Morgunblaðið - 10.07.1994, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 29
_______AFMÆLI_____
BENEDIKT GRÖNDAL
BENEDIKT Gröndal
fv. forsætisráðherra
og formaður Alþýðu-
flokksins varð sjötug-
ur 7. júlí síðastliðinn.
Þessi grein er skrifuð
kvöldið fyrir afmælis-
daginn og kemur því
seint fram af þeim
sökum.
Benedikt Gröndal
var fyrst landskjörinn
þingmaður fyrir Al-
þýðuflokkinn 1956 -
1959 síðan þingmaður
Vesturlands frá 1959
til 1971.
Leiðir hans til framboðs á Vest-
urlandi liggja efalaust í gegnum
frænda hans Hálfdán heitin
Sveinsson fv. varaþingmanns.
Benedikt á marga vini á Vestur-
landi, flokkssystkin og félaga úr
öðrum flokkum, því Benedikt er
sérstakt ljúfmenni sem öllum fellur
í geð, sem honum hafa kynnst,
jafnt flokksmönnum sem og öðr-
um.
Helstu tengiliðir Benedikts á
Vesturlandi voru Hálfdán Sveins-
son og hans börn, Edda, Sveinn
og Hilmar á Akranesi ásamt með
Sveini Guðmundssyni o.fl. Borg-
nesingarnir Ingimundarsynir Grét-
ar og Ingi, Elinbergur Sveinsson í
Ólafsvík ásamt mörgum öðrum
Vestlendingum sem nú senda hug-
heilar afmæliskveðjur á þessum
merku tímamótum, með þökkum
fyrir starf Benedikts á Alþingi ís-
lendinga að framfaramálum á
Vesturlandi sem og landsins alls.
Ævistarf Benedikts er þegar
ákaflega víðfeðmt. Hann hefur
ásamt því að hafa unnið sér sér-
stakan virðingarsess sem stjórn-
málamaður verið blaðamaður og
ritsjóri Alþýðublaðsins á mestu
velgengisárum þess. Einnig hefur
■ KÍNAKL ÚBBUR Unnar
stendur fyrir nýjung í ferðum sínum
til Kína með því að skipuleggja ferð
þangað á haustvörusýninguna í
Guangzhou (Kanton) sem opnuð
verður 15. október. Farið verður
12. okt. og komið aftur 23. okt.
Fyrir utan fimm daga í Guangzhou
verður farið til Hong Kong og Beij-
ing. Áður en Unnur fer í fyrirhug-
aða ferð með verslunarmenn á vöru-
sýninguna fer hún í almenna
skemmti- og fróðleiksferð til Kína
þann 16. sept. en sú ferð varir í
22 daga. Á mánudag 11. júlí kl.
19.30 mun Unnur kynna báðar
ferðirnar' á Kínakvöldi á veitinga-
húsinu Shanghæ, Laugavegi 28.
Sýndar verða myndir frá þeim stöð-
um sem farið verður til og auk
þess borinn fram kínverskur matur.
Borðapantanir eru hjá Shanghæ og
er verðið 990 kr.
hann sem rithöfundur
skrifað merk ritverk,
t.d. Bandaríkin 1954,
íslensk bygging.
Brautryðj andastarf
Guðjóns Samúelssonar
1957, íslenskt sam-
vinnustarf 1959, Kjör-
dæmamálið 1959,
Stormar og stríð. Um
ísland og hlutleysið
1963, svo nokkuð sé
nefnt. Ritstjóri Vor-
aldar, Samvinnunnar
og Alþýðublaðsins eins
og áður kom fram.
Benedikt vann í fjöl-
mörgum nefndum á vegum Alþing-
is, m.a. Þingmannasamtökum Atl-
antshafsbandalagsins þar sem
hann var mjög virtur, í útvarps-
ráði, endurskoðunarnefnd um
vegalög, í nefnd til að endurskoða
lög um veitingasölu og gistihúsa-
hald, í nefnd til að semja fuamvarp
um landgræðslu, endurskoðunar-
nefnd hafnarlaga, í nefnd um til-
högun friðunar Þingvalla, í stjórn
Framkvæmdastofnunar ríkisins, í
nefnd um nýtingu útvarps og sjón-
varps, svo nokkuð sé nefnt af þeim
fjölmörgu málefnum sem Benedikt
vann að á löngum þingferli sem
þingmaður Vesturlands.
Benedikt er menntaður sagn-
fræðingur, hann stundaði það nám
við háskólana í Harvard og síðar
í Oxford á árunum 1943 - 1947.
Stjórnmálaferill Benedikts og
ýmislegt sem tengist Alþýðu-
flokknum verður ekki rakið hér
frekar það er öðrum eftirlátið.
Manneksjan, ljúfmennið og félag-
inn Benedikt er ofarlega í hugum
þeirra sem kynntust honum best
hér á Vesturlandi. Heidi, konu
Benedikts, og fjölskyldu þeirra eru
einnig sendar kveðjur á þessum
merku tímamótum.
Óskir okkar Vestlendinga eru
að þið fáið sem best notið lífsins
að loknum stormasömum erli
stjórnmála, við listir og ýmis hugð-
arefni sem við vitum að ykkur eru
hugleikin og eigið þið góða ferð
um Skotland þessa daga.
F.h. jafnaðarmanna á
Vesturlandi, Gísli S. Einars-
son þingmaður Alþýðu-
flokksins á Vesturlandi.
GDAHJSARAGŒ)UVEDI
1
ilÍ 4
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
Skrifar þú næstu verðlaunabók?
Verðlaunasjóður íslenskra barna-
bóka efnir nú í tíunda sinn til sam-
keppni um verðlaunabók ársins.
Verðlaunin verða afhent vorið 1995
og mun bókin koma út hjá Vöku-
Iielgafelli á sama tíma. Frestur til
að skila inn bandritum er til
15. október 1994.
Islensku barnabókaverðlaunin
nema 200.000 krónum auk þess sem
höfundur verðlaunabókarinnar fær
greidd höfundarlaun fyrir verkið sam-
kvæmt samningi Rithöfundasambands
lslands og Félags íslenskra bóka-
útgefenda. Dómnefnd mun velja verð-
launasöguna úr þeim handritum sem
berast. Ekki eru sett nein mörk varð-
andi lengd sagnanna en leitað er að
textabók sem hæfir börnum og
unglingum.
Aukaverðlaun í tilefni af afmæli Verðlaunasjóðsins:
Myndskreytt saga verðlaunuð!
í tilefni af 10 ára afmæli Verðlauna-
sjóðs íslenskra barnabóka hefur verið
ákveðið að verðlauna einnig á næsta
ári myndskreytta barnasögu eða
myndabók fyrir börn. Handriti skal
skilað ásamt skissum af myndskreyting-
um og sýnishorni af fullunninni mynd.
Miða skal við að bókin verði 32 síður og
brotið ekki stærra en 21 x 29 sm. Efnið
skal hæfa börnum á aldrinum 2-7 ára.
Skilafrestur er til 1. desember 1994.
Verðlaunin fyrir bestu mynd-
skreyttu söguna að mati dómnefndar
eru 200.000 krónur auk þess sem höf-
undur verðlaunabókarinnar fær greidd
höfundarlaun fyrir verkið samkvæmt
samningi Rithöfundasambands Islands
og Félags íslenskra bókaútgefenda.
Bókin verður gefin út hjá Vöku-
Ilelgafelli haustið 1995.
Við livetjum jafnt reynda sem óreynda höfunda til þess að spreyta
sig á því að búa til góðar bækur fyrir íslensk börn og ungbnga og
taka þátt í samkeppninni um verðlaunabækur ársins 1995.
Sögurnar skulu merktar dubiefni en rétt nafn höfundar eða fylgi
í lokuðu mnslagi. Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá
Kristni Arnarsyni í síma (91) 688 300.
Utanáskriftin er:
Verðlamiasjóður íslenskra barnabóka
Vaka-Helgafell
Síðumúla 6
108 Reykjavík
Ódýrt
þakjárn
Ódýrt þakjárn og
vegg klæðning.
I Framleiðum þakjárn
og fallegar vegg-
I klæðningar á hag-
stæðu verði. Galvanis-
erað, rautt og hvítt.
TIMBURog
STÁL hf.,
Smiðjuvegi 11,
200 Kópavogi.
símar 45544 og
I 42740, fax 45607.
„Hvaða árásir?! ... Ég er úlfur ... það er það sem ég geri!"
istributed by Universal Press Syndicate