Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/HÁSKÓLABIO OG BORGARBÍÓ á Akureyri hafa tekið til sýninga bresku
gamanmyndina Four Weddings and A Funeral, en myndin er sú vinsælasta sem Bretar hafa
gert til þessa. Aðalhlutverkin leika Hugh Grant og bandaríska leikkonan Andie McDowell.
Krókaleið í
hnapphelduna
BRESKA gamanmyndin Four Weddings
and A Funeral, eða Fjögur brúðkaup og
jarðarför, er vinsælasta kvikmynd sem
Bretar hafa gert frá upphafi og meðal
vinsælustu mynda þessa árs víða um
heim. Hún hefur hvai-vetna notið met-
aðsóknar þar sem hún hefur verið sýnd,
og í Bandaríkjunum skaust hún um skeið
í fyrsta sæti á lista yfir mest sóttu mynd-
irnar og hefur hún skilað þar rúmlega
50 milljónum dollara í kassann. Leikstjóri
myndarinnar er Mike Newell sem þekkt-
astur er fyrir myndirnar Into the West
og Enchanted April. Höfundur handritsins
er Richard Grant sem skrifaði handritin
að Blackadder seríunni og Mr. Bean, en
Rowan Atkinsson sem gert hefur Mr.
Bean ódauðlegan kemur fram í aukahlut-
verki í myndinni. Aðalhlutverkin eru hins
vegar í höndum þeirra Hugh Grant og
Andie McDowell, en einnig fara þau Krist-
in Scott Thomas og Simon Callow með
hlutverk í myndinni. Tónlistin úr mynd-
inni hefur einnig notið mikilla vinsælda
og má þar nefna lögin Love Is All Aro-
und Me með Wet Wet Wet og Chapel of
Love með Elton John.
Spenna
VINIR og vandamenn Charles bíða með öndina í hálsinum í brúðkaupi hans
þegar presturinn vill að hann fari með hjúskaparheitið.
Sögusviðið í Fjórum brúð-
kaupum og jarðarför er
einmitt eins og titillinn segir;
fjögur brúðkaup og jarðar-
för. Þetta er saga átta vina,
fimm presta, ellefu brúðar-
kjóla, sextán tengdaforeidra,
tvö þúsund kampavínsglasa
og tveggja mannvera sem
tilheyra hvort öðru en streyt-
ast við að vera aðskilin. Þetta
er þó fyrst og fremst saga
hins hnyttna og heillandi
Charles, sem 32 ára gamall
er farinn að bera öll helstu
einkenni ævarandi pipar-
sveins. í lífi hans hefur ekki
verið neinn skortur á kær-
ustum sem hann tilbiður, en
honum hefur hins vegar
reynst ómögulegt að stofna
til varanlegs sambands með
neinni þeirra. Hann er svo
úr tenglsum við það sem
hjarta hans býður og svo
fjötraður af enskum eigin-
leikum sínum að hann á lífs-
ins ómögulegt með að tjá
raunverulegar tilfinningar
sinar. Og því fleiri brúðkauj)
sem hann og vinir hans fará
í þeim mun síður vilja þeir
ganga í hnapphelduna sjálfir.
Eða allt þar til í einu tilteknu
brúðkaupi í tiltekinni kirkju
þar sem Charles kemur auga
á Carrie, sem er óvenjuleg-
asta, fallegasta og greind-
asta ameríska stúlkan sem
hann hefur nokkru sinni
komist í kynni við. Hann
reynir allt hvað hann getur
til að forðast að reyna við
hana og verða ástfanginn af
henni, eða alls í gegnum þrjú
brúðkaup til viðbótar, en svo
óheppilega vill til að eitt
þeirra er hennar eigið. En
að lokum stendur hann
frammi fyrir sínu eigin brúð-
kaupi í enskri dómkirkju og
honum verður loks að fullu
Ijóst með hveijum hann vill
eyða ævidögunum. Og það
er ekki konan sem stendur
honum við hlið í hvítu brúðar-
skartinu.
Hrífandi handrit
Höfundur handritsins að
Four Weddings and A Funer-
al er Richard Curtis, sem er
einhver hæfileikaríkasti grín-
höfundur sinnar kynslóðar í
Bretlandi. Sjálft handritið
var nokkur ár í smíðum hjá
honum og undir það síðasta
eyddi hann mörgum mánuð-
um í að finpússa það og
skerpa persónurnar, en alls
umskrifaði hann handritið 20
sinnum til að ná fram hveiju
einstöku smáatriði sem hann
sóttist eftir.
Leikstjóri myndarinnar er
Mike Newell sem áður hefur
leikstýrt nokkrum myndum
sem unnið hafa til margvís-
Presturinn
ROWAN Atkinsson sem þekktastur er sem Mr. Bean
fer með hiutverk prests sem í myndinni framkvæm-
ir sína fyrstu hjónavígslu.
legra verðlauna, en þeirra á
meðal eru myndirnar Dance
With A Stranger, The Good
Father, Soursweet og Enc-
hanted April, en leikkonurn-
ar sem fóru með aðalhlut-
verkin í þeirri mynd, Miranda
Richardson og Joan Plowr-
ight, hrepptu Golden Globe
verðlaunin, og sjálf var
myndin tilnefnd til þrennra
óskarsverðlauna.. Hann
heillaðist samstundis af
handriti Curtis. „Maður verð-
ur oftast nær fljótt sam-
dauna gríni, en þetta handrit
vakti óstöðvandi hlátur hjá
mér við fyrsta lestur, og aft-
ur við annan og síðan við
þriðja. Það er harla óvenju-
legt að eitthvað sé jafn fynd-
ið og þetta og satt að segja
var einn helsti galli handrits-
ins sá að það var einfaldlega
of fyndið. En jafnvægið náð-
ist eftir að Curtis hafði slípað
það til og gætt það meiri til-
finningalegum blæbrigðum."
Framleiðandi myndarinn-
ar er Duncan Kenworthy,
Þekkt andlit
Allmörgum þekktum
leikurum bregður fyrir í
Four Weddings and A
Funeral, og fyrir utan
Andie McDowell
sem flestum er
orðin vel kunn
fyrir löngu
má til
dæmis
nefna
Kristin
Scott
Thomas.
Hún hefur
Skærasta stjarna Breta
HUGH Grant hefur
heillað áhorfendur
upp úr skónum og
er hann nú ein
skærasta kvik-
myndastjarna
Breta.
sem tók sér leyfi frá starfi
sínu sem einn aðalforstjóri
framleiðsludeildar Jim Hen-
son Productions. Eins og
fleiri hreifst hann af handriti
Curtis um 'eið og hann las
það og bauðst hann strax til
að aðstoða við að fullklára
það. Eftir sex mánaða starf
með þeim Curtis og Newell
varð síðan ekki aftur snúið
og ákvað hann að taka fram-
leiðslu myndarinnar að sér.
Fjármögnun framleiðslunnar
reyndist hins vegar nokkuð
erfið og því þurfti að vinna
hratt við kvikmyndagerðina,
en tökur hennar fóru fram á
aðeins 39 dögum síðastliðið
sumar í æði misjöfnu veðri
leikið á sviði og í fjölda sjón-
varpsmynda, en fyrsta kvik-
myndahlutverk hennar var í
Under The Cherry Moon árið
1986. Síðan kom A Handful
Of Dust 1987 og Bitter Moon
1991, en einnig hefur hún
leikið í nokkrum myndum á
meginlandi Evrópu. Simon
Callow er einnig í veigamiklu
hlutverki en hann hefur t.d.
leikstýrt The Ballad Of The
Sad Café með Vanessu
Redgrave í aðalhlutverki, og
sjálfur hefur hann t.d. leikið
í Amadeus, A Room With A
Wiew, Maurice, Manifesto og
Postcards
From The
Edge.
HUGH Grant er vafalaust ein skærasta breska kvikmynda-
stjarnan í dag, en vinsældir hans í Bandaríkjunum til
dæmis hafa verið þvílíkar upp á síðkastið að þar hefur
honum einna helst verið líkt við hjartaknúsarann Gary
Grant þegar hann var upp á sitt besta á árum áður. Þá
hefur Grant einnig slegið rækilega í gegn í Japan þar sem
áhorfendur þyrpast á myndir hans. Það er einkum hið róm-
antíska breska útlit leikarans og BBC hreimurinn í rödd-
inni sem hefur brætt hjörtu kvenþjóðarinnar. Sjálfur segist
hann ekkert hafa neitt sérstaklega á móti því að verða
einhverskonar kyntákn í augum áhorfenda, en hins vegar
geti það virkað nokkuð takmarkandi hvað kvikmyndahlut-
verk varðar ef hann festist í einhverri slíkri rullu.
Hugh Grant vakti fyrst
athygli þegar hann lið-
lega tvítugur var í enskun-
ámi við Oxfordháskóla, en
þá lék hann í kvikmyndinni
Priviliged. Hann öðlaðist þó
ekki verulega frægð fyrr en
árið 1987 er hann lék í mynd-
inni Maurice sem þeir félagar
Merchant og Ivory gerðu eft-
ir sögu E.M. Forster um
ungan mann sem horfist í
augu við kynhverfu sína.
Þetta varð til þess að kvik-
myndahlutverkin komu til
Grants á færibandi og meðal
mynda sem hann lék í voru
The Dawning þar sem hann
lék á móti Anthony Hopkins,
The Liar of the White Worm
sem Ken Russel gerði og The
Big Man, en í henni lék hann
á móti Joanne Whailey-Kil-
mer.
Árið 1991 valdi Roman
Polanski Hugh Grant til að
fara með hlutverk í myndinni
Bitter Moon, en í henni lék
hann bældan eiginmann
Kristin Scott Thomas, sem
fer með nokkuð stórt hlut-
verk í Four Weddings and a
Funeral. Á síðasta ári starf-
aði Hugh Grant svo á nýjan
leik með James Ivory, en
hann’fór með hlutverk blaða-
manns í The Remains of the
Day sem gerð var eftir sögu
Kazuo Ishiguro og Anthony
Hopkisn og Emma Thomp-
son fóru með aðalhlutverkin
í. Þá lék hann einnig í mynd-
inni Sirens sem ástralski
leikstjórinn John Duigan
gerði, en sú mynd var frum-
sýnd á þessu ári, og í henni
Ieikur hann prest sem verður
að horfast í augu við bældar
tilfinningar sínar. Báðar síð-
asttöldu myndimar eru sýnd-
ar í kvikmyndahúsum í
Reykjavík.
Ennþá laus og liðugur
í einkalífinu svipar ýmsu
hjá Hugh Grant til þess sem
er hjá aðalpersónunni í Four
Weddings and a Funeral, en
leikarinn sem er 33 ára gam-
all er enn laus og liðugur.
Hann hefur hins vegar í ára-
raðir átt í nokkuð storma-
sömu sambandi við ensku
leikkonuna Elizabeth Hurley
sem nú er búsett í Los Angel-
es, og segir Grant samband
þeirra reyndar vera með
mestu ágætum nú þegar þau
búa sitt í hvorri heimsálf-
unni. Hann neitar því hins
vegar ekki að spurningin um
hjónaband hafi leitað á huga
hans upp á síðkastið, en þrátt
fyrir skyldleika við persón-
una sem hann leikur í mynd-
inni neitar hann að um beina
samsvörun milli þeirra sé að
ræða. „Kristin Scott Thomas
segir hins vegar að þarna sé
verið að lýsa mér og ég skuli
drífa mig í að gifta mig.
Vissulega er samsvörun til
staðar á þann hátt að ég er
ógiftur og líf mitt er í svolít-
illi óreiðu, en persónunni svip-
ar hins vegar miklu meira til
handritshöfundarins Richard
Curtis vegna þess að hann
er viðkunnanlegur og opinn,
en ég er ekki nálægt því eins
viðkunnanlegur og hann,“
segir Hugh Grant.