Morgunblaðið - 10.07.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 19
En satt best að segja á Vatnafang
erfitt uppdráttar. Markaðirnir eru
vissulega fyrir hendi, í Sviss, Svíþjóð,
Frakklandi og víðar. En það þarf að
skila ákveðnu magni á ákveðnum tíma
og ef það gengur ekki upp, þá snúa
kaupendur baki við mönnum svo hratt
að ekki verður deplað auga.
FJÖLSKYLDAN og starfsfólk fyrir utan reykhúsið, f.v. Kristín
Eiríksdóttir, Hjörtur Skúlason, Skúli Hauksson, Elsa Pétursdótt-
ir, Ingibjörg Bergström og Þuríður Hilmarsdóttir.
ekki aukist svo mjög að ég gat
ekki lengur sent út án þess að svíkja
viðskiptavini hér á heimaslóðum.
Það er ekki eitthvað sem borgar sig
að gera. Þvert á móti gerir maður
allt til að gera sem best fyrir við-
skiptavini sína og helst aðeins betur
en það. Það hefur tekið okkur fjölda
ára að ávinna okkur traust fyrir-
tækja sem versla stöðugt við okk-
ur. Þetta er nefnilega harður heim-
ur og ef við klikkum þá einfaldlega
töpum við viðskiptum.
-Samt finnst mér stundum eins
og við séum ein í þessum barningi
og ég vildi óska þess að fleiri sæu
möguleikana á þeirri margþættu
matvælaframleiðslu sem hér um
ræðir. Það er samtakamátturinn
sem myndi duga, einstaklingurinn
má sín lítils,“ segir Skúli.
En þið finnið fyrir meðbyr eða
hvað?
„Já það gerum við. En það er
eins hjá okkur og í öllum öðrum
rekstri, að maður sest ekki niður
og slappar af. Bíður eftir að hlutirn-
ir gerist. Þá er dæmið bara búið
áður en maður veit af.
Asskoti pirraður...
Ef að við vendum okkar kvæði í
kross, þá væri gaman að heyra
hvort að ekki sé það eitthvað sem
heillar sérstaklega við þennan
starfa. Menn hljóta að vera Iöngum
stundum einir með sjálfum sér, úti
á vatni í vitjun?
Það er ekki spurning, þetta er
gífurlega heillandi starf. Veiði-
mennskan er mér í blóð borin og
þetta er alltaf jafn spennandi.
Spurningin hvort að fiskur komi í
þessa trossuna eða hina, að fylgjast
með vatninu og reyna að ráða af
skvettum í fiskinum hvar hann er
hveiju sinni. Þetta eru alls konar
spekúlasjónir. Auðvitað get ég orðið
asskoti pirraður þegar illa veiðist,
en þegar vel gengur og maður er
hraustur, þá er gaman að þessu.
Mjög gaman.“
Eitt virðist þó ljóst, bindingin er
mikil og lítið um frí?
„Ja, ég hlýt að jánka því. Við
byijuðum árið 1980 og fórum í
okkar fyrsta frí í hitteðfyrra. Fórum
þá til Benidorm. Það var alveg
hreint rosalega gaman. Það var um
haust og æxlaðist þannig að marg-
ir ferðaþjónustubændur voru ein-
mitt í sömu ferð. Hópurinn náði vel
saman.
Er þá ekki farið að telja árin þar
til næsta frí kemst á koppinn?
„Það er áreiðanlega fullkomlega
ótímabært að velta um of vöngum
yfir því. Við höfum nýverið fjárfest
mikið í okkar nýju reykaðstöðu.
Næstu árin fara í að borga niður
skuldir vegna þessa og þegar sér
fyrir endann á þeim skuldahala er
tímabært að leyfa huganum að
reika til suðrænna stranda á ný,“
segir Skúli Hauksson veðurbitinn
veiðibóndinn í Utey að lokum.
Vid leigjum
Dodge Dakota ferðabíla.
og Skoda Foreman
J&S BILALEIGA
Sími 884070 kl. 18 - 22
virka daga. Fax 621034
Ný 3|a herbergja íbúð
6.480.000,-
Tll sölu eru fallegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í Grafarvogi.
Allar íbúðir hafa sérinngang, geymslu og þvottaaðstöðu.
Allar íbúðir afhendast tilbúnar til innflutnings.
• Eldhúsinnrétting • Eldavél • Bílastæði og lóð frágengin
• Teppi og dúkar á gólfum • Fataskápar • Hreinlætistæki á baðherbergi
Verð: 3ja herbergja frá 6.480.000,-
4ra herbergja frá 6.980.000,-
Skrifstofan er opin frá 9-18.
Ármannsfell hf.^3E3í
Funahöfða 19
sími 91-873599
COSTA BRAVA BARCELONA
Verð frá kr
43.330
Flug og gistlng.
Innifalið: Flug og gisting í
Athenia Park í Villa Nova Geltrú.
Miðað er við 2 í stúdíó í 1 viku,
brottför alla föstudaga.
Flugvallaskattar ekki innif.
Verð frá kr.
28.950
Flug og bíll.
Innifalið: Flug, bíll í A-flokki í viku.
Miðað er við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára,
Flugvallaskattar ekki innif.
Flug og gisting í Barcelona í viku.
Miðað er við mann í tveggja manna herbergi
Flugvallaskattar ekki innifaldir.
Brottför alla föstudaga í sumar.
Verð frá kr.
000
Ferðaskrifstofa fjölskyldunnar
LUXEMBORG
Verðfrákr
Flug, bíll og hús.
Staðgreiðsluverð miðað við 2 full-
orðna og 2 börn, 2-11 ára. Innifalið:
Flug, bíll í B-flokki, hús í Hostenberg
í júlí/ágúst í 1 viku. Ótakmarkaður
kílómetrafjöldi og flugvallagjöld.
Ferðaskrifstofan Alís,
sími 652266, fax. 651160