fjórða lagi, að gera tillögur
um hvort og þá hvernig megi auð-
velda einstaklingum, fyrirtækjum
og stofnunum að halda við gömlu
húsnæði og færa það til uppruna-
legs horfs. í fimmta lagi, að kanna
hvernig megi samræma áætlanir
um fjölgun atvinnutækifæra og
endurnýjun og endurbætur gam-
alla húsa og annarra mannvirkja.
VOLVO 440/460
Mest seldi bíll í stnum stœrðarflokki 1994
Öruggur metsölubíll á
frábæru júlítilboði!
24 bllar með 83.285 kr, kaupauka
Volvo 440/460 var kynntur með 2.0 lítra vél í janúar 1993 og hefur hann átt
vaxandi vinsældum að fagna síðan þá. Árið 1993 var Volvo 440/460 þriðji
mest seldi bíllinn hér á landi en það sem af er þessu ári hefur hann skotið
keppinautunum ref fyrir rass og er nú sá mest seldi í sínum stærðar- og
vélarflokki. Samtals hafa selst 176 bMar af þessari gerð á þessu tímabili og
markmiðið er að ná 200 bMa markinu fyrir næstu mánaðarmót.
3i- »ul*
v-J°^S„NiU-r
S1285íl
verð: Volvo 440 kostarfrá 1.519.000 kr.stgr.
Volvo 460 kostar frá 1.569.000 kr.stgr.
VOLVO
Á BETRA VERÐl FYRIR ÞIG!
FAXAFENI 8 • SIMI 91- 68S870