Morgunblaðið - 10.07.1994, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 10.07.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 17 og það þökkum við fyrst og fremst þessum lyfjum, vegna þess að aðalá- hættuþáttur heilablóðfalla er há- þrýstingur. Það var sagt hér fyrir um 25 árum eða svo að af þeim sem væru með háþrýsting á íslandi væri um helmingur tilvika þekktur. Af þeim helmingi væri helmingnr á lyfj- um og af þeim helmingi væri helm- ingur vel meðhöndlaður, það gerði rösklega tólf prósent sjúklinga. Núna er að minnsta kosti helmingur þeirra sem eru með háþrýsting í við- eigandi meðferð. Margir þeirra sem eru með krans- æðasjúkdóma hafa jafnframt hátt kólesteról í blóðinu. Það er viðbót- aráhætta ef hið svokallaða góða kólesteról er líka lágt. Ein aðferðin til að hækka það er að stunda lík- amsrækt. Margir þeir sem hafa hátt kólesteról í blóði neyta of fituríks fæðis og nýlega er komið í ljós í neyslukönnun Manneldisráðs hvem- ig fæði íslendinga er háttað. í ljós hefur komið, öfugt við reyk- ingaþáttinn, að konur eru duglegri að draga úr fituneyslu en karlar, ungar konur frekar en rosknar kon- ur, konur í þéttbýli frekar en í sveit og vel menntaðar konur frekar en þær sem eru minna menntaðar. Þetta segir þó ekki alla söguna. Margir þeir sem hafa mikla blóðfitu hafa hlotið þá tilhneigingu að erfð- um. Það er sama þó þessir sjúkling- ar reyni að draga úr fituneyslu, þeir ná ef til vill ekki tilætluðum árangri. Þá koma þessi kólesteróllækkandi lyf til sögunnar. Með þeim má ná verulega miklum árangri í þá átt að lækka kólesteról í blóði og hliðar- verkanir eru litlar af þessum nýjustu lyfjum. Læknar hafa gefið sér það að árangur þessa sé hafínn yfir allan vafa, en við bíðum ennþá eftir stóru rannsóknunum sem eru í gangi. Hvað varðar eldri lyfin þá varð það ljóst að það var hægt að draga verulega úr æðakölkun og fylgikvill- um hennar en hins vegar var ekki alveg eins óyggjandi að heildardán- artala væri lægri. Heilbrigðisyfirvöld hafa reynt að draga úr notkun þess- ara ly§a, þau hafa skynjað það svo að lyf þessi hafi verið notuð óhæfí- lega mikið á íslandi, en ég held að þetta sé einfaldlega eins og á ýmsum öðrum sviðum, íslenskir læknar hafa verið fyrri til að taka upp nýjungar hér en læknar í nágrannalöndunum. Þetta er þekkt t.d. frá öðrum sviðum hjartasjúkdóma, þar höfum við verið fyrri til en nágrannarnir. Við læknar eigum von á að aðrar Norðurlanda- þjóðir muni fylgja í kjölfarið með notkun þessara kólesteróllækkandi lyfja. Mér finnst varhugavert að taka út þennan lyfjaflokk og slá því föstu að um ofnotkun sé að ræða. Má gera góðan árangur betri? Það sem hægt er að gera til þess að ná enn betri árangri er að fá fólk til þess að hætta að reykja. Vægi reykinga er mest hjá unga fólkinu og það hefur sýnt sig að það er ekki nokkur vafí á að með því að draga úr reykingum er hægt að ná stórkostlegum ár- angari í því að bæta lífshorfur fólks. Árangur af því að hætta að reykja er ábyggilega langt umfram það sem hægt að ná með öðrum aðferðum. Þetta vita allir íslend- ingar, þótt sumir tali kannski á móti því gegn betri vitund. En þá er þetta líka að nokkru komið úr höndum lækna og yfir til fjölmiðla, heilbrigðisyfirvalda og annarra aðila. Eg tel að hægt væri að ná talsverðum viðbótarárangri hvað matarræðið snertir, enn er hægt að bæta það mjög mikið með auk- inni neyslu á grænmeti, ávöxtum, fiski og kornmat. Það er hægt að taka betur á blóðþrýstingi þó allt sé á framfarabraut þar. Islendigar eru margir hveijir of feitir en þar er við ramman reip að draga. Árangur af megrunaraðgerðum hefur reynst mjög lítill. Síðast en ekki síst má ekki gera lítið úr lík- amsræktinni, þar hafa íslendingar sýnt góðan lit en það má eflaust fá fleiri til að stunda hana. Allt þetta væri til mikilla bóta.“ Bobbitt ákærður fyrir ofbeldi Los Angeles. The Daily Telegraph. BANDARÍKJAMAÐURINN John Bobbitt hefur verið ákærður fyrir ofbeldi gagnvart unnustu sinni, fá- einum dögum eftir að þau tilkynntu að þau hyggðust gifta sig. Bobbitt komst í heimsfréttimar er fyrrver- andi eiginkona hans, Loreana skar undan honum með eldhúshníf. Bobbitt var handtekinn í Las Vegas með unnustu sinni, Kristinu Elliott, og vini, Todd Biro, eftir slagsmál þremenninganna um helg- ina. Bobbitt hefur áður verið ákærð- ur fyrir að beita Elliott ofbeldi, en hann hitti hana fyrr á árinu er hann ferðaðist um landið til að afla fjár fyrir lögfræðikostnaði sínum. Þau hafa búið saman í Las Vegas, en Bobbitt hyggst hefja þar feril sem grinisti á næturklúbbum. Elliott, sem er hefur starfað sem nektardansmær, sagði lögreglu að þremenningamir hefðu setið að sumbli um helgina og að Bobbitt og Biro hefðu barið hana. Bobbitt sagði hins vegar að hún hefði bitið hann og slegið. Loreana Bobbitt var talin ósak- hæf og var ekki dæmd fyrir að skera undan manni sínum. Det Nedvendige Seminarium I' nanmnrlri■ getur enn tekið inn 3 islenska WaillllVI HU NEMENDUR ÞANN 1. SEPT. 1994 4ra ára alþjóðlegt, nútíma kennaranám, sem veitir réttindi til kennslu í mörg- um skólum og uppeldisstofnunum í Evrópu og þriðja heiminum. Námið er: • 1 ár með alþjóðlegu námsefni, innifalin er 4ra mánaða námsferð til Asíu. • 1 ár námsefni innanlands, innifalin er 6 mán. þátttaka í dönsku atvinnulífi. • 2ja ára fagnám, innifalið er 2x6 mánaða starfsnám í grunnskóla og öðrum skólum innanlands og utan. Eftir útskrift tekur við eins árs vinna í skóla í Afríku. Allir nemendur búa í skólanum. Kynningarfundur um skólann verð- ur haldinn í Reykjavík í lok júlí. Ef þú hefur áhuga, hringdu í síma 90 45 65 91 40 45 eða sendu símbréf 90 45 66 11 50 61. Det Nodvendige Seminarium, DK - 6990 Ulfborg. Ferðir SL með eldri borgurum: Hressari, frískari og umfram allt kátari! { Ásthildur Pétursdóttir fararstjórinn vinsæli: Megin markmið „Kátra daga“, ferða eldri borgara, er að farþegarnir komi heim hressari, frískari og um fram allt kátari en þeir voru fyrir. Þess vegna er dagskráin létt, mikið sungið og dansað, málin rædd í rólegheitum og rómantíkin blómstrar. Kótir dogor - kótt fólk er félagskapur áhugafólks um ferðalög og njóta félagsmenn bestu kjara hjá Samvinnuferðum-Landsýn. Eina skilyrði til þátttöku er að vera orðinn 60 ára. Velkomin í hópinn! Benidorm 6.-27. okt. Benidorm á Hvítu stönd Spánar er draumastaður sóldýrkenda! Gistverðurá hinu stórgóða íbúðahóteli Levante Club. Madeira 17.-31. okt. Madeira er oft nefnd „Aldingarður Atlantshafsins." Þessi nafngift segir allt sem segja þarf um þennan suðræna sælureit. Fararstjóri erÁsthildur Pétursdóttir. Rútuferð um Ítalíu 20. ágúst-4. september. Bráðskemmtileg og fræðandi ferð um hina töfraslungnu Ítalíu. Óviðjafnanleg blanda af náttúrufegurð, sögu, menningu og litríku mannlífi. Vínuppslceruferð til Þýskalands 2.-10 september. Rútuferð um hin fögru vínræktarhéruó Þýskalands og skálað í nýju víni. Fararstjóri er Sigrún Aspelund. „Einu sinni á ágústkvöldi...“ Rómantískt síðsumar á Þingvöllum 11.-12. ágúst. Lífsins notið í þessari perlu íslenskrar náttúru. Gist í Valhöll. Flórída og Karíbahafið 1.-15. október. Ævintýraleg ferð til Flórída ásamt siglingu með stórglæsilegu skemmtiferðaskipi um hið fagra Karíbahaf. Samvlniiiiferðir-Laiiilsi/ii Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 • Simbréf 91 - 2 77 96 / 69 1095* Telex 2241 • HótelSðguviðHagatorg• S.91 -6222 77• Símbréf 91 -62 24 60 Hafnartjörður: Bæiartirauni 14-S. 91 -6511 55• Simbréf91 -655355 Kellavfk: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Símbréf 92-13 490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 93 -1 33 86 • Símbréf 93 -111 95 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Símbréf 96 - 1 10 35 Vestmannaeyjan Vestmannabrauf 38 • S. 98 -1 12 71 - Símbréf 98- 1 27 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.