Morgunblaðið - 07.08.1994, Side 2
2 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Raufarhöfn
Hólmfríður
Guðmunds-
dóttir
ára
HÓLMFRÍÐUR
Þuríður Guð-
mundsdóttir,
sem búsett er á
Raufarhöfn,
verður hundrað
ára gömul á
morgun, 8. ág-
úst. Hún verður
þannig 26. núlifandi íslendingurinn
sem nær hundrað ára aldri. Sam-
kvæmt upplýsingum Hagstofunnar
hafa 18 konur og 7 karlar þegar
náð þeim aldri.
Hólmfríður er fædd að Brekkna-
koti í Þistilfirði en giftist Magnúsi
Stefánssyni frá Skinnalóni (1889-
1963) á Melrakkasléttu árið 1913.
Þau tóku við búinu að Skinnalóni
og stýrðu því fram til um 1940
þegar þau fluttu á Raufarhöfn.
Magnús tók þátt í uppbyggingu
síldarverksmiðja á staðnum og
bæði unnu þau í síldarsöltun. Hjón-
unum varð sex barna auðið en þrjú
þeirra eru látin. Afkomendur Hólm-
fríðar og Magnúsar ná fram í
fimmta ættlið og alls geta um 130
manns rakið ættir sínar til þeirra.
Afmælisboð verður haldið Hólm-
fríði til heiðurs í félagsheimilinu á
Raufarhöfn á morgun eftir kl. 16.
Morgunblaðið/Guðbjartur Ástþórsson
Giftu sig
undir
Fjallkletti
ÞAU Heiðrún Halla Jónasdóttir
og Sigmar Gíslason fóru ekki
troðnar slóðir þegar þau ákváðu
að láta gefa sig saman á Ólafs-
vík í fyrradag. Þau stigu um
borð í trillu, ásamt prestinum
og svaramönnum, síðan var siglt
út undir Fjallklett og þar fór
athöfnin fram. Vinir brúðhjón-
anna fylgdust með athöfninni
úr öðrum bát. „Það var engin
sérstök ástæða fyrir þessu, okk-
ur langaði bara að hafa brúð-
kaupið óvenjulegt,“ sagði brúð-
guminn í samtali við Morgun-
blaðið í fyrradag. Á myndinni
eru þau Heiðrún Halla og Sig-
mar nýgift og komin í land,
ásamt prestinum, séra Friðrik
j. Hjartar, og svaramönnunum
Arndísi Þórðardóttur og Sigur-
jóni Eðvarðssyni.
-----♦ «----
Nordisk forum
lauk í gærkveldi
NORDISK forum, sem haldið hefur
verið undanfama daga í Turku í
Finnlandi lauk í gærkveldi, laugar-
dagsskvöld. íslenzkar konur, sem
sótt hafa þessa kvennahátíð eru því
á leið heim og koma flestar í dag.
FRÉTTIR
65 ára aldursmunur á félögum í Svifflugfélagi Islands
Skyldi aldur
vera af-
stæður í
háloftunum?
ALDUR virðist vera lítil hindr-
un í svifflugi. I það minnsta er
breiddin hjá Svifflugfélagi ís-
lands veruleg. Elsti virki flug-
kappinn í herbúðum félagsins,
Sigurður H. Ólafsson, verður
áttræður á þriðjudag í næstu
viku en sá yngsti, María Hilm-
arsdóttir, er einungis fimmtán
ára.
Sigurður hefur svifið um loft-
in blá í meira en hálfa öld og
var meðal annars einn af stofn-
endum Svifflugfélags íslands
árið 1936. Hann hefur að sjálf-
sögðu í hyggju að fagna árunum
áttatíu í háloftunum. Sigurður
flýgur reglulega frá Sandskeiði
og er engan bilbug á honum að
finna.
María flaug sitt fyrsta einflug
á dögunum enda 15 ára lág-
marksaldur til að mega fljúga
einn síns liðs. Flugið hefur átt
hug hennar og hjarta frá blautu
barnsbeini og hefur hún ótrauð
sett stefnuna á að starfa sem
atvinnuflugmaður í framtíðinni.
María á ekki langt að sækja
flugáhugann því afi hennar,
Björn Jónsson, var einn af stofn-
endum Svifflugfélags íslands
ásamt Sigurði H. Ólafssyni.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Ríkisstjórnin vill efla matvælaiðnað í Eyjafirði
Verkmenntun í mat-
vælagreinum verði efld
Fjögur ráðuneyti leggja fram fé til undirbúnings
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í fyrrakvöld að fela Há-
skólanum á Akureyri að gera tillögur um það með hvaða hætti megi
mæta þörfum matvælaiðnaðarins á Eyjafjarðarsvæðinu fyrir menntað
vinnuafl. Ætlunin er að efla verkmenntun í matvælagreinum við HA
og aðrar menntastofnanir, til dæmis Verkmenntaskólann á Akureyri
og sjávarútvegsbraut hans á Dalvík. Þá á að hefja skipulagt samstarf
HA við rannsóknastofnanir um matvælarannsóknir í upphafi næsta
árs og efla samstarf menntastofnana, annarra opinberra stofnana og
matvælafyrirtækja. Ráðuneyti menntamála, landbúnaðar, iðnaðar og
sjávarútvegs munu leggja fram fé vegna undirbúningsvinnu.
BYKO sel-
ur Rúss-
um fisk
Byggingavöruverslunin BYKO
hefur keypt físk af Vinnslustöðinni
í Vestmannaeyjum og selt Rúss-
um. Stefán Eiríksson hjá BYKO
segir að hér sé á ferð tilraunastarf-
semi með kaup og sölu á vöru.
Um er að ræða 146 tonn af heilum
úthafskarfa og 3 tonn af gulllaxi
sem þegar hefur verið skipað út í
rússneska flutningaskipið Senite.
„Þetta eru einfaldlega innlend
vörukaup sem við seljum síðan til
Rússiands,“ segir Stefán. Hann
segir BYKO eingöngu vera að
svara eftirspum sem beint hafi
verið til fyrirtækisins. Að sögn
Stefáns er óvíst hvort framhald
verði á fisksölu fyrirtækisins aust-
ur um haf. Hann útilokar þó ekk-
ert í þeim efnum.
Matvælaiðnaður er öflugur á
Eyjafjarðarsvæðinu og er áætlað
að ársvelta hans sé um 14,2 millj-
arðar króna, þar af 10,5 milljarðar
í sjávarútvegi, þrír milljarðar í
landbúnaði og um 700 milljónir í
brauðgerð og framleiðslu kaffís,
bjórs og súkkulaðis.
Geta mætt fyrir menntun
í matvælaiðnaði
Á Akureyri eru jafnframt ýmsar
menntastofnanir, sem talið er að
geti mætt þörf fyrir verkmenntun
í matvælaiðnaði, en hún er nú tak-
mörkuð og þjálfun starfsfólks
einkum í höndum fyrirtækjanna
sjálfra, að því er fram kemur í
minnisblaði, sem lagt var fram á
ríkisstjómarfundinum í fyrradag.
í Verkmenntaskólanum er
sagður vera vilji til að fara inn á
matvælasviðið, auk þess sem sjáv-
arútvegsbrautin á Dalvík starfar
undir stjóm hans. Þróun og rann-
sóknir hafa verið í vexti við Há-
skólann á Akureyri og hefur hann
verið í samstarfi við rannsókna-
stofnanir fiskiðnaðar, landbúnaðar
og iðnaðar, auk Hafrannsókna-
stofnunar. Ákveðið hefur verið að
stofna við háskólann stöðu í mat-
vælarannsóknum á vegum Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins í
upphafi næsta árs.
Kjörskilyrði til eflingar
matvælaiðnaðar
„Á Akureyri er sterk iðnaðar-
hefð, góðar menntastofnanir og
sterk rannsóknahefð. Við teljum
því að þar séu kjörskilyrði til að
efla og bæta menntun í matvæla-
greinum og þar með stöðu mat-
vælaiðnaðarins,“ sagði Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra, sem
mælti fyrir tillögunum í ríkis-
stjórn. Halldór lagði áherzlu á að
í samþykkt ríkisstjórnarínnar væri
til þess tekið hvernig menntastofn-
anir, rannsóknastofnanir og einka-
fyrirtæki gætu unnið saman til
þess að efla matvælafyrirtækin og
efla samkeppnisstöðu þeirra á al-
þjóðlegum markaði. Nú þegar
væra starfsmenn rannsóknastofn-
ana atvinnuveganna við störf á
Akureyri vegna fjölmargra þróun-
arverkefna á vegum einkaaðila.
Leitað yrði eftir fé til þessa átaks
hjá fyrirtækjum og stofnunum á
Eyjafjarðarsvæðinu, auk þess sem
ráðuneyti leggja fram fé.
Halldór sagði að undirbúnings-
vinna á vegum Háskólans á Akur-
eyri þyrfti ekki að verða dýr. Hug-
myndin væri að ráðuneytin fjögur
stæðu straum af henni innan nú-
verandi fjárlagaheimilda sinna og
ekki kæmi til nýrra íjárveitinga
vegna þessa verkefnis.
70 kíló á einu ári
►Sveinn Sveinsson, læknir í Sví-
þjóð, segir frá áhrifamikilli skurð-
aðgerð á maga, sem hjálpar offitu-
sjúklingum til þess að iéttast niður
í kjörþyngd sína./lO
Herförtil Haítí?
►Reynist Bill Clinton ekki tilbúinn
til að standa við hótanir sínar veik-
ir hann stöðu sína og skaðar lang-
tímahagsmuni Bandaríkjanna./12
Stríðsárasafn á Reyð-
arfirði
►Reyðfírðingar ætla að ráðast í
byggingu stríðsárasafns í gamla
kampinum fyrir ofan bæinn, en
gert er ráð fyrir að safnið opni
næsta sumar./14
Hulunni svipt af yfir-
borði Mars
►Á næsta áratug mun þekking
okkar á reikistjörnunni Mars auk-
ast stórum. íslendingurinn Harald-
ur P. Gunnlaugsson starfar við
rannsóknir á yfirborði Mars og
segir hér frá framvindu mála í
þeim efnum./16
Betra seint en aldrei
►Rætt við Árna Benedikt Árna-
son framkvæmdastjóra Jarðefna-
iðnaðarins h.f. um vaxandi vikur-
útflutning./18
B
► l-24
Fjársjóður íslands
►Jónas Kristjánsson er að láta
af störfum forstöðumanns Hand-
ritastofnunar íslands eftir sam-
fýlgd með handritunum og hand-
ritamálinu íþtjááratugi. Isam-
tali á þessum tímamótum segir
hann handritin það dýrmætasta
sem við Islendingar eigum og hann
hafi alltaf jafn mikla ánægju af
að sýna þennan fjársjóð og kynna
hann úti í heimi./l
Hugsjónir í Hollywood
►Einn atkvæðamesti kvikmynda-
framleiðandi Hollywood, Jordan
Kerner, í heimsókn á íslandi./6
Hættulausir hákarlar
►Forvitnin, það að læra og kynn-
ast einhvetju nýju, er okkur í blóð
borin, og sjálfsagt jafn rík ástæða
þess að jafnmargir kjósa að leggj-
ast í ferðalög og raun ber vitni,
eins og hin; að öðlast tilbreytingu
frá dagsins amstri og hvílast um
leið. Hér birtum við ferðasögu frá
Cancun í Mexíkó./12
C BÍLAR
► 1-4
Ný lína f rá Ford
►Nýr og breyttur Ford Fiesta lít-
ur dagsins ljós í byijun næsta árs.
/1
íslendingar eins og
David Attenborough
með mismunadrifi
► Mikið hefur verið skrifað í erlend
bílablöð um jeppamennsku á ís-
landi. Vinsælt hefur verið að gera
bílaauglýsingar f íslenskri náttúru
og hingað hafa blaðamenn komið
til að reynsluaka bílum./2
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Velvakandi 34
Leiðari 22 Fólk i fréttum 36
Helgispjall 22 Bió/dans 37
Reykjavíkurbréf 22 íþróttir 40
Minningar 26 Útvarp/sjónvarp 41
Myndasögur 32 Dagbók/vcður 42
Brids 32 Mannlífsstr. 8b
Stjömuspá 32 Kvikmyndir lOb
Skák 32 Dægurtónlist llb
Bréf til blaðsins 32
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR-
1-4